Þjóðviljinn - 21.05.1977, Qupperneq 1
tJJOÐVIUINN
Laugardagur 21. mai 1977 — 42. árg. —112. tbl.
0 Richard Trælnes, framkvæmdastjóri 0 Ekki orðið kaupmáttarrýrnun annarsstaðar
Norræna verkalýðssambandsins: á Norðurlöndum í áratugi
DÝPSTA HOLAN
Borholan við Laugaland i Eyjafirði er nú orðin 2550 metrar að
dýpt og hefur ekki verið boruð áður svo djúp hola á tslandi. Það er
borinn Jötunn sem hér er að verki. Stefnt er að þvl aö holan verði
endanlega 2800 — 3000 metrar. Aður hefur verið borað i 2300
metra dýpi hérlendis. Skv. uppiýsingum Sveins Schevings vél-
stjóra hjá Orkustofnun hefur holan ekki verið afkastamæld enn-
þá en likur benda til góðs árangurs. Nokkuð hrun er I henni og
stendur til að steypa tii að treysta hana.
—GFr
SVONA ÁSTAND YRÐI
HVERGI
LIÐIÐ
„Á Norðurlöndum,annarsstaðar en á íslandi,hefur
aldrei orðið kaupmáttarrýrnun i áratugi. Þvert á
móti hefur orðið kaupmáttaraukning ár frá ári all-
an timann. Þrátt fyrir efnahagsskreppu siðustu
þriggja ára hefur orðið stöðug kaupmáttaraukning
milli ára þessi þrjú ár.”
A fundi með aðalsamninganefnd Alþýöusambands tslands I Tollstöðvarhúsinu I fyrradag fékk Trælnes
upplýsingar um stööuna i kjaramálunum og staðfesti stuöning Norræna verkalýössambandsins við bar-
áttu ASt. — Trælnes situr við hliðina á Birni Jónssyni, forseta A.S.í. fyrir miöri mynd.
Þetta segir norðmaöurinn Rich-
ard Trælnes, framkvæmdastjóri
Norræna verkalýðssambandsins,
i viðtali i blaðinu I dag. Og hann
bætir við:
,,Ég vil leggja áherslu á að ekk-
ert verkalýðssamband á Norður-
löndum myndi þola annað eins
ástand og hér rikir: 20% kaup-
máttarskerðing milli áranna ’74
og ’75,áframhaldandi kjaraskerö-
ing á árinu 1076 og stöðnun það
sem af er þessu ári. Þetta væri
gjörsamiega óhugsandi annars-
staðar á Norðurlöndum.”
SJÁ SÍÐU 8
ÍSLAND ÚR NATO! HERINN BURT!
Fjölmeimum í gönguna!
Baldvin GIsli
Dæmi
um
hug
Þegar skipulagning Straums-
vikurgöngu var á lokastigi
komu tveir menn á skrifstofuna
i Tryggvagötu og kváðust vera
með leikþátt sem þeir vildu
gjarnan sýna göngumönnum.
Hér voru á ferð þeir Gisli Rúnar
sem hafði samið þáttinn og
Baldvin Halldórsson leikari sem
ætlaði að flytja hann með Gisla.
Herstöðvaandstæðingar þáðu
vitaskuld boð þetta með þökk-
um og var leikþættinum skotið
inn i dagskrá fundarins við
Hestinn i Sogamýri.
Þetta er eitt litið dæmi um
þann hug sem einkennir þessa
göngu og sýnir glöggt að mál-
staður herstöðvaandstæðinga á
góðan hljómgrunn meðal lista-
manna.
DAGSKRÁ
Kl. 10-10.30 fundur i Straumi.
Björgvin Sigurðsson formað-
ur Verkalýðsfélagsins
Bjarma á Stokkseyri flytur
stutt ávarp. Fjöldasöngur.
KI. 12 fundur á Thorsplani i
Hafnarfirði. Avörp: Kristján
Bersi Ölafsson skólastjóri og
Jón Kjartansson formaður
Verkalýðsfélags Vestmanna-
eyja. Karl Guðmundsson leik-
ari les ljóð og kór Alþýðu-
menningar syngur.
KI. 13.45 fundur á Rútstúni i
Kópavogi. Avörp: Andri Is-
aksson prófessor og Helga
Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi.
Kristin Anna Þórarinsdóttir
leikkona les Ijóð og trú-
badúrarnir Jakob S. Jónsson
og Kristján Guðlaugsson
syngja.
Kl. 16 fundur við Hestinn i
Sogamýri. Ávörp: Þór Vig-
fússon kennari og Halldór
Guðmundsson háskólanemi.
Gisli Rúnar og Baldvin Hall-
dórsson flytja leikþátt eftir
þann fyrrnefnda. Leikararnir
Jón Hjartarsson og Kjartan
Ragnarsson skemmta. Böðv-
ar Guðmundsson, Bergþóra
Arnadóttir frá Þorlákshöfn,
Hjalti og Gisli syngja og Elias
Daviðsson og Kristján Guð-
laugsson stjórna fjöldasöng.
Kl. 18 fundur á Lækjartorgi. Vé-
steinn Ölason flytur ávarp
miðnefndar Samtaka her-
stöðvaandstæðinga. Bjarn-
friður Leósdóttir og Pétur
Gunnarsson ávarpa fundinn.
Alþýðuleikhúsið flytur söng-
leik.
ALLIR í gönguna
og á FUNDINA!
FERÐKR
Til
móts
við
gönguna
Aætlunarferðir Landleiða
verða i dag sem hér segir:
frá Lækjargötu kl. 10, 10.30,
11, 11.30 , 12, 12.30, 13, 13.20
Og 13.40.
Bilarnir aka úr Lækjar-
götu og hafa viðkomu á
Hringbraut við Umferðar-
miðstöð, við Miklatorg, Þór-
oddsstaði við öskjuhlið , við
Fossvogskirkjugarð, ofan
við Nýbýlaveg, á Kópavogs-
hálsi og á móts við Kópa-
vogsbraut.
HERINN BURT