Þjóðviljinn - 25.06.1976, Qupperneq 5
Föstudagur 25. júnl 1976 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 5
Forsetakosningar i Portúgal á sunnudag
Hvað er á bak við
sólgleraugun?
Á sunnudaginn
ganga portúgalskir
kjósendur að kjörborð-
inu i þriðja sinn á fjórt-
án mánuðum. Að þessu
sinni verður landinu
kjörinn forseti sem
leysa á gamla refinn
Costa Gomes af hólmi.
Þessar kosningar eru
etv. þær þýðingar-
mestu sem fram hafa
farið i landinu undan-
farin misseri vegna
þess að samkvæmt
stjórnarskrá landsins
hefur forsetinn mikil
völd, svo mikil að sam-
likingar væri helst að
leita i Bandarikjunum.
Fjórir menn keppa um hylli
kjósenda. Fyrstan ber aö telja
yfirmann hersins, Antonio dos
Santos Ramalho Eanes hers-
höfðingja, en hann er talinn
langliklegastur til afreka þar
sem hann hefur hlotiö
stuöningsyfirlýsingar þriggja
stærstu stjórnmáfai'lók'ka lands-
ins - sólialista, lýödemókrata og
miödemókrata - sem samanlagt
fengu 3/4 hluta atkvæöa í þing-
kosningunum i vor. Aörir fram-
bjóöendur eru núverandi for-
sætisráöherra José Baptista
Pinheiro de Azevedo, Otelo
Saraiva de Carvalho sem var
yfirmaöur öry ggissveita
PortUgals og einn valdamesti
maöur landsins fram til 25.
nóvemer sl. og loks Octavio
Pato sem er frambjóöandi
kommúnista og hægri hönd
Cunhals formanns. Raunar
haföi einn enn boöiö sig fram,
hinn erkilhaldssami yfirmaöur
hersins i noröurhluta landsins,
Antonio Pires Veloso, en hann
lést á dularfullan hátt i þyrlu-
slysi fyrir rúmum hálfum
mánuöi.
Vinur Spinola
Um Ramalho Eanes er oft
sögö eftirfarandi skrýtla á göt-
um Lissabon: „Af hverju geng-
ur Eanes alltaf með svört sól-
gleraugu?” Svar: „Til þess aö
fela einglyrniö.” Eins og menn
sjá er hér verið aö vitna til þess
aö Eanes var ákafur stuönings-
maöur Spinola fyrrum forseta
frá þvi fyrir byltinguna i april
1974 þar til Spinola hrökklaöist
úr landi. Annaö sem kemur upp
um vináttu þeirra er aö margir
helstu ráögjafar Spinola taka
mikinn þátt i kosningabaráttu
Eanesar. Þaö er þvi ekki út I
loftiö sem Carvalho ásakar
Eanes um að hafa I hyggju aö
segja af séreftiraö -ogef -hann
nær kjöri i þvi skyni aö hleypa
Spinola aftur aö.
Allt fram i desember I fyrra
var Eanes lágtsettur yfirmaöur
i portúgalska hernum. Þegar
hægriöflin hófu gagnsókn 25. nó-
vember og ráku alla vinstri-
sinnaða herforingja úr áhrifa-
stöðum hlaut Eanes skjótan
frama og tók viö embætti Carlos
Fabiao sem æösti maöur hers-
ins.
Eanes hefur veriö mjög s par á
pólitiskar yfirlýsingar. Hann
hefur þó heitið þvi aö fylgja
stjórnarskrá landsins I hvlvetna
en hún kveöur á um aö i
Portúgal skuli stefnt aö sósial-
isma. Enginn hefur þó oröiö til
aö saka hann um vinstriöfga.
Þaö er meö ólikindum hve
mikils trausts hann nýtur meðal
stjórnmálamanna en þaö nær
allt frá hægri armi hins Ihalds-
sama flokks miödemókrata inn i
miöjan Sósialistaflokkinn og
jafnvel lengra.
Þaö hefúr samt ekki reynst
MarioSoares leiötoga sóslalista
auðvelt aö sætta vinstrimenn i
flokki sinum viö Eanes, og
kannski hefur þaö alls ekki tek-
ist. En honum tókst aö fá meiri-
hluta flokksforystunnar til- aö
samþykkja stuðning við hann.
Eins og oft gerist i stjórnmálum
þurfti til þess pólitisk hrossa-
kaup og Time fullyrðir að pris-
inn sem Eanes þurfti að greiða
fyrir stuöning sósialista hafi
veriö loforð um að útnefna
Soares forsætisráðherra I
stjórninni sem mynduö verður
aö forsetakosningum afstöðn-
um.
Slíkt ioforö er i sjálfu sér
ekkert óeölilegt þar sem sósi'al-
istar eru stærsti flokkurinn og
hafa lýst sig reiðubúna að
mynda minnihlutastjórn. En I
þessu 'sambandi er athyglis-
Eitt er það þó sem sett gæti
strik I reikninginn. Eftir þvl
sem liöið hefur á kosninga-
baráttuna viröist áhugi kjós-
enda á kosningunum og Eanes
sérstaklega hafa hraöminnkað.
A kosningafundi hans hafa aö-
eins mætt 2-3 þúsund manns og i
skoöanakönnun sem nýlega var
gerð kom i ljós aö aðeins 33%
aðspuröra kváöust myndu
greiða honum atkvæöi sitt. Þaö
er heldur litiö fyrir mann sem á
pappirunum nýtur stuönings
75% kjósenda. 1 sömu skoöana-
konnun kom i ljós aö Azevedo
naut stuönings 14% spuröra,
Carvalho 11% og Octavio Pato
aðeins 3%.
En þaö athyglisveröasta viö
könnunina var hve stórt hlutfall
spurðra sagðist ekki vera
búinn aö gera upp hug sinn eöa
hreirJega neitaði að segja hvaö
þeir kysu. 27% kváðust ekki
vissir i sinni sök og 10% neituöu
aö segja hvað þeir ætla aö kjósa.
Segja fréttamenn að þessu
áhugaleysi valdi einkum litlaus
persónuleiki Eanesar og sú til-
finning sem sé útbreidd meðal
almennings að framboð hans
Ramalho Eanes hershöföingi
vert aö Soares er i raun aö fela
sig I hendur óreyndum herfor-
ingja þvi samkvæmt stjórnar-
skránni getur forsetinn rekiö
stjórnina heim þegar hann
lystir, leyst upp þingiö og boöao
nýjar þingkosningar þegar hon-
um hentar.
En hvað með hina?
Nú finnst kannski einhverjum
aö of m iklu púöri sé eytt I aöeins
einn af fjórum frambjóöendum.
Þaö helgast af þvl að hinir þrir
eru vart liklegir til aö veita
Eanes mikla samkeppni.
Sá sem helst gæti klóraö hon-
um er Azevedo sem er sagöur
hafa mikinn metnað til aö bera.
Hann hefur aldrei náö neinum
miklum vinsældum meöal al-
mennings en þar á móti kemur
aö hann hefur sýnt af sér pólit-
Iskan kjark og ber þar hæst hiö
einstæöa rikisstjórnarverkfall
sem hann lýsti yfir i nóvember
sl. og leiddi til stórsóknar
hægriaflanna og hreinsunar i
hernum. Pólitisk stefnumiö
Azevedos eru jafn þokukennd og
hjá Eanesi.
Það siöastnefnda gildir hins
vegar ekki um hina frambjóö-
endurna tvo. Carvalho er full-
trúi fjölskrúöugs safns vinstri-
samtaka og alþýöa manna i
Portúgal hefur síöur en svo
gleymt honum þótt hann sé fall-
inn I ónáö hjá ráöamönnum.
Miöstjórnarmaöurinn Octavio
Pato hefur hina öflugu flokksvél
kommúnista aö baki sér en
vafasamt má teljast aö hún dugi
honum til stórra hluta.
líkist frekar útnefningu (hers-
ins) en kosningu.
Nái enginn frambjóöenda
hreinum meirihluta I kosning-
unum á sunnudag verður aö
kjósa aftur milli þeirra tveggja
sem mest fylgi hafa innan
þriggja vikna. Það gæti þvi allt
eins fariö svo aö portúgalir
veröi dregnir aö kjörboröinu i
fjóröa sinn á rúmu ári.
Rétta lausnin?
Þar sem öruggt er aö herfor-
ingi sitji á forsetastóli næstu ár-
in vaknar spurningin um hvaöa
hlutverk herinn mun léi’ka í
portúgölskum stjórnmálum i
framtiöinni. Sá hópur sem
stofnaði Her jahreyfinguna
(MFA) og velti fasismanum úr
sessi var mjög sundurleitur
hvaö pólitiskar skoöanir snertir,
styrkur hans byggðist á hern-
aöarmættinum. En þaö hefur
aldrei veriö meiningin hjá MFA
aö sitja aö völdum til eiliföar-
nóns. Herforingjarnir litu alltaf
á sig sem tryggingu fyrir þvi aö
fasisminn sneri ekki aftur en
ekki pólitiskt afl i sjálfu sér.
Kannski hefur pólitfskum
spekúlöntum Portúgals tekist
að finna réttu leiöina til aö
tryggja borgaralega þjóðfélags-
hætti i landinu með þvi aö hinn
þrautþjálfaöi stjórnmálamaöur
Soares stjórni i skjóli hins
óreynda Eanesar. Þeir hafa
hvor um sig lykilítök i þeim
tveim þjóðfélagshópum sem
ógnaö gætu borgarastéttinni:
verkalýönum og hernum.
-ÞlKaöalheimild Information).
Laus staða
Dósentsstaöa i þvagfæraskurölækningum viö læknadeild
Háskóla Islands er laus til umsóknar. Um er aö ræöa
hlutastööu og fer um veiting hennar og tilhögun sam-
kvæmtákvæöum 2. gr. laga nr. 67/1972, um breyting á lög-
um nr. 84/1970, um Háskóla Islands.
Umsóknarfestur er til 20. júli nk.
Laun samkvæmt gildandi reglum um launakjör dósenta I
hlutastöðum I læknadeiid i samræmi viö kennslumagn.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um visindastörf þau er þeir hafa unniö, ritsmlöar
og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Umsóknum
skal skilaö til menntamálaráöuneytisins, Hverfisgötu 6,
Reykjavik.
Menntamálaráðuneytið,
23. júni 1976.
Laust embætti
er forseti íslands veitir
Pófessorsembætti I stærðfræöi I verkfræöi- og raunvis-
indadeild Háskóla Islands er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 24. júll nk.
Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur um prófessorsembætti þetta skulu láta
fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vlsindastörf þau
er þeir hafa unnið, ritsmlöar og rannsóknir, svo og náms-
feril sinn og störf.
Menntamálaráðuneytið,
24. júni 1976.
IJTBOÐ
Stjórn verkamannabústaða
. i Hafnarfirði óskar eftir tilboðum i bygg-
ingu fjölbýlishúss að Breiðvangi 12, 14 og
16 Hafnarfirði.
Húsið er boðið út i fokhelt ástand.
Tilboðsgögn verða afhent gegn 10.000 kr.
skilatryggingu á skrifstofu bæjarverk-
fræðings, Strandgötu 6, Hafnarfirði eftir
kl. 14:00, föstudaginn 25. júni 1976.
Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 16:00
e.h. mánudag 12. júli 1976.
Kjarvalsstaðir
Listráð að Kjarvalsstöðum auglýsir
hér með til umsóknar
sýningaraðstöðu i vestursal
timabilið april-desember 1977.
Umsóknir um þennan sýningartima
þurfa að berast fyrir 1. september
1976 og mun listráð þá taka
afstöðu til þeirra.
Listráð áskilur sér rétt til þess að
hagræða sýningartima umsækjenda
eftir þörfum og i samráði við þá.
Framkvœmdastjóri listaráðs
3f*Blómabúðin MÍRA
Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430
Miðbæ við Háaleitisbraut sími 83590
Blóm og gjafavörur i úrvali