Þjóðviljinn - 27.08.1976, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 27.08.1976, Blaðsíða 11
Föstudagur 27. áglist 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 GLÆNÝJAR ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FRÁ BIKARKEPPNI KSÍ í GÆRKVÖLDI Árni skoraði sigurmarkið undir lokin og akurnesingar sigruðu FH með þremur mörkum Akurnesingar voru allan tímann betri aðilinn í leiknum gegn FH sem fór fram í undanúrslitum bik- arkeppninnar í gærkvöldi. Þeir sigruðu með aðeins eins marks mun og skoraði Árni Stefánsson siyur- markið undir lok leiksins. Þar með hefur IA tryggt sér rétt til að leika úrslita- leik bikarkeppninnar gegn Val/ Breiðablik/ en sá leik- ur fer að öllum líkindum fram nk. þriðjudagskvöld. Leikurinn i Kaplakrika var á köflum hinn fjörugasti, einkum þó er á leiö. Staðan i leikhléi var 1:0 eftir mark Teits Þórðarsonar skömmu fyrir hlé. Arni Stefáns- son skaut föstu skoti að marki, Ómar varði en missti boltann til Teits sem skoraöi auðveldlega 1:0. 1 siðari hálfleik kom svo markaflóöiö. Teitur gaf á 3. min. gegn tveim með nettri kollspyrnu til Péturs Péturssonar, langbesta manns vallarins, og hann skoraði auðveldlega af stuttu færi. FH minnkaði svo muninn á 12. min. Eftir skyndisókn upp völlinn var tekin aukaspyrna, akurnes- ingar sváfu i vörninni og Gunnar Bjarnason skallaði i markið 2:1. Afram var barist og á 36. min jafnaði FH. Helgi Ragnarsson skoraði með hælnum.... og aftur fyrir sig i þokkabót. Hann fékk sendingu inn i markteiginn frá Leifi Helgasyni og i netið fór bolt- inn eftir nokkurn klaufaskap hjá Herði markverði. En FH-ingar fögnuðu ekki lengi. Aðeins minútu siðar eða niu minútum fyrir leikslok, skoruðu akurnesingar sigurmark sitt. Guðjón Þórðarson sendi háan bolta fyrir markið og þar var Arni Stefánsson til staðar og skoraði með laglegum skallabolta. FH-ingar sóttu án árangurs undir lokin með Gunnar Arin- bjarnarson sem besta mann en ó- sigurinn varð ekki umflúinn. Hjá akurnesingum var Pétur eins og Teitur Þórðarson skorar fyrsta mark leiksins tA-FH i gærkvöldi. Ómar kemur er búinn að missa bolt ann frá sér, Teitur gaf sér góðan tima og skoraði af stuttu færi. Mynd: —gsp áður segir mjög góöur en fleiri ógnuðu og þá einkum Arni Stefánsson með stórhættulegum skotum sinum. Hann átti ma. i fyrri hálfleik hörkuskot i þverslá beint úr aukaspyrnu fyrir utan vitateig og fleira mætti tina til. Þess má að lokum geta að landsliðskempan fyrrverandi úr Fram, Helgi Númason, kom inn á i þessum leik og lék að þessu sinni i FH-peysunni. Sannarlega gam- an að sjá Helga með að nýju en hann hefur átt við þrálát meiösli að striða allt frá þvi hann var á hátindi ferils sins sem knatt- spyrnumaður. Dómari var Guðmundur Har- aldsson og dæmdi af stakri prýði að vanda. —gsp Verðlaunin sem keppt verður um hjá Golfklúbbi Ness eru tékkneskur krystall — metinn á tugi þúsunda. Kylfingarnir berjast um góð verðlaun Um helgina veröa haldin tvö sterk golfmót og veröur þvi nóg að gera hjá okkar bestu kylfing- um. A sunnudaginn fer fram helj- armikiö mót á Nesvellinum. Þar verður keppt um glæsileg verð- laun frá fyrirtækinu „Glass Export” sem er tékkneskt aö ætt og uppruna... og gefur i verðlaun að sjálfsögðu tékkneskan krystal. Til keppninnar hefur verið boð- ið fimm bestu kylfingunum frá stærstu golfklúbbum landsins, en auk þess mun einn besti kylfingur Luxemborgar, Alec Graas taka þátt I keppninni. Má þvi búast við að þarna verði á milli 25-30 góðir kylfingar. Leiknar verða 36 holur án for- gjafar og hefst keppnin kl. 10.00 f.h. og mun standa fram eftir degi. A Akranesi fer fram á laugar- dagsvokölluðAðmirálskeppni, en þangað senda a.m.k. fimm klúbb- ar átta manna sveitir i stiga- keppni. Keppnin hefst kl. 11.30. Með Hinrik í farar- broddi eru Blikum nær allar leiðir færar Hann bregst aldrei i tækifærunum og færði Breiðabliki enn einu sinni sigur Hinrik Þórhallsson færöi Breiðabliki enn einu sinni sigur er hann skoraöi tvivegis gegn KR á Laugardalsvelli I gærkvöldi. Lið- in leiddu þar saman hesta sina I annaö sinn i 8-liöa úrslitunum, en siðast varð jafntefli l-l eftir framlengdan leik og dæmalausa óheppni KR-inga. Þeir áttu hins vegar engan möguleika að þessu sinni og urðu að þola 3-1 tap eftir aö staöan i leikhléi var 1-0 fyrir Breiöablik. Blikar sóttu undan vindi fyrir hlé og áttu mun meira i leiknum. Boltinn gekk manna á milli i á- gætu samspili og einmitt þannig kom fyrsta mark þeirra. Það var um miöjan hálfleikinn að Blikar iéku saman upp völlinn. Boltinn gekk frá manni til manns uns Gunnlaugur Helgason sendi til Gisla Sigurössonar sem skor- aði með þrumuskoti frá vitateig. Gullfallega að þessu marki staöið og litlu munaði að Breiöablik bætti öðru við skömmu seinna. Ólafur Friðriksson komst þá einn inn fyrir i dauöafæri en skaut hörkuskoti beint i fang Magnúsar markmanns. Hann hélt þó ekki boltanum, ólafur fékk annaö tækifæri, aö þessu sinni með mannlaust markiö rétt til hliöar við sig en skot hans fór i stöng og útaf. 1 siðari hálfleik sneru KR-ingar dæminu algjörlega við. Þeir sóttu undan sivaxandi vindinum af miklu kappi, böröust af eldmóði og voru greinilega staðráðnir i að jafna metin. Inn á milli ruku Breiöabliksmenn þó upp, sóttu að marki KR og þeim gekk betur að skapa sér tækifæri. Eftiru.þ.b. lOminútna leik juku þeir siðan forystu sina. Vignir Baldursson sendi einn af sinum skemmtilegu snúningsboltum til Hinriks Þórhallssonar sem var i þröngu færi úti i hægra vitateigs- horni en skoraði af öryggi meö föstu skoti við jöröu i markhornið fjær. A 18. minútu jók hann forskotið i 3-0. Aftur fékk hann boltann i hægra vitateigshornið, að þessu sinni frá Gisla Sigurðssyni og með tvo KR-inga á bakinu tókst honum að skora aftur á nákvæm- lega sama hátt..... dúndurskot með jörðu i markhorniö fjær. Sannarlega mikiö öryggi yfir þessum dreng þegar hann kemst i skotfæri og hefur hann skoraö fimm mörk fyrir lið sitt i siðustu tveimur leikjum.... og úr fimm tækifærum. Engu eytt til spillis. Úrslit leiksins voru ráðin en þó börðust KR-ingar áfram og sóttu nú án afláts. Þeir skoruðu siðan á 25. min. 3-1 með hörkuskot frá Sigurði Indriðasyni sem stefndi beint á markvörðinn, ólaf Hakon- arson. Hann kraup hinn rólegasti niður og beið með faðminn út- breiddan eftir boltanum sem var þó ekkert á leiðinni þangað heldur smeygði sér i gegnum klof mark- mannsins og drattaðist þaðan inn fyrir marklinuna. Fleiri mörk lágu eftir þetta i loftinu. KR-ingar mögnuðust um allan helming, hvert tækifærið rak annað en i netið vildi boltinn ekki oftar og smám saman tókst Breiðabliki að jafna leikinn. Oft skall þó hurð nærri hælum hjá þeím, t.d. tvisvar eftir góð lang- skot Halldórs Björnssonar og fleiri skot frá t.d. Jóhanni Torfa- syni og Hauki Ottesen. En sigur Breiðabliks var sann- gjarn. Þeir sýna mikinn styrk- leika um þessar mundir og vist er að róðurinn hjá nýbökuðum ts- landsmeisturum Vals verður erfiður er liöin leiða saman hesta sina i undanúrslitunum. —gsp

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.