Þjóðviljinn - 26.04.1978, Síða 3

Þjóðviljinn - 26.04.1978, Síða 3
Miövikudagur 26. aprll 1978 ÞJÓÐVILJINN — 81ÐA í' Namibía: Suður-Afríka sam- þykkir sjálfstæðisáætl- unVesturvelda 25/4 — Rikisstjórn Suftur-Afríku lýsti þvi yfir i dag aft hún heffti samþykkt áætlun fimm vestrænna rikja um aö Namibia fengi sjálfstæði fyrir áramót. Suður-Afrika hefur ríkt yfir Ródesíu- stjórn hafnar ráðstefnu 25/4 — Bráðabirgðastjórnin i Ródesiu hafnaði i dag formlega til mælum Bretlands og Banda- rikjanna um þátttöku i ráðstefnu allra aðila Ródesiudeilunnar. Kom sú yfirlýsing ekki á óvart, miðað við undirtektir stjórnar- innar áður. t yfirlýsingunni er jafnframt gefið i skyn, að bráða- birgðastjórnin sé til i samninga við Vesturveldin tvö, að þvi til- skyldu að þau komi meira til móts við stjórnina. Banaslys Sautján ára piltur, Gunnar Einarsson, til heimilis að Smáratúni 29, Keflavik, beið bana er bifreið hans hvolfdi á Grindavikurvegi á sunnu- dagskvöldið. Farþegi i biln- um slasaðistlitið. Talið er að sprunginn hjólbarði hafi valdið slysinu. Sjad-stúd- entar taka sendiráð 24/4 — Um 300 námsmenn frá Mið-Afrikurfkinu Sjad tóku I dag á sitt vald sendiráð Sjads i Kafró og segjast ætla aö halda ambassadornum og ööru starfsliöi föngnu i 24 klukkustundir i mót- mælaskyni viö fhlutun Frakk- lands og fleiri rikja i borgara- striöið i Sjad. Segja námsmenn- irnir aö auk franskra hermanna séu nú egypskir, marokkanskir, senegalskir og Iranskir hcrmenn t liöi Sjad-stjórnár. Biorgarastriö hefur staðiö I mörg ár milli uppreisnarmanna i norðurhluta Sjad og stjórnarinn- ar þar, sem Frakkar styðja viö bakiö á. Nýlega sendu Frakkar mörg hundruð manna liðsauka til Sjad og hafa þar nú að likindum á annað þúsund hermanna og hernaðarráðgjafa. Ekki hefur áöur frést af hermönnum frá öðr- um tilnefndum rikjum i landinu, en lengi hefur verið vitaö að egypska stjórnin hefur haft áhyggjur af gangi mála i Sjad, vegna þess að uppreisnarmenn kváöu njóta stuðnings Liblu, sem er I engu vinfengi við Egypta. Þegar landamærabardagar uröu með Egyptum og Libiumönnum á dögunum, var þess getið til að Egyptarheföuáttupptökin i þeim tilgangi aö draga athygli Libiu- manna frá Sjad. Námsmennirnir, .sem tóku sendiráðiö, segjast vera á vegum Kairó-deildar sjadiska náms- mannasambandsins. Þeir saka stjórnina um mikil hryðjuverk i borgarstriðinu. Namibiu, sem er mjög auöug af úrani og málmum, i nærri 60 ár, siöustu árin þrátt fyrir bann Sam- einuðu þjóðanna, en svo hefur átt að hcita aö Suður-Afrfka færi meö stjórn i landinu i umboöi þeirra. Riki þau er standa að téðri sjálfstæðisáætlun eru Bandarikin Bretland, Frakkland, Vestur- Þýskaland og Kanada. Samkvæmt áætluninni er ráð fyrir þvi gert að kosningar fari fram i Namibiu undir umsjón Sameinuðu þjóðanna og að suður- afriski herinn i landinu, um 20.000 manns, hverfi þaðan i áföngum. Ekki virðist samþykki Suður- Afrikustjórnar þó afdráttarlaust, þvi að fréttaskýrendum virtist Johannes Vorster, forsætisráð- herra Suður-Afriku, gefa i skyn 25/4 — Santiago Carrillo, leiötogi Kommúnistaflokksins á Spáni, gagnrýndi i dag ummæli Viktors Afanasjef var formaður sendi- nefndar frá Kommúnista- flokki Sovétríkjanna, sem mætti á flokksþingi spænskra kommúnista í s.l. viku. Var haft eftir Afanasjef aö ef Spánn gengi I Nató, inyndi þaö spilla samskipt- um Spánar og Sovétrikjanna, og ennfremur kvaö Afanasjef hafa sagt að sósialismi og konungs- stjórn gætu ekki fariö saman. Spænskir kommúnistar sætta sig við konungsstjórn i landi sinu, en eru i yfirlýstri andstöðu bæði við Nató og Varsjárbandalagið. Beiskar ásakanir Moros í garð stjórnarinnar 25/4 — Waldheim framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna skor- aði i dag á Rauðu hersveitirnar svokölluðu, að þyrma lifi Aldos Moro, fyrrum forsætisráðherra ttaliu. Hefur Waldheim áður oftar en einu sinni sent mannræn- ingjunum samskonar áskoranir, og Páll páfi hefur einnig sárbænt þá að vægja Moro. Italska stjórnin hafnaði i 25/4 — Haft er eftir sómölskum heimildum i Nairobi, höfuðborg Keniu,, að ástæðan til uppreisnar- innar í sómalska hernum 9.april hefði verið sú, að margir herfor- ingjar hefðu verið óánægðir með herstjórn Siads Barre forseta i Ogaden— striðinu. Héldu þeir þvi að það væri i verkahring hins fyrirhugaða Namibiuþings að ákveða, hvort eitthvert suður- afriskt herlið yrði áfram i landinu eöur ei. t áætlun vestrænu rikjanna fimm er ekki gert ráð fyrir þvi að Suður-Afrika skili Walvis Bay, mikilvægustu höfn Namibiu, ásamt meö öðrum hlut- um landsins, og segja talsmenn rikjanna fimm að það mál megi alltaf athuga siðar. Hætt er við aö SWAPO, frelsishrey fing Namibiu, verði ekki ánægð með það atriði. SWAPO hefur tiilögur rikjanna fimm til athugunar, en hefur ekki enn svarað þeim. Walvis Bay er stjórnarfarslega aðskilið frá Namibiu vegna þess að höfn þessi var bresk nýlenda, meðan Namibia var að öðru leyti undir þýskum yfirráðum. Haldi Suður-Afrikumenn Walvis Bay áfram, mundi það auðvelda þeim mjög að hafa ráð landsins i hendi sér. Hinsvegar tók Carrillo fram i svari sinu við ummælum Afanasjefs að afstaða Spánverja til herbandalaganna tveggja og konungsins kæmi þeim einum við, og væri vægast sagt óviðeigandi aö útlendingar væru að blanda sér i þau mál. Flokksþingið var hið fyrsta, sem spænskir kommúnistar halda i landi sinu frá þvi eftir borgarastriðið 1936—39. Þingið ákvað að héðan i frá myndi flokk- urinn ekki byggja á kenningum Lenins sem grundvallaratriðum. Carrillo sagði að flokksþingið hefði orðið Evrópu- kommúnismanum i Suður- Evrópu til eflingar. gærkvöldi eindregið þeim skil- málum mannræningjanna að 13 svonefndir skæruliðar verði látnir lausir i skiptum fyrir Moro. í gærkvöldi barst einnig bréf frá Moro, þar sem hann ásakaði stjórnina beisklega fyrir að vilja ekki láta téða fanga lausa i skipt- um fyrir hann. Sagðist Moro jafn- framt vonast til að rikisstjórnin hefði enga fulltrúa við jarðarför hans. Hann hefur nú veriö fangi mannræningjanna i rúma fjörutiu daga. Stjórn Panama hefur boðist til þess að veita mannræningjunum landvistarleyfi, ef það mætti verða til þess að bjarga lifi Moros. fram að hann hefði haft ráð- leggingar herforingja sinna að engu. Uppreisnin var sem kunnugt er bæld niður og herma téðar heimildir að um 500 manns hafi verið drepnir af uppreisnar- mönnum. Fyrirliðar þeirra flýðu til Keniu. Flokksþlng spænskra kommúnista Lenínismi aflagður Skilmálum mannræn- ingja hafnað 500 drepnir Namibia —dökku svæöin eru sérsvæöi blökkuinanna. Namibía — stutt söguyfirlit Namibia (af Evrópumönnum áöur kölluö Suövestur-Afrika) er um 800.000 ferkilómetra að stærö, eða nærri átta sinnum stærri en ísland. ibúar eru um miljón og skiptast i marga þjóöf lokka og ættbáka, svo sem i flestum öörum Afrikulöndum. Fjölmennasti þjóöflokkurinn er Ovambo, sem talar Bantúmál. Til hans sækir SWAPO, frelsis- lireyfing Namibiu. einkum stuöning sinn. Þjóðverjar lögðu Namibiu undir sig seint á nitjándu öld og innlimuðu hana formlega 1884 sem „verndarsvæði.” Ekki voru landsmennallir ánægðir með þá ráðstöfun og var andstaðan mest af hálfu Herero-þjóðflokksins, sem einn- ig er Bantúmælandi. Hereróar gerðu uppreisn gegn Þjóðverj- um, en Þjóðverjar bældu þá uppreisn niður af engri vægð og útrýmdu Hereróum aö miklu leyti. Einn af helstu nýlendu- embættismönnum Þjóðverja þar i landi um þaö leyti var maður aö nafni Göring, faöir rikismarskálks Hitlers meö sama nafni. Úran i spilinu 1 fyrri heimsstyrjöld unnu Suöur-Afrikumenn landið af Þjóðverjum og hafa drottnað yfir þvi siðan. Var svo látið heita að Suður-Afrika stjórnaði þar iumboði Þjóðabandalagsins sáluga og siðan i umboði Sameinuðu þjóðanna. Siðan kjarnorkuöld hófst hefur Namibia orðið sérstaklega eftirsótt vegna þess að þar er mikið af úrani i jörðu. Frá því í lok siðari heims- styrjaldar hafa Sameinuðu þjóðirnarstöðugtkrafistþess að Namibia fengi sjálfstæði, og 1971 dæmdi Alþjóðadómstóllinn yfirráð Suður-Afriku þar ólög- leg, En Suður-Afrika hefur til þessa haft fyrirmæli Sameinuðu þjóðanna um þetta að engu. SWAPO hefur i meira en áratug háð skærustrið gegn Suður-Afriku. Hreyfingin nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem réttur aðili til að taka við stjórn i Namibiu. SWAPO mun telja sig sósialiska hreyfingu og hefur griðland fyrir skæruliða sina i Angólu. Hreyfingin leggur áherslu á að Namibia verði óháð öllum rikjabandalögum og stórveldum, þegar hún verður sjálfstæð. Suður-Afrika hefur frá þvi' fyrsta harðneitað öllum samningaumleitunum við SWAPO og þess I staö stefnt aö þvi aö koma á legg i landinu stjórn sér hliðhollri. 1 þeim tilgangi kvaddi Suður-Afriku- stjórn saman ráðstefnu i september 1975 i Windhoek, höf- uðborg Namibiu, og voru þar mættir fulltrúar frá öllum þjóðabrotum og þjóðflokkum landsins. Að sjálfsögðu voru þeir fulltrúar valdir með bless- un Suður-Afrikustjórnar og Sameinuðu þjóðunum voru bönnuð öll afskipti af ráöstefn- unni. Reynt að koma á leppstjóni Stjórn sú, sem Turnhalle-ráð- stefnunni, eins og samkunda þessi er nefnd, var ætlaö að koma á fót, átti að samanstanda af fulltrúum allra þjóðflokka og þjóðarbrota landsins. Að sjálf- sögðu ætluðust s-afrlskir ráðamenn til þess að kapitaliskt hagkerfi rfkti áfram i landinu undir forustu þessarar stjórnar. SWAPO litur svo á að stjórn, sem Turnhalle-ráðstefnan kærhi á fót, yrði ekki annað en lepp- stjórn Suðurafriku og flestir eru ásama máli um það. Slik stjórn myndi þvi ekki fá viðurkenn- ingu þriðja heims rikja og Vesturveldin þá ekki þora að viðurkenna hana heldur. Ótti Vesturvelda Vesturveldin, sem eiga gifur- legra efnahagslegra hagsmuna að gæta i sunnanverðri Afriku og hafa ekki hvað sist augastað á namibiska úraninu, hafa lengi reynt að koma á einhverskonar málamiðlun milli Suður-Afriku og þjóna hennar á Turnhalle-ráðstefnunni annars- vegar og SWAPO hinsvegar. Óttast Vesturveldin mjög að ef slikt samkomulag takist ekki, muni það enda með þvi að SWAPO nái öllum völdum, ef til vill með stuðningi Sovétrikjanna, Kúbu og Angólu. Vesturveldin eru ekkert fikin i það að sjálfstæð Namibia fái sósialiska stjórn, og ótti þeirra við slika stjórn — og sósialiskar stjórnir i Afriku yfirleitt — hef- ur fengið byr i vængi með vaxandi umsvifum Sovétmanna og Kúbana þar f álfu. Um tiundi hluti ibúa Namibiu eru hvitir menn, margir þeirra af þýskum ættum. Flestir lands- manna eru af Bantú-þjóðflökkn um, en einhver slæðingur er enn eftir af búskmönnum-. sem eru safnarar og veiðimenn. á Kala hari-eyðimörkinni. sem nær inn i landið að austan. Búskmenn hafa löngum átt illu að mæta, bæði af hálfu hvitra manna og blökkumanna, verið hraktir út á eyöimerkur og farið stórfækk- andi. Meðan Þjóðverjar réðu Namibiu, fóru Þýskir liðsfor- ingjar stundum á búskmanna veiðar á helgidögum og höfðu Jeyft til þess að skjóta búsk mennina s_ér til gamans. Angóla og Sambia liggja að Namibiu aö noröan, Botsvana táður Betsjúanaland) að austan og Suður-Afrika að sunnan. dþ

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.