Þjóðviljinn - 20.08.1976, Síða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. ágúst 1976
óskast til starfa allan daginn. Góð vélrit-
unar- og islenskukunnátta nauðsynleg.
Málakunnátta æskileg.
Umsóknir sendist skrifstofu ráðuneytisins
fyrir 24. þ.m.
16. ágúst 1976.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
ORKUSTOFNUN
• ^-1 óskar að ráða
Rannsóknarmann
konu eða karl á rannsóknarstofu sina i
Keldnaholti. Stúdentspróf eða sambærileg
menntun æskileg. Upplýsingar um aldur,
menntun og fyrri störf óskast sendar
Orkustofnun, Laugavegi 116, fyrir 25.
ágúst næstkomandi.
Orkustofnun
_
Tónlistarkennara
vantar við Tónlistarskóla Vestmannaeyja
á komandi vetri. Aðalverkefni blásturs-
hljóðfæri. Einnig æskilegt að umsækjandi
geti tekið að sér samkór Vestmannaeyja.
Upplýsingar simi 98-2551, umsókn sendist
Tónlistarskóla Vestmannaeyja.
^’Blómabúðin MÍRA
Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430
Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590
Blóm og gjafavörur i úrvali
ATVINNA
Fólk vant saumaskap óskast nú þegar eða
um næstu mánaðamót. Upplýsingar á
skrifstofunni, Skúlagötu 51.
Verksmiðjan Max hf
Sjóklæðagerðin hf.
Síðasta vika
útsölunnar
Ldtiö ekki veröbólguúlfinn gleypa peningana ykkar i dýr.
tiöinni. Allar vörur verslunarinnar seldar meö miklum cf-
slætti. Allt nýjar og fallegar vörur á litlu börnin.
Barnafataverslunin Rauðhetta
Iönaöarmannahúsinu
Hallveigarstig 1.
$ ÚTBOÐ 51
Tilboö óskast I 9 stk. dreifispenna fyrir Rafmagnsveitu
Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3,
R.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriöjudaginn 28. sept-
ember 1976, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBOíýGAF
Fr'kirkjuveoi 3 — Sími 25800
Myndin er tekin austur yfir Lagarfoss f átt aö stöövarhúsinu. Inntaksvirki ber i stöövarhúsiö til hægri.
Langa húsiö uppi á brekkunni t.v. er starfsmannahús, sem ekki er ætlaö aö standa til langframa.
(Ljósm. Grétar Grimsson).
Aðalfundur Náttúruverndarsamtaka Austurlands
haldinn á Hallormsstað um helgina
Rætt um Lagarfljót,
rannsóknir og
vatnsmiðlun
Laugardaginn 21. ágúst
n.k. hefst á Hallormsstað
aðalfundur Náttúru-
verndarsamtaka Austur-
lands og verður aðalmál
fundarins Lagarfljóts-
virkjun og vistfræðirann-
sóknir vegna 2. áfanga
virkjunarinnar. Hefur
Náttúruverndarráð og
Lagarf Ijótsnefnd heima-
manna sett ákveðin skil-
yrði um hámarksmiðlun.
Fjölbreytt dagskrá aðal-
fundar
Eins og undanfarin ár veröur
dagskrá aðalfundar allfjölbreytt
meö fræösluerindum og náttúru-
skoðun. Fundurinn verður hald-
inn i sumarhótelinu á Hallorms-
staö, þar sem til reiöu er öll að-
staöa og gisting, einnig svefn-
pokapláss. Vert er að minna á, að
menn geta tekið þátt i einstökum
atriðum fundarins eftir aðstæöum
og gestir eru velkomnir.
Gert er ráð fyrir dagskrá þann-
ig:
Laugardagur, 21. ágúst.
Náttúruskoðun og kvöldvaka.
Kl. 8.30 Ferð að Hengifossi
fyrir árrisula.
Kl. 13.30 Ferð um Hallorms-
stáöaskóg og nágrenni meö leiö-
sögn skógarvarðar.
Kl. 20.30 Kvöldvaka, öllum op-
in. Erindi og litskyggnur: Arnþór
Garðarson, dýrafr., ræðir um
votlendi, Siguröur Þórarinsson,
jaröfr., um verndun vatnsfalla,
Hjörleifur Guttormsson sýnir
myndir frá Eyjabökkum.
Sunnudagur, 22. ágúst.
Almennur fundur og aöalfundur.
Kl. 10.00 Aðalfundarstörf,
skýrsla, reikningar, tillögur.
Kl. 13.30 Almennur fundur um
Lagarfljót, rannsóknir og vatns-
miölun: Eyþór Einarsson,
magister, greinir frá rannaókn-
um, Hjörleifur Guttormsson frá
viðhorfum Lagarfljótsnefndar.
Fulltrúum virkjunaraðila er
boöið á fundinn.
Kl. 16.00 Framhald aðalfuiidar,
fundarslit um kl. 17.
Umhverfisrannsóknir og
virkjanir á Austurlandi
Umhverfisrannsóknir eru að
öðlast viðurkenningu sem fastur
þáttur I undirbúningi meiriháttar
mannvirkja, misjafnlega um-
fangsmiklar eftir aðstæðum. Hér
verður getið nokkurra slikra
rannsókna i tengslum viö vatns-
aflsvirkjanir á Austurlandi.
Lagarfossvirkjun
Nú er unnið aö viötækum rann-
sóknum á láglendissvæðum við
Lagarfljót annað sumarið i röð
vegna vatnsmiðlunar (2. áfanga
Lagarfossvirkjunar), sem byrjað
var að nýta sl. vetur. Er um að
ræöa bæði verkfræði- og vist-
fræðirannsóknir. Vinna að þeim
nokkrir aðilar undir yfirstjórn
Náttúrufræðistofnunar íslands,
en kostnað bera Rafmagnsveitur
rikisins. I sumar á aö ljúka allri
útivinnu og niðurstöður ættu að
liggja fyrir næsta vor. Verður
væntanlega tekið mið af þeim viö
rekstur vatnsmiðlunar i fljótinu,
en Náttúruverndarráð og Lagar-
fljótsnefnd heimamanna hafa sett
skilvrði um hámarksmiölun I til-
raunaskyni að 20,5 metra hæð yfir
sjávarmál og að rennsli verði ó-
hindrað um flóðgáttir frá byrjun
mai til loka september.
Þessi mál verða til umræöu á
almennum fundi i tengslum við
aðalfund NAUST á Hallormsstað
22. ágúst nk.
Bessasta ðaár v i rkjun
Rannsóknir vegna hönnunará-
ætlunar Bessastaöaárvirkjunar
fóru fram sumariö 1975, og kom
skýrsla um þær út i mars 1976
(Bessastaðaárvirkjun. Hönnun-
aráætlun. Rafmagnsveit-
ur rikisins. Aætlanadeild). Sem
liöur i virkjunarrannsóknum voru
umhverfisrannsóknir, sem
Náttúrugripasafnið I Neskaup-
stað stýrði, og eru helstu niður-
stöður þeirra birtar I skýrslunni
og á sérstöku gróöurkorti, sem
henni fylgir.
Verður hér getið aðalatriða:
1 niðurstöðum af „náttúru-
verndarkönnun” segir m.a.:
„Eftir umhverfisrannsóknir á
árinu 1975 virðist mega álykta að
áform um Bessastaðaárvirkjun
eins og þau hafa veriö kynnt til
þessa þurfi ekki aö rekast á viö
meiriháttar náttúruverndar-
hagsmuni. Þetta er þó háö þvi, að
tekið veröi tillit til ákveöinna
verndunarsjónarmiöa og land-
nýtingarmat lagt til grundvallar
ákvörðunum um stærö miölunar-
lóna.”
Um vatnalif segir m.a.: „Vötn
þau sem þarna fara á kaf, eru
ekkert sérstæð vatnallffræöilega.
Þetta eru næringarsnauð vötn
meö litla framleiðni. Þau geta.
eins og Hólmavatn sýnir, verið
lifvænleg fyrir fisk, en vegna
fæðuskorts mestan hluta ársins er
fiskframleiðsla þeirra alltaf lit-
il... Einkennandi fyrir öll vötnin
er aö þau eru mjög grunn og með
gifurlega hitasveiflu yfir eina
nótt, allt upp I 8'C á þeim tima
sem þau voru athuguð. Hólma-
vatn er dýpst, 1 til 1,5 m, Garða-
vatn er að meðaltali 0,6 m, Gils-
árvatn 0,7 m og Langavatn 0,6
m... Aðrennslissvæði vatnanna
einkennist mjög af þykku ösku-
lagi (frá öskju 1875). Askan hefur
smám saman fokið og runnið út i
vötnin og myndar i þeim þykkt
lag... Um leið og hreyfir vind
gruggast vötnin mjög fljótt og
veröa mógul eða brún að lit...
Vatnableikja fannst I Hólmavatni
i nokkru magni. Hún virðist lifa
mest á vatnabobbum.”
Varöandi beitargildi gróöur-
lendis I fyrirhuguðum miðlunar-
lónum kemur fram m.a.:
„í Gilsárlóni (við Gilsárvötn)
fara um 1446 ha (14.5 ferkm)
lands undir vatn og sem svarar
1390 ha algróins lands. Auk þess
verða hólmar I lóninu um 21 ha að
flatarmáli og er algróið gróður-
lendi þeirra um 20 ha.
1 Hólmalóni (við Hólma- og
Garðavatn) fara 390 ha lands
undir vatn, þar af um 366 ha al-
gróins lands.
I báöum lónum samanlagt tap-
ast beitiland fyrir 639 ærgildi (1
ærgildi samsvarar 1 lambá með
1,3 lömb að meðaltali) miðað við.
90 daga beitartima.”
A gróöurkorti koma auk
gróðurlenda fram fyrirhuguð
miðlunarlón og lega annarra
virkjunarmannvirkja (1:20.000).
Gert er ráð fyrir nokkrum
frekari umhverfisrannsóknum
siðar og tilskilin er hlifð viö viss
svæði á heiðinni og fjallshliðar
eiga i engu aö raskast innan við
Bessastaðaá.
Verkfræöistofan Hönnun sá um
verkfræðivinnu og gerð
virkjunaráætlunarinnar, og sam-
kvæmt henni er talið álitlegt aö
virkja þarna 64 MW afl i tveimur
áföngum meö samtals um 90 G1
(gigalltra) miðlun, þar af 30 G1 i
Hólmalóni við fyrri áfanga og 60
G1 i Gilsárlóni i siöari áfanga, auk
hugsanlegra tengsla viö Fljóts-
dalsvirkjun (Jökulsá i Fljótsdal)
siðar.
Stöövarhús Bessastabaár-
virkjunar er fyrirhugað skammt
innan við beitarhúsin I Hvammi i
mynni Norðurárdals og aöfærsla
vatns eftir jarögöngum úr
Hólmalóni. Yrði nettófallhæð frá
lóni aö aflvélum um 570 metra.
Fljótsda Isvirkjun
Meginmiðlunarlón vegna
virkjunar Jökulsár i Fljótsdal er
fyrirhugað viö Eyjabakka aust-
an Snæfells, en NAUST hefur gert
tillögu um að það svæði yrði sett á
náttúruminjaskrá.
I fyrrasumar fór fram for-
könnun á lifriki Eyjabakka-
svæöisins, og mun skýrsla um
hana væntanleg fyrir árslok. Aö
rannsóknunum unnu 3 liffræöing-
ar á vegum Orkustofnunar. Er
hér um að ræöa byrjun á viötæk-
um umhverfisrannsóknum, sem
æskilegar eru vegna hugmynda
um virkjun jökulvatna noiðan
Vatnajökuls.
— H.G.
(úr fréttabréfiNAUST,stjórnar
Náttúruverndarsamtaka Austur-
lands).