Þjóðviljinn - 25.03.1977, Qupperneq 9
Föstudagur 25. mars 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Eftir lát manns sins, Höskuldar Björnssonai; breytti Hallfriöur vinnustofu hans I kaffistofu þar sem hún
getur tekiö á móti 40 manns. Myndir eftir Höskuld prýða alla veggi, I horninu neðst til vinstri er sjálfs-
mynd af listamanninum.
Hallfriöur Pálsdóttir að heimili slnu Bláskógum 31H verageröi.
onnur
Langar til að koma upp
sýningu
I kaffistofunni hanga myndir á
öllum veggjum svo að stofan er
eins og litið listasafn. Ég sel alltaf
myndir af og til, segir Hallfriður
og minn stærsti draumur er að
koma upp málverkasýningu á
verkum Höskuldar á þessu ári en
þá hefði hann orðið sjötugur.
Og vonandi verður afmælis-
barninu að þessari ósk sinni
—hs.
— Ég veit ekki hvernig któð á
þvl en mér leið eitthvað illa i
Reykjavik þennan vetur sem ég
var þar eftir að maðurinn minn
dó og ég fór að hugsa um hvaö ég
gæti farið að gera. Ég gat fengið
vinnu á matsöluhúsi eða eitthvað
þess háttar en ég treysti mér ei
til þess. Ég hitti oft Jóhannes Ur
Kötlum og þau hjónin bæði um
þetta leyti en þau voru farin frá
Hveragerði þá fyrir nokkrum ár-
um, svo ég segi við Jóhannes næst
þegar ég hitti hann: ,,Ég held
baraég fari að selja hælisgestun-
um molakaffi.” ,,Nei, það skaltu
ekki gera”, sagöi Jóhannes, hon-
um leist alls ekki á hugmyndina,
en ég geröi það samt, hætti við að
selja húsiö, fór austur og kom upp
þessari kaffistofu i vinnustofu
Höskuldar. Og þá varð ég allt
önnur marinéskja.
Konan sem þetta mælir heitir
Hallfriður Pálsdóttir og er sjötug
i dag. Hún býr að Bláskógum 3 i
Hveragerði og þar rekur hún áð-
urnefnda kaffistofu og hefur gert
það siðan maður hennar,
Höskuldur Björnsson listmálari
lést árið 1963.
Blaðamaður Þjóðviljans leit
inn hjá henni i tilefni afmælisins
og féllst hún á að segja litillega af
sinum högum.
— Fyrst eftir að Höskuldur dó,
segir Hallfriður var ég að hugsa
um að selja húsið hér f Hvera-
gerði en ég er fegin aö ég gerði
það ekki. Hér hef ég búið siðan
1946 að við keyptum þetta hús en
fyrstu búskaparárin vorum við á
Höfn i Honafirði. Þar höfðum við
úr ákaflega litlu að spila. At-
vinna var litil og við lifðum ein-
göngu af þvi sem Höskuldur seldi
af myndum. Ragnar Asgeirsson
var honum alltaf hjálplegur og
seldi myndirnar fyrir sunnan.
Kaffi og pönnukökur
Hallfriður getur tekiö á móti 40
mannsi kaffi i einu og hún sér ein
um veitingarnar. Ekki finnst
henni það ýkja erfitt, aðeins er
nauðsynlegt að skipuleggja vinnu
sina vel, segir hún.
— Ég 'auglýsi aldrei en hingað
kemur mikið sama fólkiö, hælis-
fólkiö kemur oft með gesti sina
hingað og fær sér kaffisopa og
pönnukökur.
— Það létti mér lika mikið alla
aðdrætti þegar ég fékk bilinn. Við
áttum bil hjónin en ég hugsaði
ekki um að læra á hann. Svo þeg-
ar ég var oröin ein fannst mér al-
vegómögulegt aö verabillaus.Ég
fór þá að velta þvi fyrir mér hvort
égætti ekkibara aö fá mérbil, ég
væri varla svo mikill tossi að ég
gæti ekki lært á hann. Ég fór þvi
næst til frænda mins eins, sem er
bilkennari og lögregluþjónn og
bað hann aö kenna mér á bil.
segir Hallfríður
Pálsdóttir sem
er sjötug í dag
Hann hélt að það yröi erfitt en lof-
aði aö taka mig i 10 tima, þá ætti
að vera komið i ljós hvort ég væri
farin að átta mig á kúnstinni aö
keyra. Þetta gekk allt, og nú
finnst mér ég vera fleyg sem fugl-
inn. Billinn sem ég á nú er þriðji
billinn minn.
Fór hringinn 1974.
Og Hallfriður lætur bilinn ekki
stirðna þó að hún hafi verið orðin
59 ára þegar hún tók bilpróf. Hún
feröast mikið og þegar hringveg-
urinn var opnaöur 1974 fór hún
hringinn með tveimur 12 ára
barnabörnum sinum.
Hallfriður hefur lifaö timana
tvenna eins og flest alþýðufólk á
hennar aldri. Hún er fædd að
Minna-Holti I Fljótum en ólst upp
að Hólakoti i sömu sveit. Hún fór
12 ára að heiman að vinna fyrir
sér. — Ég var heppin, þetta var
gott fólk sem ég lenti hjá en þetta
var alltof mikil vinna fyrir
krakka, sagði hún.
Siðan er hún i vistum en gerist
bakari á Laugarvatni 1933 og þar
kynnist hún manni sinum. Hann
var ætíð heilsuveill og komst af
þeim sökum aldrei til náms
erlendis þó að hæfileikarnir og
löngunin til þess væri mikil.
Ævintýraleg brúðkaups-
ferð. ‘
— Við giftum okkur 1935 og fór-
um I mikla brúðkaupsferð á
þeirrar tiðar mælikvarða. Við
fórum 14 saman meö Ólafi Ketils-
syni alla ieið til Hallormsstaöar.
Það var mikil ævintýraferð. Ég
skil ekki enn hvernig við kom-
umst þetta eins og vegirnir voru
ef vegi skyldi kalla.
— Viö bjuggum fyrst á Höfn,
þar voru ekki mörg tækifæri fyrir
fólk. Verkalýðsbaráttan var að
hefjast um þetta leyti og á Höfn
var stofnað verkamannafélag
þegar við vorum þar. Við vorum
bæöi hjónin sósialistar og ég hef
ekki hugsað mér að breyta til.
— Svo fluttumst viö til Hvera-
gerðis 1946 og smátt og smátt fór
okkur að ganga betur og Höskuld-
ur fékk gott næði til að mála. 1
Hveragerði var lika á timabili
e.k. listamannanýlenda. Þar voru
um sinn samtimis 16 listamenn.
Nú er þetta allt fariö, ýmist flutt
burtu eða dáiö. Nú oröið þekki ég
ekki marga hér.
marka&storg
viðskiptanna
v
Verzlunin KJÖT & FISKUR ereinn af frumherjum baráttunnar fyrir iægra vöruverði til neytand-
ans. Hagkvæm innkaup, skynsamlegur rekstur og vaxandi velta gera okkur mögulegt aö bjóða
lægra vöruverð. Við riðum á vaöiö með „sértilboðin” siðan komu „kostaboð á kjarapöllum” og
núkynnum viö það nýjasta i þjónustu okkar við fólkiö i hverfinu; „Markaöstorg viðskiptanna” A
markaðstorginu er alltaf að finna eitthvað sem heimiliö þarfnast og þar eru kjarapallarnir og
sértilboðin. Það gerist alltaf eitthvað spennandi á markaðstorginu!
sértilboð:
Sani WC pappír 12 rúllur 598 kr.
C11 3 kg. 585 kr.
Ora grænar baunir 1/1 dós 186 kr.
Ora grænar baunir 1/2 dós 121 kr.
Rúsínur 1/2 kg. 254 kr.
Nautahakk l kg. 700 kr.
íva sparnaðarpk. 5 kg. 1.016 kr.
Urta sjampó 1 lítri 465 kr.
Ríó kaffi 1 pk. 293 kr.
hálfrar aldar þjónusta
kjöt&fiskur hf
seljabraut 54-74200