Þjóðviljinn - 25.03.1977, Page 3
Föstudagur 25. mars 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Desai forsætis-
ráðherra Indlands
Ram tekur ekki þátt i stjórnarmyndun
NÝJU-DELHI 24/3 Reuter —
Morarji Desai, 81 árs gamall og
einn langreyndasti maöur ind-
verskra stjórnmála, sór I dag
embættiseiö sinn sem fjóröi for-
sætisráöherra Indlands. Desai,
sem áöur var einn helstu leiötoga
Þjóöþingsflokksins, er nú fremsti
leiötogi Janata-bandalagsins,
sem vann stórsigur f kosningun-
um þar I landi nýveriö.
Hinsvegar bryddir þegar á mis-
sætti milli Janata og stuönings-
aöila þess þar eö Jagjivan Ram
leiðtogi Lýðræöislega þjóöþings-
flokksins og indversku stéttleys-
ingjanna, sem eru um 80 miljónir
talsins, haföi einnig sóst eftir for-
sætisráöherraembættinu og hefur
nil lýst þvi yfir, að flokkur hans
muni ekki taka þátt I stjórnar-
myndun meö Janata-flokknum. I
ávarpi sinu af tilefni embættis-
tökunnar lýsti Desai þvi yfir, aö
stjórn hans myndi gæta spar-
semi, berjast gegn fátækt og
viðhalda hlutleysi Indlands I
alþjóðastjórnmálum.
Desai hóf þátttöku I stjórnmál-
um þegar er sjálfstæðisbarátta
indverja gegn breska heimsveld-
inu hófst af verulegum krafti.
Fyrir átta árum skildu leiöir meö
honum og meirihluta forustu
Þjóðþingsflokksins, og stofnaöi
hann þá flokk sér. Hann sat nærri
tvö ár i fangelsi eftir aö stjórn
Indiru Gandhi lét handtaka leið-
toga stjórnarandstööunnar þegar
lýst haföi veriö yfir neyöar-
ástandslögunum.
Janata er bandalag fjögurra
flokka, og sagði Desai aö þeir
myndu fljótlega sameinast form-
lega i einn flokk. Þessir fjórir
flokkar eru flokkur Desai, sem
einnig nefnist Þjóöþingsflokkur,
Indverski þjóöarflokkurinn, Jan
Sangh, sem er þjóöernissinnaöur
og hlynntur hindúisma og
Sósialistaflokkurinn. Aö
Sósialistaflokknum undanteknum
hafa þessir flokkar veriö taldir til
hægri viö Þjóöþingsflokkinn, en
að visu eru linur milli flokka
heldur óljósar I Indlandi og hafa
enn frekar oröið þaö siöan stjórn
Indiru Gandhi lýsti yfir neyðar-
ástandslögunum.
Nyerere hreinskil-
inn við Podgorní
DAR ES SALAAM 24/3 Reuter —
1 ræöu, sem Julius Nyerere,
forseti Tansaniu, flutti I gær-
kvöldi i hófi, sem haldið var til
heiðurs Nikolai Podgorni, forseta
Sovétrikjanna, sem nú er staddur
þar i landi i opinberri heimsókn,
þakkaði hann Sovétrikjunum
fyrir rikulegt framlag þeirra til
frelsisbaráttu Afrlkuþjóða, og
mun þar einkum hafa átt viö
vopnahjálp þá, sem sovétmenn
hafa veitt afriskum sjálfstæöis-
hreyfingum. Sagöi Nyerere aö
þessi hjálp heföi treyst vináttu-
böndin milli Sovétrikjanna og
Tansaniu.
Hinsvegar gagnrýndi Nyerere
sum rikjanna undir stjórn
kommúnista fyrir að þau heföu
ekki veitt Afrikurikjum mikla
efnahagsaöstoö. Sagöi hann aö
vesturevrópsk smáriki, einkum
Noröurlönd, heföu sýnt meiri
skilning i þvi efni. Auk efnahags-
legrar og sérfræðilegrar aöstoöar
frá Noröurlöndum hefur
Tansania fengiö mikla hjálp af
þvi tagi frá Kina.
Þjóðaratkvæði
í Grænlandi um
heimastjórn
Godthab. Grænlenska lands-
ráöiö hefur samþykkt aö á næsta
ári skuli fara fram þjóöarat-
kvæöagreiðsla á Grænlandi um
þaö hvort landsmenn skuli fá
heimastjórn. Báöir flokkarnir I
ráöinu eru fylgjandi heimastjórn,
þótt Sujumut vilji ganga lengra.
Ef heimastjórn veröur
samþykkt er gert ráö fyrir þvi aö
grænlendingar taki stjórn allra
mála i sinar hendur nema utan-
rikismála, landhelgismála og
nýtingu auölinda — en þaö er
siöasttalda atriðiö sem hefur ver-
iö eitt mesta hitamáliö i dönskum
stjórnmálum.
Ihaldsþingmenn
gerðu aðsúg
að frjálslyndum
LUNDUNUM 23/3 Reuter -
Vantrauststillaga Ihaldsflokksins
breska á rikisstjórn Verka-
mannaflokksins var felld I kvöld
meö 322 atkvæöum gegn 298. Til
þess aö bjarga stjórn sinni, sem
stendur mjög tæpt i þinginu, haföi
Callaghan forsætisráöherra gert
samning viöFrjálslyndá'flokkinn
um samráö héreftir um ákvarö-
anir stjórnarinnar. Uröu Ihalds-
þingmenn illa viö ósigrinum og
geröu aösúg aö þingmönnum
frjálslyndra og reyndu aö’hindra
aö þeir kæmust I sæti sin.
Margaret Thatcher, leiötogi
Ihaldsmanna, varð mjög niöur-
dregin er tilkynnt um úrslitin og
gekk úr þingsal.
Forseti og kardín-
áli myrtir í Kongó
Þjóöflokka- og stjórnmáladeilur gœtu legiö aö baki
ABIDJAN 23/3 — Tveir æöstu
manna i Kongó hafa verið myrtir,
forseti landsins, Marien Ngouabi,
s.l. föstudag og Emile Biayenda
kardináli skömmu siðar. Ýmsum
getum er aö þvi leitt hvaö liggi á
bak viö moröin, og er I þvl sam-
bandi minnst bæöi á stjórnmála-
deilur og illindi milli þjóöflokka
og ættbálka, sem eru margir I
Kóngó eins og öörum Afrikurikj-
um.
Stjórnarvöld I Kongó (áöur
franska Kongó) hafa sakaö fyrr-
verandi forseta landsins,
Alphonse Massamba-Debat, um
morðið á Ngouabi forseta.
Massamba-Debat er af
Bakongó-þjóðflokknum, sem fjöl-
mennur er I suöurhluta landsins
og einnig i vesturhluta Zaire og
nyrst I Angólu. (Liösmenn
FNLA-hreyfingarinnar, sem
barðist viö MPLA um völdin þar I
landi, voru flestir af þeim
þjóöflokki.) Hinsvegar er giskaö
á að Biayenda kardináli hafi ver-
ið myrtur af mönnum noröan úr
landi og helst af
Kouyou-þjóöflokknum, sem
Ngouabi forseti var ættaöur frá.
Kongó (um tima oftast kallaö
Kongó-Brazzaville, eftir höfuö-
borginni) varö sjálfstætt frá
Frakklandi fyrir 19 árum og hefur
þar oft siöan gætt illdeilna milli
þjóöflokka og ættbálka. Fyrsti
forseti landsins varö Fulbert
Youlou ábóti (sem haföi aö visu
veriö sviptur hempunni) af
Ari-þjóðflokknum, sem ásamt
Bakongó er fjölmennastur I
suöurhluta landsins
Massamba-Debat tók viö völdum
eftir miklar óspektir 1963, en 1968
komust Ngouabi og stuðnings-
menn hans til valda meö
stjórnarbyltingu. Þeir hafa siöan
unniö aö þvi aö koma á sósialisku
efnahags-og þjóöskipulagi. Hefur
stjórnin bæöi mætt andstööu and-
sósialista og einnig hafa veriö
deilur meöal stuöningsmanna
hennar. Þannig hefur Ngouabi
forseti harlega gagnrýnt Verka-
mannaflokkinn, hinn rikjandi
flokk landsins, fyrir skrifræöi og
ódugnaö.
Andrei Kirilenkó, meölimur
stjórnmálanefndar Kommúnista-
flokks Sovétrikjanna, hélt þvi
fram i dag aö moröiö á Ngouabi
væri vottur þess, aö heimsvalda-
sinnar og innlent afturhald
reyndu að grafa undan stjórnar-
völdum Kongó og fleiri þriöja-
heimslanda, sem heföu fram-
sæknar rikisstjórnir.
Opnum í dag
SKOVERZLIJIM
að
Hjallabrekku 2
Kópavogi
V )
HJALLABREKKU 2 . KÓPAVOGI . SÍMI 44480
V
(/
AÐALFUNDIR
deilda KRON 1977 verða haldnir sem hér segir:
1. og 2. deild/ f immtudaginn 31. mars í Hamragörðum, Hávallag. 24
3.og 4. deild, þriðjudaginn 29. mars í fundarsal Afurðasölu SlS á Kirkjusandi
við Laugarnesveg.
5. deild, miðvikudaginn 30. mars í fundarstofu KRON-búðarinnar við Norður-
fell, gengið inn um austurenda.
6. deild, mánudaginn 28, marsað Hamraborg 11, Kópavogi.
Dagskrá fundanna er samkvæmt félgslögum.
Fundirnir hefjast kl. 20.30.
Deildaskipting KRON:
1. deild: Seltjarnarnes og Vesturbær að og með Hringbraut að Flugvallar-
braut.
2. deild: Vesturbær norðan Hringbrautar og AAiðbær að og með Rauðarárstíg.
3. deild: Norð-austurbær frá Rauðarástíg, norðan Laugavegar og Suður-
landsbraut að Elliðaárvogi.
4. deild: Suð-austurbær f rá Rauðarárstíg, sunnan Laugavegarog Suðurlands-
brautar, austur að Grensásvegi, Stóragerði og Klifvegi og suður að Sléttu-
vegi.
5. deild: Austurbær, sunnan Suðurlandsbrautar að mörkum Kópavogs, austan
Grensásvegar, Stóragerðis og Reykjanesbrautar sunnan Sléttuvegar að
mörkum Kópavogs, að meðtöldum þessum götum, nema Suðurlandsbraut
vestan Elliðaáa. Einnig Árbæjar- og Breiðholtshverfi og staðir utan Reykja-
víkur, Kópavogs og Seltjarnarness.
6. deild: Kópavogur.
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR
OG NÁGRENNIS