Þjóðviljinn - 03.02.1978, Side 2

Þjóðviljinn - 03.02.1978, Side 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. febrúar 1978 KVIKMYNDAHÁTIÐ SETT í GÆR / Agúst Guðmundsson hlaut kvlkmyndastyrklnn 1978 Ágúst Guðmundsson tekur við starfsstyrk Menntamálaráðs úr hendi varaformanns ráðsins, Baldvins Tryggvasonar. Kvikmyndahátíö var sett í gær í Háskólabíói. Þessi fyrsta kvikmyndahátíö sem hér hefur verið haldin er i tengslum við Listahátíð- ina og stendur i tíu daga# lýkur 12. febrúar. Frum- sýndar verða 19 kvik- myndir f rá 14 löndum á há- tíöinni og verða sýningar í Háskólabíói og Tjarnar- biói. Gestir Kvikmyndahá- tiðar eru þýski leikstjórinn Wim Wenders og Grikkinn Voulgaris. Birgir tsl. Gunnarsson borgar- stjóri setti hátiðina i gær og sagði m.a. i ávarpi sinu, að Kvik- myndahátið væri einskonar for- leikur að Listahátið, sem haldin verður i vor. Reynt yrði að sýna margt af þvi besta sem gert hefði verið i kvikmyndalistinni á hátið- inni. Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra flutti ræðu. Hann sagði að kvikmyndirnar væru orðnar óaðskiljanlegur hluti af mannlifi og menningu þjóð- anna. Vilhjálmur talaöi um islenska kvikmyndagerð og sagði, að ekki yrði dregið i efa mikilvægi þess að efla islenska kvikmyndagerð, sem ekki hefði átt greiðan aðgang að fjármagni fram til þessa. 1 gær var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um kvikmyndalög. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir stofnun kvikmyndasafns og kvik- myndasjóðs. Tilgangur sjóðsins er að styrkja islenska kvik- myndagerð með lánum eða bein- um fjárframlögum til kvik- myndagerðarmanna. Ráðherra sagðist vænta þess, að frumvarp þetta verði samþykkt á þessu þingi. Vilhjálmur Hjálmarsson sagði, að það væri undrunarefni hverju islenskt áhugalið í kvikmynda- gerð hefði áorkað með tvær hendur tómar. Þá skýrði hann frá þvi, að börn Lofts Guðmunds- sonar ljósmyndara hefðu ákveðið að afhenda fyrirhuguðu kvik- myndasafni kvikmyndir Lofts, „Milli fjalls og fjöru” og „Niðursetninginn.” Vilhjálmur sagðist að lokum vona, að þessi hátið markaði spor, efldi góðan kvikmyndasmekk og flýtti fyrir nefndri lagasetningu. Baldvin Tryggvason varafor- maður Menntamálaráðs afhenti kvikmyndastyrk ráðsins 1978, i veikindaforföllum Kristjáns Benediktssonar formanns Menntamálaráðs. Styrkinn, sem að þessu sinni er tvær miljónir króna, hlaut Ágúst Guðmunds- son, þritugur Reykvikingur, sem nýlega hefur lokið fjörurra ára námi i kvikmyndafræðum við The National Film School i Englandi. Agúst notar styrkinn til gerðar kvikmyndar eftir eigin handriti, sem hann nefnir Litil þúfa. Tvær myndir hans hafa verið sýndar hér i sjónvarpi, Vinur minn Jón- atan og Saga úr striðinu, og á kvikmyndahátiðinni verður hin þriðja sýnd, Lifeline To Cathy. Baldvin Tryggvason sagði að mikils fjármagns væri þörf, ef islensk kvikmyndagerð ætti að Framhald á 14. siðu Haukur Angantýsson Skákmeistari Reykjavíkur Haukur Angantýsson tryggði sér titilinn „Skákmeistari Reykjavikur 1978” er hann vann Björn Sigurjónsson i 11. og slð- ustu umferð. Á sama tlma tapaði Bragi Halldórsson fyrir Benóný Benediktssyni i aðeins 18 leikjum, en Bragi var jafn Hauki að vinn- ingum fyrir siðustu umferð. Haukur hlaut 8 vinninga af 11 mögulegumjen Bragi 7 vinninga. Þórir ólafsson getur komist upp á milli þeirra ef hann vinnur Július Friðjónsson en skák þeirra var frestað. Þetta er i fyrsta sinn sem Haukur verður Reykjavikur- meistari i skák,en hann hefur litið getað teflt vegna atvinnu sinnar. Framhald á 14. siðu Greinargerö Landsbankans til viðskiptaráðherra: 50 miljónir á 8 árum frá einu fyrirtæki Svofelld greinargerð Lands- bankans um mál Hauks Heiðars kom fram á Alþingi I gær: „Reykjavík, 28. janúar, 1978. Hr. viðskiptaráðherra Ólafur Jóhannesson, REYKJAVÍK „Sem svar við bréfi yðar, herra viðskiptaráöherra, dags. 24. þ.m., vill bankastjórnin upp- lýsa eftirfarandi: Þann 22. desember s.l. ritaði bankastjórnin rannsóknarlög- reglustjóra rikisins bréf, þar sem beðið var um, að þá þegar yrði hafin rannsókn á misferli, sem komið hefði fram, að einn af starfsmönnum bankans, Haukur Heiðar, deildarstjóri á- byrgðardeíldar, hefðí gerst sek- ur um. Nokkru áður hafði eitt af við- skiptafyrirtækjum bankans „Reykjavik 2. febrúarl978. Með bréfi viðskiptaráöu- ■ neytisins, dagsettu 30. f.m. 1 barst mér ljósrit af bréfi banka- stjórnar Landsbanka íslands, ■ dagsettu 28. f.m. I bréfi ráðu- I neytisins er þess farið á leit við mig, að ég gefialþingi allar þær upplýsingar um gang lögreglu- • rannsóknar þeirrar, sem lýst er I fyrrgreindu bréfi, er ég telji . fært að veita á þessu stigi rann- | sóknar. óskað eftir sundurliðun á kostn- aðarreikningi hjá ábyrgðar- deildinni og hafði þá komið i ljós, að ósamræmi var milli færsluskjals i bókhaldi bankans og tilsvarandi færsluskjals i bókhaldi fyrirtækisins. Þegar endurskoðunardeild bankans kannaði hvað mismuni þessum ylli, varð ljóst að Haukur Heiðar myndi hafa útbúið tvenns konar færsluskjöl, önnur sem við- skiptamaðurinn greiddi eftir, hin með lægri upphæð, sem gengu til bókhalds bankans, en siðan dregið sér mismuninn. Var þá beðið um rannsókn þá sem fyrr er getið og enn stendur yfir. Mismunar af þessu tagi hefir orðið vart i um 25 tilvikum á timabilinu 1970-1977, að báðum árum meðtöldum, og lúta þau öli að viðskiptum sama við- Svo sem fram kemur i fyrr- greindu bréfi bankastjórnarinn- ar var það hinn 22. desember s.l., sem stjórn Landsbanka ís- lands sneri sér til rannsóknar- lögreglustjóra rikisins með beiðni um að hafin yrði rann- sókn á fjármálamisferli, sem komið hefði fram, að Haukur Heiðar, deildarstjóri ábyrgðar- deildar bankansheföi gerstsek- ur um. Rannsóknarlögregla rik- isins hóf þegar I stað rannsókn þessa kæruefnis, og hefir hún skiptafyrirtækis. Samtals nem- ur sá mismunur, sem um ræðir i þessum tilvikum, nálega 50 milj. kr. Ekkert hefur komið fram, sem bendir til að hliðstæður fjárdráttur hafi átt sér stað i sambandi við viðskipti annarra fyrirtækja við ábyrgðardeild bankans, en þessa eina, en það verður að sjálfsögðu rannsakað til hlitar. A hinn bóginn hefur Haukur misnotað reikninga sex fyrirtækja til þess að ná þvi fé, sem hann dró sér, Ut úr bankan- um. Enn er ekki fullkannað að hve miklu leyti féð hefur verið dregið af bankanum og að hve miklu leyti af viðskiptafyrir- tækinu, en flest bendir þó á þessustigi til þess, að það sé að mestu af bankanum. Ekkert bendir til að neinn inn- an bankans sé samsekur Hauki staðið yfir sleitulaust siðan. Við þá rannsókn, sem þegar hefir farið fram, hefir kærði, Haukur Heiðar, játað að hafa um árabil staðið að stórfelldum fjártökum og misferli með skjöl i sambandi við viðskipti bank- ans og tilgreind fyrirtæki. Þykir i meginatriðum upplýst með hvaða hætti kærði hefir staðið að þessum fjártökum að þvi marki sem kæruefni og rann- sóknargögn liggja þegar fyrir. Jafnframt beinistrannsóknin að i máli þessu. A því sem hér hefur verið lýst eru kærumál bankastjórnar á hendur Hauki Heiðar reist. Rannsóknmálsins er hins vegar undir forræði og yfirstjórn rannsóknarlögreglustjóra og er það ekki á valdi bankastjórnar að gefa skýrslu um hana. Af bankans hálfu hefur verið lögð áhersla á að flýta rannsókn málsins eftir þvi sem það stend- ur I hans valdi. Rannsóknarlög- reglustjóri hefur að beiðni bankastjórnar tilnefnt óháðan, löggiltan endurskoðanda til að hafa yfirumsjón með þeirri gagnavinnslu, sem fram fer i bankanum og starfslið bankans vinnur að. Á þeim rúma mánuöi, sem liðinn er siðan mál þetta kom upp, hafa farið fram á vegum bankaráðs og bankastjórnar ýt- þvi að gaiiga úr skugga um hvort um aðrar fjártökur eða önnur brot hafi veriö að ræða en þegar þykir i ljós leitt. Rannsókn sakarefna máls þessa er eigi lokiö, enda um- fangsmikil, en hefir verið hrað- að eftir föngum og miðar vel á- fram. Guðmundur Skaftason, hæstaréttarlögmaður og löggilt- ur endurskoðandi, hefir verið rannsóknarlögreglu rikisins til ráðuneytis við skipulagningu arlegar umræður og undirbún- m ingur að aðgerðum, sem hrund- ■ ið verður i framkvæmd á næst- j unni i þvi skyni að koma eins og • fært er i veg fyrir að atburðir af I þessu tagi endurtaki sig. Þessar ■ aðgerðir munu einkum verða | tvenns konar: ■ 1 fyrsta lagi verða teknar til | endurmats og endurnýjunar all- m ar vinnuaðferðir endurskoðun- ■ ardeildar bankans. Þörfin á slikri endurnýjun hefur komið I til umræðu i bankanum áður. 1 Nú hafa hins vegar verið gerðar ■ ráðstafanir til að fá utanaðkom- | andi sérfræðiaðstoð til að ann- ■ ast þetta endurmat án tafar. I I öðru lagi verður tekinn upp , sá siður sem allsherjarregla, að ■ flytja menn til i störfum innan I bankans á hæfilegu árabili. ! Þessi siður tiðkast i mörgum er- I lendum bönkum, og þykir hafa ■ marga kosti, en hefur ekki | tiðkast hérlendis fyrr en Lands- ■ bankinntókhannuppí nokkrum g mæli fyrir 6-7 árum. Vér leyfum oss að vænta þess, i herra viðskiptaráðherra að I þetta bréf svari fyrirspurn yð- ■ ar.” Virðingarfyllst, LANDSBANKI ÍSLANDS “ — Bankastjórn— j HelgiBergs ■ Björgvin Vilmundarson” | ■ ■ ___ . m—mm • mmmmmmm ■ I ■ rannsóknar þessa máls og at- I hugun sakargagna, þ. á m. að , þvi er varðar öflun gagna og ■ greinargerða af hálfu Lands- ® bankans og athugun bókhalds- jjj gagna frá þeim viðskiptafyrir- I tækjum bankans, sem koma við ■ sögu. Þá hef ég tilnefnt Ólaf | Nilsson, löggiltan endurskoð- ■ anda, til að hafa umsjón með I þeirri gagnavinnslu, sem fram * fer innan bankans. A þeim tima, ■ sem liðinn er siðan mál þetta * kom upp, má heita að gögn og í greinargerðir af hálfu bankans I hafi stöðugt verið að berast eftir , ■ þvi sem kæruefni og rannsókn | þeirra hefir þótt gefa tilefni til. ■ Ríkissaksóknara hefir verið I gerð grein fyrir rannsókn rann- J sóknarlögreglu rikisins i máli ■ þessuog fullt samráð verið haft * við hann um rannsókn og með- Jj ferð þessa máls. Frekari upplýsingar vérða ■ veittar svo fljótt sem kostur er | vegna rannsóknar málsins. „ Hallvarður Einvarðsson.” | Greinargerð rannsóknarlögreglustjóra: Staðið að stórfelldum fjártökum og misferli

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.