Þjóðviljinn - 20.08.1976, Side 3
Föstudagur 20. ágúst X976 ÞJÓOVILJINN — SIÐA 3
Fundur hlutlausra ríkja
Olíubann
á frakka
og ísraela
Colombo 19/8 reuter — I
lokaályktun leiðtoga-
fundar samtaka ríkja utan
hernaðarbandalaga/ sem
85 ríki eiga aðild að# er lýst
yfir stuðningi við afrískar
þjóðfrelsishreyfingar og
hvatt til þess að olíubann
verði sett á Frakkland og
Israel vegna þess að þau
selja vopn til Suður-Afríku.
1 samtökunum eru öll helstu
oliuútflutningsriki heims aö Iran
frátöldu.
1 ályktuninni var skoraö á
öryggisráð SÞ að setja vopna-
sölubann á S-Afriku sem veröi
bindandi fyrir aöildarrikin. For-
dæmd var ákvöröun frakka um aö
selja Suður-Afrlku kjarnakljúf og
kafbáta og sala israela á kor-
vettum búnum eldflaugum til
Suöur-Afriku. Voru aöildarriki
hvött til aö setja oliubann á þessi
riki fyrir aö brjóta æ ofan i æ gegn
ályktunum allsherjarþings SÞ
um bann á vopnasölu til Suöur-
Afriku.
Ráðstefnan telur aö „á þessum
þýöingarmiklu timamótum I bar-
áttu kúgaöra þjóöa sunnan-
verðrar Afriku veröi aö styöja
hana af öllum mætti. Jafnframt
verður aö heröa baráttuna fyrir
algerri einangrun apartheid-
stjórnarinnar”. Frakkar, bretar,
vestur-þjóöverjar og bandarikja-
menn voru fordæmdir fyrir aö
veita stjórn Suöur-Afriku siö-
ferðilegan og pólitiskan stuöning.
Ataks væri þörf vegna þess aö
ályktanir SÞ heföu reynst hald-
litlar, en þaö' stafaöi af „viö-
horfum örfárra Vesturvelda sem
halda áfram samstarfi viö kyn-
þáttastjórnir hvitra minnihluta.”
I ályktun ráðstefnunnar um
Indlandshaf er tilvist suður-
afriskra herstööva fordæmd svo
og hernaðarsamvinna Suöur-
Afriku, Israels og „ákveöinna
vestrænna rikja”.
Riki sem liggja að Indlandshafi
voru hvött til aö losa sig viö er-
lendar herstöövar og hafna þvi að
veita aöstööu herskipum eða her-
flugvélum sem nota mætti til
ögrunar eða árása á riki viö hafiö.
Ráöstefnan lýsti yfir áhyggjum
sinum yfir þvi að hafið gæti oröið
vettvangur hernaðarkapphlaups
stórveldanna og er herstöð
bandarikjamanna á eynni Diego
Garcia sérstaklega nefnd og þess
krafist aö hún veröi lögö niöur.
Ráðstefnan hvatti til algerrar
afvopnunar og að markvisst veröi
unniö að þvi aö boöa til alþjóöa-
ráöstefnu um afvopnun. Voru aö-
ildarriki beðin aö krefjast auka-
þings SÞ um afvopnun hiö fyrsta
og ekki siöar en áriö 1978.
Bandarikin eru hvött til aö
standa viö skuldbindingar sinar i
Parisarsáttmálanum og styöja
vietnama i uppbyggingarstarf-
inu. Einnig er öryggisráö SÞ
hvatt til aö veita Vietnam aöild aö
SÞ hiö fyrsta.
I kaflanum um efnahagsmál
segir aö vandamál á þvi sviöi séu
þau sem brýnast er að leysa af al-
þjóöamálum. Hiö stööugt breikk-
andi bil milli þróunarrlkja og þró-
aðra sé ein hættulegasta ógnunin
viö hemsfriöinn og þvi sé breytt
efnahagsskipan I heiminum þaö
pólitiska vandamál sem mestan
forgang verði aö hafa.
Alyktunin var samþykkt i dag
en I kvöld átti aö afgreiöa hana
formlega á lokafundi ráðstefn-
unnar.
Bandariskur hermaöur á eftirlitsgöngu meöfram hlutlausa beltinu milli Suöur-og Noröur Kóreu.
Kórea
Skipst á mótmælum
vegna tveggja bandarískra her-
manna sem féllu á hlutlausa beltinu
Panmunjom, Kóreu 19/8
reuter — Hnútur ganga nú
milli Norður-Kóreu og
bandaríska herliðsins í
Suður-Kóreu vegna þess
atburðar er tveir banda-
riskir verðir féllu í viður-
eign við norður-kóreanska
landamæraverði á hlut-
lausa beltinu milli lands-
hlutanna.
Yfirmaður friöargæslusveita
Sameinuöu þjóöanna á hlutlausa
beltinu, bandariski hershöfð-
inginn Richard Stilwell, kallaöi i
dag saman fund aöila vopnahlés-
samkomulagsins i Kóreu i bænum
Panmunjom sem er á hlutlausa
beltinu. Þar las hann upp orð-
sendingu til Kim Il-sung forseta
Noröur-Kóreu þar sem hann mót-
mælti „opinskáum og rudda-
fengnum moröum” á bandarisku
hermönnunum.
Útgáfa bandarikjamanna á
atburöunum er sú að hermenn
Noröur-Kóreu hafi ráðist aö
mönnunum tveimur þar sem þeir
voru að höggva tré á hlutlausa
beltinu. An þess aö nokkur ögrun
hafi komið til hafi þeir ráðist á
mennina og drepiö þá meö öxum
og járnstöngum. Hafi noröurkór-
verjarnir veriö 30 talsins.
Stjórnin i Noröur-Kóreu sendi
stjórnum Suöur-Kóreu og Banda-
rikjanna orösendingu i dag þar
sem mótmæltergrófum ögrunum
viö norður-kórverja. I frétt frá
fréttastofu Norður-Kóreu i dag
segir aö landamæraverðirnir hafi
orðiö að verja hendur sinar þegar
bandariskar og suður-kóreanskar
hersveitir réðust á þá.
Fundurinn i dag stóö i hálfa
aöra klukkustund og náðist ekki
samkomulag.
Fréttastofa Noröur-Kóreu
skýröi frá þvi i dag aö herir
landsins væru nú i viðbragðsstöðu
og reiðubúnir að berjast ef með
þyrfti. Sama er uppi á teningnum
sunnan landamæranna. Stjórnar-
her Suður-Kóreu er á veröi meö-
fram veginum frá Seúl til
Panmunjom, og viö hlutlausa
beltiö hafa veriö reistir vega-
tálmar á alla vegi.
Bandariska herstjórnin aftur-
kallaði i dag öll leyfi hermanna og
fyrirskipaði hermönnum að snúa
til herbúða sinna þegar i staö.
Fréttamenn i Seúl segja aö
spennan á landamærunum hafi
ekki orðið meiri siöan noröur -
kórverjar hertóku bandariska
njósnaskipiö Pueblo og færöu þaö
til hafnar áriö 1968.
ÞEIR SLÁST UM HVÍTA HÚSIÐ
Ford
Carter
Robert Dole
Walter Mondale
Tilkynning frá
Stofnlánadeild
landbúnaðarins
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á
árinu 1977 skulu hafa borist Stofnlánadeild
landbúnaðarins fyrir 15. september næst-
komandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm
lýsing á framkvæmdinni, þar sem meðal
annars er tilgreint stærð og
byggingarefni. Ennfremur skal fylgja
umsögn heraðsráðunautar, skýrsla um
búrekstur og framkvæmdaþörf, svo og
veðbókarvottorð.
Eldri umsóknir falla úr gildi 15. septem-
ber næstkomandi,hafi deildinni eigi borist
skrifleg beiðni um endurnýjun.
Reykjavik 19. ágúst 1976
Búnaðarbanki íslands
Stofnlánadeild landbúnaðarins
Ford hreppti hnossið .
Kansas City 19/8 reuter —
Flokksþing repúblikana útnefndi
Gerald Ford forseta frambjóö-
anda flokksins i forsetakosning-
um sem fram eiga aö fara i haust.
t atkvæöagreiöslu hlaut Ford
1.187 atkvæöi en Ronald Reagan
1.052.
Þaö er þvl ljóst aö þaö veröa
þeir Ford og Jimmy Carter sem
berjast um hvor þeirra vermi
stóla Hvita hússins næstu fjögur
árin. Aö visu er allt útlit fyrir aö
lítil barátta veröi um embættiö
þvi skoöanakannanir hafa lengi
spáö Carter stórsigri I kosningun-
um.
Valdi gamlan
fylgismann
Nixons sem
varaforsetaefni
Þaö var ekki ljóst fyrr en á
siöustu stund hver yröi útnefndur
frambjóöandi repúblikana.
Flokksmenn fylgdust spenntir
meö atvkæöagreiöslunni i nótt og
þegar 20 fulltrúar frá
Vestur-Virginiu sem veriö höföu
óráönir greiddu Ford atkvæði sitt
lustu fylgjendur hans upp
fagnaöarópi; björninn var unn-
inn.
I dag valdi Ford sér varafor-
setaefni og kom val hans mjög á
óvart. Sá sem hnossiö hlaut er
Robert Dole öldungardeildar-
þingmaöur. Dole var formaöur
flokksins meöan Nixon var viö
völd og hélt uppi vörnum fyrir
hann i Watergate-slagnum. Ford
sagðist hafa valiö Dole þvl þeir
fylgdu svipaöri stefnu I pólitik —
hóflegri ihaldssemi.
Framhald á bls. 14.
Mikið úrval bóka
Marx, Engels, Lenin, tækni, visindabæk-
ur, skáldsögur, listaverkabækur, einnig
nótur og hljómplötur frá Sovétrikjunum,
Tékkóslóvakiu, Póllandi og Ungverja-
landi.
ERLEND TÍMARIT
Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig, 2. hæð. Simi
28035.