Þjóðviljinn - 15.02.1978, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 15. febrúar 1978
VIII. K_________
1978
Friðrik Ólafsson fór á kostum í gærkveldi
Fórnaði manni
og skiptamun
gegn Smejkal
og sigraði með glæsibrag — ekkert jafntefli í 9 umferðinni
Það var presturinn Lombardy,
sem lagði Miles að velli, fyrstur
manna i þessu móti. Lombardy
tefldi mjög vel. Þeir lentu i botn-
lausu timahraki við fyrri tima-
mörkin, og útúr þvi kom Lom-
bardy með 2 peð yfir og nánast
tæknilegt atriði fyrir hann að
ljúka skákinni.
Og Browne gerði sér litið fyrir
og sigraði Hort i vel tefldri skák.
Menn héldu lengi vel að Hort væri
með betri stöðu, en það kom i ljós,
þegar Browne brá sér frammi i
skýringarsalinn eftir skákina að
hann gat sýnt fram á og sannað
að hann hefði haft undirtökin allt
frá byrjun.
Polugajevski átti ekki i neinum
vandræðum með Helga Ólafsson,
eftir að Helgi lék illilega af sér i
12. leik. „Allt frá þeim leik var
skákin mér töpuð, þótt ég þvæld-
ist i 30 leiki”, sagði Helgi á eftir.
Hann notaði aðeins 50 min. fyrir
þessa 30 leikL og aöspurður um
tekin I gærkveldi, en þessi skák stal senunni I gær vegna stórkostlegrar
Friðrik ólafsson og Smejkal eru þungt hugsi, þegar þessi mynd var
taflmennsku Friðriks, sem sigraði glæsilega.
Larsen hefur örugga forystu á
mótinu með 7,5 vinnioga
hvort þetta væri eðlilegt svaraði
hann þvi til að hann hefði vanið
sig á að tefla hratt og ætlaði sér
að standa við það. Það mætti
segja að þetta væri i það minnsta,
en þess að gæta að skákin hafi
verið sér töpuð frá 12. leik.
Guðmundur Sigurjónsson tefldi
sannfærandi gegn ögaard og
sigraði af öryggi. Margeir átti
lengi vel góða stöðu gegn Kuzmin,
en stórmeistarinn sovéski bætti
stöðu sina hægt og rólega, uns
hann hafði sigur i endatafli, enda
þá kominn með óstöðvandi fripeð.
Staðan i mótinu er nú þessi:
1. Larsen 7,5 ■
2. -3. Friðrik Ólafsson 6
2.-3. Miles 6
4.-6. Hort 5,5
4.-6. Polugajevski 5,5
4.-6. Browne 5,5 + biðskák
7. Lombardy 4 + biðskák
8. -9. Guðmundur 4
8.-9. Kuzmin 4
10. Smejkal 3,5
11. -12. Helgi 3
11. -12. ögaard 3
12. Jón L. 2,5
14. Margeir 2.
— S.dór
10. umferð
i dag
10. umferð Reykjavíkurskák-
mótsins fer fram i dag og hefst
kl. 18.00. Þá tefla saman:
Friðrik og Margeir
Helgi og Smejkal
Lombardy og Polugajevski
Larsen og Miles
Hort og Jón L.
ögaard og Browne
Guðmundur og Kuzmin
i þriöja sinn í því
Reykjavíkurskákmóti sem
nú stendur yfir, fékk Frið-
rik ólafsson áhorfendur til
aö standa á öndinni í gær-
kveldi, meö mannsfórn í
miðri skák og hann lét ekki
sitja viö það eitt, heldur
vann hann manninn aftur
og fórnaði síðan skipta-
mun, en stóð þá uppi með 2
peð uppí skiptamuninn og
betri stöðu, sem hann nýtti
til hins ýtrasta og sigraði
glæsilega.
t tvö skipti hafa mannsfórnir
Friðriks i mótinu leitt til sigurs
fyrir hann, en i eitt skiptið, gegn
Polugajevski, varð jafntefli, en
þá slapp Sovétmaðurinn með
skrekkinn. Það fer ekkert á milli
mála að Friðrik átti kvöldið i
gærkveldi; taflmennska hans var
með slikum glæsibrag að menn
gleymdu að mestu öðrum skák-
um. Þvi miður lauk skákinni svo
seint að við getum ekki birt hana
nú, en munum gera það á morg-
un.
Annars er það frá 9. umferðinni
i gærkveldi að segja, að hún var
einhver sú skemmtilegasta, sem
fram hefur farið á mótinu. Öllum
skákunum lauk með sigri, ekkert
þóf og ekkert jafntefli. og hvað
vilja menn sjá ef ekki slikar bar-
áttuskákir...
Tveir af efstu mönnum i mót-
inu, þeir Miles og-Hort,töpuðu sin-
um skákum, en Larsen karlinn
sigraði að vanda, átti ekki i nein-
um erfiðleikum með Jón L. Arna-
son, sem komst i mikið timahrak
og sá ekki við snilldar tafl-
mennsku Larsens, sem teflir
hreint ótrúlega sterkt og virðist
ekkert hafa fyrir þessu, lendir
aldrei i timahraki og er allan tim-
ann hinn rólegasti.
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 VINN S.B. RÖÐ
1 Helgi Ólafsson n O o X 'A 2 Yx % 0
2 WiIIiam Lombardy / Éf 0 0 Yx / / A o
3 Bent Larsen / / m 7 'A / / / o /
4 Vlastimil Hort / 0 m / 0 £ '7 /
5 Leif Ögaard 'A /♦ 'A o W / 'A O o 0
6 Walter Browne Y+ 0 / w m / / / Y* ‘A
7 Jón L. Árnason % 0 0 W/ W' 0 o A <3 / 'Yi
8 Anthony Miles & 0 / [Y< / / / 'A /
9 Lev Polugaevsky T O / Ae ■ <? / Yt A /
10 Jan Smejkal 0 0 'A O '/ W// W I/ 'A o 'A
11 Margeir Pétursson 0 'A 0 / V 0 0 0 y+
12 Gennedy Kuzmin Ó & j 'A 0 O 'A 'A / jÉf
13 Friðrik Ólafsson 'A / A / 'A A 'A & / V///A m
14 Guðmundur Sigurjs. & / o o / 'A 0 Yi Ya m
15 ára gamall strákur
Sigraði Miles í
aðeins 16 leikjum
— þegar stórmeistarinn Miles
tefldi viö 22 menn i fjöltefli í fyrrakvöld
Hann gerir það ekki enda-
sleppt hinn nýbakaði Reykja-
víkurmeistari i hraðskák, Jó-
hann Hjartarson, sem er aðeina
15ára gamaii. i fyrrakvöid tók
hann þátt i fjöltefli, sem banka-
menn i Reykjavik efndu til, og
það er ekki ómerkari meistari,
en stórmeistarinn enski,
Anthony Miles, sem tefldi við 22
menn i þessu fjöltefli, og
gerði sér litið fyrir og sigraöi
Miles. Og það var ekki bara það
að Jóhann sigraði, heldur „mal-
aði” hann stórmeistarann og
vann i aðeins 16 leikjum. Þá stóð
Miles hrók og peði undir og gaf
skákina.
„Blessaður farðu ekki
segja frá þessu, þetta var ekk-
ert merkilegt’’ sagði hinn ungi
skákmeistari þegar við spurð-
um hann i gærkveldi um þessa
skák. „Hann lék bara svona illa
af sér”, varþaðeinasem Jóhann
vildi segja um þetta mál.
Annnars er það frá þessu fjöl-
tefli að segja, að Miles tefldi við
22, vann 13, gerði 6 jafntefli og
tapaði 3 skákum. Þeir sem
sigruðu Miles. auk Jóhanns
Hjartarsonar, voru þeir Björn
Þorsteinsson og Gunnar
Gunnarsson, báðir landskunnir
skákmeistarar.
—S.dór
Jóhann Hjartarion