Þjóðviljinn - 16.04.1978, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 16.04.1978, Qupperneq 2
2 — ÞJÓÐVILJINN AÐ FERÐ/4ST OG FRŒÐAST Menningar- og fræöslu- samband alþýöu og Al- þýöuorlof hafa hafiö sam- starf um aö efna til sér- stakra kynnisferða eða námsferöa fyrir félags- menn í stéttarfélögum inn- an Alþýðusambands Is- lands og öðrum aðildar- félögum Alþýöuorlofs und- ir kjörorðinu „Að fræðast og ferðast". Hafa fyrstu ferðirnar verið ákveðnar til Noregs og JúgóslavíU/ en fleiri ferðir eru i undir- buningi. Eins og kunnugt er hefur á und- anförnum árum stöðugt fjölgað þeim hópum launafólks. sem not- ar fritima sinn til ferðalaga er- lendis að meira eða minna leyti. Miklum meirihluta þessa fólks hefur fyrir kraft auglýsinganna veriö beint á sólar- og baðstrend- ur suðlægra landa, enda hafa slikir staðir vissulega aödráttar- afl fyrir þá sein búa við okkar stuttu sumur og brigðula veöur- far. Mörguin þykir þó, sem þess- ar sólarferðir skilji næsta litið eftir i hugum þátttaktnda. Fá eöa engin tækifæri gefist tíl raunveru- legra kynna af þvi fólki sem sólarlöndin byggir, kjörum þess eða menningu. Þá er og á það bent að leitað sé langt yfir skammt, suðlæg lönd sótt heim, en litii samskipti höfð við þær þjóðir sem islendingum eru skyldastar að tungu, menningu og lifsháttum. Þeirri skoðun vex raunar stöðugt f y lg i á Norðurlöndum að nærtækasta viðfangsefnið i ferðamálum þess- ara lands sé að auka samskipti norðurlandabúa innbyrðis, auk þess, sem skipulagöar séu náms- og skemmtiferðir til annarra landa. Nýir valkostir — Innihaldsríkar ferðír Eins og að ofan greinir hafa Menningar- og fræðslusamband alþýðu (MFA) og Alþýðuoriof (ALO) ákveðiö að gera sameigin- lega tilraun til þess að mæta rétt- mætum óskum þeirra féiags- manna stéttarfélaganna sem leita eftir feröatilboðum sem hafa gildi fyrirþá fyrst og fremst sem vilja fræðast um lönd og lifshætti fólks um leið og þeir ferðast. Þessu samstarfi verður i stór- um dráttum hagað þannig að MFA mun annast kynningu á þvi viðfangsefni sem hver hópur ákveður að taka fyrir, afla nauð- synlegra gagna og skipuleggja fræðslu á dvalarstað. Þetta verð- ur gert i formi stuttra námskeiða, leshringa eða á annan þann hátt sem best hentar viðfangsefninu. ALO mun hins vegar annast samninga um ferðir, gistingu og annað sem að ferðunum lýtuf i samvinnu við Ferðaskrifstofuna Landsýn. Meö þessum hætti er stefnt að þvi að hagnýtasem best þá reynslu og þekkingu sem sam- tökin hafa. Bæði samtökin, MFA og ALO, munu njóta fyrirgreiðslu hliðstæöra samtaka erlendis i sambandi viö þessa fyrirhuguöu starfsemi. Bræðrasamtökin á Norðurlöndum hafa t.d. mikla reynslu á þessu sviði. Hvaö getur veriö i boöi? Þetta samstarf MFA og ALO byggist ekki á þvi að ,,framleiða” tilteknar feröir þar sem allt er rigskoraö fyrirfram heldur á hinu að hagnýta ákveðna feröamögu- leika og reyna að samræma þá óskum einstaklinga, hópa og fél- aga sem hafa ákveðin áhugamál sem þeir vilja tengja ferðum sin- um. Þess vegna er öðru fremur leitað eftir tengslum við þá sem hafa hugmyndir i þá veru sem lýst er hér aö framan og nokkur dæmi verða nefnd hér á eftir. Aðrai^iúgmyndir eru þó að sjálf- sögðu vel þegnar. Þau dæmi sem hér verða nefnd eru aðeins nokkrar þeirra hug- mynda sem til umræðu hafa verið innan MFA og ALO. 1. Kynnisferö fyrir trúnaðarmenn á vinnu- stööum. Tilgangur slikra ferða er sá að gefa trúnaðarmönnum stéttar- félaganna og öðrum sem áhuga hafa^ tækifæri tii þess kynnast starfi stéttarbræöra við hliðstæð störf meö heimsóknum á vinnu- staði, viðræðum við stéttarbræð- ur og forustumenn stéttarfélaga á þeim stöðum sem heimsóttir yrðu. Með þessum hætti fá trúnaðarmenn félaganna o.fl. að Júgósla\iía Akveðnar hafa veriö tvær ferðir til Júgóslaviu fyrir þá sem sérstaklega hafa hug á aö kynnast landi og þjóö/ eða réttara sagt þjóöum. Fyrri ferðin hefst 16. maí og stendur í þrjár vik- ur. Síðari ferðin veröur 18. júli og stendur í tvær vikur. Dvalartímanum í hvorri ferð verður skipt sem næst að jöfnu milli skoöunar- feröa um landið og dvalar i Portoroz, baðstrandar- bænum vinsæla á strönd Adriahaf sins. I skoðunarferðunum gefst kost- ur á þvi annars vegar, aö kynnast einstakri náttúrufegurð og sögu- stöðum, en hins vegar, aö sjá i reynd hvernig 20 miljónir ibúa Júgóslaviu, af 6 ólikum þjóðern- um, búa saman i þjóðfélagi sem einkennist af sterku rikisvaldi en jafnframt af mikilli valddreif- ingu, t.d. aö þvi er snertir stjórn atvinnulifsins. Þá er ekki siöur athyglisvert að kynnast þvi hve mikil áhrif launafólks eru i iðnaði og öðrum atvinnurekstri. Reynt verður að haga þessum feröum þannig að sem flestir fái notið þess sem þeir hafa áhuga á að kynnast. Islenskumælandi leið- sögumaður verður i ferðunum, en auk hans júgóslavneskir fyrirles- arar sem fjalla um einstök málefni, og verður mál þeirra þýtt á islensku. Ohætt mun að fullyrða, að leið sú sem valin hefur verið i skoðun- arferðunum sé ein sú fegursta sem kostur er á, enda hefur hún oft verið nefnd „hjarta Júgóslaviu”. Lagt verður upp frá Portoroz, en þar verð’tr dvalið þá daga sem ekki er verið i skipulögðum skoð- unarferðum. Frá Portoroz verður siðan ekið i loftkæidum lang- ferðabifreiðum sem leið liggur til Ljúbljana, höfuðborgar Slóveniu. Þar hefst kynnisferðin með fyrir- lestrum um land og þjóð og skoð- un borgarinnar. Siðan verður ekið áfram til Bled, við samnefnt stöðuvatn i júliönsku ölpunum og gist þar. Eftir að hafa notið ein- stakrar náttúrufegurðar veröur ekið af stað og haldið til Klagenfurt i austurrisku ölpun- um. Næsta dag veröur haldið til Júgóslaviu á ný, ekið gegnum Mariborá bökkum Dravafljótsins og þaðan áfram til Zagreb. 1 ferð- inni 16. mai er ráögert að hafa tveggja daga dvöl i Zagreb og heimsækja þar m.a. fyrirtæki og vinnustaöi. Þaðan verður farið til Plitvicevatnanna, en þau og um- hver-fi þeirra eru rómuð fyrir náttúrufegurð. Næst liggur leiðin til Sarajevo, þar sem dvalist verður næturlangt. P'rá Sarajevo er ferðinni heitið að strönd KYNNIS OG N^MS- FERÐIR FYRIR FÉL- AGSMENN STÉTT/IR- FÉLKGA Á NEGUM MFk OG /4LÞYÐU0RL0FS kynnast kjörum, starfsháttum er- lendra félaga,aöbúnaði þeirra og þvi við hvaöa skilyrði trúnaðar- menn búa i stárfi sinu samkvæmt lögum, reglugeröum og hefð. Þessar ferðir eru fyrirhugaðar til Danmerkur og/eða Noregs og samtök hiiöstæð MFA / ALO i þessum löndum hafa heitið stuðn- ingi sinum. 2. Kynnisferðir starfshópa og félaga. Vitað er aö starfsmannahópar á fjölmennari vinnustöðum hafa mikinn hug á þvi aö fátækifæri til þess að sækja heim hliöstæð fyrirtæki erlendis t.d. á Norður- löndum og er þá hugmyndin sú að tengja slikri kynnisferð orlofs- dvöl á þeim slóðum sem dvalið er, þannig að þátttakendur geti tekið maka og jafnvel börn með sér. Er þá reiknað meö ódýrri gistingu t.d. i orlofsbúðum, skólum eða á þar til gerðum tjaldstæðum sem eru mjög vel útbúin viða á um- ræddum slóðum. Einstök stéttar- félög gætu einnig haft áhuga á ferum sem þessum og má i þvi sambandi minna á lofsvert fram- tak Vfk. Snótar i Vestmannaeyj- um tvö s.l. ár. Þegar er kunnugt um að nýstofnað Nemendasam- band Félagsmálaskólans hefur hug á ferð af þessu tagi. 3. Atvinnulýðræði i Júgóslaviu. I sambandi við leiguflut Land- sýnartil Slóveniu (Portoroz) hafa komið fram hugmyndir um að skipuleggja sérstakar kynnis- ferðir þangað þar sem þátttak- endum gæfist kostur á, auk þess að njóta einstakrar náttúrufeg- urðar og heimsækja sögustaði, að kynna sér sérstaklega atvinnu- lýðræði eins og það er fram- kvæmt i Júgóslaviu. Tilhögun at- vinnulýðræðis þar i landi þykir forvitnileg fyrir margra hluta sakir. T.d. hafa verkalýðssamtök á Norðurlöndum skipulagt þang- að kynnisferðir i þessum tilgangi um langt skeið. Hafið samband við MFA Þeir sem hafa áhuga á ein- hverju af þvi sem hér hefur verið nefnt eða hafa aðrar hugmyndir og áhugamál, hvort sem um er að ræða einstaklinga, hópa eða félög, þurfa að setja sig i sam- band viö MFA Grensásvegi 16, simi 84233 eða ALO Skólavörðu- stig 16, simi 28180. Þessir aðilar munu veita upplýsingar og við- töku fyrirspurnum. Sameiginlega veröur fjallað um þær óskir sem berast og reynt aö fella þær að þeim möguleikum sem fyrir hendi verða þannig að sem flestir geti notið þess að ferðast sjálfum sér til gagns, fróðleiks og skemmtunar. Þar sem fjöldi einstakra ferða verður takmarkaður vegna þess hve leiguflugi er þröngur stakkur skorinn hér á landi, auk þess sem takmarka verður þátttöku i trúnaðarmannaferðum, er ráð- legast fyrir þá sem áhuga hafa að láta heyra frá sér sem fyrst. Norðurlönd Kynnisför trúnaðarmanna til Norcgs (Osló og nágrenni) Fyrirhuguð er 8 daga ferö til Noregs fyrir trúnaðar- menn á vinnustöðum og aðra, sem áhuga hafa. 1 stór- um dráttum verður ferðin þannig: Brottför er fyrirhuguð fyrri hluta júnimánaðar. I skóla norsku verkalýössam- stakanna verður hlýtt á fyr- irlestra um norsku verka- lýðshreyfinguna, siðan verða heimsóttir vinnustaðir af mismunandi tagi i nágrenni Osló, svo sem i borgunum Drammen, Kóngsberg, Portsgrunn, Skien, Karlstad o.fl. Ennfremur verða verkalýðsfélög heimsótt, rætt við forystumenn þeirra, trúnaðarmenn vinnustaða og skipst á skoðunum um ýmis mál, sem eru ofarlega á baugi i norsku verkalýðs- hreyfingunni, svo sem vinnuverndarmál, fræðslu- mál o.fl. Islenskur leiðsögu- maður (túlkur) verður með i förinni. Ferð fyrir trúnaðarinenn og aðra til Norður-Noregs Stefnt er að þvi að efna til svipaðrar ferðar til Norður- Noregs, ef hagstæðir samn- ingar takast um ferðir og næg þátttaka fæst. Sennileg- ur brottfarartimi er júni- mánuður n.k., en verður á- kveðið nánar i samráði við þátttakendur. pólland Pólska alþýðusambandið hefur sýnt sérstakan áhuga á þvi að skipuleggja ferð og taka á móti hópi frá Islandi, sem kynnti sér verkalýðsmál i Póllandi, með þvi m.a. að heimsækja vinnustaði og verkalýðsfélög og fá þannig tækifæri til að ræða við fólk úr ýmsum starfsgreinum i pólsku atvinnulifi. Hótel Hveragerði Króatiu með viðdvöl i Mostar, en náttstaður veröur i baöstrandar- bænum Split. Frá Split verður siðan ekið með strönd Króatiu, yfir Istraskagann til dvalarstað- arins i Portoroz. Þessi leiðarlýsing er gerð með fyrirvara um hugsanlegar breyt- ingar á dvalartima á hverjum stað. er starfandi allt árið. Margskonar þjón- usta, matur, kaffi, gisting. Tekur að sér hópa, fundi og ráðstefnur. Verið velkomin Hótel Hveragerði Sími 99-4231

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.