Þjóðviljinn - 15.02.1978, Qupperneq 16
PJODVIUINN
Miðvikudagur 15. febrúar 1978
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348.
81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóðviljans i sima-
skrá.
Formannaráðstefna BSRB
Róttækra aðgerða er þörf
sunnudaginn
A sinnudaginn, 19. febrúar,
verður haldin i Háskóiabiói sam-
koma til stuðnings M&Ifrelsissjóði
Tilgangur og markmið fundarins
er að efla sjððinn og mun þvi fara
fram fjársöfnun á fundinum.
Undirbúningsnefndin leggur sér-
staka áherslu á þennan ,,dag-
skrárliö”
Það ber til tiðinda meðal
annars á samkomunni i Háskóla-
blói að fluttur verður nýr leik-
þáttur eftir Kjartan Ragnarsson,
leikritahöfund og leikara. Nefnist
þátturinn Fimmtugasta og fyrsta
stjarnan. Leikstjóri er Stefán
Baldursson, en flytjendur eru:
Arnar Jónsson, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Soffía Jakobs-
dóttir og Sigurður Skúlason. Allt
eru þetta þekktir og reyndir leik-
arar og ekki vafi á að þau munu
gera hinum nýja leikþætti Kjart-
ans ilagnarssonar hin ágætustu
skil.
Þá verður á samkomunni flutt-
ur þáttur Ur Æskuvinum eftir
Svövu Jakobsdðthir. Leikstjóri er
Bríet Heöinsdóttir, en þar koma
við sögu leikararnir Guðrun
Asmundsdóttir, Harald G.
Haraldsson, Sigurður Karlsson,
Steindór Hjörleifsson og Þor-
steinn Gunnarsson.
Tónlist
Spilverk þjóðanna kemur fram
á samkomunni. Þá mun
strokkvartettinn Reykjavik
Ensemble flytja tvo þætti úr
kvartettMozarts K 475. Kvartett-
inn skipa Asdis Þorsteinsdóttir
Stross, Mark Reedman, Nina
Flyer og Guöný Guðmundsdóttir.
Ávörp og kynning
Thor Vilhjálmsson, formaður
Bandalags islenskra listamanna
setur samkomuna og flytur
ávarp. Sigurður A. Magnússon,
formaður Rithöfundasambands
lslands,flyturræðu. Kynnir verð-
ur Jón MUli Arnason, útvarps-
þurlur.
Sýnið stuðning ykkar við
inálfrelsi og lýðræði meö þvi að
fjölmenna á samkomuna á
sunnudaginn.
—Nefndin.
Séð yfir fundarsal á formannaráöstefnu BSRB. Einar Ólafsson,
stjórnarmaður I BSRB, i ræöustóli. (Ljósm—eik)
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar:
Stjórnin hélt velli
Höldum starfinu áfram, segir formannsefni
Nýrrar hreyfingar
Frambjóðendur uppstillingar-
nefndar náðu allir kjöri I kosn-
ingu til stjórnar Starfsmannafé-
lags Reykjavikur, sem fram fór á
sunnudag og mánudag. Formað-
ur var kjörinn Þórhallur Hall-
dórsson og hlaut hann 796 at-
kvæði. Gunngeir Pétursson, for-
mannsefni Nýrrar hreyfingar,
hlaut 600 atkvæði.
1 stjórn voru kjörin Guðmundur
Eiriksson, sem hlaut 1185 at-
kvæði, Eyþór Fannberg 836, Arn-
dis Þórðardóttir 811, Ingibjörg M.
Jónsdóttir 783 og Ingibjörg Agn-
ars 758. Frambjóöendur Nýrrar
hreyfingar hlutu atkvæöi sem hér
segir: Helgi Eggertsson 618,
Anna Karen Júliussen 605, Jónas
Engilbertsson 539 og Þorgerður
Hlöðversdóttir 528 atkvæði.
1 samtali við Þjóðv. i gær sagði
Gunngeir Pétursson formanns-
efni Nýrrar hreyfingar, að hanri
væri mjög ánægður með þessi úr-
slit og atkvæðamagnið væri
meira en hann hefði búist við.
Aftur verður kosið I stjórn Starfs-
mannafélagsins að ári og veröa
þá kosnir fimm menn, en stjórn-
ina skipa alls 11 manns. „Við ætl-
um okkur að halda starfinu áfram
og vonum að þetta gangi betur
næst,” sagði Gunngeir Pétursson.
— eös
Vidbfögö við kaupránsstefnu stjórnarinnar:
V erkalýðsmálaráðstefna
Alþýðubandalagsins á
laugardaginn
A laugardaginn kl. 10 hefst i
Glæsibæ fundur 200 manna
verkalýðsmálaráðs Alþýðu-
bandalagsins sem boðaður hefur
verið tíl að ræða hvernig verka-
lýðshreyfingin eigi að bregðast
við kaupránsstefnu rikisstjórnar-
innar. Dagskrá fundarins verður
þessi:
Kl. 10. Störf verðbólgunefndar.
Framsaga: Luðvik Jósepsson og
Ásmundur Stefánsson. Fyrir-
spurnir.
Kl. 11. Tillögur Alþýðubanda-
lagsins i efnahags- og atvinnu-
málum. Framsaga: Ragnar Arn-
alds og Ólafur Ragnar Grimsson.
Fyrirspurnir.
Kl. 12. Hádegisverður.
Kl. 13.30. Viðhorf og aðgerðir
samtaka launafólks. Framsaga:
Snorri Jónsson og Haraldur
Steinþórsson. Fyrirspurnir.
Kl. 14.30 Almennar umræður.
Kl. 18.00 Stjórnarkjör.
Kl. 19.00 Fundarslit.
Allir fulltrúar I verkalýðsmála-
ráði Alþýöubandalagsins eru ein-
dregið hvattir til að sækja fund-
inn.
Formannaráðstefna Bandalags
starfsmanna rikis og bæja hófst á
Hótel Sögu I gærdag. Eftir al-
mennar umræður var ætlunin að
hefja nefndarstörf, en ráðstefn-
unni lýkur i dag. Eitt höfuðmál
ráöstefnunnar er að ræöa sam-
ræmdar aðgerðir verkalýös-
hreyfingarinnar gegn kjararáni
rikisstjórnarinnar og var ráð-
stefnunni flýtt um hálfan mánuð
af þessum sökum.
Blaðamaður leit inn á ráðstefn-
una i gær og tók tvo þingfulltrúa
tali. Fyrst var rætt við Valgeir
Gestsson.formann Sambands isl.
barnakennara, og hann spurður
að þvi hvort kennurum hafi komið
aðgerðir rikisstjórnarinnar á ó-
vart, svo stuttu eftir gerð kjara-
samninga rikisins við opinbera
starfsmenn.
„Við munum söguna frá 1974”,
sagði Valgeir, ,,en samt sem áöur
held ég að hægt sé að segja að
þetta hafi komið flestum á óvart,
bæði vegna þess hversu stutt er
síðan samningar voru undirritað-
ir svo og vegna þess að ytri að-
Samkeppni
um leik-
þáttagerd
stæður, þ.e.a.s. markaður iyrir
okkar framleiðsluvörur, virðast
ekki vera þannig, að til slikra
ráðstafana þurfi að gripa. Þá var
og tekið tillit til launahækkana til
opinberra starfsmanna viö af-
Valgeir Gestsson, formaður Sam-
bands barnakennara.
greiðslu fjárlaga rétt fyrir jólin.
Um aðgerðir af okkar hálfu er
of snemmt að tala að svo komnu
máli. Þó er ljóst að á þessum
Framhald á 14 slðu
Oddur Pétursson, formaður
Félags opinberra starfsmanns
á tsafirði.
Háskólabíó á
Spilverk þjóðanna kemur fram á samkomunni i Háskólabiói. Flokkinn
skipa Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sigurður Bjólan Garðarsson, Valgeir
Guðiónsson og Egill Ólafsson.
Samkoma til stuðnings
Málfrelsissjóði
Fjölmenniö í
Menningar-og fræðslusamband
alþýðu hefur ákveðið að efna til
samkeppni um gerð Ieikþátta
sem henta vel til sýninga á vinnu-
stöðum, á fundum verkalýðsfé-
laga og öðrum samkomum innan
verkalýðshreyfingarinnar.
Stjórn MFA samþykkti, ekki
alls fyrir löngu.að efna til þessar-
ar samkeppni vegna þess að okk-
ar hefur þótt skorta æði mikið
leikþætti sem vel eru til þess
fallnir að færa þá upp á vinnu-
stöðum, i framlengdum kaffitim-
um eða á öðrum samkomum
verkafólks, sagði Tryggvi Þór
Aðalsteinsson hjá MFA, aðspurð-
ur um samkeppnina.
Við óskum eftir stuttum þáttum
sem taka 15—20minútur i sýningu
og sem miðast við fáa leikendur
og einfaldan leikbúnað.
Veitt verða verðlaun að upphæð
\ 150.000 kr. fyrir þátt sem þykir
Werðlaunahæfur að mati þar til
'kvaddrar dómnefndar. Þættirnir
þurfa að berast skrifstofu MFA,
Grensásvegi 16, fyrir 1. júni næst
komandi.
—IGG