Þjóðviljinn - 01.10.1976, Blaðsíða 3
Föstudagur 1. október 1976 JjJóÐVILJINN — SIÐA 3
Yfirvöld i Ródesiu
sökuð um pyndingar
LONDON 30/9 (Reuter) — I
skýfslu,, sem nefnd kaþólsku
kirkjunnar, hefur gefiö út, eru
yfirvöld Ródesiu sökuð um að
beita nauðungarflutningum,
pyndingum og morðum gegn
svertingjum i landinu.
t þessari skýrslu, sem er 104
bls. að lengd og lýsir aðgerðum
ródesisku öryggislögreglunnar og
hersins, segir friðarnefnd
kaþólsku kirkjunnar i Rodesiu að
skæruliðar úr flokki svartra
þjóðernissinna væru ,,ekki þeir
einu sem stunduðu hryðjuverka-
starfsemi i Ródesiu nú”. Að sögn
nefndarinnar sýnir skýrslan aö
herlið hvitu minnihlutastjórnar-
innar beitir svertingja i iandinu
engu minna ofbéldi en sjtórnin á-
sakar skæruliða um.
A sunnudaginn kom þaö fram i
árlegri skýrslu samtakanna
Amnesty International að i
Ródesiu væru 700 pólitiskir
fangar, og var einnig sagt að
herlið Ródesiustjórnar hefði látið
fara fram ieynileg réttarhöld og
framiö ýmis hryðjuverk.
I skýrslunni, sem kom út i dag
og nefndist „Borgarastyrjöld i
Ródesiu”, birtist ýtarlegri lýsing
á pyndingaraðferðum lögregl-
unnar i Ródesiu,og kom þar fram
að lögreglan beitti barsmiðum,
raflosti og vatnspyndingum.
Nefndin, sem skipuð var af
kaþólskum biskupum i Ródesiu,
sagðist hafa rannsakaö mjög
nákvæmlega þrjú tilvik, þar sem
pyndingum var beitt gegn hópum
manna og kvenna, sem grunuð
voru um að búa yfir vitneskju um
skæruliða.
Skýrslan sagði að her og lög-
regla Ródesiu gerðu litinn mun á
vopnuðum skæruliðum og
varnarlausu fólki, og hefði herinn
gert sig sekan um morð á óbreytt-
um borgurum. Skýrslan nefndi
t.d. að íjúni 1975 hefðu hermenn
hafið skothrið á ibúa þorps eins
fellt tuttugu menn og sært
fimmtán mjög alvarlega. Einn
þeirra heði siðar látið lifiö af sár-
um sinum. Niu þeirra sem létu
lifið voru börn, og fjórar konur
féllu einnig. Meðal þeirra sem
særðust voru fimm börn og átta
konur.
Nýlega tók ródesiustjórn upp á þvi að beita riddaraliði gegn
skæruliðum þjóðernissinna I landinu, en hætt er við þvi, að
hvorki riddaralið né þær pyndingar og hryðjuverk, sem hvitir
hermenn hafa nú verið sakaðir um, geti stöðvað sex miljónir
svertingja sem krefjast réttar sins.
SeKosshreppur fer ekki
í nýtt YotmúlamáJ
„Eg hef ekki heyrt að til standi að bjóða i Votmúlan
aftur” segir sveitarstjórinn á Selfossi
Eflauster mönnum enn i fersku
minni „Votmúlamálið” fræga,
þegar Selfosshreppur ætlaði að
kaupa jörðina Votmúla i Flóa, en
sú ákvörðun hreppsnefndar var
felld i almennri atkvæöagreiðslu
ibúa Selfosshreppsog ekkert varð
þvi úrmálinu. Nú hefur það gerst
að Votmúlinn er enn boðinn til
kaups, af Búnaðarbankanum,
sem mun vera eigandi jaröarinn-
ar. Sagt er að 30 milj. krónu boð
sé aðeiins til aö brosa að. En
spurningin er hvort Selfosshrepp-
ur, sem taldi sér nauðsynlegt að
fá aukið jarðnæði með framtiðina
i huga, ætlar að bjóða i að þessu
sinni.
„Ég hefekkiheyrt minnst á það
einu orði og tel afar óliklegt að
svo verði, þótt ég geti ekki for-
tekið neitt um það mál, enda er
það á valdi hreppsnefndar að
ákveða það”, sagði Erlendur
Hálfdánarson, sveitarstjóri á Sel-
fossi, er við ræddum við hann i
gær.
Erlendur sagði, að samkvæmt
aðalskipulagi Selfosshrepps, væri
til land fram til ársins 1990, en
það hefur gengið ört á þetta land-
svæði og það vantar eflaust iand i
náinni framtið, en hann sagði að
hreppurinn hefði verið að kaupa
skika og skika, sem boðist heföi i
nágrenninu. En Votmúlakaup
sagði hann ekki hafa heyrt minnst
á einu orði.
— S.dór
Mengunin i Manfredonia:
Nauðsynlegt að
gera ráðstafan-
ir þegar í stað
MANFREDONIA, Italiu, 30/9
(Reuter) — Kunnur italskur
mengunarsérfræðingurskýrði frá
þvi i dag að hætta væri á mjög al-
varlegri mengun ef ekki væru
þegar i stað gerðar ráöstafanir til
þess aö hreinsa svæðið, þar sem
arsenik breiddist út um siðustu
helgi.
Um siðustu helgi varð spreng-
ing i rikisrekinni oliuefnaverk-
smiðju skammt frá Manfredonia
viö strönd Adriahafsins, og komst
þá talsvert mikið magn af
arseniki út i andrúmsloftið.
Staðarbúar hafa nú mestar
áhyggjur af þvi að þessi eitrun
kunni aö spilla fyrir fiskiðnaði
héraðsins. Segja sumar skýrslur
aö mikiö magn af arseniki hafi
fundist i sjó skammt frá verk-
smiðjunni, og margir óttast að
nauðsynlegt kunni að veröa að
framlengja timabundnu banni viö
fiskveiðum á þessum slóöum.
I dag sigldi lögreglan meðfram
ströndinni til að sjá til þess að
banninu viö fiskveiðum væri
framfylgt. Tiu ferkilómetra svæði
hefur þegar verið lokað.
M engunarsérfræðingurinn
Amaldo Liberti, sem jórnar
rannsóknum á loftmengun i
rannsóknarstofnun rikisins, sagði
að hætta væri á „öðru Seveso” ef
yfirvöldin brygðust ekki skjótt við
að eyða eitrinu. Nú eru tæpir þrir
mánuðir siðan sprengingin varð i
verksmiðju i borginni Seveso,
skammt íyrir norðan Milanó, en
þá barst einnig út i loftið mikið
magn af hættulegu eitri, svo að
meira en 700 menn urðu aö flýja
heimili sin. Sérfræðingar sögðu
þó I dag að sprengingin i
Manfredonia myndi ekki hafa
eins alvarlegar afleiðingar og
sprengingin i Seveso, ef þegar i
stað væri gripiö til ráðstafana til
að vinna á móti eitrinu.
Eitrið, sem barst út i andrúms-
loftið við sprenginguna i
Manfredonia fór að mestu yfir
óbyggt svæði, þvi að svo heppi-
lega vildi til að vindurinn blés þá i
átt frá þessari fiskimannaborg,
sem telur 30.000 ibúa. Einn
meginmunur er á slysunum i
Seveso og Manfredonia: i Seveso
var þaö svotil óþekkt eitur sem
olli menguninni, og vita sérfræö-
'£°ar litiö bæði um skaðsemi
pcf? og bestu leiöir til að berjast
gegn þvi. Eitrið sem veldur
menguninni núna, arsenik, er
hins vegar ákaflega vel þekkt, og
kemur m.a. mjög við sögu i reyf-
urum. Prófessor Liberti sagöi að
unnt væri að eyða eitrinu meö
ýmsum efnum, og auk þess væri
engin hætta á ferðum ef ávextir
og grænmeti frá mengunarsvæö-
inu væri nógu vel þvegið.
Khaddam utanrikisráðherra Sýr-
lands; ræðir vib palestinumenn
eftir sigur sýriendinga.
Sýriend-
ingar
sigur-
sælir
BEIRUT 30/9 (Reuter) — Flestar
bækistöðvar vinstri manna og
palestinuaraba i fjöllunum fyrir
austan Beirut virðast nú hafa
fallið i hendur sýrlendinga og
hæri manna. Nokkur merki sáust
um þaö að bardagar stæðu enn
yfir, en forráðamenn palestínu-
araba viðurkenna það í dag að
her þeirra hefði klofnað sundur i
smáhópa og flestir væru á undan-
haldi.
I Beirut álitu talsmenn
palestinuaraba að sýrlendingar
hefðu misst minna en 100 menn i
sókninni uppi i fjöllum. Töldu þeir
að i sýrlenska hernum hefðu veriö
um 8000 menaen áður hafði verið
talið að hermenn palestinuaraba
á þessum slóðum væru um 1500.
Töldu talsmenn palestinuaraba
að sókn sýrlendinga hefði verið
vel skipulögö og vel framkvæmd.
Útvarp vinstri manna i Beirut
skýrði jafnframt frá þvi að utan-
rikisráðherra Sýrlands, Abdel
Helim Khaddam, ætti nú viðræð-
ur við ýmsa leiðtoga palestinu-
araba i þorpinu Sofar.
JÓHANNESARBORG 30/9
(Reuter) — Aróðursritum, þar
sem svertingjar eru hvattir til
uppreisnar og styrjaldar, ef
stjórn Suður-Afriku veitir þeim
ekki fullt jafnrétti innan tveggja
vikna, var i dag dreift um svert-
ingjabæinn Soweto i grennd viö
Jóhannesarborg.
Enn ólga
viða á Spáni
MADRID 30/9 (Reuter) —
Spönsk óeirðalögregla beitt I
dag reyksprengjum og kylfum
til að sundra mörg hundruð
manna hópi stúdenta, sem
voru á mótmælafundi til að
undirbúa allsherjarverkfall i
Madrid á morgun. Bæði mót-
mælafundurinn i dag og
verkfallið á morgun' érú gérö
til að mótmæla morðinu á 21
árs gömlum stúdent, sem
skotinn var til bana i kröfu-
göngu fyrir þremur dögum.
Motöíö hefur verið eignað
mönnum, sem standa yst til
hægri, þvi að lögreglan hefur
borið til baka að hún hafi beitt
skotvopnum við að sundra
mótmælagöngum.
Stúdentahópurinn safnaðist
i dag saman við mikla um-
ferðargötu skammt frá
háskólanum, og hrópuðu
menn „stöðvið lögreglukúg-
un”. En hópurinn sundraðist
fljótlega þegar lögreglan réðst
á hann.
Aróðursbréfum var dreift
um Madrid og voru menn þar
hvattir til þess að fylgja for-
dæmi baska i norðurhluta
Spánar, en á mánudaginn
gerðu þeir umfangsmesta
verkfall, sem orðið hefur i hin-
um ólgusömu baskahéruðum
siðan á dögum borgara-
styr jaldarinnar 1936—39.
Póstmenn sem verið hafa i
verkfalli að undanförnu sneru
aftur til vinnu sinnar i 37 af 50
héruðum Spánar, en enginn
póstur var þó borinn út i
Madrid og iðnaðarborgunum
Barcelona og Bilbao.
Starfsmenn spánska flug-
félagsins Iberia tilkynntu i
dag að frá og með morgundeg-
inum myndu þeir vinna
nákvæmlega samkvæmt regl-
um. Er sagt að þessi ákvörðun
muni enn auka öngþveitið i
flugmálum landsins, en siðan
fyrir viku hafa flugumferða-
stjórar dregið úr vinnu-
hraðanum.
Aukin
vernd
STRASSBURG 30/9 (Reuter)
— Framleiðendur, sem valda
slysum á fólki eða dauðsföll-
um, með gallaðri vöru, geta
þurft að bera ótakmarkaða
ábyrgð, samkvæmt sam-
þykkt, sem gerð var i
Evrópuráðinu I Strassburg i
dag.
Samkvæmt tilkynningu
ráðsins er ætlast til þess að
samþykkt þessi stuðli að þvi
að vernda neytendur. Hún
mun siðan koma fyrir fund
utanrikisráðherra þeirra 19
landa sem aðild eiga að
Evrópuráðinu, en hann verður
haldinn i janúar 1977.
Þessi samþykkt gerir ráð
fyrir að framleiðandi skuli
greiða að fullu allar skaðabæt-
ur vegna galla I vöru hans, og
er kvað svo á að bótagreiðsl-
unum séu engin takmörk sett.
Þó er unnt að kveða svo á að
ekki skuli greiða meira en
200.000 þýsk mörk fyrir hvert
einstakt tilvik.
Beið bana
fyrir eigin
sprengju
RENNES 30/9 (Reuter) —
Tuttugu og þriggja ára gamall
bretónskur þjóðernissinni beið
bana i gærkvöldi þegar
sprengja, sem hann var að
koma fyrir, sprakk i höndum
hans. Ætlaði hann að setja
sprengjunafyrir framan heim
ili yfirmanns úr lögreglunni.
Bretónskir þjóðernissinnar
hafa árum saman barist fyrir
þvi að losa Bretagne úr tengsl-
um við Frakkland og fá
sjálfstjórn.