Þjóðviljinn - 25.06.1976, Side 16
Fimm hundr
uð smálestir
í súginn?
Meöal þeirra útflutnings-
vara okkar islendinga, sem
viröast eiga hvaö mesta fram-
tiö fyrir sér, eru ullar- og
skinnavörur. Þær veröa æ vin-
sælli úti I hinum störa heimi.
Veldur þvi margt: Fram-
leiöslan er vönduö. Hráefniö,
islenska ullin, á ekki sinn lika
annarsstaöar i veröldinni.
Gærurnar eru léttari og voö-
felldari en af erlendum sauö-
fjárkynjum.
En þvi fer fjarri aö þetta
verömæta hráefni komi allt til
skila. Fimm hundruö smá-
Framhald á bls. 14.
Mestu tón-
listarhátið
á Islandi
Sumarferðin:
Glœsilegt ferðahapp-
drœtti
Eins og áður hefur verið skýrt
frá i Þjóðviljanum verður eitt
glæsilegasta happadrætti ársins i
sumarferð Alþýðubandalagsins.
Margir vinningar veröa i hverja
rútu en hæsti vinningurinn er ferð
fyrir tvo til Portoroz i Júgóslaviu
með uppihaldi á finasta hótelinu
þar i 3 vikur. Verðmæti þessa
vinnings er 107 þúsund krónur en
ferðin verður farin á vegum
ferðaskrifstofunnar Landsýnar.
Vegna takmarkaðs miðafjölda
eru vinningslikur afar miklar.
Sumarferð Alþýðubandalagsins
er opin öllum og er fólk hvatt til
að næla sér i miða strax, áður en
það verður um seinan. • Frá Portoroz
BARUM
BfíEGST EKK/
■ vorubíla l
I hjólbarðar I
fM Kynnið ykkur hin hagstæðu verð. ■■
TEKKNESKA B/FfíEIÐAUMBOÐIÐ
Á /SLAND/ H/F
AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606
Fyrsta þjóðþing landsins alls kemur saman
SINGAPOR 24/6— Vietnam er
eitt og sameinað riki frá og með
deginum i dag að telja. Var
þessu lýst yfir i Hanoi, höfuð-
borg Norður-VIetnams þegar
nýkjörið þjóðþing, sem 492 full-
trúar eiga sæti á var sett i Ba
Dinh-þinghúsinu. Þingið, sem
fer með æöstu völd I landinu, á
meðal annars fyrir höndum að
semja stjórnarskrá, velja hinu
nýja riki höfuöborg og leggja
drög að skipulagningu stjórn-
kerfis fyrir landið allt.
Hiðnýja ríki horíist i augu við
gifurlega erfiðleika, þvi að enn-
þá er efnahagslif suðuhlutans að
miklu leyti i rústum eftir striðið,
sem lauk fyrir aðeins rúmu ári.
Háttsettur suðurvietnamskur
embættismaður, Nguyen Van
Hieu, sagði fréttamönnum ný-
lega að þjóð hans ætti einnig við
að glima gifurlega erfiöleika i
félagsmálum og heilbrigðismál-
um, sem eru afleiðingar striðs-
ins og dvalar Bandarikjahers i
landinu. Ein miljón manna i
Suður-Víetnam þjáist af kyn-
ferðissjúkdómum og á yfirráða-
svæði Saigon-stjórnarinnar
voru tugþúsundir vændis-
kvenna, eiturlyfjaneytenda og
afbrotamanna sem þarf að
koma á réttan kjöl. Striðið tók
einnig mjög á norðurhluta
landsins og heldur norurvlet-
namska stjórnin þvi fram að
Bandarikin hafi 19731ofað þvi að
greiöa Noröur-VIetnam 3.250
miljónir dollara i bætur fyrir
tjón það sem lofthernaður
Bandarikjanna olli. Bandarikin
viðurkenna að þau hafi heitið
bótum, en segjast ekki hafa til-
tekið neina upphæð. Umræddar
bætur hafa enn ekki verið inntar
af hendi.
Þrátt fyrir erfiðleikana fram-
undan var mikið um dýrðir og
glatt á hjalla i Hanoi i dag, er
lýst var yfir sameiningu lands-
ins og setningu fyrsta þjóð-
þingsins fyrir landið allt.
Eysteinn hirtir
ráðherra fyrir
betUhugmyndir
Tollar á flestum sjávar-
afurðum lækka um 80%
Viðskiptaráðuneytið hefur gefiö
út Viðskiptafréttir, þar sem veitt-
ar eru upplýsingar um vörusvið
og tollfriðindi á EBE-svæðinu frá
1. júll. Jafnframt er eftirfarandi
yfirlit gefið um þýðingu þess að
friverslunarsamningurinn fra 72
kemur nú til framkvæmda
aöfullu, að minnsta kosti um
sinn:
„Efnahagsbandalagið hefur
fallist á að framkvæma tolla-
lækkanir á islenskum sjávar-
afurðum eins og bókun nr, 6 hafi
tekið gildi um leið og fri-
verslunarsamningurinn 1. april
1973. Hefur þetta i för með sér, að
tollar stofnrikja EBE á flestum
Islenskum sjáfarafruðum lækka
um 80%, en afurðir, svo sem freð-
fiskflök og fryst rækja, sem voru
samkvæmt EFTA-samningnum
tollfrjálsar I Bretlandi og Dan-
mörku áður en þau gengu I
bandalagið, verða strax 1. júli
1976 tollfrjáls á nýjanleik. Þannig
lækkar tollur á flökum i stofn-
rikjum EBE úr 15% i 3% 1. júli
1976 og verður svo alveg felldur
niður 1. júli 1977. Hins vegar
fellur strax niður 12% tollur, sem
verið hefur I gildi i Bretlandi og
Danmörku. Á sama hátt lækkar
tollur á frystri rækju i stofn-
rikjum bandalagsins úr 20% I 4%
og verður svo afnuminn að ári, en
i fyrri aðildarríkjum EFTA,
Bretlandi og Danmörku, fellur
16% tollur alveg niður strax.
Slikur tollamunur I eitt ár verð-
ur samt ekki á Isfiski, sem féll
ekki undir EFTA samkomulagið,
heldur verður sami tollur á Isfiski
I öllum bandalagslöndum, 3.7% á
þorski, ýsu og ufsa I stað 12% og
15% og 2% á karfa i stað 6.4% og
8%.
Með framkvæmd á bókun nr. 6
hefur friverslunarsamningur Is-
lands og Efnahagsbandalagsins
frá 22. júli 1972 tekið að fullu gildi.
Viö samningsgerðina var talið, að
vörusvið samningsins næði til
Framhald á bls. 14.
lauk í gær
Norrænum músikdögum lauk i
gærkvöldi, — en þeir voru mesta
tónlistarhátið á Islandi, 48 verk
voru flutt á 11 tónleikum og komu
450 manns fram.
Norrænir músikdagar eru
haldnir að tilhlutan Tónskálda-
ráös Norðurlanda, en það er sam-
bandsfélag allra tónskáldafélaga
á Norðurlöndum, — og er þessi
hátið haldin á tveggja ára fresti
til skiptis i löndunum.
Gestir hátiðarinnar að þessu
sinni voru kanadiskir tónlistar-
menn, — en á næstu hátið sem
fyrirhugað er að halda i Stokk-
hólmi árið 1978 undir kjörorðinu
Tónskáld og fjölmiðlar veröa
austur-þjóðverjar gestir Tón-
skáldaráðs Norðurlanda.
Stórstúkufundur
á Alþingi
Stórstúka islands var stofnuð var setningarfundurinn haldinn
fyrir niutiu árum I Alþingishús- i sölum Alþingis. A myndinni
inu. i gær var sett þing Stór- sést Helgi Seljan alþingismaður
stúkunnar og i tilefni afmælisins ávarpa þingfulltrúa og gesti.
Fjórir ráðherrar
með, þrir ó móti og
einn óviss enn i
afstöðunni til þess að
herinn borgi
islenskar
framkvœmdir
Nú hafa allir ráðherrarnir
nema Matthias Mathiesen tjáð
sig vegna hugsanlegs leigugjalds
af hernáminu eða vegna hugsan-
legrar þátttöku bandarikja-
manna i framkvæmdum á Is-
landi. Þeir sem virðast hlynntir
þvi að bandarikjamenn verði
látnir greiða islenskar fram-
kvæmdir eru:
Gunnar Thoroddsen
Matthias Bjarnason
Ólafur Jóhannesson
Halldór E. Sigurðsson
Þeir sem hafa lýst sig andviga
slikri tilhögun eru:
Geir Hallgrimsson
Vilhjálmur Hjálmarsson
Einar Agústsson
Þá hefur formaður Alþýöu-
flokksins Benedikt Gröndal lýst
stuðningi viö þessar betlihug-
myndir, en Gylfi Þ. Gislason
kveðst andvigur þeim. Þannig
eru herstöðvarflokkarnir klofnir
niður i rót i þessu máli að þvi er
best verður séð.
Afstaða Alþýðubandalagsins i
þessum efnum er þekkt og hefur
Þjóðviljinn lýst afdráttarlausri
andstöðu við „hugmyndir Gunn-
ars.”
1 gær skrifar Eysteinn Jónsson
grein i Timann þar sem hann
ræðst gegn „hugmyndum
Gunnars.”:
„Ég vara eindregið við þvi að
sú stefna verði nú tekin upp að
gera dvöl varnarliðs eða her-
stöðvar að féþúfu fyrir rikis-
búskap okkar I einu eða öðru
formi. Verði fariö inn á þá braut
er meira en erfitt að fóta sig og
tsland má aldrei verða fjötrað
með þvi að vera fjárhagslega háð
dvöl erlends vernarliðs i landinu.
Það er nógu erfitt fyrir smáþjóð
að halda sjálfstæði sinu — þótt
þess háttar fjötrar bætist ekki við
önnur vandkvæöi, sem fylgja þvi
að vera litil þjóð i hörðum heimi,
þar sem ekki skortir að þeir
stærri og sterkari vilji ráða fleiru
en sinum eigin málum.”
Greinilega er Eysteinn þarna
að hirta flokksbræður sina sem
hafa lýst stuðningi við að betla fé
af hernum og svo þá rikisstjórn
sem nú ræðir i alvöru um þessi
mál — fyrsta rikisstjórnin á Is-
landi þar sem slik mál eru tekin á
dagskrá!
DJÚÐVIUINN
Föstudagur 25. júni 1976
VlETNAM SAMEINAÐ