Þjóðviljinn - 01.10.1976, Blaðsíða 7
< I I
yröi sem uppfylla þarf vegna
þeirra styrkveitinga eru áþekk
þeim er aö framan eru talin
vegna fjárfestingarstyrkja. Há-
marksstyrkveiting er ca. 500
þús. isl. kr.
Auk þessa hefur norska sam-
vinnusambandiö NKL sett sér
reglur um aöstoð viö dreifbýlis-
verslunina. Aöalmunur þess
styrks og rikisins er þessi
helst:
1. NKL veitir aðeins styrk til
reksturs þeirra verslana,
sem eru reknar meö tapi.
(rikisstyrkurinn er án tillits
til rekstursafkomu.)
2. NKL styrk má veita til
félaga, sem reka verslanir i
minni byggðarlögum óháö
fjölda einkaverslana, á
verslunarsvæðinu.
Hámarksstyrkur NKL til
reksturs verslunar i dreifbýli er
um 825 þús. isl. kr. Lán án vaxta
og með eftirgjöf aö hluta af af-
borgun er hægt aö veita út á
fjárfestingar. Aö liönum 5 árum
veröa félagiö og NKL aö semja
áætlun um endurgreiðslur á lán-
inu. Hámarkslán pr. verslun er
ca. 1.6 milj. isl. kr.
Þennan styrk til fjárfestingar
má aðeins veita til búöainnrétt-
inga, tækja og áhalda. Frum-
skilyrði til styrkveitingar er, aö
NKL sé aðalheildsali félagsins
og að félagið sé reiðubúið aö
hagræða rekstri fyrirtækisins
eftir leiöbeiningum verslunar-
ráöunauta NKL.
Eins ogfram kemur i framan-
rituöu eru hér settar þröngar
skoröur um styrkveitingar og
lánafyrirgreiöslur. Væri fariö út
á svipaöa braut hérlendis kæmi
vel til álita að beita svipuöum
reglum og i Noregi. Þó var það
álit ráöstefnunnar, aö leita
skyldi allra annara úrræða áöur
en gripið yrði til beinna styrk-
veitinga eins og ég mun koma
aö siðar.
Verðlagseftirlitið
þarf vel þjálfað
starfsfólk
Georg Ölafsson verölagsstjóri
flutti þá erindi, þar sem hann
lýsti einkahugmyndum sinum
um þessi mál. Taldi hann aö efni
þaö, sem til umfjöllunar var
heyrði ekki undir þá stofnun er
hann stjórnar til úrlausnar. Var
hann i erindi sinu ákveðið fylgj-
andi frjálsara verömyndunar-
kerfi. Slikt kallaöi þó á betri
skipulag verðlagseftirlitsins og
aukna þjálfun sérhæfðs starfs-
krafts. Taldi hann verslanir
þurfa aðlögunartima til aö geta
framkvæmt hina frjálsu verð-
myndun. Samkeppni þyrfti að
vera virk. Yröi um aö ræða
óeölilega veröþróun þyrfti verð-
lagseftirlitiö að gripa inniog til-
kynna t.d. hámarksverö ein-
hvern tima eða setja viðkom-
andi vöru undir verölags-
ákvæöi. Sem framkvæmdar-
máta á þessu verölagseftirliti
yrði komið á verötilkynningar-
skyldu markaðsráðandi fyrir-
tækja (þar átt viö fyrirtæki er
ráöa 25% markaða eöa meira).
Til aö geta framkvæmt þetta
eftirlit þarf vel þjálfaö starfs-
fólk, en varast ber þó óþarfa
skriffinnsku og tilheyrandi
skrifstofubákn.
Taldi hann þróun fólks-
flutninga svo og verðbólguna
hafa iþyngt dreifbýlisverslun-
inni mjög. Til aö mæta aðstööu-
muninum heföi veriö heimiluö
álagning á flutningskostnaö, til
greina kæmi aö heimila endur-
mat vörubirgða þegar verö-
hækkanir eða gengisfellingar
riðu yfir. Tilfærsla yröi gerö á
álagningarf lokkum, álagning
lækkuö á háálagningarvörur en
hækkuö á lágálagningarvörur,
setning lágmarksverös, svo og
föst ákvæöi um magnafslætti
kæmu og til álita.
Ný verðlagslög-
gjöf í vœndum
Þá mun ég i nokkru geta
erindis viöskiptaráðherra Olafs
Jóhannessonar. Taldi hann erf-
itt, en þó nauösynlegt, aö skil-
greina hvaö smásöluverslun i
dreifbýli væri. Lýsti hann þvi
yfir að hann myndi á næstunni
skipa sérstaka nefnd til aö
kanna þann aöstööumun er um
væri aö ræða og benda á leiðir til
úrbóta. Myndi h'ún væntanlega
skila áliti sinu i frumvarps-
formi, sem lagt yrði aö skoðun
lokinni fyrir alþingi. 1 ræðu
sinni viöurkenndi hann aö um
aöstöðumun væri aö ræöa og
benti á að með atriöi er þyrftu
að skoðast væru tilfærsla á
álagningu milli álagningar-
flokka, betur stæð kaupfélög
styrktu þau er ver gengju, svo
og aö Byggöasjóöur tæki upp
lánafyrirgreiðslu til verslunar.
Þá skýröi hann frá að í undir-
búningi væri ný verölagslöggjöf
sem þrir embættismenn hafa
unniö aö um nokkurt skeið og
vænta mætti þess að hún yrði
lögð fyrir næsta alþingi. Taldi
hann að áiagning væri hér mjög
lág ef miðað væri viö nágranna-
lönd. Þá skýrði hann frá þvi, að
fyrir verölagsnefnd lægju fyrir
tillögur frá verölagsstjóra um
breytingar á álagningu (etv. þær
er áöur var greint frá i frásögn
af erindi hans hér að framan),
en hefðu ekki fengist afgreiddar
vegna andstööu beggja aðila i
verölagsnefnd. Þá skýröi hann
frá þvi að i þeim frumvarps-
drögum að nýjum verölagslög-
um er fyrir lægju væri að veru-
legu leyti farið eftir norskri
fyrirmynd. Miöaö er við að
verðmyndun verði sem frjáls-
ust, þó útilokað væri aö gefa allt
verðlag frjálst á einum og sama
degi. Verðlagseftirlit þyrfti eftir
sem áöur aö vera strangt og
setti jafnvel vöruflokka undir
hámarksákvæði ef um óæski-
lega veröþróun yröi að ræöa. Þá
vék hann sérstaklega aö álagn-
ingu á landbúnaöarvöru, sem
ákvörðuð er af s.n. sex manna
nefnd, og sagði hana allt of lága
og stæði engan veginn undir
verslunarkostnaöi. Ennfremur
benti hann á, að ýmis
einokunarfyrirtæki rikisins
heföu sprengt upp verölag sinn-
ar þjónustu og ættu þau sinn
stóra hlut i vaxandi kostnaöi
verslunarinnar.
Skipulagsleysið
er stœrsta
vandamálið
Auk þeirra er aö framan eru
greindir fluttu framsögu Ingi
Tryggvason alþm. um verð-
ákvöröun sex manna nefndar og
Ólafur Sverrisson kaupfélags-
stjóri i Borgarnesi, er fjallaöi
um vandamál smásölu-
verslunar i dreifbýli, sérstak-
lega þeirra er mikið versluöu
viö sauöfjárbændur og þyrftu aö
verulegum hluta að standa
undir fjármögnunarkostnaöi
þeirra langtimum saman vegna
rekstrarvöru og fjárfestinga-
vöru. Ekki er þó hægt aö gera
erindum þeirra nægjanleg skil
rúmsins vegna.
Báða dagana störfuöu um-
ræöuhópar og fjölluöu um sér-
stök verkefni er þeim voru falin
til umfjöllunar og skiluöu álit-
um þar um. Læt ég nægja aö til-
greina hér þær niöurstööur er
mér þóttu eftirtektarveröastar.
Tek ég þó skýrt fram aö
inni þetta skýt ég minum eigin
hugrenningum, svo frekar ber
aö lita á sumt sem minar skoö-
anir.
Stærsta vandamáliö er smá-
söluverslun i dreifbýli á við aö
etja er skipulagsleysi þaö sem
rikir i úthlutun verslunarleyfa
ogfjölda verslana. Hversá, sem
hefur næga fjárhæð til aö kaupa
sér verslunarleyf i getur sett upp
verslanir án tillits til þekkingar
sinnar á þeim málum eöa fjár-
hagslegrar getu til reksturs
hennar aö ööru ley ti. Hefur þetta
þýtt i framkvæmd aö risiö hefur
upp ótölulegur fjöldi smárra
verslana, sem kroppa augun
hver úr annarri þannig aö engin
þeirra hefur rekstursgrundvöll
og hljóta á endanum að lognast
út af. Þetta þýöir og að engin
þeirra hefur bolmagn til aö
standa undir þeim vörulager,
sem nauösynlegur er þvi
byggöarlagi er þær eiga aö
þjóna meö vöruvali sinu. A
sama tima hefur Reykjavikur-
borg ákveðið aö svo og svo
margar verslanir og aldrei fleiri
skuli starfræktar i hinum ýmsu
byggðakjörnum borgarinnar.
Aldrei verður fallist á, að
verslunarálagning skuli geta
staöiö undir þvi skipulagsleysi
er hér rikir, og þarf hvert
sveitarfélag aö gera þessa hluti
upp við sig fyrr en siðar, þvi
meö núverandi glundroða
Framhald á bls. 14.
Föstudagur 1. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Aðaiskoðun bifreiða
í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur í
októbermónuði
Föstudagur
Mánudagur
Þriöjudagur
Miövikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriöjudagur
Miövikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriöjudagur
Miövikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miövikudagur
Fimmtudagur
l.okt.
4. okt.
5. okt.
6. okt.
7. okt.
8. okt.
ll.okt.
12. okt.
13. okt.
14. okt.
15. okt.
18. okt.
19. okt.
20. okt.
21. okt.
22.okt.
25. okt.
26. okt.
27. okt.
28. okt.
R-40401
R-40701
R-41001
R-41301
R-41601
R-41901
R-42201
R -42501
R-42801
R-43101
R-43401
R-43701
R-44001
R-44301
R-44601
R-44901
R-45201
R-45501
R-45801
. R-46101
til R-40700
tii R-41000
til R-41300
til R-41600
til R-41900
til R-42200
til R-42500
til R-42800
til R-43100
til R-43400
til R-43700
til R-44000
til R-44300
til R-44600
til R-44900
til R-45200
til R-45500
til R-45800
til R-46100
ogþaryfir.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins Borgar-
túni 7, og verður skoðun framkvæmd þar
alla virka daga kl. 8,00 til 16.00.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðunum til skoðun-
ar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé i gildi.
Athygli skal vakin á þvi, að skráningar-
númer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tlma verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Til athugunar fyrir bifreiðaeigendur:
Við fullnaðarskoðun bifreiða eftir 1. ágúst
1976 skal sýna ljósastillingarvottorð.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að
máli.
Lögregiustjórinn i Reykjavik,
28. september 1976.
Blikkiðjan Garðahreppi
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
SIMI 53468
Sovéskar bækur
og tímarit
(á ensku), hljómplötur og nótur. Opið frá
kl. 10—12 og 14—18 föstudaga til kl. 19,
laugardaga kl. 10—12.
ERLEND TiMARIT
Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig 2. hæð.