Þjóðviljinn - 26.07.1977, Blaðsíða 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 26. júli 1977.
Rikið œtlaði að hafa 8,6 miljarða upp úr ATVR:
Aðeins 3,2 miljarðar
sex mánuði ársins
fyrstu
Mörgum hefur efalaust brugðið
i brún, þegar auglýst var hækkun
á útsöluverði áfengis og tóbaks nú
um helgina. Þjóðviljinn hafði
samband við þá Jón Sigurðsson
ráðuneytisstjóra i Fjármálaráðu-
neytinu, og Jón Kjartansson, for-
stjóra ATVR, og sögðu þeir að
hækkunin væri fyrst og fremst til
þess ætluð að auka tekjur rikis-
sjóðs, en að auki væri með mis-
munandi hækkunum vintegunda
verið að reyna að hafa ákveöin
áhrif á neysluvenjur fólks.
1 fjárlögum fyrir árið 1977 var
gert ráð fyrir að rekstrartekjur
ATVR yrðu 8,6 miljarðar króna,
en á fyrstu 6 manuðum þessa árs
höfðu þær aðeins náð 3,2 miljörð-
um enda hefur sala áfengis og tó
baks dregist verulega saman,
eins og komið hefur fram i frétt-
um.
Liklegt er að aukin áróður gegn
neyslu þessa varnings eigi hér
stóran hlut að máli, sérstaklega
- hvað varðar tóbakið, en einnig
hefur kaupmáttur launa sjaldan
verið minni ein einmitt á þessum
tima, og þvi ekki óeðlilegt að
neysla á lúxusvörum sem þessum
hafi dregist saman.
Það sem athygli hefur vakið við
nýju hækkunina er að verð á létt-
um vinum, (borðvinum, sherry
púrtvini, vermúþ o.þ.h.) helst
óbreytt, en Kláravinið og brenni-
vinið hækka mest, um 30 og 20%.
Með þessu er verið að beina neysl
unni frá sterkari drykkjunum, en
Kláravinið er nú vinsælasta vin-
tegundin hér á landi. Neysla þess
hefur komið i stað neyslu mun
dýrari tegunda, svo sem vodka og
wiskys en i Kláravini eru engin
bragðefni, og var gert ráð fyrir að
það yrði fyrst og fremst notað til
blöndunar með ýmsum bragð-
efnum, eins og tiðkast viða er-
lendis, en ekki að það yrði almenn
neysluvara.
AI.
MEÐ HALLA OGLADDA
Hljómsveitin Brimkló byrjaði um slöustu helgi ferðalag um iandið.
Höfð verður viðkoma í öllum helstu skemmtihúsum landsbyggöarinnar
og slegið upp balli. 1 föruneyti Brimklóarmanna eru þeir landskunnu
skemmtikraftar, Halli og Laddi. Um verslunarmannahelgina
skemmta þeir að Borg I Grimsnesi, en halda svo noröur og austur um
land.
Afgreiðsla Þjóðviljans
verður framvegis opin
mánudag til föstudag
frá kl. 9:00 til 17:00
VÚÐVIUINN
Síðumúla 6. sími 8 13 33
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi:
Þórsgötu Sigtún
og ennfremur viðar til
afleysinga stuttan tíma.
ÞJOÐVILJINN
Vinsamlegast hafið samband við af-
greiðsluna Siðumúla 6 — simi 81333
mánud — föstud.
BREYTINGAR
Á HÓTEL KEA
Nýlokið er miklum breytingum
og endurbyggingu i kjallara og á
fyrstu hæð Hafnarstrætis 89 eða
þar sem áður voru Kjötbúð KEA
og Matstofa Hótel KEA. Er hluti
þessa húsnæðis var frágenginn
eða þann 22. júní s.l. opnaði Hótel
KEA þar matstofu undir nafninu
SÚLNABERG, en þann 14. júli s.l.
var framkvæmdum að fullu lokið
og er Súlnaberg nú mjög vistleg
og rúmgóð matstofa þar sem 150
manns geta samtimis setið til
borðs og er þá meðtalið afmarkað
svæði með 26 sætum sem ætlað er
dvalargestum Hótel KEA. Svo
sem Matstofa KEA áður gerði
býður Súlnaberg nú upp á rétti
dagsins, þ.e. þrjá mismunandi
heimilisrétti, auk mun fjöl-
breyttari sérréttaseðils frá grill-
inu en áður. Heimilisréttirnir eru
framreiddir frá kl. 11.30 til kl. 21
en grill-réttir til kl. 23, en Súlna-
berg opnar kl. 8 f.h.
Oll tæki á Súlnabergi eru af
hinni bestu gerð og má þar til
nefna kæliborð fyrir brauð, hita-
borð fyrir matarrétti, diska-
hitara, fullkomna kaffikönnu,
vönduð grilltæki, auk fjölda
annarra tækja.
Með þessum framkvæmdum er
lokið fyrsta áfanga stækkunar og
endurbyggingar Hótel KEA, sem
áður hefur verið greint frá i
blöðum. Allar teikningar voru
gerðar á Teiknistofu SIS. Tré-
smiðar og innréttingar önnuðust
Reynir s/f og Skipasmiðastöð
KEA, múrverk og flfsalögn
Magnús Gíslason, raflagnir Ljós-
gjafinn h/f, málningu Stefán
Jónsson og Björn Jónsson, vatns-
og skólplagnir Karl og Þórður s/f,
uppsetningu tal- og hljóm-
flutningstækja Ólafur Dan
Snorrason. Uppsetningu loft-
ræstitækja, svo og járnsmiði,
annaðist Vélsmiðjan Oddi.
Umsjón með framkvæmdunum
fyrir hönd KEA hafði Gisli
Magnússon, byggingameistari.
Myndin er tekin I Súlnabergi.
Mammútkálf-
ur í freðmýri
— Fyrir skömmu fannst i gull-
námu i Magadan-héraði ungur
mammút, sem varðveist hefur
fullkomlega gegnum aldirnar.
Visindamenn telja að hann hafi
látist fyrir u.þ.b. 13-14 þúsund
árum. Sennilegt er að hann hafi
fallið i litið stöðuvatn eöa mýri og
grafist þar i jörðu. Þarmeð
sköpuðust skilyrði til að hann
varðveittist svo vel sem raun ber
vitni. Freðmýrin hefur komið 1
veg fyrir að hann rotnaði. Lengd
þessa mamút-barns er 115 senti-
metrar, hæðin 104 og lengd
ranans 57 sm. Likaminn er
þakinn rauðbrúnni ull. Talið er að
mammútinn hafi aðeins verið sex
mánaða gamall þegar hann fórst.
Aður hafði aðeins einn slikur
fundist, það var i Alaska en
mammútinn var ekki varðveittur
i heilu lagi. (apn)
Valur fór létt...
Framhald af bls. li
fyrir utan vitateig, en sendi siðan
eldsnöggan bolta á markið Gisli
var of seinn og missti hann milli
handanna i netið, 0:3.
Valsmenn leku þennan leik vel
og gáfu KR-ingum aldrei færi á að
byggja upp sóknir. Þeir voru
alltaf á undan á boltann og unnu
flesta skallabolta. KR liðið var
hinsvegar lélegt, alla baráttu
vantaði og ekki að sjá að liðið
væri að berjast fyrir tilveru
sinni i 1. deild. G.Jóh.
Styrkiö
neyÖarvamir
RAUOA KROSS ISLANDS
Hver vill
lengjast
Nú geta menn vaxið um nokkra
sentimetra ef þeir vilja, og einnig
er hægt að stöðva likamsvöxtinn
ef maður er hræddur við að verða
of hávaxinn. Þetta er gert með
aðferð sem sovéskir læknar hafa
fundið upp og byggist á notkun
vaxtarhormóna. Maður sem fær
slika hormónagjöf i tvo mánuði
vex um 1,5 sm. Einnig hefur verið
fundið upp lyf fyrir þá sem vilja
hætta að vaxa, og stöðvar lyfið
vaxtarhormónana. Þetta lyf er
einnig notað til að stöðva vöxt
krabbameinsfruma og til að
lækna sykursýki. (apn)
UMSK sigraði
Framhald af bls. 11
Stigakeppnina unnu Borgfirð-
ingar (UMSB) 89 stig.HSH varð i
öðru sæti með 76 stig og IR i
þriðja sæti með 74.5 stig.
Frammistaöa Borgíirðinga og
Snæfellinga kemur nokkuð á ó-
vart og einnig ágætur árangur
barna úr HVI. Héraðssambandi
Vestur-Isfirðinga. Greinilegt er
að vel er unnið að unglingastarfi i
frjálsum iþróttum nú bæði úti á
landi og I Reykjavik, það má
greinilega sjá af keppendafjölda
og ^tórbættum árangri i öllum
flokkum.
Bæði stigin
Framhald af bls. 11
skiptin náði IBK- vörnin að
hreinsa frá.
A markaminútunni miklu, 43.
min.,urðu Arna i markinu á mis-
tök sem kostuðu mark. Eftir
hornspyrnu frá Ólafi Júliussyni,
átti hann misheppnað úthlaup og
Gisli Torfa skallaði að marki,
varnarmaður spyrnti frá, en linu-
vörðurinn veifaði, maðurinn
spyrnti boltanum frá, eftir að
hann var kominn yfir marklin-
una, 0:1, og þannig var staðan i
hálfleik.
1 siðari hálfleik voru Keflvik-
ingarnir mjög ákveðnir og aðeins
voru liðnar 8 min. er þeir skoruðu
mark númer tvö. Hilmar
Hjálmarsson sendi boltann i net-
ið, eftir langt innkast GislaTorfa-
sonar, 0:2. Eftir markið virtust
Keflvikingarnir slaka aðeins á, en
framararnir færðust allir i auk-
ana ogá 15.mi'n minnkuðu þeir
muninn. Það ypr Sigurbergur
Sigsteinsson sem var þar að
verki, eftir hornspyrnu sem
Eggert Steingrimsson tók, 1:2.
Skömmu siðar skoruðu þeir sið-
an jöfnunarmarkið. Rúnar Gisla-
son átti gott upphlaup upp kant-
inn, sendi boltann fyrir markið og
Kristinn Jörundsson skallaði af
öryggi i markið, 2:2.
Sigurmark Fram i leiknum
skoraði Sumarliði Guðbjartsson
og var það á 84.min og gerði hann
það með skalla eftir mjög góða
fyrirgjöf frá Eggerti, 3:2,og sigur
Fram tryggður.
Keflavikurliðið byrjaði leikinn
mjög vel, góð barátta, og voru
yfirleitt fljótari á boltann, en eftir
að þeir komust i 0:2 , virtist liðið
gefa mikið eftir, og þá tóku fram-
arar vel við sér og notuðu sér
eftirgjöfina og gengu með sætan
sigur af hólmi.
G.Jóh.