Þjóðviljinn - 23.03.1978, Side 3

Þjóðviljinn - 23.03.1978, Side 3
Fimmtudagur 23. mars 1978 1>JÓÐVILJINN — SIÐA 3 Helgi og Haukur í topp- baráttunni Haukur Angantýsson geröi sér litiö fyrir i 6. umferö í lands- liösflokki á skákþingi Islands og sigraöi islandsmeistarann Jón L. Árnason og geröi þar meö vonir Jóns um aö verja titilinn afar litlar. önnur úrslit uröu sem hér segir. Helgi Ólafsson vann Þóri Ólafsson, Jóhann Hjartarson vann Braga Halldórsson, Björn Sigurjónsson vann Sigurö Jóns- son og Jóhann Orn vann Ásgeir Arnason. Margeir Pétursson og Björgvin Viglundsson geröu jafntefli. Helgi Ólafsson og Haukur Angantýsson berjast á toppn- um, Helgi meö 5,5 v. og Haukur 5,0 eftir 6 umferöir. Þessi mynd var tekin þegar 6. umferö fór fram. Fremst á myndinni eru þeir Helgi Ólafsson t.v. og Þórir ólafsson en i horninu fjærst sæer ibakiö á Jóni L. þar sem hann teflir viö Hauk Angantýsson. (Ljósm.- eik-) Páskar í Reykiavík Þeim f jölgar alltaf sem yfirgefa borgarlandið um páskana, enda hefur oft heyrst að ekkert sé leiðin- legra en að vera í Reykjavik á páskum og um verslunarmannahelgi, þótt ólíku sé saman jafnað. Fyrir þá sem eru stað- ráðnir í að vera í bænum og nota þessa fridaga til að lyfta sér upp eftir því sem tækifæri gefst tókum við saman snöggsoðinn lista yfir helstu skemmtanir, bíó, leikhús og sýningar sem menn geta stytt sér stundir við þessa daga. Sýningar Kjarvalsstaöir: Þar standa nú yfir 4 sýningar, misstórar og fjöl- breyttar, „eitthvaö fyrir alla,” eins og sagt er. t Austursalnum er Kjarvalssýning, i Vestursalnum er sýning i tilefni af 20 ára afmæli Styrktarfélags vangefinna „Vilj- inn I verki”. Þar má kynnast þróun i málefnum vangefinna i máli og myndum, vinnu vistfólks á heimilum vangefinna og siöast en ekki sist málefninu sjálfu. Aö sýningunni standa öll heimiii vangefinna i landinu, Öskju- hliöarskóli, Þroskaþjálfaskóli Islands og Landssamtökin Þroskahjálp. Þetta er fyrsta sýning sinnar tegundar hér á landi, en henni lýkur eftir páska. Á göngum Kjarvalsstaöa eru tvær sýningar. Magnús Tómas- son, myndlistarm aöur sýnir „Sinámuni” unna á árunum 1967- 1972 i sýningarkössum við kaffi- stofuna og bandariska listakonan Linda SchUpper sýnir handunnin bútateppi. Kjarvalsstaöir veröa lokaöir á föstudaginn langa, á páskadag er opiö frá 25-22, en aöra daga frá 14- 22. Norræna húsiö: Þar standa yfir tvær sýningar, sem báöar tengj- ast börnum og þroska þeirra. 1 samkomusal og anddyri Norræna hússins er „Börnin og umhverfið”, sýning sem Kven- félagasamband Islands efnir til. Uppistaða sýningarinnar er norsk farandsýning, en Fóstrufélag tslands hefur einnig sett þar upp leikfangasýningu og leikhorn og brúöuleikhús Jóns Guðmunds- ssonar og Leikbrúðulands mun stutta gestum á barnsaldri stund- irnar. 1 kjallara Norræna hússins er sýning á myndiö barna á ýmsum þroskastigum, „Meö augum barns” Þessi sýning er á vegum Féiags islenskra sérkennara og þar má lita teikningar og mynd- verk eftir börn úr 14 skólum og stofnunum á höfuðborgar- svæöinu. Norræna húsiö er lokað á föstu- daginn langa og á páskadag, en aöra daga er opiö frá 15-18 i kjall- ara en frá 14-19 I anddyri og samkomusal. Báöum sýning- unum lýkur eftir páska. Þjóöm injasafniö: 1 Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir sýning á verkum Sigurjóns ólafs- sonar myndhöggvara og Þor- valdar Skúlasonar málara. Bogasálurinn er opinn alla daga frá kl. 14-19. Þjóöminjasafniö og Listasafniö er lokaö á föstudaginn langa og báöa páskadagana, en er opiö aöra daga frá 13.30-16. Leikhús Leikhúsin eru opin á skirdag og annan í páskum. Hina dagana eru engar sýningar. Þjóðleikhúsiö sýnir öskubusku kl. 15, Kátu ekkjuna kl. 20 og Fröken Margréti kl. 20.30 báöa dagana. Leikfélag Reykjavikur sýnir Skáld-Rósukl. 20.30 báöa dagana. N e m end aleikhúsiö sýnir Fansjenkl. 20.30 i Lindarbæ báöa dagana. Leikfélag Mosfellssveitar sýnir Mjallhvitkl. 15 báöa dagana. Bíó Kvikmyndahúsin eru lokið . nema á skirdag og annan I páskum. Iláskólabió sýnir Slönguegg Bergmans.Myndin gerist i Berlin 1923 og fjallar um lif ungrar kabaréttdansmeyjar og mágs hennar i óöaverðbólgu og upplausnarþjóðfélagi þess tima. Liv Ullman og David Carradine leika aöalhlutverk i þessari fertugustu, en um leið nýjustu mynd Ingmars Bergmans. Tónabíósýnir þrefalda Óskars- verölaunamynd Rocky.sem fjall- ar um lélegan hnefaleikara sem er keyptur til að tapa fyrir heims- meistaranum i greininni. Aöal- leikari er Sylvester Stallone. 1 Austurbæjarbiói veröur sýnd bandariska myndin Orca the Killer Whale.Myndin er glæný og fjallar um baráttu hvalveiðiskip- stjóra viö manndrápshval. Laugarásbió sýnir Flugstööin ’77.Myndin fjallar um kapphlaup manna: auökýfings og ræningja, um aö ná farmi þotu sem hrapaði yfir sjó og liggur á sjávarbotni. Aðalhlutverk leika Jack Lemmon, Lee Grant, Olivia de Havilland og James Stewart. 1 Gamla bíóiveröur sýnd Týnda risaeðlan, gamanmynd fyrir alla fjölskylduna. Aöalhlutverk leika Peter Ustinow og Hellen Hayes. I Nýja bióiverður sýnd gaman- mynd sem nefist Mother, Jugs and Speed. Aðalhlutverk leika Bill Crosby Harvey Keitel og Raquel Welch. I Stjörnubió er kúrekamynd, Bittu I byssukúluna. Aöalhlutverk leika Gene Hackman, og Candice Bergen. 1 Hafnarbiói og Regnboganum kennir margra grasa. 1 Hafnar- biói er læknamynd meö hinum vinsæla „sjónvarpslæknanema” Barry Evens. Myndin er sögð hressileg og djörf. Papillon, meö félögum Steve McQueen og Dustin Hoffman verður sýnd áfram i A-sal regn- bogans. í B-salnum veröa sýndar Dýra- læknisraunir.en í hlutverki dýra- læknisins er önnur sjónvarps- stjarna, John Alderton. 1 C-sal verður haldiö áfram að sýna Næturvöröinn meö þeim Framhald á bls. 25

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.