Þjóðviljinn - 22.01.1978, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 22.01.1978, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. janúar 1978 Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis. Otgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiftur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaöi: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: Olfar Þormóösson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Sföumúla 6, Sfmi 81333 Prentun: Btaöaprent hf. Gömul hús Til hvers skrifar Þjóðviljinn um gömul hús? Vill blaðið frekar varðveita gömlu hjallana leka og fúna en að reisa ný traust steinhús fyrir verkafólk að búa i? Þessar spurningar heyrast stundum, og þess verður vart að ágætustu stuðningsmenn Þjóðviljans gagnrýna blaðið fyrir áherslu á varðveislu gamalla húsa. En þessar spurningar snerta ekki kjarna málsins; varðveisla gamalla húsa er liður i verndun menningarverðmæta. öllum þykir sjálfsagt að varðveita handrit og þjóðminjar af margvislegu tagi. Verndun húsa og borgarhverfa er af sama toga spunnin i raun,og það er eðlilegt að slik umræða skuli fyrst og fremst snúast um gömul hús i Reykjavik. Til þess eru tvær ástæður: Hin fyrri er sú að auðstéttin er sterkari i Reykjavik en nokkurs staðar annars staðar; i gróðafikn sinni þyrmir hún engu. Menningarverðmæti má hennar vegna eyðileggja og jafna við jörðu,ef hún getur tryggt sér gróða og meiri gróða. Gróðahugsjónin treður mannleg og menn- ingarleg verðmæti niður, af hvaða tagi sem þessi verðmæti eru — nema þeim sé unnt að breyta i beinharða peninga. önnur ástæðan til þess að meira er rætt um gömul hús i Reykjavik en annars staðar er að sjálfsögðu sú, að þau eru einfaldlega fleiri hér i borginni en annars staðar. Þjóðviljinn leggur mikla áherslu á að reist verði mannsæmandi húsnæði i vel skipulögðum hverfum þar sem fólk gæti búið án gifurlegs kostnaðar við kaup eða byggingu húsanna. En sú afstaða blaðsins er ekki i neinni andstöðu við kröfur blaðs- ins um varðveislu menningarlegra verð- mæta. Staðreyndin er sú að þegar er búið að vinna óbætanlegt tjón með eyðileggingu gamalla borgarhverfa. Eina leiðin til þess að koma i veg fyrir frekari eyðileggingu þessara hverfa, húsaraða eða einstakra húsa, er sú að banna brask með lóðimar, og taka þær i rauninni eignarnámi. Einar Olgeirsson flutti fyrir áratugum á alþingi frumvarp um að banna að byggja i gamla miðbænum. Það er vissulega of seint að koma sliku banni i framkvæmd, en það hefði breytt miklu; hitt er augljós nauðsyn að skipuleggja á menningarlegum — ekki peningalegum — forsendum allan gamla miðbæinn i Reykjavik. Þrátt fyrir allt er þar enn verðmæti sem nauðsynlegt er að varðveita ef íslendingar vilja risa undir þvi nafni að heita menn- ingarþjóð. — s. Hvers vegna þetta pukur? Eins og menn muna gerðu forgöngu- menn Varins lands tölvuskrá yfir alla þá sem skrifuðu undir beiðni þeirra til Bandarikjastjórnar um varanlega hersetu hér á landi. Þessi tölvunotkun var harð- lega gagnrýnd i Þjóðviljanum, þar sem bent var á að hér væri um að ræða fyrstu pólitisku tölvuskrána á íslandi. í sam- bandi við þau umfangsmiklu réttarhöld gegn andstæðingum VL-manna sem staðið hafa i þrjú og hálft ár samfellt á báðum dómsstigum, hefur Ingi R. Helgason, lög- maður Þjóðviljans, gert itrekaðar kröfur um að tölvugögnin verði þegar i stað afhent. Telur hann að slik skrá megi hvergi vera annars staðar en i höndum opinberra aðila. Lögmaður VL-inga neit- aði þessari kröfu i hæstarétti i siðustu viku á þeim forsendum að honum kæmi málið ekkert við og að nauðsynlegt væri fyrir forgöngumenn Varins lands að geta flett upp i skránni ef einhver spyrði hvort hans nafn væri þar að finna. Þessi ómerkilegi fyrirsláttur er athyglisverður og vekur grunsemdir: Til hvers er tölvuskráin geymd? Hverjir geyma hana? Hvar og hvernig? Þessar grunsemdir eru þeim mun alvarlegri nú,þegar þess er gætt að nú er kosningaár, tvennar meira að segja á árinu. Það er fyrir neðan allar hellur að einn pólitiskur aðili skuli hafa undir hönd- um skrá yfir skoðanir fólks i herstöðva- málinu, pólitiska tölvuskrá. Haldi VL- ingar fast við neitun sina, ber stjórnar- völdum að tryggja með aðför að lögum að þeir skili skránum i opinbera vörslu strax. — s. Thor Vilhjálmsson Vilhjálmur Hjálmarsson. Islensk kvikmyndagerd verður til umræðu í kvikmyndaþættinum i kvöld t kvöld verður fimmti og síðasti þátturinn um kvikmyndir i út- varpinu. Umsjónarmenn eru Friörik Þór Friöriksson og Þor- steinn Jónsson. 1 þættinum sem hefstkl. 19.25, veröa fjögur viötöl Rætt er viö Vilhjálm Hjálmars- son menntamálaráöherra, Friö- finn Ólafsson formann Félags kvikmyndahúsaeigenda, Sigurö Sverri Pálsson formann Féiags kvikmyndageröarmanna og Thor Vilhjáimsson formann Bandalags isl. listamanna. Fjallaö veröur um stööu Is- lenskrar kvikmyndageröar og frumvarp sem menntamálaráö- herra hyggst leggja fram á þingi um kvikmyndasjóö og kvik- myndasafn. Þá veröur rætt um samvinnu kvikmyndageröar- manna viö sjónvarpiö og sam- keppnisaöstööu islenskra kvik- mynda viö erlendar myndir. HELLUVER Milliveggjaplötur, 5 og 7 centimetra. Simi 33 5 45 § MÍAórlcordlcux Jómuh, thmno/lul lo rcposi Atornel. (100 Joura d’lild.). Prit’ pjur It rtpoe bt l’ámt HERMAN SVEINSSON, DE LA COMPAGNIK DE JÉSUS , Nó A Mödruvöllum en lslande, lo 8 8opteinbro 1862 Regu dans l’Église catholhiue, . en Janvier 1874 Eul.-é en religlor...le 27 septembre 1880 piouscincut dócódó A Louvain , le 29 septembre 1885 Dcs extréinités dc la tcrre j’ai crié vers vous, ð mon Dieu... Vous m’avez ainené de lá; car vous étes de- veuu inon cspérance... j’liabiterai pour tonjours vos tabernaci *s, et Je serai protégé á I'oinbro de vos alles. Ps. LX. v. S—5. Notrö l»ére qui étes nux cicux, que votre régne arrive sur nta patrio détolée, au salul d4 latfUðU* js coulais consacrer ma vir, 0 que Dieu est bon ! (Paroles du inourant). Doux cccur de Marie, soyex nwn salut, (300Jours d’mdulg.). I % -«wasc Merki krossins: Úr kaþólskum skjölum: MiBkunn8ami Jesús, veit þú honum eilífa hvíld. (100 daga aflét) Biðjið fyrir Armanni sveinssyni, af reglu Jesúíta, að sól hans megi hvila i friði. Hann fæddist á Möðruvöllum ó Islandi 8. september 1862 Var tekinn upp i kaþólsku kirkjuna 1. janúar 1874 Vann klausturheit sin 27. september 1880 Andaðist i guðsfriði i Louvain 29. september 1885 Fró endlmörkum jarðarinnar hef ég hrópað til þin, Guð minn Þú leiddir mig þaðan . . því að ó þig setti ég von mina um eilifð mun ég dveljast i tjaldbúðum þinum og finna vernd i skjóli vængja þinna. Sálm. 60, 3-5. faðir vor, þú sem ert á himnum, komi þitt riki til töÖurlandsins mins yfirgefna, sem ég þráÖi aÖ helga starfskrafta mina ö, hvað Guð er góður (orÖ frá vörum hins deyjanda) Ljúfa hjarta Mariu, vertu hjólpræði mitt. (300 daga aflát) HANN HVlLI I FRIOI Þýöing i bæninni Biðjið fyrir Manna Allir sem lesið hafa bæk- ur Jóns Sveinssonar, Nonna,vita hver AAanni var — Ármann Sveinsson, bróðir rithof uncíárins. AAanni er í bókum Nonna hinn barnslegi og við- kvæmi yngri bróðir, sem oft þarf á aðstoð hins lífs- reyndari eldri bróður að halda í ævintýrum og volki lifsins. Manni geröist kaþólskur eins og bróöir hans.vann klausturheit hjá jesúitum i Louvain áriö 1880 en lést fimm árum siöar, aöeins 23 ára aö aldri. I tímariti Kaþólsku kirkjunnar, Merki krossins, er birt skjal eitt sem prentaö hefur veriö til minningar um Manna látinn þar úti I Belgiu. Þar er vitnaö til oröa Manna á dánarbeöi: hann biöur þess aö „komi þitt riki til fööur- landsins mins yfirgefna, sem ég þráöi aö helga starfskrafta mina”, Orö þessi segja aö sjálf- sögöu sina sögu af þvi, aö hinn ungi íslenski jesúiti hafi ætlaö sér aö vinna aö kaþólsku trúboöi hér heima, heföi honum unnist aldur til.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.