Þjóðviljinn - 03.02.1978, Síða 13

Þjóðviljinn - 03.02.1978, Síða 13
Föstudagur 3. febrúar 1978 (ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 útvarp INNKAUPASTOFNUN REYKTAVÍKURBORGAR Fnkifkjuvegi 3 — Simi 25800 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Þorbjörn Sigurðsson les sögu af Ódisseifi i endur- sögn Alan Bouchers, þýdda af Helga Hálfdanarsyni. Tilkynningar kl. 9.30. Þing- fréttirkl. 9.45. Léttlög milli atriða. Það er svo margtkl. 10.25: Einar Sturluson sér um þáttinn. Morguntónleik- ar kl. 11.00: Shmuel Ashke- nasi og Sinfóniuhljómsveit Vínarborgar leika Fiðlu- konsert nr. 1 op. 6 eftir Paganini, Heribert Esser stj./ Sinfóniuhljómsveitin I Cleveland leikur „Dauða og ummyndun”, sinfóniskt ljóð eftir Richard Strauss, Ge- orge Szell stj. 14.30 Miödegissagan: „Maður uppi á þaki” eftir Maj Sjö- wall og Per Wahlööólafur Jónsson les þýðingu sina (4). 15.00 Miðdegistónleikar Studio-hljómsveitin i Berlin leikur „Aladdin”, forleik op. 44 eftir Kurt Atterberg, Stig Rybrant stjórnar. Willy Hartmann og Konunglegi danski óperukórinn syngja tónlist úr leikritinu „Einu sinni var” eftir Lange-Mull- er. Konunglega hljómsveit- in i Kaupmannahöfn leikur með, Johan Hye-Knudsen stjórnar Konunglega fíl- harmoniusveitin i LundUn- um leikur polka og fúgu úr óperunni „Schwanda” eftir Weinberger, Rudolf Kempe stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 17.30 Útvarpssaga barnanna: „Upp á Hf og dauða” eftir Ragnar Þorsteinsson Björg Arnadóttir les (6). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Viðfangsefni þjóðfélags- fræða Dr. Þórólfur Þór- lindsson lektor flytur erindi um framlag félagsfræöinn- ar. 20.00 Nýárstónleikar danska útvarpsins Flytjendur: Sinfóniuhljómsveit útvarps- ins, Rony Rogoff, Charles Senderovitz, Gunnar Tag- mose og Arne Karecki fiðlu- leikarar, og Jörgen Ernst Hansen orgelleikari. a. Konsert i h-moll fyrir f jórar fiðlur og strengjahljóðfæri eftir Antonio Vivaldi. b. Þrir sálmaforleikir eftirDietrich Buxtehude. c. Konsert i a-moll fyrir fiðlu og strengjahljóðfæri eftir Jo- hann Sebastian Bach. d. Prelúdia og fUga i e-moll eftir Nicolaus Bruhns. e. Konsert 1 d-moll fyrir tvær fiðlur og strengjahljóöfæri eftir Bach. 21.00 Gestagluggi Hulda Val- týsdóttir stjórnar þættinum. 21.55 Kvöldsagan: „Sagan af Dibs litla” eftir Virginiu M. AlexineÞórir S. Guðbergs- son les þýðingu sina (8). 22.20 Lestur Passiusálma Guðni Þór Olafsson nemi i guðfræðideild les (10). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Afangar Umsjónar- menn: Asmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Eldvarnir á vinnustað.l þessari fræðslumynd er sýnt, hvernig ber að varast og hvað að gera, ef eldur kviknar. Þulur Magnús Bjarnfreðsson. 20.50 Kastljós (L). Þáttur um innlend málefni. Umsjónar- maður Omar Ragnarsson. 21.50 Niðursetningurinn.Kvik- mynd frá árinu 1951 eftir Loft Guðmundsson ljós- myndara. Leikstjóri er Brynjólfur Jóhannesson, og leikur hann jafnframt aðal- hlutverk ásamt Bryndisi Pétursdóttur og Jóni Aðils. Myndin er þjóölifslýsing frá fyrri timum. Ung stúlka kemur á sveitabæ. Meðal heimilismanna er niður- setningur, sem sætir illri meðferð, einkum er sonur bónda honum vondur. A undan Niðursetningnum verður sýnd stutt, leikin aukamynd.sem nefnist Sjón er sögu rikari. Aðalhlutverk leika Alfreð Andrésson og Haraldur A. Sigurðsson. 23.00 Dagskrárlok. UTBOÐ Tilboð óskast i að klæða stálgrindarhús og innrétta stækkun bækistöðvar Rafmagns- veitunnar við Ármúla 31. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, R, gegn 15.000.- kr. skil- atryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðju- daginn 28. febrúar n.k. kl. 11.00 f.h. BLAÐBERAR óskast 1 eftirtalin hverfi: V esturborg: Háskólahverfi Austurborg: Sogamýri Seltjarnarnes: Lambastaðahverfi ÞIOÐVILIINN Vinsamlegast hafið samband við af- greiðsluna, Siðumúla 6. — Simi 81333. Runebergvaka Sunnudaginn 5. febrúar efnir Suomifélagið til árlegrar Rune- bergvöku sinnar. Hefst hún i Norræna húsinu kl. 20.30. Þessi dagur er fæðingardagur þjóð- skáldsins Johans Ludvigs Rune- berg, en ifyrra voru hundrað ár liðin frá dauða hans. Avarp flytur formaður félags- ins Suomi Barbro Þórðarson. Hátiðaræðu flytur finnski bóka- útgefandinn Rauno Velling, en hann er hér staddur I boði Nor- ræna hússins. Þá skemmta þeir SigfUs Hall- dórsson tónskáld og Guðmundur Guðjónsson óperusöngvari. Jón Ur Vör frumflytur eigin ljóð og þýðingar á kvæðum finnsku skáldkonunnar Edith Söndergren. Loks verður tiskusýning. Finnskar konur sýna finnskan fatnað, m.a. Vuokko kjóla. í kaffihléi verða bornar fram hinar vinsælu Runebergstertur sem forstöðukona kaffistofu Norræna hússins bakar af kunnri snilld. Aður en vakan hefst verður aðalfundur félagsins en stjórn þess skipa nú Barbro Þórðarson formaður, Hjálmar Ólafsson varaformaður, Sigurjón Guð- jónsson ritari, Benedikt Boga- son gjaldkeri, Christel Þor- steinsson, Sigurður Thoroddsen og Valdimar Helgason. wall og Wahlöö, sem nefnist i Is- lenskri þýðingu Máður uppi á þaki — skáldsaga um glæp. HUn fjallar um mann nokkurn, sem fyllist svo mikilli örvæntingu, að hann fer i eins manns strið við lögregluna. Siðan segir frá morði á lögregluþjóni og lausn á þvi máli. Menn ættu aðkannastvið hina heimsþekktu sænsku höfunda sögunnar, Maj Sjöwall og Per Wahlöö, en þau skrifuðu tiu bækur i sagnaflokki sem þau nefndu „Skáldsaga um glæp”. Hafa sögur þessar allsstaðar orðið metsölubækur, þar sem þær hafa komið út. Morðið á ferjunni, fyrsta bókin i þessum flokki, kom út hjá Máli og menningu i islenskri þýðingu nú fyrir jólin. Margir útvarpshlust- endur muna lika eflaust eftir sögunni Löggan sem hló, sem var lesin sem miðdegissaga i fyrra, en hún er einnig Ur þess- um sagnaflokki. Þeir sem fylgd- ust með Ólafi lesa þýðingu sina i fyrra á „Löggunni”, láta ekki lestur hans að þessu sinni fram- hjá sér fara. Sögur þeirra Sjöwall og Wahl- öö eru bæði spennandi og sekmmtilegar, með gagnrýnis- ivafi, en sú gagnrýni beinist að- allega að þvi þjóðfélagsformi sem þau búa við og telja að eigi sök á mörgum þeim glæpum sem framdir eru. Fjallar hver saga þeirra um einstakling, sem af þjóðfélagslegum ástæðum er að einhverju leyti brenglaður, og fremur af þeim ástæðum morð, og siðan um baráttu þeirra rannsóknarlögreglu- manna Martins Becks og félaga við að leysa gátuna. Það má geta þess að sagan um manninn á þakinu hefur verið kvikmynduð. Myndina gerði hinn kunni sænski kvik- myndaleikstjóri Bo Widerberg, sem m.a. er þekktur fyrir El- viru Madigan og Uppreisnina i Adalen. Nú leggjum við til að allir þeir sem tök hafa á, leggi við hlustir klukkan hálfþrjú i dag. Góða skemmtun! Brádskemmtileg og spennandi miðdegissaga r Olafur Jónsson les sögu eftir Sjöwall og tVahlöö Það er skemmtileg tilbreyting hjá þeim dagskrárstjórnendum útvarps að velja spennandi reyfara eftir þau Wahlöö og Sjö- wall sem miðdegissögu að þessu sinni. Þeir hafa vægast sagt verið mistækir á vali á sögum i þennan dagskrárlið. Undanfarið hefur hvert gamalmennið á fæt- ur öðru mætt með eigin sögu og lesið yfir okkur útvarpshlust- endum mæddri röddu. En nú hefur orðið ánægjuleg breyting Það er ólafur Jónsson bók- menntagagnrýnandi sem les þýðingu sina á þessari sögu Sjö- Maj Sjöwall og Per Wahlöö.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.