Þjóðviljinn - 15.02.1978, Side 5
Miðvikudagur 15. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
70 ARA I DAG
Oddný Guðmundsdóttír
Á rúmlega 40 ára ævi Þjóðvilj-
ans hefur blaðið eignast marga
vini og velunnara. í þeim hópi er
Oddný Guðmundsdóttir, sem nú
verður 70 ára i dag.
Ung að árum var Oddný komin
i hópinn, sem lagði til efni i Rauða
Ipenna, og þar má finna kvæði
hennar frá árinu 1936, sama árii
og Þjóðviljinn hóf göngu sina. Fá-
um árum siðar sinnti Oddný um
skeið föstum verkefnum fyrir
þetta blað, og sá þá m.a. um þýð-
ingu á nokkrum framhaldssög-
um. Margt hefur breyst á þeim
árum, sem liðin eru siðan þá, en
aldrei hefur fullur skilnaður orð-
ið meðOddnýjuog Þjóðviljanum,
þótt stundum hafi hún þurft að
segja okkur sem hér störfum
maklega til syndanna.
Hvergi á islensk þjóð dýpri ræt-
ur en á útskögum landsins. A öll-
um öldum hafa þær byggðir
fóstrað liðsmannasafn, sem dugði
til kraftaverka, þeirra krafta-
verka, sem ein gátu borgið lífi
þessarar þjóðar.
Oddný kom af Langanesi,
bóndadóttir með rauðan penna i
höndog lágróma galdur á tungu.
Það voru kreppuár. Fáar stúlk-
ur úr sveitum landsins komust á
menntabraut, en sögur segja að
Oddný hafi fyrir strið dvalist við
menntastofnanir, bæði á Norður-
löndum og i Sviss, — og munu
sannar. Hvernig hún fór að þessu
vitum við ekki, en sjálfsagt hefur
hún ekki talið sig of góða tll að
. sleppa úr einni og einni máltið,
eins og þeir námsmenn islenskir
fyrrum, sem stundum máttu biða
lengur en góðu hófi gegndi eftir
kæfubelgnum góða að heiman,
yfir Atíantsála.
Sá sem þessar linur hripar,
kynntist Oddnýju fyrst i Vina-
minni við Mjóstræti i Reykjavik,
þar sem Samtök hernámsand-
stæðinga höfðu bækistöð um ára-
bil.
t hugum okkar margra er nokk-
ur ljómi yfir árunum kringum
Þingvallafundinn 1960 og fyrstu
Keflavikurgöngurnar i byrjun
siðasta áratugs. Einhvern veginn
finnst manni, a.m.k. þegar frá
liður, að þarna hafi mannval
karla og kvenna verið saman
komið. — Samt prýddi Oddný
hópinn.
Hún kom á vorin um svipað
leyti og farfuglarnir, spurði tið-
inda frá vetrinum og vildi fá eitt-
hvað að gera. Til að fyrirbyggja
misskilning skal tekið fram, að
þegar Oddný vildi fá eitthvað að
gera, þá var hún sannarlega ekki
að falast eftir launavinnu, þvi fór
fjarri. En hún vildi verða að liði,
vildi vinna þeim málstað, sem
hún taldi réttan og mikils virði.
Fáir lögðu meira fram sem sjálf-
boðaliðar en hún.
Hún gekk með okkur i Kefla-
vikurgöngunum, kvik á fæti, og
þessleg, aðvarla hefðiséðá henni
þreytu, þótt gengið hefði frá
Langanesiá Rosmhvalanes á svo
sem helmingi lengri tima en Arni
Oddsson þurfti riðiandi úr Vopna-
firði á öxarárþing, þegar mest lá
við.
En hvaðan kom Oddný þessi
vor?
Hún kom frá útskögum lands-
ins. Þar stundaði hún farkennslu
vetrarlangt áratugum saman,
einn allra siðasti farkennarinn á
Islandi. Það hlýtur að hafa verið
hverju ungmenni gæfa að læra að
draga til stafs og verða bænar-
bókarfær undir handarjaðri
Oddnýjar.
En nú er vist enginn farkennari
lengur til. Stéttin tilheyrir
ákveðnu timaskeiði á mörkum
kyrrstöðuþjóðfélags liðinna alda
og þeirrar nútiðar, sem við erum
nú að villast i.
Farkennarahópurinn er ekki
stór, en merkilegt safn fjölbreyti-
legra einstaklinga, sem flestir
eru efni i þjóðsögu eða skáldverk,
ljóð eða lag.
Siðust i lestinni fer Oddný
Guðmundsdóttir, og heitir Gunn-
hildur öðru nafni.
Og þjóðsögurnar eru þegar
orðnar til.l þeim landshluta, sem
ég þekki best til,er viða sagt frá
Oddnýju. Égheyrihennar getið á
Rauðasandi og á Barðaströnd, i
Otvikum og i Mosvallahreppi, i
Kollafirði og Bitru, — og sagt er
mér að hún hafi verið i Gufudals-
sveitfyrir stuttu. A öllum þessum
stöðum og miklu miklu viðar
hefur hún fengist við að kenna
börnum og ungmennum útskag-
anna þær lærdómslistir, sem eigi
má án vera. Slikt er dýrmæti.
Oddný hrópar ekki á torgum, en
hljóðlát áhrif hennar eru sterk.
Enginn týnir sér, sem á sitt hald
og traust hjá Odrinýju og þeim
landvættum sem með henni eru i
för.
Oddný er mestur hjólreiðamað-
ur á tslandi, en henni er litið gefið
um bila. Sumarlangt fór hún um
byggðir og óbyggðir landsins á
þessum tvihjóla farkosti, sem
alltof fáir kunna að meta, — og
ekki eitt sumar, heldur mörg. Og i
hverri byggð á Oddný vinum að
mæta, þvi að hún hefur viða
verið. Slikum er gott að eiga i
langferðum.
Oddný hefur skrifað sitthvað
um dagana, þar á meðal nokkrar
bækur, en einnig greinar i Þjóð-
viljann'og önnur blöð eða timarit.
öll eigum við, sem á íslandi
berjumst fyrir málstað sós-
ialisma, verkalýðshreyfingar og
þjóðfrelsis, Oddnýju skuld að
gjalda. Þá skuld greiðum við
með þeim hætti einum að duga i
verkum okkar, hver á sinum stað.
Hálfkák eða loddaraskap vill
Oddný hvorki heyra né sjá; hún
heimtar fullan trúnað. Þess
vegna munar um hana á verðin-
um, þótt sjötug sé norður á
Langanesi.
Mér er sagt af kunnugum að
Oddný dvelji i vetur i heimahér-
aði sinu, og sitji á Þórshöfn á
Langanesi. Þangað sendum við
henni kveðju og þakkir i dag frá
Þjóðviljanum og þeim stjórn-
málasamtökum, sem að blaðinu
24. leikvika — leikir 11. febrúar 1978
Vinningsröð: 2 X 1 —X 2 1 —1 2 1 — 2X1
1. vinningur: 11 réttir — kr. 702.500.
31871 (Reykjavik)
2. viningur: 10 réttir —kr. 20.000.-
2663 30590 31756(2/10)+ 32516 33006+ 33267+ 33369
4761 30809 31757+ 32831 33162+ 33334 34867 +
Kærufrestur er til 6. marz kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum
og aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað ef
kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla vcrða að framvisa stofni
eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og
heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR -
in — REYKJAVÍK
íþróttamiðstöð-
standa. Persónulega þakka ég
fyrir mig.
I hópi hernámsandstæðinga
hefur þeirri hugmynd öðru hvoru
skotið upp kollinum að efna ein-
hverju sinni til mótmælagöngu
hringinn i kringum allt Island
gegn erlendu hernámi og þjóð-
legri uppgjöf. Þessi ágæta hug-
mynd hefur enn ekki komist i
framkvæmd, en hver veit nema
að þvi komi siðar. Þá má ekki
stytta sér leið og gleyma útskög-
unum, eða hvernig ætla menn t.d.
að sneiða fram hjá Hóli á Langa-
nesi, þar sem Oddný sleit barns-
skónum? Nei, það verðurað koma
við á Hóli, hvort sem Oddný verð-
ur þá ofar moldu eða neðar. Þar
er rammur safi i jörðu og gott til
heitstrenginga. Þvi veldur
Oddný. Þar vakir hún á verðin-
um, ekki bara nú og um næstu ár,
heldur um alla framtið meðan
von er lifs i landi.
Kjartan Ólafsson
Þegar ég frétti að Oddný Guð-
mundsdóttir ætti sjötugsafmæli
um þessar mundir, komu mér i
hug visuhendingar, sem urðu til
þegar ég var fyrir nokkru að
rugla upp kveðskap á jólakortin
til vina og ættingja, en þær eru á
þessa leið:
Horfinn er blómi bernskunnar
með björtu vonirnar sinar.
Eldlegur móður æskunnar
óðum hverfur og dvinar.
Flest er það af sem áður var
og verst, hvað þær
gerast gamlaðar
gömlu jafnöldrur minar.
Þetta afmæli kom mér á óvart,
þvi mér hafði alltaf fundist Oddný
vera töluvert yngri en ég, en það
helgast af þvi, að þegar fundum
okkar hefur borið saman, hefur
hún alltaf verið svo hressileg i
bragði, upptendruð af hugsjónum
og lifrænu hugarfari að i saman-
burði við hana hefur mér fundist
ég verða eitthvað sem kallað hef-
ur verið núll og nix.
Það er löng leið á milli Hóls á
Langanesi og Hermundarfells i
Þistilfirði, og fundum okkar bar
ekki oft saman á uppvaxtarárun-
um. Þó man ég eftir þvi, að eitt
sinn var Gisli Guðmundsson,
bróðir hennar og siðar alþings-
maður og ritstjóri, gestkomandi,
þá kornungur maður. Ég sé hann
glögglega fyrir mér þar sem hann
sat á kofforti i baðstofunni, prúð-
mannlegur og hafði á sér gáfulegt
yfirbragð. Siðar var Oddný gest-
komandi i örfá skipti, þá ung að
árum og hafði verið á Akureyri
við nám i gagnfræðaskólanum, og
fannst mér nokkuð til hennar
koma vegna þessa, þvi að á þeim
árum töldust gagnfræðingar há-
menntað fólk þó að nú þyki sú
menntun hversdagleg og smá i
sniðum.
Þau systkinin standa mér
glöggt fyrir hugarsjónum eins og
ég sá þau fyrst. Bæði báru þau
með sér menningarlegan blæ,
hægláta prúðmennsku, næma i-
hygli og gædd viðræðuhæfileikum
eins og þeir gerast bestir. Bæði
höfðu meðfæddan þann kæk, að
þegar þau ræddu við mann. höll-
uðu þau höfðinu litið eitt aftur og
á ská til hliðar og var eins og þau
horfðu athugulum augum á ein-
hvern óræðan punkt út i tilver-
unni en hefðu samt viðmæland-
ann i sjónmáli. Það var greini-
legt, að þau voru að hugsa það,
sem þau sögðu, en horfa fram hjá
fordómum, smámunasemi, á-
reitni, og öllu þvi, sem ekki skipti
máli.
Þegar Oddný gisti hjá okkur á
Hermundarfelli svaf hún i rúminu
minu og hafði orð á þvi um morg-
uninn, að ekki hefði hún áður sofið
i rúmi, sem væri svo nákvæmlega
mátulega langt fyrir sig. Siðar
vitnaði ég oft til þess, ef Oddný
barst i tal, að okkur pössuðu sam-
an rúm. Þær hagnýtu aðstæður
komu þó aldrei að gagni og auk
þess átti vist eftir að togna eitt-
hvað úr mér.
Siðar bar fundum okkar saman
þegar bæði voru komin af ungl-
ingsaldrinum. Það var á sameig-
inlegum fundi ungmennafélag-
anna okkar, þar sem fóru fram
heitar umræður um skáldsöguna
Sjálfstætt fólk, eftir Laxness.
Þar vorum við samherjar i
fjarskalega fámennu liði sem stóð
til varnar heiðri skáldsins og
komst ég þá á þá skoðun, að eng-
inn yrði svikinn af hennar greind-
arlega yfirbragði, þvi hún reynd-
ist rökvis, ákveðin og málsnjöll i
besta lagi.
Oddný er fædd á Hóli á Langa-
nesi 15. febrúar 1908. Foreldrar
hennar voru hjónin Kristin Gisla-
dóttir og Guðmundur Gunnars-
son. Þar ólst hún upp til fullorð-
insára ásamt bræðrum sinum
Gisla og Gunnari. Hóll hefur
aldrei verið nein stórbýlisjörð og
ekki hentað nema til smábúskap-
ar. En það er til marks um atorku
og framsýni þeirra hjóna, að bæði
gengu þau systkinin menntaveg-
inn, eins og þau höfðu hæfileika
til,oghefur það ekki verið litið á-
tak á árum kreppu og fátæktar,
enda gerðist slikt ekki á hverju
heimili. Gunnar bróðir þeirra fór
aftur á móti i iðnaðarnám, járn-
smiði.
Eftir að Oddný hafði lokið
gagnfræðanámi stundaði hún
nám við Forby-folkhojskole i Svi-
þjóð árið 1933, norræna lýðhá-
skólann i Genf i Sviss árið 1936 og
við International hójskole i Dan-
mörku árið 1937. Fljótlega eftir
það hóf hún ævistarf sitt við
barna- og unglingakennslu. Hún
hafði ekki þann hátt á að ryðjast
um fast til að nái eftirsóttar kenn-
arastöður, en beið venjulega á-
tekta þar til ekki var úr öðru að
velja en farkennarastöðum, sem
aðrir kærðu sig ekki um.
Farkennsla hefur stundum
reynst hrakhólavist, kennarinn
orðið að gera sér að góðu að búa
við þröngan og óvistlegan húsa-
kost og misjafna aðbúð á heimil-
um, þó að á stundum hafi mátt vel
við una. Oddný hefur ekki sett
neina smámuni fyrir sig, og alls-
staðar mun hún hafa sætt sig við
ástæðurnar og gegnt starfinu af
áhuga og elju. Hún hefur ekki
verið við eina fjölina felld i vali á
kennslustöðum, en gerst viðförul
um landsbyggðina. Þvi til sönn-
unar má nefna að hún hefur starf-
að á eftirtöldum stöðum: Lunda-
reykjad., Haukadal, Rauðasandi,
Skógarströnd, Skagahreppi, Mos-
vallahreppi, Hrafnagilshreppi,
Breiðdal, Ospakseyri, Þingeyri,
Siglufirði, Raufarhöfn, og er þó
ekki allt upp talið. Ekki mun hún
hafa skipt svo oft um vinnustaði
vegna þess að hún hafi ekki notið
vinsælda, heldur mun þvi hafa
ráðið áhugi hennar að kynnast
fólki og byggðum sem viðast á
landinu og vera þannig einskonar
nemandi samhliða kennslunni.
Auk kennslustarfanna hefur
Oddný lagt mikla stund á ritstörf
og látið frá sér fara skáldsögur,
útvarpsleikrit og þýðingar.
Skáldsögur hennar eru: Svo skal
bölbæta, 1943, Veltiár 1946, Tveir
júnidagar, 1949, A þvi herrans
ári, 1954 og Skuld, 1967. Otvarps-
leikrit hennar eru: Vellýgni
Bjarni, Hraði og Fósturlandsins
freyja. Helstu þýðingar hennar
eru Vinirnir, eftir Eric Maria
Remarque, Englahatturinn og
Þegar ég var töframaður, eftir
Halvard Floden. Auk þess eru svo
framhaldssögur, sem birtust i
Þjóðviljanum og erindi i blöðum
og timaritum eða flutt i útvarp.
Þegar Oddný hefur viljað lifa
frjálsar stundir hefur hún sest á
reiðhjólið sitt og ekið um landið
þvert og endilangt, i byggðum og
óbyggðum, sér til ánægju, fróð-
leiks og heilsubótar. Þetta telur
hún meira mannbætandi en sól-
böð i sólarlöndum, og mætti
margur af henni læra i þvi efni.
Nú allra siðustu árin hefur Oddný
dvalist á Þórshöfn og stundum
verið tima og tima á æskustöðv-
unum Hóli, sem hefur verið sum-
arbústaður þeira hjóna, Gisla
bróður hennar og Margrétar
Arnadóttur, ekkju hans.
Ég og Guðrún kona min erum
Oddnýju þakklát vegna þess að
oftast þegar hún hefur átt leiö um
Akureyri hefur hún litið inn til
okkar og hefur alltaf verið og
verður aufúsugestur. Ég er viss
um að hún á eftir að vera hress og
lifleg mörg næstu árin og góður
vinur vina sinna, en ósátt við
heimskuna og ranglætið i veröld-
inni.
Einar Kristjánsson
frá Hermundarfelli.
Blaðdrei iingarf ólk
óskast
Austurborg:
Bólstaðarhlið
Sogamýri
DJÚÐVIIIINN
Siðumúla 6
simi 8 13 33
Tökum aö okkur
smiði á eldhúsinnréttingum og skápum,
bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur
um breytingar á innréttingum. Við önn-
umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og
inni. Verkið unnið af meisturum og vönum
mönnum.
T résmíða verkst æðið
Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613
V