Þjóðviljinn - 27.08.1976, Side 11
Föstudagur 27. áglist 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
GLÆNÝJAR ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FRÁ BIKARKEPPNI KSÍ í GÆRKVÖLDI
Árni skoraði
sigurmarkið
undir lokin
og akurnesingar sigruðu FH með
þremur mörkum
Akurnesingar voru allan
tímann betri aðilinn í
leiknum gegn FH sem fór
fram í undanúrslitum bik-
arkeppninnar í gærkvöldi.
Þeir sigruðu með aðeins
eins marks mun og skoraði
Árni Stefánsson siyur-
markið undir lok leiksins.
Þar með hefur IA tryggt
sér rétt til að leika úrslita-
leik bikarkeppninnar gegn
Val/ Breiðablik/ en sá leik-
ur fer að öllum líkindum
fram nk. þriðjudagskvöld.
Leikurinn i Kaplakrika var á
köflum hinn fjörugasti, einkum
þó er á leiö. Staðan i leikhléi var
1:0 eftir mark Teits Þórðarsonar
skömmu fyrir hlé. Arni Stefáns-
son skaut föstu skoti að marki,
Ómar varði en missti boltann til
Teits sem skoraöi auðveldlega
1:0.
1 siðari hálfleik kom svo
markaflóöiö. Teitur gaf á 3. min.
gegn tveim
með nettri kollspyrnu til
Péturs Péturssonar, langbesta
manns vallarins, og hann skoraði
auðveldlega af stuttu færi.
FH minnkaði svo muninn á 12.
min. Eftir skyndisókn upp völlinn
var tekin aukaspyrna, akurnes-
ingar sváfu i vörninni og Gunnar
Bjarnason skallaði i markið 2:1.
Afram var barist og á 36. min
jafnaði FH. Helgi Ragnarsson
skoraði með hælnum.... og aftur
fyrir sig i þokkabót. Hann fékk
sendingu inn i markteiginn frá
Leifi Helgasyni og i netið fór bolt-
inn eftir nokkurn klaufaskap hjá
Herði markverði.
En FH-ingar fögnuðu ekki
lengi. Aðeins minútu siðar eða niu
minútum fyrir leikslok, skoruðu
akurnesingar sigurmark sitt.
Guðjón Þórðarson sendi háan
bolta fyrir markið og þar var Arni
Stefánsson til staðar og skoraði
með laglegum skallabolta.
FH-ingar sóttu án árangurs
undir lokin með Gunnar Arin-
bjarnarson sem besta mann en ó-
sigurinn varð ekki umflúinn. Hjá
akurnesingum var Pétur eins og
Teitur Þórðarson skorar fyrsta mark leiksins tA-FH i gærkvöldi. Ómar kemur er búinn að missa bolt
ann frá sér, Teitur gaf sér góðan tima og skoraði af stuttu færi. Mynd: —gsp
áður segir mjög góöur en fleiri
ógnuðu og þá einkum Arni
Stefánsson með stórhættulegum
skotum sinum. Hann átti ma. i
fyrri hálfleik hörkuskot i þverslá
beint úr aukaspyrnu fyrir utan
vitateig og fleira mætti tina til.
Þess má að lokum geta að
landsliðskempan fyrrverandi úr
Fram, Helgi Númason, kom inn á
i þessum leik og lék að þessu sinni
i FH-peysunni. Sannarlega gam-
an að sjá Helga með að nýju en
hann hefur átt við þrálát meiösli
að striða allt frá þvi hann var á
hátindi ferils sins sem knatt-
spyrnumaður.
Dómari var Guðmundur Har-
aldsson og dæmdi af stakri prýði
að vanda.
—gsp
Verðlaunin sem keppt verður um hjá Golfklúbbi Ness eru tékkneskur
krystall — metinn á tugi þúsunda.
Kylfingarnir
berjast um
góð verðlaun
Um helgina veröa haldin tvö
sterk golfmót og veröur þvi nóg
að gera hjá okkar bestu kylfing-
um. A sunnudaginn fer fram helj-
armikiö mót á Nesvellinum. Þar
verður keppt um glæsileg verð-
laun frá fyrirtækinu „Glass
Export” sem er tékkneskt aö ætt
og uppruna... og gefur i verðlaun
að sjálfsögðu tékkneskan krystal.
Til keppninnar hefur verið boð-
ið fimm bestu kylfingunum frá
stærstu golfklúbbum landsins, en
auk þess mun einn besti kylfingur
Luxemborgar, Alec Graas taka
þátt I keppninni. Má þvi búast við
að þarna verði á milli 25-30 góðir
kylfingar.
Leiknar verða 36 holur án for-
gjafar og hefst keppnin kl. 10.00
f.h. og mun standa fram eftir
degi.
A Akranesi fer fram á laugar-
dagsvokölluðAðmirálskeppni, en
þangað senda a.m.k. fimm klúbb-
ar átta manna sveitir i stiga-
keppni. Keppnin hefst kl. 11.30.
Með Hinrik í farar-
broddi eru Blikum
nær allar leiðir færar
Hann bregst aldrei i tækifærunum og færði
Breiðabliki enn einu sinni sigur
Hinrik Þórhallsson færöi
Breiðabliki enn einu sinni sigur er
hann skoraöi tvivegis gegn KR á
Laugardalsvelli I gærkvöldi. Lið-
in leiddu þar saman hesta sina I
annaö sinn i 8-liöa úrslitunum, en
siðast varð jafntefli l-l eftir
framlengdan leik og dæmalausa
óheppni KR-inga. Þeir áttu hins
vegar engan möguleika að þessu
sinni og urðu að þola 3-1 tap eftir
aö staöan i leikhléi var 1-0 fyrir
Breiöablik.
Blikar sóttu undan vindi fyrir
hlé og áttu mun meira i leiknum.
Boltinn gekk manna á milli i á-
gætu samspili og einmitt þannig
kom fyrsta mark þeirra.
Það var um miöjan hálfleikinn
að Blikar iéku saman upp völlinn.
Boltinn gekk frá manni til manns
uns Gunnlaugur Helgason sendi
til Gisla Sigurössonar sem skor-
aði með þrumuskoti frá vitateig.
Gullfallega að þessu marki staöið
og litlu munaði að Breiöablik
bætti öðru við skömmu seinna.
Ólafur Friðriksson komst þá
einn inn fyrir i dauöafæri en skaut
hörkuskoti beint i fang Magnúsar
markmanns. Hann hélt þó ekki
boltanum, ólafur fékk annaö
tækifæri, aö þessu sinni með
mannlaust markiö rétt til hliöar
við sig en skot hans fór i stöng og
útaf.
1 siðari hálfleik sneru KR-ingar
dæminu algjörlega við. Þeir sóttu
undan sivaxandi vindinum af
miklu kappi, böröust af eldmóði
og voru greinilega staðráðnir i að
jafna metin. Inn á milli ruku
Breiöabliksmenn þó upp, sóttu að
marki KR og þeim gekk betur að
skapa sér tækifæri.
Eftiru.þ.b. lOminútna leik juku
þeir siðan forystu sina. Vignir
Baldursson sendi einn af sinum
skemmtilegu snúningsboltum til
Hinriks Þórhallssonar sem var i
þröngu færi úti i hægra vitateigs-
horni en skoraði af öryggi meö
föstu skoti við jöröu i markhornið
fjær.
A 18. minútu jók hann forskotið
i 3-0. Aftur fékk hann boltann i
hægra vitateigshornið, að þessu
sinni frá Gisla Sigurðssyni og
með tvo KR-inga á bakinu tókst
honum að skora aftur á nákvæm-
lega sama hátt..... dúndurskot
með jörðu i markhorniö fjær.
Sannarlega mikiö öryggi yfir
þessum dreng þegar hann kemst i
skotfæri og hefur hann skoraö
fimm mörk fyrir lið sitt i siðustu
tveimur leikjum.... og úr fimm
tækifærum. Engu eytt til spillis.
Úrslit leiksins voru ráðin en þó
börðust KR-ingar áfram og sóttu
nú án afláts. Þeir skoruðu siðan á
25. min. 3-1 með hörkuskot frá
Sigurði Indriðasyni sem stefndi
beint á markvörðinn, ólaf Hakon-
arson. Hann kraup hinn rólegasti
niður og beið með faðminn út-
breiddan eftir boltanum sem var
þó ekkert á leiðinni þangað heldur
smeygði sér i gegnum klof mark-
mannsins og drattaðist þaðan inn
fyrir marklinuna.
Fleiri mörk lágu eftir þetta i
loftinu. KR-ingar mögnuðust um
allan helming, hvert tækifærið
rak annað en i netið vildi boltinn
ekki oftar og smám saman tókst
Breiðabliki að jafna leikinn. Oft
skall þó hurð nærri hælum hjá
þeím, t.d. tvisvar eftir góð lang-
skot Halldórs Björnssonar og
fleiri skot frá t.d. Jóhanni Torfa-
syni og Hauki Ottesen.
En sigur Breiðabliks var sann-
gjarn. Þeir sýna mikinn styrk-
leika um þessar mundir og vist er
að róðurinn hjá nýbökuðum ts-
landsmeisturum Vals verður
erfiður er liöin leiða saman hesta
sina i undanúrslitunum.
—gsp