Þjóðviljinn - 25.06.1976, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. júni 1976
Skrifið
eða
hringið.
Sími: 17500
Skilum landinu hreinu til
sósíalismans
Ég las nýlega tvær greinar i
Þjóöviljanum, hina fyrri cftir
Stefán Jónsson, alþm. en þá siö-
ari eftir Ásmund Stefánsson,
hagfræöing. Nokkuö viröist mér
aö grein Stefáns um „eignar-
hald á landi”, hafi fariö i taug-
arnar á Ásmundi hagfræöingi
og mun ég ekki blanda mér neitt
i þeirra viöskipti en játa þó, aö
skrif þeirra hvöttu mig til aö
koma á framfæri nokkrum hug-
myndum mfnum um þessi efni.
Kannski er ekki heldur svo
fráleitt, að ósköp venjulegur
bóndi, meira að segja „sjálfs-
eignarbóndi”, láti nokkuð i sér
heyra um „eignarrétt á landi,
gögnum þess og gæðum”, eins
og það mun heita á máli krat-
anna. Já, þingsályklunartill.
Braga krata Sigurjónssonar og
co. er mikið mál og virðist rugla
marga i riminu. Mig langar til
að skjóta þvi hér inn i, að nú I
vor, veittist okkur Héraðsbúum
sá heiður að hlýða á Braga túlka
sitt mál á Menningarvöku okk-
ar. Ég missti nú reyndar af
framsöguerindi Braga en tel
það, eftir atvikum, engan skaða
þótt svo færi, enda kom á daginn
að senunni var stolið frá fram-
sögumanni af Sverri nokkrum
Hermannssyni, svokölluðum
þingmanni Austurlands. Sverrir
hélt stórkostlega ræðu um
„heilagan eignarrétt” stórút-
gerðarmanna, þótt aldrei nema
þeir komist yfir skipin með allt
að 120 % aðstoð af almannafé og
þjóðnýta svo tap, sem þeir geta
búið til sjálfir. Um hagnað, ef
einhver er, gegnir auðvitað öðru
máli, eins og allir geta skilið.
Sverrir „sannaöi” siðan, með
áhrifamiklum látbrögðum hvað
BtJR., sem hann tiltók sérstak-
lega, væri slæmt fyrirtæki og
kæmi illa við sig sem skatt-
greiðanda. Hann dró peninga-
pung mikinn upp úr vasa sinum,
veifaði honum framan i fundar-
menn og sagði:
„Ég borga hallann á BÚR”.
Sumum datt I hug að þessum
120% hefði þá verið vel varið, að
koma fótunum undir þennan
mann, úr þvi að hann stæði und-
ir bæjarútgerðinni. Þetta var nú
útúrdúr frá „eignarrétti” á
landi en þetta var svolitið um
annarskonar „eignarrétt”.
Um hvað var Laxárdeilan? —
Þegar hugleidd er þjóðnýting á
landi, gögnum þess og gæðum,
kemur ýmislegt upp i hugann.
Þar ber hæst LaXárdeiluna þó
að af ýmsu sé að tpka. Eftir þvi,
sem ég veit best,. var sú deila
um það, hvort Laxárvirkjunar-
stjórn, með fulltingi rikisvalds-
ins, fengi að byggja svokallaða
Gljúfurversvirkjun, sem mun
hafa legið fullhönnuð á teikni-
borðum sérfræðinga. Að þvi
hafa verið færð fullgild rök, að
virkjun þessi, með Suðurárveitu
i Mývatn, og glæfralegri stiflu-
gerð i Laxá, hefði þýtt hvorki
meira né minna en eyðileggingu
Laxár og Mývatns, ásamt stór-
felldri kaffæringu lands I Lax-
árdal, auk beinnar lifshættu fyr-
ir fólk það, sem hefði mátt eiga
allt sitt undir öryggi eða öllu
heldur öryggisleysi stiflumann-
virkja.
Auðvitað kölluðu svo brjálæð-
isleg áform, sem unnið var að á
meðan stætt var, á andsvar
fólksins. Andspyrnan kom svo
sannarlega. Hér var engin nátt-
úruverndarrómantik allsráð-
andi þó að náttúruvernd hlyti,
eðli málsins samkvæmt, að
tengjast þessu mjög mikiö,
vegna þess að náttúran sjálf og
lifsgrundvöllur þessa fólks fór
algjörlega saman. Blind gróða-
öfl, sem hugsuðu i nokkrum
megavöttum, en þó mest um há-
marksgróðann með sem
minnstri fyrirhöfn, vógu hér ab
lifshagsmunum sveitafólksins.
Þessi saga er öllum kunn, bæði
lok Laxárdeilu, sem hlaut aö
enda með sigri fólksins og eins
hin sagan, sem er enn að gerast,
hér og um allan heim, nefnilega
skefjalaus rányrkja og tortim-
ing auðvaldsins á náttúrugæð-
um. Þeirri sögu verður einnig
að ljúka með sigri alþýðunnar,
að öðrum kosti blasir alger tor-
timing við.
Og þá kom tillaga til þing-
ályktunar.
Nokkrir kratar, og að visu
margir fleiri, sættu sig illa við
sigur bænda yfir skammsýnu og
gráðugu auðvaldi og þessvegna
er tillaga þeirra fram komin.
Hún er þvi þegar af þeirri
ástæðu forkastanleg, en margt
fleira kemur þó til sem veldur
þvi, að sumir sósfalistar geta
ekki stutt hana. Þar má til nefna
nokkur atriði svo sem i fyrsta
lagi: Ekkert er finnanlegt i
stefnu eða störfum krata, sem
bendir til að þeir stefni að
sósíalisma. Tillöguflutningur
þeirra er þvi, af þeirri ástæðu,
marklaust glamur.
1 öðru lagi? Rikisvald brask-
aranna bútar niður og selur rík-
isjarðir til einstaklinga. Þetta
er gert með kliku- og hrossa-
kaupasniði.
í þriðja lagi, og þetta er að
minum dómi höfuðatriði: t auð-
valdsþjóðfélagi er þjóðnýting
ekki til. Hún er eins og nýju fötin
keisarans — blekking, vegna
þess, að burgeisarnir nota sitt
eigiö rikisvald til þess að
tryggja sinn eigin gróða og völd.
Vinnandi alþýða landsins nýtur
þar einskis en er eftir sem áður
aðins tæki auðvaldsins til
áframhaldandi auðsöfnunar.
Að endingu vil ég leggja
áherslu á nokkur atriði. Það er
að minum dómi rétt afstaða,
sem Stefán Jónsson og Helgi
Seljan hafa tii tillöguflutnings
kratanna.Bændum ber aðstanda
vörð, I öllu tilliti, um bújarðir
slnar, og hrinda ásókn auövalds
og braskara til yfirráða. Bænd-
ur verða að leggja sitt af mörk-
um til að skapa samstöðu með
verkalýð og vinnandi alþýðu
bæjanna og hafa það háleita
markmið að leiðarljósi, að
koma á fullkomlega sósialisku
þjóðskipulagi. Sú barátta mun,
eins og nú háttar til, fara fram i
andstöðu við verkalýðs- og
bændaforystuna. Rétt stefna,
eins og nú er ástatt i þjóðfélag-
inu, er að minum dómi sú, að
bændur og alþýða öll stuðli að
eflingu sveitarfélaganna og
sameiningu, þar sem það þykir
henta, enda verði sameining til
þess að einfalda stjórn þeirra en
jafnframt styrkja, gegn rikis-
valdi auðvaldsins.
Sú „þjóðnýting”, sem gæti
komið almenningi að gagni i
okkar rotnandi auðvaldsþjóð-
félagi og nú þarf að berjast fyrir
er:
1 fyrsta lagi: Öll afréttarlönd
verði eign sveitarfélaga.
1 öðru lagi: öll vatnsréttindi,
heit og köld, verði eign sveitar-
félaga, (aldrei framar Svarts-
engishneyksli).
1 þriðja lagi: Allar eyði-,
kirkju- og rikisjarðir verði eign
) sveitarfélaga.
1 fjórða lagi: öll hlunnindi,
hverju nafni, sem nefnast, verði
eign sveitarfélaga.
Og i fimmta lagi: Bújarðir i
eigu einstakra braskara, sem
ekki nytja þær til búskapar,
verði iagðar undir sveitarfélög-
in, endurgjaldslaust.
Að endingu þetta: Vinnandi
alþýða i sveit og við sjó. Stönd-
um vörðum landið og gæði þess.
Berjumst hart gegn landssölu-
áformum VL-klikunnar, sem nú
heimtar að þjóðin selji sig, að
hætti gleðikvenna. Tökum öll
virkan þátt i baráttu herstöðva-
andstæðinga og gerum þau
samtök að þjóðfrelsisfylkingu.
Hreinsum burt bandariska
smán og skilum landinu hreinu
til srtsialismans.
Jón St. Árnason,
Finnsstöðum.
HREINGERNING