Þjóðviljinn - 03.09.1976, Page 10

Þjóðviljinn - 03.09.1976, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. september 1976 Syngja á Haust- sýningu FÍM Söngflokkurinn Hljómeyki verður á Haustsýningu FIM að Kjarvalsstöðum laugardagana 4. og 11. september. Mun flokkurinn syngja nokkrum sinnum á timá- bilinu frá kl. 15-17 báða dagana, og verður ný efnisskrá flutt hverju sinni. Hljómeyki mun flytja tónlist eftir: Maurice Ravel, Claude Debussy, Benja- min Britten, Mayas Seiber, svo islensk og erlend þjóölög. „V onley sis gætir hjá bændum” Eins og kunnugt er þá er aðalfundur Stéttar- sambands bænda nýaf- staðinn. Blaðið kom að máli við Gunnar Guð- bjartsson, formann Stétt- arsambandsins og spurði hann hvaða umræðuefni hefðu borið hæst á fund- inum að þessu sinni. — Segja má, að það hafi verið fjórir málaflokkar, sagöi Gunn- ar: Lánamálin, framleiðslu- og markaðsmál, verðlagsmál og- svo óþurrkarnir og afleiðingar þeirra. Um öll þessi mál fóru fram langar og ýtarlegar um- ræður, um þau var fjallað i nefndum og siðan samþykktar um þau ýtarlegar ályktanir. Það hefur nú verið horfið að þvi ráöi að visitölubinda stofn- lánin að einum fjórða hluta. Ég tel þaö mjög varhugaveröa stefnu og rangláta. Það er aug- ljóst, að hún mismunar bændum með þeim hætti, að þeir, sem afturúr hafa dregist með fram- kvæmdir af ýmsum ástæöum, sem þeim verður ekki um kennt, veröa einkum fyrir barðinu á þessari ákvörðun. Ég hef ekki trú á að fært þyki að halda þess- ari visitölubindingu til fram- búðar. 1 vor var skipuð nefnd til þess að fjalla um lánamál land- búnaðarins og er Stefán Pálsson formaður hennar. Von er á til- lögum frá nefndinni með haust- inu. — Nú vildir þú fara aðra leið til þess að tryggja hag stofn- lánadeildarinnar en þá, sem valin var? — Já, ég taldi réttara að lagt yrði sérstakt gjald á heildsölu- verð búvöru, 1 til 1,5 % og það yrði notað til þess að greiða halla Stofnlánadeildarinnar af töku verðtryggðs lánsfjár. Ég tel, að yrði sú leið farin, mundi framþróun i landbúnaðinum verða með svipuðum hætti og veriö hefur undanfarið en visi- tölubindingin skapar hinsvegar stórhættu á stöðvun fram- kvæmda. — Ef við vikjum þá að mark- aösmálunum. — Já, það horfir nú svo með þau, öndvert þvi, sem var fyrir fáeinuní árum, að nú er útlit fyrir skort á mjólk og mjólkur- vörum en aftur á móti má segja, að offramleiðslu gæti á kjöti. Útlit er fyrir að nú i byrjun slát- urtiðar verði til i landinu tals- verðar birgðir af dilkakjöti. Óþurrkarnir sunnan- og vestan- lands nú annað árið i röð valda þvi, að kúm fækkar á þvi svæði. Þegar fækka þarf á fóðrum fella menn heldur kýrnar en sauðféð þvi um þær munar meira. Svo viröist sem ýmsir bændur hall- ist fremur að sauðfjárbúskap en kúa-. bykir hann frjálsari og skemmtilegri. Ágúst Petersen sýndi í Noregi Rœtt við Gunnar Guðbjartsson um lánakjör, óþurrka og önnur helstu mál á þingi Stéttarsambands bœnda — Hvað sjá menn helst til úr- bóta? — Það var nú talað um til- færslu á verði milli framleiðslu- greina og svo að reyna að koma upp einhverri afleysingaþjón- ustu, svo að mjólkurframleið- endur geti fremur en nú er svif- að sér frá stöku sinnum. — En hvað um verðlagsmál- in? — Um þau er nú litið að segja á þessu stigi. Það náðist ekki samkomulag i sex- manna nefndinni og málið er nú hjá sáttasemjara. Ég skal ekki um það segja hvenær það leysist. í fyrra fór þvi fjarri að verðlagsgrundvallarverð næðist á gærum. Verksmiðjurnar eru tregar til að hækka þaö, en þar skakkaði mörgum milljónatug- um. Nú, sama er að segja um dilkakjötið. Viða skorti á að sláturleyfishafar gætu greitt grundvallarverð fyrir það. Astæðurnar til þess voru m.a. þær, að kostnaður við slátrun og sölu fór langt fram úr þvi, sem búist var við þegar gengiö var frá verðlagsgrundvellinum. — Og þá erum við komnir gð óþurrkunum. — Já, það er náttúrlega aug- ljóst mál, að þeir koma til með að valda mörgum bændum hér sunnanlands pg vestan ómæld- um búsifjum og má gera ráð fyrir að koma þurfi þeim til að- stoðar á einhvern hátt. Með hverju móti það verður gert skal ég ekki um segja, og enn getur ástandið eitthvað breyst til batnaðar frá þvi, sem var þegar verst horfði. Þessa dag- ana hefur verið þurrkur og verði svo enn um sinn ná menn inn heyjum, en auðvitað eru þau orðin stór skemmd og meira og minna lélegt fóður. Það hefur nú verið stöðvuð sala úr landi á heyi og graskögglar verða held- ur ekki seldir út af óþurrka- svæðinu, i bili a.m.k. Til álita kemur einnig, að Bjargráða- sjóður komi hér til skjalanna með auknum lánveitingum. En til þess þarf lagabreytingu. Sjóðinn skortir lika fé til þess að mæta verulega auknum útgjöld- um. Hrein eign hans var 280 millj. kr. um siðustu áramót og þar af voru i Búnaðardeildinni 138 millj. — Hefurðu orðið þess var, að vonleysis gæti hjá bændum á óþurrkasvæðinu? — Já, ég get ekki neitað þvi og það er i raun og veru engin furða eins og árað hefur til hey- skapar bæði nú og i fyrra. Það þarf töluvert sterk bein til þess að þola slik áföll hvert árið eftir annað. Vonandi láta þó sem fæstir hugfallast en reyna að þrauka þar til séð verður hvern- ig úr rætist um aðstoö, sagöi Gunnar Guðbjartsson að lokum. — mhg Agúst F. Petersen, listmál- ara, var boðið að halda mál- verkasýningu á Peter Gynt há- tiðinni i Vinstra i Noregi dag- ana 4,-15. ágúst. Sýndi hann þar ásamt norsku listamönnunum Astri Eidseth Rygh og Einar Aarö. Agúst tók einnig þátt i lista- og menningarhátið þessa byggðarlags og rómar 'héim- kominn menningar- og myndar- braginn þar. Hátið þessi er haldin ár hvert i bænum Vinstra i Guðbrandsdal og er hún i tengslum við Ibsen og skáldverk hans Pétur Gaut. Pétur Gautur var ættaður frá Vinstra og var uppi um 1700. Þetta hefur verið árviss hátið frá 1967, en þaö ár voru 100 ár liðin frá þvi að Ibsen gaf út Pétur Gaut. Auk málverkasýningarinnar voru á hátiðinni margskonar skemmtiatriði, svo sem hljóm- leikar allskonar, leiklist, söngvar, listdans:, ferðalög um nágrennið, veislur og ræðuhöld. Fyrir utan fjölda norskra lista- manna komu fram á hátiðinni 15 manna list- og þjóðdansaflokkur frá Sovétrikjunum, 6 hljóm- listarmenn frá Sviþjóð, ballett og látbragðsleikarar o.fl. Þetta er i fyrsta sinn sem islendingi hefur verið boðin þátttaka i Per Gynt hátiðinni. Agúst F. Petersen. Mynd- og handmennt verði sýndur sómi A námskeiði mynd- og hand- menntarkennara, sem haldiö var á vegum Kennaraháskóians i Reykjavik dagana 23. til 31. ágúst, voru geröar nokkrar álykt- anir um kennslugreinar þessar. Koma þar fram ýmsar ábending- ar og kröfur. Þjóöviljinn birtir hér að neðan ályktanir kennar- anna: Ágæt námskrá „Mynd- og handmenntarkennar- ar lýsa yfir ánægju sinni vegna nýrrar námskrár i mynd- og handmennt og þakka námskrár- nefnd velunnin störf. Jafnframt vilja mynd- og handmenntar- kennarar benda á að eigi nokkur möguleiki að vera á þvi að fram- kvæmda þær góðu hugmyndir og tillögur sem i námskránni eru þarf verulega umbyltingu i flest- um skólum landsins hvað varðar aöbúnaö, nemendafjölda, stunda- fjölda, efniskaúp hverskonar og launakjör kennara. Ýmsir ráðamenn þjóðarinnar hafa oft talað fagurlega um að auka beri verkmennt hjá is- lenskri þjóð. Vissulega hefur margt áunnist,en margt er ógert. Það er eindregin krafa mynd- og handmenntarkennara að hug- myndum og tillögum i nýrri og á- gætri námskrá verði sýndur full- ur sómi af hálfu ráðamanna skóla og þeirra sem ráða fjárveitingum til skólamála”. Nauðsynleg sem kjarnagrein. „Samkvæmt gildandi lögum er sérhverjum heimilt aö innritast i Kennaraháskóla Islands og hljóta þaðan réttindi til kennslu i mynd- og handmennt eftir eins vetrar nám i þeim greinum, enda þótt þær séu ekki kenndar i skólum er útskrifa stúdenta. Augljóst er hve nauðsynlegum undirbúningi hlýtur oft að vera mjög áfátt. I dreifbýli, þar sem fagkennslu verður ekki við komið sökum fá- mennis, eru almennir bóknáms- kennarar tiðum látnir kenna mynd- og handmennt þó að verk- leg þjálfun þeirra sé sömuleiðis ó- fullnægjandi. Með aukinni tækni fjölgar trú- lega tómstundum almennings, þar gæti mynd- og handmennt orðið til gagns og ánægju. Höfuðatvinnuvegir þjóðar- innar: sjávarútvegur og land- búnaður virðast þegar full- nýttir. ört vaxandi fólksfjöldi hlýtur þvi æ meir að byggja af- komu sina á sem fjölþættustum iðnaði. I hráefnasnauðu landi eru forsendur iðnaðar fyrst og fremst listrænn og fágaður smekkur samfara vandvirkni, verkmennt- un og tækniþjálfun. Þvi telja mynda- og handmenntarkennar- ar óhjákvæmilegt að mynd- og handmennt verði kjarnagrein i mennta- og fjölbrautaskólum.” Með samkennsiu kynja, en á móti f jölgun. „Við viljum taka það fram að i inngangsorðum hinnar nýju nám- skrár er gert ráð fyrir að greining nemenda eftir kynjum i hann- yrða- og smiðanámi verði úr sög- unni eins fljótt og aðstæður leyfa. Við erum þvi hlynntar að sam- kennsla komist á, en þá með þeirri tilhögun að kennslutimum fjölgi i samræmi við aukinn nemendafjölda og námsefni en samkennslan verði ekki til þess að nemendum fjölgi um helming, en timafjöldi óbreyttur og með þvi námstimi hvorrar greinar skertur um helming. Þess eru þvi miður dæmi i nokkrum skólum. Við teljum algera nauðsyn að verknám i grunnskólanum verði þannig skipulagt að nem- endur geti tileinkað sér til hlýtar undirstöðuþætti hverrar greinar fyrir sig og þeir nái þeirri kunn- áttu og hæfni að örugg undirstaöa náist, sem verði þeim til aukins frumkvæðis við verkefnaval, sem -siðar má byggja á og tengja til hinna ýmsu atvinnugreina.”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.