Þjóðviljinn - 01.10.1976, Qupperneq 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. október 1976
Atta konur
Framhald af bls. 1.
Spurt var hvernig ráöiö hygöist
vinna að framkvæmd þessarar
lagagreinar, og kom fram, að
þegar hefði verið haft samband
við skólarannsóknadeild mennta-
málaráðuneytisins og óskað eftir
samstarfi varðandi endurskoðun
kennslubóka og var þeirri mála-
leitan vel tekið. Munu jafnréttis-
sjónarmið væntanlega verða höfð
að leiðarljósi hér eftir við gerð
nýrra kennslubóka.
Eins og áður segir verða alls
kyns kannanir stór liður i starfi
ráðsins.
— Nú þegar eru tvær komnar af
stað, sagði Bergþóra, önnur er
um auglýsingar, hvort munur sé
á þeim fyrir og eftir kvennaár, en
hin er um viðhorf fólks til úti-
vinnu karla og kvenna. _hs
Yandamál
Framhald af bls. 7.
stefnir allt i öngþveiti Einnig
þarf rikisvaldið að setja veru-
legar hömlur á veitingu
verslunarleyfa. Með samræmd-
um aðgerðum þessara aðila
beggja mætti vonast eftir að það
fjármagn sem i verslun er
bundið nýtist sem skyldi.
Annað verulega stórt vanda-
mál smásöluverslunar i dreif-
býli eru kaupgjaldsmálin. Þessi
verslun keppir við fiskiönaðinn
um hæfasta starfskrafta. Innan
fiskiðnaðarins er mikið um
bónusgreiðslur og hæft fólk get-
Reykjavik:
Meistaravelli
Bólstaðarhlið
Kópavogur:
ur þar náð umtalsverðum tekj-
um umfram það er verslunar-
samningar bjóða upp á. Þýðir
þetta i framkv. að mjög mikið
verður um yfirborganir og
oft á tfðum til þess eins að fá til
starfa i versluninni einhvern
ákveðinn starfsmannafjölda án
tillits til hæfni. Veröur þvi að
ætlast til þess af verðlagsyfir-
völdum að verðlagsákvæði
standi undir þeim launakröfum
sem hæft starfsfólk við verslun
hlýturaögera rétteinsog annað
launafólk i landinu.
Eilift krukk stjórnvalda i
verðlagsákvæði t.d. þegar þau
þurfa að þjóna lund sinni með
gengisfellingum, er ekki þol-
andi. Þaðer marg sönnuð stað-
reynd að i kjölfar slikra aðgerða
fylgja ævinlega verulegar kaup-
gjaldsbreytingar án tillits til
hvort kaupgjaldsvisitala er i
sambandi eða ekki, svo og
gengur rikið fyrst og fremst i
hækkun sinnar þjónustu. Undir
þessu er svo versluninni ætlað
að standa með óbreyttri krónu-
tölu i álagningu. Sliku verður
ekki unað.eitt skal yfir alla
ganga. Sömuleiðis skyldu
stjórnvöld gæta sin mjög á þeim
meðaltölum er þau miða oftast
aðgerðir sinar við. Smásölu-
verslun i dreifbýli býr við allt
aðrar aðstæður, en kaupmaður-
inn i Reykjavik.
Strjálar og óreglulegar sam-
göngur eiga sinn stóra þátt i
erfiðleikum dreifbýlisverslun-
arinnar. Þarf hún af þessum or-
sökum að liggja með stórum
meiri lager en þéttbýlisverslun-
in, auk þess sem hún reynir af
fremsta megni að liggja með
Melahverfi
Langahlíð
flestar þæe nauðsynjavörur,
sem sérvöruverslanir liggja
með i þéttbýlinu. A þetta sér-
staklega viö kaupfélögin sem
reyna að liggja með vörur þess-
ar án tillits til þess afraksturs er
þær gefa. Fjölga þarf þvi mjög
skipaferðum svo menn geti reitt
sig á að úr Reykjavik fari skip
reglulega á ákveðnum degi i
viku hverri til hinna dreifðu
byggða. Auk þess ber brýna
nauðsyn til, að Rikisskip fái að-
stööu við Reykjavikurhöfn, sem
stendur undir þvi nafni, svo hún
geti tekið á móti þeirri vöru er
flytja skal.
Símakostnað og
rafm agnskostnað
verður að jaj'na
Simakostnaður og rafmagns-
kostnaður verða að jafnast um
allt land og verður ekki séð, að
slik skipulagsbreyting ætti að
kosta neitt stórátak, en þessir
tveir liðir auk upphitunar með
oliu eru stórir rekstrarliðir
dreifbýlisverslunarinnar. Auk
þessa verður að jafna flutnings-
kostnað á landinu öllu. Lausnir
eins og álagning á flutnings-
kostnað eru kák eitt og auka enn
á bilið milli framfærslu-
kostnaðar i hinum dreifðu
byggðum og þéttbýlisins á Suð-
vesturlandi. Skilyrðislaust á að
afnema söluskatt á flutnings-
kostnaði. Það er grátleg stað-
reynd að dreifbýlisbúum skuli
vegna þeirrar innheimtu gert að
greiða hærri söluskatt en þeim
er i þéttbýli Suðvesturlandsins
búa.
Brýna nauðsyn ber til, að
rekstrarlán sauðf járbænda
verði aukin stórlega. Þegar þau
voru fyrst veitt árið 1958 námu
þau 64.5% af afurðaverði en
hafa siðan farið stórlega minnk-
andi og námu á árinu 1975 um
18.8% afurðaverðs. Hér er ekki
farið fram á, að fjármagn það
er lánað er til að standa undir
þessari framleiðslu verði aukið
svo stórlega, heldur að það komi
ekki í einni stórri gusu að haust-
inu i formi afurðalána eins og nú
er, heldur jafnist út i sem bein-
asta linu yfir árið. Þessi ráð-
stöfun mundi velta stórum
böggum af þeim verslunum,
sem jafnframt verslun stunda
slátrun eða eiga mikil viðskipti
við þessa bændur. Mjög kemur
til greina að veita lán þessi
bændum beint, svo þeir geti
sjálfir staðgreitt sina rekstrar-,
fjárfestingar-, og neysluvöru
sem og aðrir þjóðfélagsþegnar.
Nauðsyn ber til að hið opin-
bera beiti sér fyrir stóreflingu
stofnlánadeilda verslunarinnar,
sem nú eru galtómar, svo þeim
verði gert kleift að lána til eðli-
legra fjárfestinga i verslunar-
húsnæði eins og aðrar stofn-
lánadeildir til sinna atvinnu-
greina. Einnig þarf að fást fram
viðurkenning Byggðasjóðs á
þvi, að verslun I dreifbýli er
byggðamál og i framhaldi af þvi
taki hann upp fjárfestingarlán
til hennar. Vextir þurfa að vera
á Kársnesbraut 53 — 135
Vinsarnlegast haf ið samband við afgreiðsluna
— sirni 17500.
ÞJÓÐVILJINN
BLAÐBERAR
Vinsarnlega kornið á afgreiðsluna og sækið
rukkunarheftin.
ÞJÓÐVILJINN
BLAÐBERAR
óskast i eftirtalin hverfi:
Fjórir umræðufundir
herstöðvaandstæðinga
á Austurlandi 1.-3. okt.
Samtök herstöðvaandstæð-
inga á Austurlandi efna til
fjögurra umræðufunda her-
stöðvaandstæðinga dagana
1.—3. október. Eru fundirnir
einkum ætlaðir til undirbúnings
og skoðanaskipta fyrir lands-
fund samtakanna 16.—17.
október, og koma á þá fulltrúar
frá miðnefnd herstöðvaand-
stæðinga.
Fundirnir verða haldnir sem
hér greinir:
Fáskrúðsfirði (Skrúð),
fðstudagskvöldið 1. október kl.
20.30.
Framsögu hafa Andri Isaks
son próíessor og Gils
Guðmundsson, alþingismaður.
Höfn f Hornafirði (Sindrabæ)
laugardaginn 2. október kl. 21.
Framsögu hafa Svava
Andri Gils
Jakobsdóttir alþingismaður og
Vésteinn Ölason lektor.
Fijótsdalshéraöi, að Iöavöllum,
laugardaginn 2. október kl. 14.
Framsögu hafa Andri
ísaksson prófessor og Gils
Guömundsson alþingismaður.
Neskaupstaö (Egilsbúö) sunnu-
daginn 3. október kl. 16
Vésteinn.
Framsögu hefur Gils
Guðmundsson alþingismaður
Herstöðvaandstæðingar eru
eindregið hvattir til að sækja
þessa fundi og leggja þar með
baráttu samtakanna lið.
Kjördæmisstjórn hcrstööva-
andstæöinga á Austurlandi.
sambærilegir við vaxta- '
greiðslur framleiðsluatvinnu-
veganna.
Grein þessi er nú þegar orðin
meiri að vöxtum, en ég ætlaði
mérí upphafi. Þó er hér mörgu
sleppt er vert hefði verið að
minnast, en einhversstaðar
verður að setja púnkt. Væntan-
lega taka stjórnvöld og bæjar-
félög nú við sér og gera ein-
hverjar raunhæfar aðgerðir til
að sporna við þeirri óheillaþró-
un er nú stefnir óðfluga i. Það er
álit mitt, og á ég þar marga
skoðanabræður að eftir þeim at-
riðum er ég hef greint hér að
framan skuli unnið og muni þá
margt breytast til batnaðar frá
þvi sem verið hefur. Þá fyrst, ef
þessi ráð sýnast ekki duga,
kæmi til álita að fara að styrkja
verslunina i dreifbýli, en látum
það verða niðurlagsorð þessar-
ar greinar, að til þess þurfi
aldrei að koma.
„Litli prinsinn”
Framhald af bls. 9.
Hluti sýningarinnar gerist úti i
himingeimnum og er þá leikið
við últrafjólublátt ljós, þannig
að brúðustjórnendur eru ósýni-
legir en brúður og aðrir
leikmunir þeim mun skýrari I
fjölbreyttum litum. Eins og
áður segir, er þessi sýning
Meschkes með frægari
sýningum Mariónettu-
leikhússins og hefur verið sýnd
viða um lönd meðal annars á
langri leikferð til Asiulanda.
—gfr.
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
ÍMYNDUNARVEIKIN
i kvöld kl. 20. Uppselt.
Þriðjudag kl. 20. Uppselt.
SÓLARFERÐ
laugardag kl. 20 Uppselt
sunnudag kl. 20 uppselt
LITLI PRINSINN'
sunnudag kl. 15
Miðasala 13,15-20.
LEIKFELAG
REYKJAVtKUR WP WP
STÓRLAXAR
6. sýning i kvöld. Uppselt.
Græn kort gilda.
7. sýning miðvikud. kl. 20,30
Hvit kort gilda.
SAUMASTOFAN
laugardag kl. 20,30.
Þriðjudag kl. 20,30.
SKJALDHAMRAR
sunnudag kl. 20,30.
Miðasaian i Iðnó kl. 14-20,30.
Simi 1-66-20.
r-]
SKIPAUTGCR9 RÍKISINS
M.s.Baldur
fer frá Reykjavik þriðjudag-
inn 5. október til Breiða-
f jarðarhafna.
Vörumóttaka: alla virka daga
til hádegis á þriðjudag.
Opinn kjördæmisráðsfundur hjá Alþýðubanda-
laginu í Reykjaneskjördæmi.
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins I Reykjaneskjördæmi
verður haldinn þriðjudaginn 5 október I Góðtemplarahúsinu, Hafnar-
firði, og hefst kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf, 2. Gils Guömundsson, alþm.,
ræðirum málatilbúnað Alþýðubandalagsins á Alþingi ihaust. 3. Finnur
Torfi Hjörleifsson ræðir um eflingu og útbreiöslu Þjóðviljans.
Kjördæmisráðsfundurinn er opinn öllum Alþýöubandalagsmönnum f
kjördæminu.
Stjórnin.
Vegna útfarar
Steinbergs Þórarinssonar
verða skrifstofur vorar og matstofa að Funahöfða 7
lokaðar föstudaginn 1. október.
Miöfell h/f
Matstofa Miöfells s/f
Lausar stöður
Laus er til umsóknar staða læknis við
heilsugæslustöð á Þingeyri og staða lækn-
is við heilsugæslustoð á Þórshöfn.
Umsóknir sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu eigi siðar en
27. október 1976.
Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið
29. september 1976.
Nótur í miklu úrvali
NÓTUR OG SKÓLAR f. gltar, fiðlu, lág-
fiðlu, selló, kontra-bassa, pianó, orgel,
harmoniku, óbó, fagott, klarinett, horn,
trompet, básúnu, flautu, túbu og jazz-
trommer. Nótur Albúm eftir gömlu meist-
arana i miklu úrvali. Mjög hagstætt verð.
Erlend timarit, Hverfisgata 50 v/Vatns-
stig 2 hæð s. 28035.