Þjóðviljinn - 15.02.1978, Page 11
Miðvikudagur 15. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Aðstaða og fjármál lyftingamanna:
N or ðurlandame is tarar
æfa í ÞVOTTAHÚSI
Gamia þvottahúsið í Laugardal er eina æiingaaðstaða allra
lyitingamannanna okkar sem þó eru margir á heimsmælikvarða
Mikiö hefur verið rætt um fjármál Iþróttahreyf-
ingarinnar aö undanförnu svo og aðstöðuleysi hennar.
Svo sem alkunna er, er aðstaða vissra íþróttagreina
svo bágborin þessa dagana, sem hún hef ur nú reyndar
alltaf verið að við liggur að leggja þurfi viðkomandi
iþróttagreinar niður.
Var neitað um
salinn
Tökum sem dæmi lyftinga-
menn okkar. 1 þeim herbúðum
eru fjármálin i algjöru lama-
sessi, svo og aðstaða. Skuldir
sambandsins nema miljónum
og ekki er i sjónmáli nein lausn i
þeim málum Er þar um að
kenna skilningsleysi stjórn-
valda.
Sem dæmi um aðstöðuleysið
má taka að nú nýverið fór fram
unglingameistaramót Islands i
lyftingum og sóttu lyftingamenn
um keppnisleyfi til forstöðu-
manns Laugardalshallarinnar.
Þar fengu þeir þau svör að
gólf Laugardalshallar leyfði
ekki keppni sem slika, en eins
og kunnugt er, er um þónokkrar
þyngdir að ræða þegar lyftinga-
kappar eru annars vegar. Það
breytir þó ekki þvi að hægt hefði
verið að fá dýnur og setja þær
undirpall sem útbúa hefði mátt
svo gólf hallarinnar hefði þá
tekið við mun minni þunga en
ella.
Þessi ákvörðun forstöðu-
manns hallarinnar er fyrir neð-
an allar hellur og er ekki annað
að sjá en að honum sé meinilla
við lyftingaiþróttina.
Við skulum t.d. taka sem
dæmi júdómann sem vegur um
120 kiló. (Júdómenn fá að keppa
i höllinni) Þegar honum er
sveiflað i loft upp og hann lendir
á gólfi hallarinnar hefur þungi
hans aukist samkvæmt lögmáli
eölisfræðinnar um fallþunga og
er ekki fáleitt að imynda sér að
þungi hans þegar hann lendir á
gólfinu sé svipaður eöa meiri en
lóð þau er lyftingamenn okkar
lyfta hverju sinni, séu dýnur og
pallur notaður eins og vikið er
aö hér að framan.
Fengu loks
andyrið
í stað þess að fá að keppa i'
sjálfum sal hallarinnar urðu þvi
lyftingamennirnir að láta sér
ANDYRI Laugardalshallar
nægja og verður að segja eins
og er að þar fara nægjusamir i-
þróttamenn.
Fyrir utan þetta vandamál
bætist svo ofan á allt saman að-
stöðuleysið sem er algjört.
Hvaða heilvita maður skyldi
trúa þvi að óreyndu að allir lyft-
Gústaf Agnarsson hinn frábæri lyftingamaöur úr KR er einn þeirra
sem verða að láta sér þvottahúsiö nægja.
ingamenn okkar og þar á meðal
tveir Norðurlandameistarar
æfðu i ÞVOTTAHÚSI. Þetta er
staðreynd sem ekki verður
hrakin.
í algjörri
niðurníðsiu
Lyftingamennirnir tóku við
þessu húsi i algjörri niðurniðslu
enda húsið ekki verið notað i
lengri tima. Það fyrsta sem
gera þurfti til að geta æft i þess-
um „húsakynnum” var að fjar-
lægja þak það sem fyrir var á
„húsinu” og voru þar að verki
þeir sjálfir lyftingamenn. Þaö
stakk marga s.l. sumar er þeir
voru að horfa á knattspyrnu leik
á nýja grasvellinum i Laugar-
dal er þeir sáu lyftingamennina
vinna við að skipta um þak á
ÞVOTTAHÚSINU sinu.
Horfurnar
Það er þvi ekki að óathuguðu
máli að þetta er tekið upp hér og
þyrfti að gerast oftar þvi ekki
virðist bóla á neinu nýju frá
þeim sem sitja i stjórn ISt, né
frá þeim sem eiga að heita
stjórnendur landsins. Þaðan
verður frumkvæðið að koma og
það strax, nema að þeir vilji
leggja iþróttina niður en þeim
málstað virðast verk þessara
manna fylgja.
—SK.
Metin
falla í
sundi
AUtaf eru sundheimsmetin að
falla. Eitt slikt var bætt nú um
helgina og ekki þurfti aö spyrja
að þvi að það var bandarisk
stúlka sem það geröi.
Cynthia Woodhead en það nafn
ber hin bandariska stúlka er að-
eins 14 ára að aldri. Hún setti
metið i 800 metra skriðsundi synti
á 8 minútum 27,32 sek. Eldra
metið átti landa hennar Michelle
Ford og var þaö 8.31,30 min.
önnur i sundinu á laugardaginn
var landa hennar Kim Black frá
Bandarikjunum en hún synti á
8.37.47 min eöa rúmum 10 sek. á
eftir Woodhead sem lenti i fyrsta
sæti.
Blakí
Evrópu
Orslitakeppni Bikarkeppni
Evrópu i blaki stendur nú yfir i
Rheine i V-Þýskalandi og voru
um helgina leiknir tveir leikir.
Nimse Budapest frá Ungverja-
landi sigraði Savoia Bergamo frá
Italiu 3:0. t fyrstu hrinunni urðu
úrslitin 15:6, i þeirri annari 15:5
og i þriðju og siðustu 15:11. Þaö
tók Ungversku stúlkurnar aðeins
41 minútu að gera út um leikinn.
1 siðari leiknum sigraði austur-
þýska liðið Traktor Schewerin.
Pólska liðið Start Lodz einnig 3:0.
Orslit i einstökum hrinum uröu
15:6, 15:2, 15:13.
Heimsmet
í göngu
Tvö heimsmet voru sett um
helgina i göngu.
Voru þau sett á ttaliu en þar fór
fram alþjóðlegt frjálsiþróttamót.
Það var i kvennakeppninni sem
annað metið var sett en það geröi
italska stúlkan Elena Rastello og
gekk hún 2.000 metra á nýju
heimsmeti eöa 6.13.2 min.
1 karlalleppninni var hins vegar
keppt i tveggja kilómetra göngu
og þar sigraöi ttalinn Vittoro Vis-
ini en hann gekk vegalengdina á
12 min og 57,6 sek.
Kina vann
Þaö er ekki á hverjum degi sem
Kinverjar leika landsleik i knatt-
spyrnu. Þeir eru frægari fyrir
frábært borðtennisfólk og einnig
fyrir að geta búiö til fallegar torg-
myndir úr ailskonar ábreiðum.
En Kinverjar slógu til og léltu
vináttuleik gegn italska liöiiiu
Serwette og lauk leiknum með
jafntefli 1:1. Bæði mörk leiksins
voru skoruð I siðari hálfleik aö
viðstöddum um 25 þúsund áhorf-
endum.
Kona vann
720 þús.
1 24. leikviku getrauna kom
fram einn seðill með 11 réttum og
er eigandi hans reykvisk húsmóð-
ir, sem ekki var að fylla út get-
raunaseðil i fyrsta sinn. Með 10
rétta voru 15 raðir og er vinning-
urinn fyrir hverja röö kr. 20.000.-
Enn á ný setti veðrið talsvert
strik i reikninginn, en alls varðað
fresta 37 leikjum i ensku deilda-
keppninni og þar á meðal voru 7
af leikjum 1. deildar og lét stjórn-
skipaður eftirlitsmaður getraun-
anna teninginn ráöa merkjunum
fyrir þá leiki.
Engin
frægðarlör
Vestur-Þjóðverjar geröu enga
frægöarför til Englands um helg-
ina siöustu, en þar kepptu löndin i
frjálsum iþróttum. Englending-
arnir sigruðu bæði i kvenna- og
karlakeppninni, og komu sigrar
þessir mikið á óvart.
, IVÍörg góð afrek voru unnin á
mótinu og bar þar hæst sigur
Vestur-Þjóðverjans Wolfgang
Killing i hástökki, en þar setti
hann nýtt vestur-þýskt met er
hann stökk 2,27 metra sem er að-
eins sex sentimetrum lakara en
heimsmetið, en keppt var innan-
húss.
Karlakeppninni lauk með sigri
Bretlands. en þeir hlutu 65,5 stig
gegn 62,5 stigum Vestur-Þjóö-
verja.
Kvennakeppnina unnu þeir
einnig, hiutu 53 stig gegn aöeins
43 stigum Vestur-Þjóðverja.
Af úrslitum mótsins eru þessi
helst:
1500 metra hlaup kvenna. Þar
sigraði breska stúlkan Birgette
Kraus og hlaut timann 4,20,9 min.
800 metra hlaup kvenna: Þar
sigraði Verona Elder frá Þýska-
landi, hlaut timann 2,05,8 min. 1
stangarstökki sigruðu þeir
Thranhardt frá Þýskalandi og
Hopper frá Bretlandi.stukku báð-
ir 5,25 metra.
Hopper er breskur og þessi
árangur hans er breskt met.
Annar breskur stökkvari setti
einr.ig met, en þaö var hástökkv-
arinn MarkNaylor sem stökk 2,18
metra, og nægöi það honum til
þriðja sætis.
Bikarkeppni
HSÍ
Bikarkeppni HSl er nú aö fara
af stað fyrir alvöru og fyrsta um-
ferðin afstaðin. Var hún leikin án
þátttöku 1. deildarfélaganna og
urðu úrslit sem hér segir:
LA-Stjarnan 21:19
KA-Týr Vestm. 32:13
UMFA-UBK 21:29
Leiknir-Þróttur 24:33
Ifyrstuumferö sátu liöGróttu,
Fylkis og Þórs frá Vestmanna-
eyjum yfir. en þau koma inn i
keppnina i 2. umferð, en dregiö
hefur verið i hana. Þar leika eftir-
talin félög saman:
UMFN/Þór Ak. : Þróttur
1A : KA
Valur : Fylkir
Armann : Vfkingur
UBK : Haukar
KR : Fram "
Þór Vestm. : Grótta
FH : ÍR
Þessum leikjum á að vera lokið
fyrir 1. mars 1978. M ótanefnd HSI
setur leikina á.
Siguröur
sigraði
Fimmta meistaramót FSl i
fimleikastiganum var haldið nú
fyrir stuttu. Sigurvegari i
kvennaflokki varð Elin Viðars-
dóttir oghlauthún 27,30 stig. Onn-
ur varð Helga Ingjaldsdóttir 1R
og hlaut hún 25,00 stig.
I elsta karlaflokki sigraði Sig-
urður T. Sigurðsson úr KR með
51.00 stig. en annar varö Helgi
Agústsson Armanni með 44,00
stig.
I flokkakeppninni, en þar eru
tekin saman stig tveggja efstu
manna i hverjum ftokki sigraði
flokkur Gerplu i kvennaflokki
hlaut 210,90 stig. 1 öðru sæti varð
flokkur Bjarkar úr Hafnarfirði
með 196,50 stig.
t ftokkakeppni karla sigraði
flokkur Armanns með 261,05 stig,
en i öðru sæti varð flokkur KR
með 97,30 stig.
Mótiö fór i alla staði vel fram og
voru keppendur um 100 talsins.
— SK.