Þjóðviljinn - 15.02.1978, Síða 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 15. febrúar 1978
Skálfakjöti, mögru nauta- og svínakjöti. Tilvalin
pylsa í megrunarf'œði, þar sem fituinnihald er innan
I viö 6% (Aðeins 114 hitaeiningar í 100 g)
\ fyrir þá sem hugsa um línumar
MFA
Mcnningar- og fræöslusamband alþýöu
Samkeppni um gerð
leikþátta
Menningar- og fræöslusamband alþýöu hcfur ákveöiö aö
efna til samkeppni um gerö leikþátta sem henta til sýn-
inga á vinnustöðum á fundum verkalýðsfélaga og öörum
samkomum innan verkalýöshreyflngarinnar.
Sýningartimi sé miðaður við 15-20 minútur, 2-5 leikendur
og einfaldan leikbúnað.
Verðlaunaupphæð fyrir ieikþátt, sem verðlaunahæfur
þykir að mati dómnefndar er kr. 150 þúsund og má skipta
henni á tvo verðlaunahafa ef dómnefnd telur ástæðu til.
Um flutning þeirra þátta, sem verðlaun hljóta og annarra,
sem valdir yrðu til sýninga verður samið sérstaklega við
höfunda.
Leikþættirnir sendist skrifstofu MFA Grensásvegi 16,
pósthólf 5281 fyrir 1. júni n.k.
Höfundar gangi frá samkeppnisgögnum i tveim umslög-
um, sendi leikþáttinn með dulmerki i-öðru, en höfundar-
nafn sem til þess visar i hinu.
Menningar- og fræðslusamband alþýðu.
fifc, • Blikkiðjan Asgaröi 7, Garðabæ
i i wT önnumst þakrennusmiði og ® uppsetningu — ennfremur i hverskonar blikksmíöi. 1 Gerum föst verðtilboö
L í ■ SÍMI 53468
Danski rithöf undurinn
Elsa Gress
heldur fyrirlestur i kvöld kl. 20:30
„Indirkete og direkte brug
af virkeligheden í kunsten”
Verið velkomin
NORRÆNA
HÚSIÐ
Bangsi (Eirikur Guönason) þrifur upp gaidranornina (Hallddra Magnúsdóttir). Mynd: Guöm. R
Asg.
Hans
og
Gréta
1 Vest-
manna-
eyjum
Enn á ný hefur Leikféiag
Vestmannaeyja hafið leiksýn-
ingu og má segja að hún sé eink-
um fyrir yngri borgarana. Þaö
væri lika synd að segja að þeir
kynnu ekki að meta þetta fram-
tak Leikfélagsins, þvi áður en
frumsýningin fór fram var upp-
pantað á þrjár sýningar. Fólk
mundisýninguna á Rauðhettu á
fyrra ári og vænti sér þvi mikils
cnn.
Galdranornin (Halldóra Magnúsdóttir) og Gréta (Elfa óiafsdóttir)
standa viöbúriö, sem Hans húkir I. Mynd: Guöm. P. Asg.
Bangsinn (Eirikur Guönason) ræöir viö Tobias skreöara (Hjálm-
ar Brynjúlfsson). Mynd: Guöm. P. Asg.
Leikrit það, sem nú var sýnt,
var „Hans og Gréta” úr hinni
| kunnu 'oarnasögu Willy Kriig-
ers. Var ævintýrið leikið með
örlitlu ivafi úr öðrum þekktum
leikritum,svosem Þyrnirósuog
Mjallhviti og var það svo vel
gert, að það glapti siður en svo
fyrir áhorfendum varðandi
söguþráð Hans og Grétu, heldur
fyllti upp i eyður og jók á fjöl-
breytnL
Greinilegt er að áhorfendur
leiksins hafa ekki orðið fyrir
vonbrigðum á þrem fyrstu sýn-
ingunum þvi nú er búið að aug-
lýsa tvær sýningarog er þegar
uppselt á báðar.
Uppsetning leiks og leiksviðs
er, eins og einnig var i Rauö-
hettu, með afbrigðum snjöll,
eins og vænta mátti af okkar
frábæra leikara Sigurgeir
Scheving, en hann er leikstjór-
inn.
Mikill hluti leikfólksins er
sviðsvant nokkuð, m.a. úr
Rauðhettu, en einnig komu
fram nýliðar, og stóðu sumir
þeirra sig með afbrigðum vel,
eins og þeir vönu.
Ég hafði mikla ánægju af að
horfa á þennan leik og hef ég
engan fullorðinn mann hitt, sem
séð hefur leikinn, að hann segi
ekki hið sama.
Þdrarinn Magnússon.
Stjúpan (Halla Sverrisdóttir) telur fööur Hans og Grétu (Sigurö
Rúnar Jónsson) á aö fara meö systkinin út i skóginn.
Umsjóri: Magnús H. Gfslason