Þjóðviljinn - 23.06.1976, Side 16
Sumarferð
Alþýðubanda-
Miðvikudagur 23. júni 1976
lagsins 27. júní
Glœsilegt
ferða-
happdrœtti
Júgóslavíuferð í aðalvinning
Margt manna fylgdist með réttarhöldunum f gær og mátti þar þekkja ýmsar þekktar kven-
réttindakonur. t neðra horninu til hægri má sjá frá vinstri þau Gunniaug Þdrðarson og Ragnhildi Smith,
sem stefnir Alþingi. Þar næst eru ddmararnir Hákon Guðmundsson, Már Pétursson og Adda Bára
Sigfúsddttir en neðst til hægri er verjandi fjármálaráðuneytisins og Alþingis, Þorsteinn Geirsson.
(Ljdsm.: eik)
Prófmál um launajöfnuð kvenna og karla:
SJÖ KONUR
STEFNA ALÞINGI
Spá Þjóðhagsstofnunar
Kaupmáttur kauptaxta
3% lægri en í fyrra
Síðustu spár um verð-
breytingar á árinu benda
til þess að vísitala fram-
færslukostnaðar hækki um
nálægt 28% frá upphafi til
(oka ársins eða svipað og
kauptaxtarnir. Hins vegar
verður f ramf ærsluvisi-
talan nær 30% hærri að
meðaltali í ár en í fyrra.
Samkvæmt þeim tekju- og
verðlagsspám sem fyrir liggja
virðist kaupmáttur kauptaxta
allra launamanna munu verða
um 3% minni i ár en i fyrra og þvi
svipaður að meöaltali á árinu og i
byrjun ársins, en um 1— 1/2%
hærri hjá verkafölki. Kaupmáttur
ráðstöfunartekna heimilanna,
miðað við visitölu vöru og þjön-
ustu er talinn verða um 3% lakari
I ár en á sl. ári, en miðað við verð-
lag einkaneyslu yrði rýrnunin
heldur minni.
Þannig er komist að orði I spá
Þjóðhagsstofunar sem birt er i
sérprentun og barst Þjóðviljan-
um i gær. Margt athyglisvert
kemur fram i riti þessu sem gerð
verða nánari skil i blaöinu siðar.
I gær var munnlegur
málflutningur i fyrsta
málinu af sjö sem fyrrum
þingritarar höfða gegn
Alþingi fyrir Borgardómi í
Reykjavík. Málshöfðunin
er tilkomin vegna mismun-
unar í launum vegna kyn-
ferðis viðvélritun á ræðum
þingmanna, en eini karl-
maðurinn í þvi starfi hefur
haft mun hærra kaup
heldur en konurnar. Ragn-
hildur Smith er stefnandi í
fyrsta málinu sem tekið
var fyrir i gær.
Þess skal getið að allir stefn-
endur i málinu hafa hætt störfum
hjá Alþingi vegna óánægju með
kaup og kjör. Það hittist vo á að
Ragnhildur Smith starfar nú sem
réttarritari i Borgardómi og varð
þvi að setja setudómara i máli
hennar. Það er Már Pétursson, en
meðdómarar hans eru þau Hákon
Guðmundsson, fyrrum yfir-
borgárdómari, og Adda Bára
Sigfúsdóttir veðurfræðingur.
Lögmaður Ragnhildar er
Gunnlaugur Þórðarson en Þor-
steinn Geirsson ver máliö fyrir
hönd fjármálaráðuneytis og for-
seta Albingis.
I stefnu er sakarefninu lýst svo:
„Stefnandi hefur starfað sem
þingskrifari hjá Alþingi undan-
farin ár, i igripum 1966-1972 en
sem fastur starfsmaður frá 1.
janúar 1973, en aðeins eítir hádegi
og launin miðuð við 4/7 fastra
laun i þeim launaflokki, sem
þingskrifarar taka laun.
Við ráðningu var stefnanda
tjáð, að laun samkvæmt 13.
launaflokki (efsta þrepi) ætti við
um starf hennar. Það kom hins
vegar á daginn, að stefndi,
Alþingi, greiddi hærri laun til
karlmanns, sem var þingskrifari
og vann sambærilegt verk, eða
samkvæmt 18. launaflokki. Var
stefnandi minnug ákvæöa laga
um launajöfnuð karla og kvenna
nr. 69/1961 og einnig kunnugt um
frumvarp um jafnlaunaráð, sem
Alþingi fjallaði um og er lög nr.
37/1973, og vildi ekki sætta sig við
misrétti þetta. Hins vegar náðist
ekki nema óveruleg leiðrétting i
janúar 1974 og hvarf stefndi úr
starfi, fyrst og fremst vegna
óánægju, i april sama ár.”
Við þingritunina er yfirmaður
Clafur Siggeirsson.en sonur hans,
Jón ólafsson er umgetinn þing-
skrifari. Hvorugur þeirra hefur
treyst sér til að bera vitni fyrir
rétti vegna veikinda Má það
undarlegt heita. Hins vegar hefur
Friðjón Sigurðsson skrifstofu-
stjóri Alþingis borið vitni um það
að téðum Jóni hafi veriö falin
ýmis aukastörf sem réttlæti hærri
laun hans t.d. sérstök verkefni
fyrir alþingismenn og að velja
ræður alþingismanna sem eiga að
geymast til frambúðar. Orö Frið-
jóns hafa þó ýmist verið hrakin
sem staðleysa eða þá að konurnar
önnuðust sambærileg verkefni.
Margt furðulegt kom fram i
vitnaleiðslunum, svo sem að
Ólafur Siggeirsson hefur látið Jón
son sinn fá bestan tækjabúnað og
sett hann i sérherbergi eftir að
ræöuritunin fluttist I Skjaldbreið
viö Kirkjustræti. Ennfremur var
hann sifellt að láta konurnar
skipta um ritvélar en Jón hélt
stöðugt sinni nýju vél. Engu
likara var en ólafur væri að
Framhald á bls. 14.
1 sumarferð Alþýðubandalags-
ins á sunnudaginn kemur veröa
seldir happdrættismiðar og eru
margir veglegir vinningar. Hæsti
vinningurinn er þriggja vikna
ferð fyrir tvo til Portoroz i
Júgóslaviu og uppihald þar.
Ferðin er farin á vegum ferða-
skrifstofunnar Landsýnar.
Portoroz er þekktasti
baðstrandarstaður Slóveniu, við
Piran-flóa sem liggur inn úr
Adriahafi, girtur hæðum á þrjá
vegu með ljósri baðströnd.
Hæðirnar eru ræktaðar vinviði og
suðrænum gróðri. Af hafi er nota-
leg hafgola. Innifalið i ferðinni er
herbergi með sturtu og svölum að
garði og hálft fæði.
Frá Portoroz er skammt að
fara til Feneyja og ttaliu og
ýmissa annarra merkisstaða.
Happdrætti Sumarferðar Al-
þýðubandalagsins er óvenju-
glæsilegt miðað við það hversu
fáir miöar verða seldir. Vinnings-
möguleikar eru þvi mjög miklir.
Dregið verður á áfangastað i
Skriðufellsskógi i Þjórsárdal.
Fólk er hvatt til að láta skrá sig
sem allra fyrst I sumarferðina á
skrifstofu Alþýðubandalagsins á
Grettisgötu 3 — slmi 28655 og
æskilegt er aö miðar verði sóttir
fljótt.
Kranabill i gegnum svalir og inn i svefnherbergi
Eg þakka bara fyrir að
það var ekki sólskin úti
— því að þá hefðum við vafalaust verið úti á svölum
þegar þetta gerðist, sagði húsfreyjan á bœnum
lenti á huröinni sem er fyrir
miðri mynd.
— Jú, okkur brá svo sannar-
lega, sagöi húsfreyjan I samtali
viö Þjv. — Viö vorum sem betur
fer hvorugt i svefnherberginu
þegar þetta geröist, og svo
sannarlega þakkar maöur fyrir
aö ekki skyldi hafa veriö sólskin
i dag. Þá hefum viö vafalaust
flatmagaö úti á svölum og vær-
um varla núna til frásagnar um
atburöinn.
—gsp
BARUM
BfíEGST EKK/
■ vorubíla l
I hjólbarðar I
■ Kynnið ykkur hin hagstæðu verð. ■
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ ■
Á ISLANDI H/E
AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606
Móðir og þriggja ára sonur aö
Reynigrund 47 I Kópavogi fengu
óvænta og miöur skemmtilega
heimsókn klukkan rúmlega eitt
í gær, þegar mannlaus kranabill
rann niður halla, braut niöur
grindverk og sföan svalir húss-
ins og stöðvaðist meö afturend-
ann nánast inni I svefnherbergi.
ökumaöur bifreiöarinnar var
ásamt vinnufélögum sínum i
matarhiéi er atburöurinn átti
sér stað og telja þeir ekki á
þessu aöra skýringu en þá, aö
einhver hafi átt viö stjórntæki
bifreiöarinnar án þess aö nokk-
ur sæi til meö þessum afleiöing-
um.
Hallinn sem kranabifreiöin
rann eftir er afar litill en dugöi
þó til þess aö þunginn braut
niöur svalir tveggja íbúöa sem
liggja saman og stórskemmdi
neðri hæð annarrar þeirrar.Eins
og sjá má á myndinni var svefn-
herbergiö óhrjálegt eftir heim-
sóknina, en horn kranabflsins
Viölagasjóöshús eru ekki sérhönnuö til þess aö þola ákeyrslur stórra
kranabifreiöa og þannig leit svefnherbergiö út eftir óhappiö. Eigandi
barnarúmsins var sem betur fer ekki á „sfnum staö”. Mynd: eik.
pwdvhhnn