Þjóðviljinn - 16.04.1978, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 16.04.1978, Qupperneq 12
12 — ÞJÓÐVILJINN Bjórbann störfum. Þeir vinna t.d. i sildar- verksmiðjum, bensinstöðvum eða við hreinsun bæjarins og snyrt- ingu. Sumarleyfi skólabarna á Islandi er 3 1/2 mánuður. En á' móti eru fleiri kennslustundir á viku hjá þeim en i Danmörku. Og á veturna gefast heldur ekki svo mörg tækifæri til að fara út, þeg- ar dagsbirtan sýnir sig rétt sem snöggvast, aðeins fáa klukkutima á dag. Betur gekk meö enskuna I skólum er danska helsta erlenda tungumálið. En það var sjaldgæft að hitta einhvern, sem i rauninni kunni dönsku! Aðeins aldrað fólk og háskólastúdentar gátu notað dönskuna. Heldur betur gekk með enskuna. Ef gamla norræna tungumálið, sem talað er á Islandi, er svona ólikt dönskunni, hversvegna er þá ekki hreinlega hætt að kenna dönsku og fleiri kennslustundir notaðar i staðinn til að kenna ensku? Eða af hverju ekki að nota norskuna, sem er mikiu likari islenskunni, og sem miklu léttara er að læra? Það er mjög auðvelt fyrir Islend- inga að skilja færeysku. F'jarlægðin milli þessara gömlu norrænu tungumála er ekki enn orðin svo mikii. Og jafnvel Færeyingum finnst auðveldara að skilja nýnorsku en dönSku.” 100 kall fyrir kalt bað Við gripum næst niður i frásögn Smedmans, þar sem hann er staddur á tjaldstæðinu i Skafta- felli. ,,Það var stórmerkilegt að tjalda meðal svo mikils fjölda fólks. A skrifstofu tjaldstæðisins var okkur enn komið á óvart. 1 Danmörku höfðum við keypt gráa Evróputjaldstæðakortið, sem átti lika að gilda á íslandi. Þeir voru ekki i nokkrum vafa um það á ferðaskrifstofunni heima á Hesingjaeyri. En á Islandi þekkja menn ekki svona fyrirkomulag. Við borguðum 400 isl. krónur. Mjög sanngjarnt. Og 100 krónur kostaði að fara i bað. En þegar ég stóð undir sturtunni, var vatnið iskalt. Ef maður vill fá heitt bað hér, verður maöur að fara i biðröðina kl. 7 að morgni. Kl. 8 er heita vatnið búið. Þó fékk ég 10C krónurnar til baka. Seinna feng- um við heitt bað á Hvolsvelli fyrir 200 isl. krónur á mann, um miðjan dag. Það var á stað, þar sem herbergi voru leigð ferðamönn- um. Jafnvel þótt íslendingar hafi nóg af heitu vatni, er það tvisvar eða þrisvar sinnum dýrara að fá sér oað þar en t.d. á hótelum eða tjaldstæðum i Noregi. Upplýsingar vantar Skaftafell hefur verið friðað m.a. til að vernda gróðurinn, en samt sem áður hlupu kindur um i þessum þjóðgarði. Þær naga grasið að rót og láta trén aðeins nokkurnveginn i friði þar sem brattinn er of mikill i hinum mörgu gljúfrum. Ennfremur ber landssvæðið merki hins gifurlega ferðamannafjölda, sem hefur farið illa með gróðurlagið, að á mörgum stöðum má sjá uppblástur, sem eyðilagt hefur stór landbúnaðarsvæði áður fyrr og heldur enn áfram. Ef á að friða svæðið, verður að fjarlægja sauðféð og skipuleggja göngu- stiga fyrir ferðamennina. Annars verður ekki svo mikið að sjá fyrir ferðamenn i framtiðinni. Það er ekki nóg eingöngu að friða. Friðunin verður lika að vera raunveruleg friðun! A leiðinni upp fórum við viða framhjá göml Ferðafélag Islands 50 ára 1927—1977 Ferðafélagið gefur út árbók, sem er inni- falin i árgjaldinu. Árbækurnar eru itar- legasta lýsing á íslandi, sem til er. Ferðafélagið gefur út kort af íslandi i mælikvarða 1:750.000. Ferðafélagið skipuleggur ferðir um ísland. Ferðafélagið og deildir þess eiga nú 20 sæluhús i óbyggðum. Ferðafélag íslands er félag allra lands- manna. Gangið i Ferðafélagið og takið virkan þátt i ströfum þess. Frh af bls. 11 um rústum, sem nú voru huldar grasi og varla að vottaði fyrir útlinum hinna upprunalegu bygg- inga. Þarna voru engin upplýs- ingaskilti né annað slikt á svæðinu eða við rústirnar, þar sem hægt hefði verið að sjá, hverjir hefðu búið þarna og hverskonar náttúruhamfarir hefðu herjað á sveitina. Hin fræga Njáls saga hefur einmitt mikil tengsl við þennan stað. En ferða- maðurinn verður að láta sér nægja að geta sér til.” Eins og i lyf jabúð Ferðalangarnir eru nú komnir til Reykjavikur og hafa sofið eina nótt i tjaldstæðinu i Laugardag: „20/7. Við vöknuðum á rign- ingardegi. Úti var jafn kalt og á aprildegi heima i Danmörku. Eftir að hafa borðað morgunmat með skyri rétt einu sinni, ókum við frá tjaldstæðinu til að litast um i bænum. Nálægt tjaldstæðinu var ein hinna fáu einkasölubúða sem verslar með áfengi. Engin áletrun var utan á búðinni. Þetta virtist allt vera nafnlaust. Jafnvel svona einkasöluverslanir i Noregi og Sviþjóð eru auðkenndar, og þar getur maður keypt bjór. En á Islandi er ekki hægt að kaupa bjór. Það er aðeins hægt að kaupa mjög sterkt áfengi eða rauðvin, og verðið er afar hátt. Inni i þessari búð, sem virtist þjófheld- ari en banki, fannst manni frem- ur að maður væri staddur i lyfja- búð. Við keyptum tvær flöskur af rauðvini á 800 ísl. kr. Annars var verðið á rauðvininu frá 1000 krón- um og uppúr. Rauðvinið er helmingi dýrara en i Danmörku. Þessu var pakkað inn i mjög litt áberandi poka, eins og um væri að ræða einhvern sjúkdóm. Glundroði í umferðinni Við ókum i átt að miðbænum. Augsýnilega á maður bara að keyra á sama hraða um allt. Ef engin götuljós eru sjáanleg, ryðst maður bara áfram og ekur yfir aðalbrautirnar. Ekki er ráðlegt að biða of lengi, þá sér sá sem fyriraftan er um að koma manni áfram. Inn á hringtorgin er ekið án þess að hika. Yfirleitt virðist rikja mikill glundroði i um- ferðinni i Reykjavik. Hallgrimskirkja Ijót. Við lögðum bilnum i grennd við Hallgrimskirkju. Þetta er lútersk kirkja, sem byrjað var að byggja 1945 og enn er i byggingu. 011 er kirkjan úr steinsteypu og linurnar ibyggingunni eiga i stórum drátt- um að likjast liggjandi sel, með uppreist höfuð og hreifana út til hliðanna. Kirkjan sést viðast að i Reykjavik, þvi að hún stendur á einni af hæðunum i bænum. Mjög eru skiptar skoðanir um bygg- inguna. Sjálfum finnst mér kirkjan vera ljót. Þó eru þeir arkitektar til sem hafa reynt að likja eftir linunum i gömlu sveita- bæjunum i nýjum byggingum. Þannig rákumst við á mjög snotra kirkju i litlu þorpi, Kirkju- bæjarklaustri, þar sem tré, steinsteypa og gras féll vel hvert að öðru. Kirkjan var mjög einföld i sniðum, lfkt og þrihyrnt tjald. Frá jörðu og i mannhæð voru hliðar hennar úr steinsteypu, en fletir úr torfi voru felldir inn i steypuna. Þakið var úr tré og skilið frá steyptu flötunum með röð smárra glugga hringinn i kring. Mjög fallegt. Stalín er hér Ekki fjarri „selskirkjunni” er Tjörnin, og skiptir vegur henni i tvennt. Hjá Tjörninni er miðbær- inn, sem liggur niður að höfninni. Umhverfi Tjarnarinnar er mjög fallegt, garður með trjám og blómabeðum. Ótrúlega margir sundfuglar eru i vatninu. Frá tjörninni sér maður Þjóðminja- safnið og háskólann. Þessar tvær byggingar eru frá árunum kring- um 1940 og liklega teiknaðar af Fyrsta... við Hafnarfjörð. 1 sjónvarpinu birtist fyrir skömmu fréttaþátt- ur með ómari Ragnarssyni, þeim annars ágæta frétta- manni, þar sem hann vitnaði óspart i Sigurð Þórarinsson um nauðsyn þess að leggja þennan veg niður með Búrfellsgjá. Astæða þeirra félaga var sú að þarna væri um að ræða náttúru- undur sem gaman og nauðsyn- legt væri að geta sýnt erlendum ferðamönnum sem stutta dvöl hefðu hér á landi. Upplagt væri að leggja veginn fram á brún Búrfellsgjár svo ferðamennirn- ir gætu gert svona fimm minútna stans, tölt um gjána og kannski uppá fellið. Báðir þessir menn eru húmoristar, en kannski hvor af sinni tegund, og ég held kannski, og ég vona, að Ómar hafi misskilið Sigurð Þór- arinsson. Heiðmerkurvegurinn um Hjallana er lagður rétt við endann á Búrfellsgjá. Þaðan má á 15 minútum áaðgiska ganga upp alla gjána og á fellið. Frek- ari vegarlagning á þessum slóðum er þarflaus og raunar glæpsamleg. Við eigum hérna rétt við þéttbýlið landsvæði sem má kallast öræfi, litt snortið óbyggt land sem þarað auki er mjög sérkennilegt og fagurt. Við skulum ekki farga þvi i hugsunarlausu ferðamanna- sama arkitekt. Framhliðar húsanna virka gráar, sements- legar. ósköp dapurlegt að sjá. Byggingarnar minna helst á hin hræðilegu minnismerki Stalins- timans. Þjóðminjasafnið er á þremur hæðum. A fyrstu hæðinni eru athyglisverðustu hlutirnir, frá sögulegu sjónarmiði. Hér má sjá margt góðra muna svo sem stóla, saumaöskjur, dyr, messuklæði, altaristöflur, allt unnið i sterkum og finlegum munstrum, sem þekkst hafa allt frá landsnámstið. Marga slika hluti má einnig sjá i þjóðminjasafninu i Kaupmanna- höfn, þar sem mörg herbergi eru full af islenskum altaristöflum, stólum, kirkjudyrum o.s.frv. ‘Jpplýsíngar aöeins á islensku t einum salnum i Þjóðminja- safninu i Reykjavik voru margir áhugaverðir munir úr uppgröft- um, sem gáfu góða innsýn i lifið á landnámsöldinni. En alls staðar vantaði betri upplýsingaspjöld. T.d. voru fundarstaðirnir ekki sýndir á korti, og safnverðirnir vissu ekki neitt. Sýningarmunirn- ir voru aðeins útskýrðir á islensku. I flestum söfnum er þó vaninn að hafa enskan texta með. A safninu var heldur ekki hægt að kaupa neinar bækur á ensku eða þýsku, þar sem sagt væri frá þvi, i hvaða tengslum þessir fornleifa- fundir væru við sögu Islands. 1 skápnum voru til sýnis nokkur handrit frá 16. öld. Þessi handrit varðveitast ekki eilíflega, ef áfram verður haldið að hafa þau til sýnis á þennan hátt. 1 salnum þar sem voru margir útskornir hlutir úr tré var ekkert rakatæki. Ef islensku handritin eru varð- veitt á sama máta eins og hand- ritin á Þjóðminjasafninu, hlýtur maður að óttast um framtið þeirra. Þá skilur maður betur, hvers vegna sumir sagn- fræðinganna á danska rikis- skjalasafninu létu i ljós ótta um framtið handritanna er hin fræga afhending þeirra fór fram. Þeir voru hræddir um, að aðstæður til varðveislu þeirra væru ekki nógu góðar i Reykjavik. Og það virðist vera svo i reynd. Fótknetti á Þjóðminjasafnið? Aður en lokað var höföum við smátima til að lita aftur inn i sal- ina á 1. hæð. Þegar maður gengur inn til hægri, þar sem sýningar- herbergin fyrir 19. og 20. öld eru, gæti maður fyrst haldið, að maður væri kominn inn á skrif- Frh. af bls 9 braski. Misnotkun landsins kostar okkur kannski ekki i svipinn jafn mikið og misnotkun fiskislóða, en i lifandi mannver- um blunda fleiri tilfinningar en fégræðgin ein og i náttúrunnar riki er ýmis konar angan önnur en peningalykt. Þótt gaman sé að geta glatt erlenda ferðamenn frá löndum sem eru þegar orðin yfirþyrmd af mengun og hlýjað þeim um hjartarætur, megum við ekki gera það með sjálfs- eyðingu. Enginn vafierá þviað vegur- inn í Bláfjöll er vandamál i nú- verandi mynd og annar hvergi nær þeirri umferð sem þar skapast við ýmsar aðstæður, en lausnin er einfaldlega að gera aðra akrein, annan veg, samsiða hinum með gagnstæðri ákstursstefnu. Þegar ég er búinn að fara á Kerlingarhnúk og hlaupa nægju mina þarna um brúnir og eggjar Bláfjallanna renni ég mér fót- skriður niður i Eldborgargil aftur. Mitt fólk er þá komið i mikla lyftuþjálfun, meira að segja yngsta dóttirin 7 ára stundar lyfturnar af kappi eldrauð i kinnum af ákafa, og fjölskyldan er sammála um að koma aftur eins fljótt ogtiægt er og vonandi verður hægt að auka við skiðabúnaðinn fljótlega. stofu. En það er nú eitthvað ann- að! 1 fyrsta herberginu er ekkert annað en skákborð með plasti yf- ir, þannig að ekki er hægt að snerta taflmennina. Tveir stórir hægindastólar úr leðri standa við borðið. Á borðið hafa þeir ritað nöfn sin Fischer og Spasski, sem kepptu um heimsmeistaratitilinn i skák i Reykjavik 1972. Mér virðist fáránlegt að setja skák- borðfrá 1972 á Þjóðminjasafn. Þá væri eins hægt að hafa til sýnis þá fótbolta eða handbolta sem notað- ir hafa verið i landsleikjum sem unnist hafa. Skákborð frá heimsmeistarakeppni á ekki við á þjóðminjasafni. Eðlilegra væri að skilja þetta, ef borðið hefði verið til sýnis i flugstöðinni i Reykja- vik. Þynnra en vatn Miðbær Reykjavikur er mjög viðkunnanleguE Siðdegis eru allar götur fullar af blaðsöludrengjum, sem reyna af öllum mætti og með hrópum og köllum að selja dag- blöðin. A göngugötunni var mjög vistlegt kökuhús, þar sem hægt var að fá stórar rjómakökur og aðrar tegundir af kökum. I sal við hliðina á kaffistofunni voru réttir dagsins bornir fram. En það er sannarlega ömurlegt að fá sér girnilegan sildarréttán þess að fá bjór og snafs með. Að sitja og borða einhverja þá gómsætustu sild sem hægt er að fá, og geta svo bara fengið gosdrykk með, er pina. Ef maður kaupir islenskt öl, sem kallað er pilsner, og hefur þó. nákvæmlega ekkert sameiginlegt með pilsner nema nafnið, fær maður mjög dauft ljóst öl, og er enn meiri hörmung að drekka það heldur en gosdrykki. Það er einfaldlega þynnra en vatn.” Háifa ieiö til himna Við látum nú staðar numið á Akureyri, og lesum lýsingu höfundar á Akureyrarkirkju: „1 miðbænum, niðri við höfn- ina, er kirkjan mjög áberandi. Hún liggur hátt i hliðum bæjarins, sem eru mjög brattar og enda i hásléttu. Næstum frá höfninni liggja miklar tröppur, að kirkj- unni. Tröppurnar eru svo margar, að tslendingar segja: „Þegar þú ert kominn upp allar þessar tröppur, ertu kominn hálfa leið til himna.” Kirkjan á Akureyri hlýtur að vera eftir sama arkitekt sem teiknaði Háskóiann og Þjóðminjasafnið um 1940. Persónulega finnst mér hún ljót. Hún likist meira slökkvi- stöð.” (Þýtt, —eös) —je.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.