Þjóðviljinn - 25.06.1976, Blaðsíða 11
Föstiítfagur 2S. }tfni Wfi ÞJÖOVH..n«IN — St®A II
Vilborg var vonsvikin i gærkvöldien gat þó svo sannarlega skrifaö misheppnaöa tilraun sina á reikning
veöurguöanna. Hér ræöir hún viö hafnfirskan þjáifara sinn. Mynd: —gsp
Frábœr árangur hjá
Vilborgu í rigning-
unni í gœrkvöldi!
Hún náði nœstbesta tíma sínum í 200 m skriðsundi
og vantaði 8 sekúndubrot í OL-lágmarkið
— Ég get vissulega verið
mjög ánægð með þennan
tíma i 200 metrunum en
það vantar ennþá þessi
sekúndubrot í lágmarkið/
sagði Vilborg Sverrisdóttir
vonsvikin á svip eftir enn
eina misheppnaða tilraun
við Ol-lágmarkið í 200 m.
skriðsundi. I gærkvöldi var
tími hennar þó mjög góður
miðað við aðstæður. Hún
synti á 2.15.8 mín. en lág-
markið er 2.15.0 svo að ekki
munaði nema 8 sekúndu-
brotum. Grenjandi rigning
og kuldi var í gærkvöldi og
dregur það ávallt eitthvað
úr árangri. Vilborg synti
ein i gær án nokkurrar
keppni eins og venjulega
og einnig það hefur sitt að
segja. Er það skoðun
margra að nánast sé hlægi-
legt að leggja það á Vil-
borgu að reyna frekar við
lágmarkið, hún hefur sýnt
hvers hún er megnug og
vitaðer að hún getur miklu
betur i keppni og við góðar
aöstæður. Olympiunefndin
er þó ekki á sama máli og
einu yfirlýsingarnar sem
þaðan koma eru þær, að nú
sé ekki nóg að ná lág-
mörkunum — aðeins 12
keppendur verði sendir á
leikana og er því enginn
öruggur með farseðilinn
sinn!
— Þeir gætu alveg eins skrifað
þessum krökkum bréf og beðið
þau vinsamlegast um að ná ekki
Ol-lágmörkunum, sagði Guð-
mundur Harðarson sundþjálfari i
gærkvöldi. — Menn eru argir út i
nefndina fyrir svona yfirlýsingar
þegar iþróttamenn æfa kvölds og
morgna l mikilli taugaspennu
vegna bardagans við lágmörkin.
Ekki sist vegna þess að nákvæm-
lega þetta sama gerðist fyrir sið-
ustu Ol-leika. Svona yfirlýsingar
eru eins og köld vatnsgusa
framan i krakkana og engum til
góðs.
Um fjörutiu manns, sund-
laugargestir og félagar Vilborg-
ar, stóðu á bakkanum og hvöttu
óspart þegar hún reyndi við lág-
markið i gærkvöldi. Vilborg var
dálitið upptrekkt áður en sundið
hófst enda hafa siðustu dagarnir
verið erfiðir. Hún hefur reynt á
þriggja til fjögurra daga fresti
siðustu vikurnar og aldrei munað
nema sáralitlu að dæmið gengi
fullkomlega upp.
Til stóð að Þórunn Alfreðsdóttir
reyndi i gærkvöldi við lágmarkið i
flugsundi en hún var hálflasin og
treysti sér ekki til þess.
Bára ólafsdóttir reyndi við ts-
landsmetið i 400 m. fjórsundi og
synti á timanum 5.43.1 min. en
metið á Þórunn Alfreðsdóttir enn-
þá og er það 5.31.1.
Næsta tilráun Vilborgar við
lágmarkið verður á Reykjavikur-
meistaramótinu um helgina.
Fyrri daginn reynir hún við 200
metrana og á sunnudeginum
Framhald á bls. 14.
Enn mistókst
Þrótturum að
ná sér í stig
Vikingur sigraði 2:0 í viðureign
liðanna í gœrkveldi
Þróttarar eru ennþá á botni 1.
deildar meö ekkert stig eftir aö
þeir töpuöu i gær fyrir Vikingum
meö tveimur mörkum gegn engu i
sannkölluöum rigningarleik.
Regniö buldi á leikmönnum nær
látlaust og leikurinn einkenndist
af þeim erfiöu aöstæöum sem viö
var aö glima.
Vikingar gerðu út um leikinn á
fyrstu 15 minútunum. Þeir
skoruðu þá bæði mörk sin, en
réttara sagt fengu þau bæði skráð
á sinn reikning.
Það var nefnilega varnar-
maður Þróttar, Gunnar Ingva-
son, sem var svo óheppinn aö
senda boltann yfir markvörð sinn
og i eigið mark á 9. min. Gerðist
Framhald á bls. 14.
Þróttur I vörn eins og venjulega i leiknum I gærkvöldi. Mynd: —gsp
Ný sovésk fimleika-
stjarna,Nelli Kim
hún er sögð ný „Olga Korbut,, hjá þeim þar eystra
Nelli Kim er aöeins 18 ára en
telur sig þó engan nýliöa i
iþróttum. Hún er i landsliöi
Sovétrikjanna i leikfimi, en
þaö liö á heimsmeistaratitil-
inn, hún varö önnur I Evrópu-
meistarak'eppninni og sigraöi
á 6. innanlandsmóti Sovétríkj-
anna.
Við spyrjum hana hvernig
hún hafi byrjað feril sinn i
iþróttum.
„Það var ekki fyrir tilvilj-
un” svarar hún. „Þetta
gcrðist fyrir næstum þvi 10 ár-
uni, þcgar ég var niu ára. Sér-
fræðingarnir segja að það sé
of hár aldur til aö byrja i leik
fimi. Ég var þá i skóla i
Tsimkent i Kasakhstan, þar
sem ég á enn hcima. Leikfimi
var skyldunámsgrein en þar
að auki máttum við taka þátt i
einni iþróttagrein i viðbót, ef
við vildum. fsg tók þátt i þess-
um aukatimum, mér til mik-
illar ánægju og fékk þar þjálf
un i leikfimi til viðbótar þeirri
scm ég fékk i skyldutimunum.
Það var siöur að þjálfarar
iþróttakiúbba og iþróttaskóla
kæmu að horfa á okkur i þess-
um timum, þeir voru að leita
að krökkum meö hæfileika.
Einu sinni kom þarna frægur
þjáifari að nafni Vladimir
Bædin. Hann tók eftir mér og
tók að sér að þjálfa mig. Eftir
það fór ég til hans oft i viku,
þegar ég var búin að læra
heima á kvöldin. Ég veit ekki
ennþá hvað það var i mér sem
vakti athygli hans. Ég var
ekkert frábrugðin hinum
stelpunum. Pinulitil og mjó.
Ég er það reyndar enn hæöin
er 157 sm og þyngdin 48 kg.”
„Stúkurnar i landsliöinu
segja að þú vinnir ótrúlega
mikið.
Ilvernig öðlast þú þessa
vinnugleði og seiglu?”
„I fjölskyldu minni liefur
alltaf verið lögð mest áhersla
á að vinna,vera hciðarlegur og
gefast ckki upp. Kannski er
það þess vegna, sem ég reyni
alltaf að ná sem bestum
árangri I öllu sem ég tek mér
fyrir hendur, hvort sem það er
iþróttir eða nám. Nú er ég i
iþróttaskóla. Y ngri systkini
min tvö, Sasha, sem er 15 ára
og lra sem er 10 ára, hafa lika
mikinn áhuga á iþróttum og
stunda þær meö skólanum,
þar sem þau standa sig með
ágætum. Mamma afgreiðir i
matvöruverslun og pabbi er
verkstjóri i asbest-vcrk-
smiðju.”
„Hefurðu nokkurn tima til
að sinna öðrum áhugamálum
en íþróttum?”
„Ég hef mikla ánægju af að
lesa. Gleypi i mig visinda-
skáldsögur. Sem stendur er ég
að lesa bækur eftir Emile
Zola. Ég er lika lirifin af tón-
list, bæði sigildri og jass, þó
sérstaklega jass. Ég styðst
mjög við tónlist i leikfiminni.
Tilað byrja með átti ég i erfið-
leikum meö frjálsar æfingar,
mér gekk betur á slánni. En
svo fór ég að æfa frjálsar
æfingar eftir tónlist
Posjlakovs „Dans frá
Nenets”. Þetta er hratt og
hressilegt lag. Mér gekk svo
vel, að 1975 varð é Evrópu-
meistari i frjálsum æfingum.”
„i fjölmiðlum cr oft sagt að
þú sér „járnhörö” og gjörn á
að taka áhættum. Er þetta
satt?”
„Ég er ekkert hrifin af
svona einkunnum, sem blaða-
menn gefa manni, en mér
finnst að visu gaman að taka
áhættum. Enda kæmist maður
ekki langt án þess. Til dæmis
þurfti ég að leika ymislegt
eftir Olgu Korbut og jafnvel
gera hennar „númer” ennþá
flóknara fyrir siðasta leikár.
Olga er einmitt fræg fyrir
dirfsku og nýjungar. En ég
stökk „Korbut-heljarstökkið"
á slánni ekki i lok
æfingarinnar eins og Olga
gerir, heldur i miðri æfingu,
sem er auðvitað meiri áhætta.
En ég veit ekki hvað þeir eiga
við þegar þeir segja, aö ég sé
„járnhörð”. Ef til vill finnst
þeim ég vera með svona
sterkar taugar. A undanförn-
um árum hef ég lært að beina
athyglinni frá taugaveiklun-
inni sem fylgir alltaf keppn-
um, með þvi að hugsa mér að
ég sé ekkert aö keppa heldur
sé ég bara á einhverri
skemmtilegri hátið. Þannig
leið mér til dæmis i Montreal á
undirbúningsvikunni fyrir
Ólympiuleikana, þarsem mér
tókst að sigra i þremur æfing-
um af fjórum" (APN)