Þjóðviljinn - 23.06.1976, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 23. júni 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
DÝRALÍF
— Nei, skeiðvöllurinn er I hinni áttinni.
— Komdu þér út úr búrinu, ræfillinn þinn.
— Það er synd hvað hann þjáist af gigt.
Hafrannsóknar-
stofnunin:
Vorleiðangri
lokið
Siðan 1952 hefur Hafrannsókna-
stofnunin kannað almennt ástand
sjávar hér við land að vorlagi.
Upphaflega voru slikir vorleið-
angrar farnir i þann mund er
sildveiðar hófust norðanlands, en
þótt þær hafi lagst niður vegna
hvarfs norsk-islenska sildar-
stofnsins, hefur þótt ástæða til að
halda þessum athugunum áfram.
Einum slikum vorleiðangri er
nú lokið á rannsóknaskipinu
„Bjarna Sæmundssyni”. Athug-
anir voru gerðar á rúmlega 130
stöðvum i hafinu umhverfis
Island frá 25. mái — 16. júni og
beindust aðallega að hita sjávar,
seltu og straumum, magni og
dreifingu næringarefna, plöntu-
svifi, dýrasvifi og fiski.
Athuganir leiðangursmanna
sýndu m.a. eftirfarandi: ís var
almennt mjög langt frá landi, og
var isbrúnin nú um 90 sjómilur
frá Horni en var i fyrra um 14 sjó-
milur frá Horni um sama leyti og
teygði sig þá inn i utanverðan
Húnaflóa. Þessa miklu fjarlægð
issins nú má m.a. rekja til lang-
vinnar austanáttar norðan
tslands undanfarnar vikur.
Selta sjávar var yfirleitt tiltölu-
lega lág, og virðast áhrif Atlants-
sjávar við ísland hafa verið með
minna móti. Aberandi var, hve
sjór norðan Islands var seltulftill.
Vegna almennt hlýrrar
veðráttu undanfarnar vikur var
hiti i yfirborðslögum sjávar þó
nálægt meðallagi áranna 1950-60,
og sums staöar jafnvel yfir
meðallagi. Þessi heiti yfirborðs-
sjór náði þó aöeins niöur á 10-20
metra dýpi, og nær upphitun
sjávarins nú styttra niöur en
venjulegt er. Hin svokallaða
kalda tunga 1 hafinu milli Islands
og Jan Mayen virtist liggja
norðar en undanfarin ár.
Athuganir á næringarefnum,
súrefni og plöntugróðri sýndu
m.a. að vestur af landinu er mjög
næringarrikur sjór, sem teygir
sig austur með norðurströndinni.
I þessum sjó er mikill þörunga-
gróöur. Undan Austurlandi hafa
plöntur sjávarins hins vegar að
mestu urið upp næringarefnin og
er hámark plöntugróðursins þar
liðiö hjá.
Rauðátumagn má almennt
telja nálægt meöallagi og sums
staðar nokkru meira en á sarna
tima i fyrra, sérstaklega undan
suðurströnd landsins. Atuhámörk
voru auk þessút af Breiöafirði og
eins i kalda sjónum djúpt undan
norðaustanlandi. Vestanlands og
norðan var aðallega um uppvax-
andi rauðátu að ræða, og vegna
hinna hagstæðu gróðurskilyröa á
vestursvæðinu, sem fyrr er getið,
má búast viö auknu rauðátu-
magni á þessum svæðum.
Leiðangurstjóri I þessum
leiöangri var Ingvar Hall-
grimsson fiskifræöingur.
Skrúðgarða-
bókin komin
Þessa daga er að koma i versl-
anir önnur útgáfa Skrúðgarða-
bókarinnar, en óhætt er að segja
að margir garðeigendur hafi
beðið eftir henni með óþreyju.
Bókin er mjög aukin og endur-
bætt. Gætir þar stækkunar á
öllum köflum, en þó lang mest á
kaflanum um fjölærar jurtir, sem
i sjálfu sér er algjör nýsmiði.
Þetta gildir einnig um gras-
flötina. Einnig er alveg nýr kafli
um heimilisgróðurhús og ræktun i
þeim.
Skrúðgarðabókin er fyrst og
fremst samin fyrir byrjendur á
sviði garðræktar, en þess er að
vænta að allir lengra komnir
garðunnendur geti einnig haft not
fyrir hana. Skrúðgarðabókin fæst
hjá Garðyrkjufélagi tslands og i
bókabúðum.
(Fréttatilkynning frá Garðyrkju-
félagi Islands)
#s|ónvarp |
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40. A Suöurslóð. Breskur
framhaldsmyndaflokkur
byggöur á sögu eftir Wini-
fredHoltby. 11. þáttur. Eng-
inn veit sina ævina..Svo
virðist sem jólahaldiö ætli
aö veröa fátæklegt hjá
Holly-fjölskyldunni, en þá
kemur Huggins færandi
hendi. Tengdamóðir
Mitchells kemur I heimsókn
og tekur dóttur sina heim
meö sér. Carne óðalsbóndi
er ekki heill heilsu, og gamli
verkstjórinn hans, Castle,
liggur fyrir dauðanum.
Huggins reynir að fá Carne
til að styðja „Fenja-áætlun-
ina”, en Carne rekur hann á
dyr. Holly hefur loks tekist
að ná I frú Brimsley, og allt
bendir til, að Lydia komist
aftur i skólann. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
Helmuth Froschauer
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Mynd-
in af Dorian Gray” eftir Os-
car Wilde Valdimar Lárus-
son les þýðingu Sigurðar
Einarssonar (19).
15.00 Miödegistónieikar
Augustin Anievas leikur á
pianó Tilbrigði og fúgu op.
24 eftir Brahms um stef eftir
Handel. Alfred Prinz og Fil-
harmoniusveit Vinarborgar
leika Klarinettukonsert
(K622) eftir Mozart, Karl
Munchinger stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregíiir).
16.20 Tónleikar
17.00 Lagið mitt Anne-Marie
Markan kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
17.30 „Eitthvaö til að lifa fyr-
ir” eftir Victor E. Frankl
Hólmfriður Gunnarsdóttir
les þýðingu sina á bók eftir
austurriskan geðlækni (7).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
21.30 Heimsstyrjöldin siðari.
Sprengjan. 1 ágústmánuði-
1945 var kjamorkusprengj-
um varpaö á tvær japansk-
ar borgir, Hiroshima og
Nagasaki, og þá gáfust Jap-
anir upp. Þýöandi og þulur
Jdn O. Edwaid.
22.25 Dagskrárlok.
útvarp
7.00 Morgunútvarp Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30,8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigrún Valbergsdóttir
heldur áfram sögunni
„Leynigarðinum ” eftir
Francis Hodgson Burnett
(3). Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög milli atriöa. Kirkju-
tónlist kl. 10.25: Jóhannes
Ernst Köhler leikur á orgel
verk eftir Bach og sjálfan
sig. Morguntónleikar kl.
11.00: Sinfóniuhljómsveitin I
Hartford leikur tvær
ballettsvitur nr. 1 og 2 eftir
Christoph Willibald Gluck,
Fritz Mahler stjórn-
ar/Felicja Blumenthal og
Kammersveitin I Vinarborg
leika Píanókonsert I a-molí
op. 214 eftir Carl Czerny,
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá-
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 islensk plöntunöfn Stein-
dór Steindórsson fyrrum
skólameistari flytur erindi.
20.00 Einsöngur: Magnús
Jónsson syngur lög eftir
Skúla Halldórsson
Höfundurinn leikur undir á
pianó.
20.20 Sumarvaka a. „Heim-
þrá”, saga eftir Þorgils
gjailanda. Kristján
Halldórsson i Saurbæ,
Skeggjastaðahreppi, segir
söguna utanbókar. b. Kveð-
ið I grlni Valborg Bentsdótt-
ir fer með léttar stökur. c.
Um eyðibýli Agúst Vigfús-
son les stutta frásöguþætti
eftir Jóhannes Asgeirsson.
d. Kórsöngur Karlakór
Reykjavikur syngur lög eft-
ir Sigvalda Kaldalóns.
Söngstjóri: Páll P. Pálsson.
21.30 tJtvarpssagan: „Siðasta
freistingin” eftir Nikos
Kazantzakis Sigurður A.
Magnússon les þýöingu
Kristins Björnssonar (43).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Kvöidsag-
an: „Hækkandi stjarna”
eftir Jón Trausta Sigriöur
Schiöth les sögulok (7).
22.40 Djassþátturi umsjá Jóns
Múla Arnasonar.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Blikkiðjan
Asgarði 7,
Garðahreppi
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
SÍMI 53468
Mikið úrval bóka
Marx, Engels, Lenin, tækni, visindabæk-
ur, skáidsögur, listaverkabækur, einnig
nótur og hljómplötur frá Sovétrikjunum,
Tékkóslóvakíu, Póllandi og Ungverja-
landi.
ERLEND TÍMARIT
Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig, 2. hæð. Simi
28035.
I --------- ------------------------------