Þjóðviljinn - 17.02.1978, Síða 17

Þjóðviljinn - 17.02.1978, Síða 17
Föstudagur 17. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 Jóhann Pétursson sextugur Jóhann Pétursson vitavöröur á Hornbjargsvita er sextugur á morgun. Þó aö ég hafi ekki þekkt hann nema I 6 ár ætla ég aö voga mér aö skrifa dálitla afmælisgrein um hann og vegna yfirvofandi blaöamannaverk- falls veröur hún aö birtast f dag. Vísastur væri hann aö taka tiltækiö óstinnt upp og jafnvel hóta aöfaraað mér og drepa mig eins og Egill Skallagrimsson vildi fara að Einari skálaglam forðum. bó vil ég halda vináttu minni við hann meðan við báðir lifum. Raunar finnst mér sam- likingin við Egil Skallagrimsson ekki út i bláinn. Jóhann Péturs- son hefur nú verið vitavörður á afskekktasta stað á fslandi i 18 ár. baðan eru dagleiðir til næstu mannabyggða. Hann hefur glimt þar óbugaður við bjarg- tröll og sjávarvætti allan þennan tima. bað er afrek. Og mikinn hluta þessa tima hefur hann ekki getað treyst á neitt annað en mátt sinn og megin og neitað að treysta á neitt annað. Og nú þegar hann er sextugur stendur hann keikur og unglegri en nokkru sinni fyrr. Sumarið 1972 öslaði ég ásamt fleiri borgarbörnum upp i bratt og stórgrýtt Kýrskarð. Margir höfðu bleytt sig i Hafnarósnum og regnið dundi án afláts. Loks þegar upp var komið sá yfir riki Jóhann Pétursson Jóhanns, Látravik með Horn- bjarg á aðra hönd, en Axarfjall á hina. Við vorum óstyrk i knjám og volkuð. Við vissum ekki hvers við áttum að vænta i þessari einu mannabyggð á tröllslegum Hornströndum En hvllikar viðtökur! Við vorum leidd niður i kjallara, dregin af okkur vosklæði, þá þegar bornir svaladrykkir, boðin hjartanlega velkomin i glæsistofur Jóhanns. bar uppi var látið liða úr okkur viö koniak og vindla innan um bækur og fögur málverk. Og Jó- hann hélt uppi samræöum, engum kotungs- eða hokursam- ræðum. Taliö var strax leitt aö kjarna tilverunnar sjálfrar. sréan var sest að svignuðum borðum. Klukkustundum siðan var haldið á Hornbjarg. Regniö varhætt og tilveran stórkostleg. Jóhann er nefnilega ekki bara vitavörður og vlkingur. Hann er heimsmaöur af lifi og sál, heim- spekingur og skáld. Auk annars liggur eftir hann á prenti leik- ritið Vötn á himni og skáldsagan Gresjur guðdómsins: Hann er kynjaður úr Breiðafjarðar- eyjum en leiðin lá snemma til Reykjavikur þar sem hann var I hópi ungra og uppreisnar- gjarnra skálda, stundaði forn- bókasölu i nokkur ár en ekki er ég þó nógu kunnugur til að rekja þá sögu alla. Eftir kynni min af Jóhanni og Hornströndum sumarið 1972 lagði ég leiö mina þangaö svo oft sem ég gat. Einu sinni naut ég gestrisni hans i heila viku meðan is lá fyrir ströndu. Við vorum 9 saman, börn og full- orðnir. Barnelska hans var mikil og forvitni hans á mann- legum örlögum óendanleg. begar við yfirgáfum hann gekk hann léttur i spori með okkur yfir f jöllin þar til sá niður i Lónafjörðinn. Hann var með riffil um öxl þvi að búast mátti við isbjörnum. Við gengum hægt niður i Miðkjósina. Jóhann Frá Hornbjargi stóð einn eftir með byssu um öxl og bar við sterkbláan himin. Og enn þyrstir mig i heim Jó- hanns. Ég óska honum til ham- ingju með sextugsafmælið. Guöjón Friöriksson I i ■ I i ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I i ■ I m I Skólarannsóknadeild menntamálaráöuneytisins: Fjárveiting lœkkar stöðugt miðað við áætlaðar þarfir Fjárveitingar til Skólarann- sóknadeildar menntamálaráðu- neytisins hafa sifellt minnkaö undanfarin ár, miöaö við áætlaöa fjárþörf deildarinnar. Þannig nemur lækkun á fjárlögum 1978 48,1% vegna grunnskóla. Aætluö fjárþörf var 150.245 þús., miöað við það verðgildi sem reiknað er með á f járlögum, en fjárveitingin er 77.987 þúsund. Ariö 1977 var um að ræða 30,6% lækkun miöaö viö áætlaða fjárþörf og 1976 var þessi lækkun 17,6%. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi, sem Félag skólastjóra og yfirkennara á grunnskólastigi hélt til að kynna þau vandræði sem hljótast af hinum naumu fjárveitingum til skólarann- sóknadeildarinnar. Auk fjárveitingar vegna grunn- skóla var árið 1977 farið fram á fjárveitingu til endurskoðunar á námsefni framhaldsskóla að upp- hæð kr. 16.120 þús. og aftur kr. 26.201 þús. fyrir yfirstandandi ár, og er þá reiknað með þvi verð- gildi sem fjárlögin miða við. 1 bæði skiptin þurrkaði Hagsýslu- stofnun þessar áætlanir burt, en Kvenfélag sósialista: Mótmælir kjaraskerðingu Fundur i Kvenfélagi sósialista haldinn 3. febrúar 1978, mót- mælir harölega kjaraskerð- ingum rikisvaldsins og árásum á samningsbundin laun verka- fólks. Ennfremur mótmælir fundur- inn þvi að aukin skattbyrði sé lögöá ellilifeyrisþega, m.a. með hækkun fasteignaskatts, þar sem slikt hlýtur aö vera tekju- litlu fólki ofviða. ákvað á seinustu stundu að veita kr. 10.000þús. til verkefnisins árið 1978. Engin aukning á fjár- veitingum 1 fjárlögum fyrir árið 1978 segir i lið 423: „Endurskoðun námsefn- is á grunnskóla- og framhalds- stigi. Kostnaður eykst um kr. ■35.129 þús., sem er 10.000 þús. um- fram eðlilegar launa- og verð- lagshækkanir, en nú er i fýrsta sinn f járveiting til endurskoðunar námsefnis á framhaldsskóla- stigi.” Samkvæmt þessu hefur raunveruleg fjárveiting til skóla- rannsóknadeildar aðeins hækkað um áðumefndar 10.000 þús. kr. frá árinu 1977. Ljóst er þvi að auknar fjárveitingár til deildar- innar hafa engar orðið, en gifur- legur niðurskurður miðað viö framlagðar áætlanir um fjár- magnsþörf til námsstjórnar og endurskoðunar námsefnis fyrir árið 1978. Tvö meginverkefni: Meginverkefni skólarann- sóknadeildar eru tvö, 1) endur- skoðun námsefnis og 2) nám- stjórn og kennsluleiðbeiningar. Verkefni deildarinnar eru i bein- um tengslum við skólastarfið og hefur langvarandi skerðing á starfsemi deildarinnar þegar leitt til ýmissa vandamála i skóla- starfinu. Námsefnisgerð er kostnaðar- samt og timafrekt verkefni, sem hlýtur samkvæmt eðli verksins að taka yfir mörg ár i hverri náms- grein. Samning námsefnis er nú unnin i starfshópum og er nýtt efni kennt i tilraunaskyni I nokkr- um bekkjardeildum til að fá fram reynslu og skoðanir kennara á efninu. Istarfshópumþessum eru starfandi kennarar á grunnskóla- stigi og á það skipulag að sjálf- sögðu að tryggja betra og fjöl- breyttara námsefni fyrir nem- endur. Keðjuverkun má ekki rofna Um leið og nýtt námsefni er tekið i notkun á einu námsári kallar það á breytt námsefni á þvi næsta o.s.frv. og er þvi óhjá- kvæmilegt að sjá nemendum fyr- ir framhaldi námsefnis i sömu grein. bessi keðjuverkun máekki rofna meðan endurskoðun fer fram, ella skapast öngþveiti i skólum ogverkið sjálfthlýtur af- hroð. Félag skólastjóra og yfirkennara krefst aukins fjármagns til námstjórnar og endurskoðunar námsefnis Skorið á tengsl við isámsstjórana Velflestar námsgreinar hafa h/er sinn námstjóra og vantar þó mikið á að þeir geti sinnt skólum eða skólasvæðum eins og þyrfti. Um 270 grunnskólar eru I landinu og gefur auga leið, að hver nám- stjóri getur aðeins heimsótt hluta þeirra á hverju ári. Námstjórinn er lykilmatur menntamálaráðu- neytisins i lynningu nýmæla i námsgrein ;ða kennsluháttum. Skólastjórna.-menn telja þennan þátt i starfi deildarinnar hinn mikilvægasta og óhjákvæmilegt að auka hann verulega, ekki sist fyrir hinar dreifðu byggðir lands- ins. Sérstaklega er mikilvægt fyr- ir réttindalausa og reynslulausa kennaraað fá stuðning námstjór- anna i starfi sinu. En nú bendir allt til þess að rjúfa eigi þessi litlu tengsl með þvi að skera niður fjármagn til námstjórnar og námsefnisgerð- ar. Á blaðamannafundinum voru auk forsvarsmanna skólastjóra og yfirkennara fulltrúar skóla- rannsóknadeildar, þeir ólafur Proppé og Hrólfur Kjartansson. Þeir sögðu að þessi niðurskurður á fjármagni kæmi niður á samn- ingu námsefnis, fresta yrði verk- þáttum og stöðva áætianir. T.d. verður ekki hægt að sinna gerð námsefnis og námskrár fyrir sér- kennslu og byrjendakennslu. Þá megi búast við að meiri hluti starfstima námstjóranna fari i samningu námsefnis, til að reyna að halda i horfinu. Þeir sögðu að á sama tima og áætlanir eru skornarniður, aukist kröfurnar til endurskoðunar námsefnis. Krefjast aukins fjár- magns Nú eru um það bil 40.000 grunn- skólanemendur á landinu og hver þeirra sækir að jafnaði um 30 kennslustundirá viku. Það skiptir miklu máli, að þessi timi nýtist vel og töldu skólastjórnarmenn- irnir þaö óskynsamlega notkun fjármuna, að halda skólarann- sóknadeildinni i sliku fjármagns- svelti. Deildin vinnur umfangs- mikið starf. þótt hún sé mjög fá- liðuð. Þvi hefur stjórn Félags skólastjóra og yfirkennara beint þvi til stjórnvalda að skólarann- sóknadeild menntamálaráöu- neytisins fái nú þegar aukiö fjár- magntil námstjórnar ogtilendur- skoðunar námsefnis. — eös

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.