Þjóðviljinn - 20.01.1978, Side 10

Þjóðviljinn - 20.01.1978, Side 10
10 SÍÐA ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. janúar 1978 Fundur i miðstjórn Alþýðubandalagsins Fundur verður haldinn i mið- stjórn Alþýðubandalagsins dag- ana 27. og 28. janúar og hefst kl. 20.30 þann 27. janúar að Grettis- götu 3 Reykjavik. Dagskrá: 1. Nefndakjör 2. Hvernig á að ráöast gegn verð- bólgunni? (Framsögumaður: Lúðvik Jósepsson) 3. Kosningaundirbúningur (Framsögum aður: ólafur Ragnar Grimsson) 4. önnur mál Alþýðubandalagið i Kjósarsýslu Fimmtudaginn 26. janúar heldur Alþýðubandalagið i Kjósarsýslu umræðufund að Hlé- garði i Mosfellssveit um stöðuna i efnahagsmálum og verkefni sósialista. Fundurinn hefst klukkan 20:30. Framsögumenn á fundinum verða Kjartan ólafsson, ritstjóri og Asgeir Danielsson, hag- fræðingur. Fundurinn er öllum opinn. Stjórn Alþýðubandaiagsins i Kjósarsýslu. Alþýðubandalagið á Suðurlandi Skemmtikvöld. Alþýðubandalagið á Suðurlandi heldur skemmti- kvöld i Selfossbiói laugardagskvöldið 21. Bestu fáanleg skemmtiatriði og öndvegis dansmúsik Fjölmennum og tökum með okkur gesti. Skemmtinefndin BLAÐBERAR óskast 1 eftirtalin hverfi: V esturborg: Hjarðarhaga Kvisthaga Háskólahverfi Austurborg: Sogamýri Seltjarnarnes: Lambastaðahverfi Melabraut Afleysingar: Efri-Laugaveg Kópavogur: Traðir Okkur vantar tilfinnanlega blaðbera i þessi hverfi, þó ekki væri nema til bráða- birgða i nokkrar vikur. ÞJÓÐVILJINN Vinsamlegast hafið samband við af- greiðsluna, Siðumúla 6. — Sími 81333. Pípulagnir Nýlagnir, breyting- ar, hitaveitutenging- ar. Sími 36929 (milli kl. 12 og 1 og ettir kl. 7 á ^kvöldin) Auglýsiö í Þjódviljanum Gísli Gudmundsson sendir Tíðindi frá Suðureyri Nýlega birtust hér hjá Land- pósti aflafréttir frá Suðureyri, sendar blaðinu af Gisla Guð- mundssyni. En Gisli átti meira i pokahorninu og nú ræðir hann um hitaveituna þeirra á Suður- eyri. Sennilega hafa menn heyrt talað um hitaveitu Suöureyrar við Súgandafjörð. Það var bor- að hér eftir heitu vatni haustið 1975. Sú borun reyndist mjög já- kvæð. Snemma sumars 1976 var svo byrjað hér i þorpinu að koma fyrir dreifikerfi. Og eftir 13 mánuði, eða nánar til tekið 27. júlí 1977, var fyrsta húsið tengt við veituna. Að sjálfsögðu var það húsið, sem oddvitinn okkar býr i. Samkvæmt heimildum frá nú- verandi sveitarstjóra, Kristjáni Pálssyni, var um siðustu ára- mót búið að tengja 85 hús. Þar i er kirkja, barnaskóli, Póstur og simi, Verbúðin gamla, tvær verslanir og eitthvað fleira. Um 100 íbúðarhús eru hér á Suður- eyri í dag. Ellefu ibúðarhús munu enn nota rafhitun og álika mörg eru oliukynt. Fiskiðjan Freyja hf. er ekki orðin þess aðnjótandi að nota vatnið. Minútuliterinn var i upphafi seldur á kr. 2410.- en hækkar nú bráðlega um 25% og fer þá i kr. 3013.-. Sennilega hækka hemla- gjöldin lika. Þau eru nú kr. 300.-, á mánuði. Heimtaugagjöld hækkuðu 15.. des. um 26.19%. Fastagjald á heimæð meö hemil, þrýstijafnara og slaufuloka, var i upphafi kr. 97 þús. á eldri hús frá 0 upp i 300 rúmm. Nýbygg- ingar kr. 221.500.- og að auki á báöa flokka kr. 167 á rúmm. frá 300 að 1000 og kr. 112.- yfir 1000 rúmm. Ekki er hægt að fá upplýst hvað hitaveitan kostar þegar þetta er skrifað, 6. jan. En skuldir hennar nú um áramót voru 148 milj. Þær voru um ára- • mótin 1976 og 1977 121 milj. kr. Samkvæmt frumáætlun, sem gerð var haustið 1975, af verk- fræðiskrifstofu Guðmundar G. Þórarinssonar, var reiknað með að veitan mundi kosta, algjör- lega klár haustið 1977, 158 milj. 271 þús. kr. Var þá reiknaö meö tveimur borholum en það er nú aðeins ein. Sömuleiðis var reiknaður með i áætluninni jöfn- unartankur, 500 tonna. Hann er ekki fæddur enn og er það mjög bagalegt þegar rafmagn fer af, sem oft kemur fyrir. Samkvæmt þessum tveim lið- um er öryggi ábótavant. Vatnið er um 60 gráðu heitt þegar þaö kemur i húsin. Ofnar eru þar af leiðandi of litlir i mörgum hús- um og hefur þvi orðið að fjölga þeim eða stækka. Það kostar jú mikiö fé. Samkvæmt 9. grein laga veitunnar ber hún enga á- byrgð á tjóni, er leiöa kann af rekstrartruflunum er verða á henni vegna frosta rafmagns- bilunar eða annarra óviðráðan- legra atvika. (Hún borgar sennilega ekki útför þeirra, sem kunna að drepast úr kulda af þeim sökum). Sumir telja sig hagnast á varmahituninni miðað við oliu- kyndingu. Aðrir tapa. Það er hábölvað að þurfa að greiða sama mánaðargjald vetur, sumar, vor og haust. Oliu- styrkur var afnuminn hér i þorpinu 1. júli I sumar. Þeim, sem hita hús sin enn upp með oliu, t.d. of litlir ofnar, finnst það ósanngjarnt, sem eðlilegt er. Það kemur oft fyrir, að raf- magn að vestan, frá Mjólkár- virkjun, fer áf. Helst er það i misindisveðrum. Um leið slær rofinn út i dæluhúsinu og verður þá maður sá, sem hefur yfir- umsjón með heita vatninu, að rjúka af stað inneftir, hvort heldur er nótt eða dagur. Stund- um oft á sólarhring. Vegalengd- in er um 4 km og oft ekki fær bilum, vegna snjóa. Þessar raf- magnstruflanir valda glundroða i húsahituninni, af þvi það vantar jöfnunartankinn. Suðureyrarhreppur telur sig enn hafa öll yfirráð yfir hita- veitunni. Þeir hafa enn ekki samið við Orkubú Vestfjarða. 1 haust var byrjað að byggja hér sambýlishús, svokallað kjarnahús. Upphaflega var reiknað með 7 ibúðum en verða nú gerðar 8. Þetta eru 4 ibúðir 100 ferm og 50 ferm hver. Samkvæmt fréttum i-Vestfirsku fréttablaði siðla sumars á fyrra ári var sagt, að húsið mundi kosta 118,5milj. Ekki er hægt að segja hvort sú tala stenst endanlega, þvi eins og sjá má og heyra er ofboðsleg verðbólga á öllum sviðum. Verktaki er byggingafélagið Brún hf. Yfirsmiður heitir Árni Jóhannsson. Húsinu á að skila 1. des. 1979, þá að öllu leyti full- kláruðu. Verkin við bygginguna eru ekki boöin út. Svokölluð Eyrargata var steypt i haust. Vegalengdin er 410 m, breidd frá 6,5 m í 8 m. Má þvi reikna með t.m. meðaltali eða 2870 ferm. Heildar- kostnaður varð um 22 milj. kr. þar er innifalin trygging á heitu vatni i húsin meðfram götunni, niðurföll og þessháttar. Verkið er unnið á vegum þess sama Árna og hefur umsjón með kjarnahúsinu en verkstjórn annaðist Guðjón Samúelsson, verkfræðingur, lærðúr í Austur- Þýskalandi. Það er álit allra hér að verk þetta sé fágætlega vel af hendi leyst. Gisli Guðmundsson Mjólkurfraiiileidslaii’77 Samkvæmt heimildum frá Upplýsingaþjónustu landbúnað- arins mun heildarmagn innveg- innar mjólkur á árinu 1977 hafa verið um 119 milj. kg. en árið 1976 var það 112 milj. kg. Nokk- ur samdráttur hefur orðið á sölu mjólkur eða um tæp 4% frá fyrra ári. Sala á undanrennu hefur aftur á móti aukist um 130%. Birgðir af smjöri voru 81% meiri 1. des. i ár en I fyrra og voru um 1100 lestir i árslok. Smjörsala hefur minnkað um tæp 20% á árinu. Ánægjuleg þróun hefur aftur á móti orðið i neyslu og sölu osta. Aukning á árinu varð rétt um 10% miðað við árið 1976. Mánað- arsala á ostum er nú um 120 lestir. I ár hafa verið fluttar út 827 lestir af ostum en i fyrra nam útflutningurinn 314 lestum. (Heimild: Uppl.þjón. landb.). — mhg. VOf Umsjón: Magnús H. Glslason J

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.