Þjóðviljinn - 05.07.1978, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 05.07.1978, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 5. júli 1978 SVEITARSTJÓRI Starf sveitarstjóra i Skútustaðahreppi er laust til umsóknar. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf auk launa- krafna sendist skrifstofu sveitarfélagsins Múlavegi 2, Mývatnssveit, fyrir 22. júli, simi 96-44158. KENNARAR Tvo kennara vantar að grunnskóla Þor- lákshafnar. íbúð fyrir hendi. Upplýsingar gefnar i sima 99-3638. Skólanefndin. Þurfum því miður aftur að losna við indæla kettlinga. Tak- markað framboð. Dögg o.fl. Laugavegi 46b, simi 20482. SUMARLEYFI Frá 17/7—15/8 1978 verða lager- og sölu- deild okkar lokaðar vegna sumarleyfa. Nói — Sirius h/f Hreinn h/f Bóksala stúdenta óskar eftir áhugasömum starfsmanni frá 1. ágúst. Vinnutimi 10-18. Tungumála- kunnátta nauðsynleg. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist Bóksölu stúdenta, Stúdentaheimilinu v/Hringbraut, fyrir 12. júli. bók/Klð. /túdervtK Félagsstofnun stúdenta Háskóla Islands Frá Fáskrúftsfirfti Frá Styrktarfélagi vangefinna á Austurlandi: Tekur Vonarland til starfa að hausti? Sunnudaginn 11. júni s.l. var aftalfundur Styrktarfélags van- gefinna á Austurlandi haldinn i félagsheimilinu Skrúft á Fá- skrúðsfirfti. Fundargestir voru 23. Formaftur félagsins, frú Aöal- björg Magnúsdóttir, Fáskrúös- firfti, setti fundinn meft ávarpi og skipafti Aibert Kemp, Búftum, sem fundarstjóra og Birgi Stefánsson Tunguholti sem rit- ara. Formaöur flutti skýrslu um störf stjórnarinnar frá siöasta aöalfundi. Þar kom m.a. fram, aö fyrir liggja tvær umsóknir um starf forstööumanns viö vistheimili félagsins, Vonar- land, sem veriö er aö byggja á Egilsstööum. Vonast er til, aö heimiliö geti tekiö til starfa haustiö 1979, en ætlunin er, aö forstöðumaður verði ráöinn i starf nokkru áöur. Þá standa vonir til, aö samvinna geti oröiö milli félagsins og Fræðslu- skrifstofu Austurlands um ráön- ingu sérfræöings svo sem sál- fræöings. Einn þroskaþjálfanemi hefur notiöstyrks frá félaginu og mun hann koma til starfa viö Vonar- land að námi loknu. Siöastliðinn vetur auglýsti fé - lagiðstyrk til handa nemanda i talkennslu, en um þann styrk hefur engin umsókn borist. Félaginu hafa borist margar gjafir, stórar og smáar. Eru þaö sumpart minningargjafir og sumpart gjafir, sem fjár hefur veriö aflaö til meö ýmsum hætti Fulltrúar starfs- manna í stjórn SÍS Eins ogkunnugt er eiga tveír fulltrúar starfsmanna sæti I stjórn SIS, meö málfrelsi og til- lögurétti. Nýlega rann út kjör- timi núverandi fulltrúa, þeirra Þórftar Magnússonar, Reykja- vik, og Aftalsteins Halldórs- sonar, Akureyri. I Reykjavik kom aöeins fram ein tilnefning, þar sem stungiö var upp á Þóröi Magnússyni sem aöalmanni og Magnúsi Friögeirssyni sem varamanni og uröu þeir þvi sjálfkjörnir. A Akureyri komu fram nokkur framboöog var Aöalsteinn Hall- dórsson endurkjörinn sem aöal- maöur. Varamaöur var kosin Anna Maria Jóhannsdóttir. (Heim.: Sambandsfréttir). —mhg af hópum, félögum og félaga- samtökum. Þá nýtur félagiö einnig styrkja, m.a. frá sveitar- og sýslufélögum á Austurlandi. Birtar hafa veriö fréttir i blööum um gjafir, sem félaginu hafa borist frá siðasta aöalfundi en ekki hefur veriö getiö um eft- irfarandi gjafir, sem félaginu hafa borist: frá kvenfélaginu Bláklukku, Egilsstööum, kr. 200 þús., frá burtfluttum Austfirö- ingi, sem ekki vill láta nafns sins getiö, kr. 100 þús. og frá Austfirðingafélaginu i Reykja- vik, kr. 200 þús. Félagiö hefur látiö gera minn- ingarkort, sem verða til sölu innan tiöar, en þörfin fyrir slik minningarkort er augljós, ekki sist vegna hinna stórbrotnu minningargjafa, sem félaginu bárust um tvo látna frumherja félagsins, Kristján Ingólfsson, fræðslustjóra og Láru Jónas- dóttur, kennara, Reyöarfiröi. Aö skýrslu stjórnar lokinni las formaöur skýrslu bygging- arnefndar Vonarlands, en hana samdi formaöur nefndarinnar, Astvaldur Kristófersson, Seyöisfiröi, sem ekki gat setiö aöalfundinn. Þar kom fram, aö bygginga- framkvæmdir viö fyrsta áfanga vistheimilisins hófust s.l. sumar og stefnt er aö þvi, aö húsin tvö, sem i þeim áfanga eru, komist undir þak i haust. Samkvæmt byggingarsamningi er kostnaö- ur viö fyrsta áfanga 90 milj. kr. og fjárþörfin i ár um 85 milj. Vonir standa til aö á þessu ári fáist til byggingarinnar 55 milj. og vantar þá samt 30milj. til aö fjárþörfinni I ár veröi fullnægt. Gjaldkeri félagsins, Kristján Gissurarson á Eiöum, las upp reikninga ársins 1977. Niður- stööutölur á rekstrarreikningi eru kr. 4.364.017,-. Hæstu tekju- liöir eru: minningargjafir, kr. 1.857.147,-og framlögogstyrkir kr. 1.425.000,-. Tekjur umfram gjöld reyndust kr. 3.173.023,-. Eignir félagsins i lok siöasta árs voru kr. 6.197.459,-. A fundinum voru fulltrúar frá Kvenfélagi Reyöarfjaröar og færöu Styrktarfélaginu stórgjöf frá sinu félagi. Formaöur Kven- félags Reyöarfjaröar, frú Helga Aöalsteinsdóttir, afhenti for- manni Styrktarfélagsins gjafa- bréf fyrir 15 rikisskuldabréfum aö upphæö kr. 1.005.424,- ásamt kr. 320.000,-, sem eru á vaxta- aukareikningi. Var Kvenfélagi Reyöarfjaröar þakkaö af alhug fyrir þessa veglegu gjöf, sem er alls kr. 1.325.424,-. Sérstakur gestur fundarins var Sigurður Magnússon út- breiðslustjóri ISI og flutti hann erindi um iþróttir og Iþróttafé- lög fyrir fatlaöa og þroskahefta. Var góður rómur gerður að er- indi hans og uröu nokkrar um- ræöur um þessi mál. Kom þar fram áhugi á þvi, aö Styrktar- félagið léti þessi mál til sin taka hér á Austurlandi og heföi um þau sem besta samvinnu viö i- þróttahreyfinguna. Sýnd var norskkvikmynd um Iþróttir fyr- ir þroskahefta, er Siguröur haföi meðferöis. Úr stjórn félagsins áttu aö ganga nú Kristján Gissurarson og Björg Blöndal og voru þau bæöi einróma endurkjörin. Stjórn félagsins er þvi eins skip- uö og áður,en i henni eiga sæti: Aðalbjörg Magnúsdóttir, Fá- skrúðsfirði, Kristján Gissurar- son, Eiöum, Björg Blöndal, Seyöisfiröi, Hulda Bjarnadóttir, Neskaupstaö, og Guömundur Magnússon Reyöafiröi. Vara- stjórn skipa: Bára Hafsteins- dóttir, Eskifiröi, Arni Stefáns- son, Höfn, Davíö Baldursson, Eskifiröi, Birgir Stefánsson, Tunguholti, Fáskrúösfiröi og Margeir Þórormsson, Fá- skrúösfiröi. I fundarhléi þágu fundargest- ir kaffiveitingar og einnig var uppi sýning á handavinnu vist- fólks á Skálatúni, Kópavogs- hæli, Bjarkarási og Lyngási, svo og var til sýnis likan af vist- heimilinu Vonarlandi. —mhg. Þungar á höndum Þaö kom fram á aðalfundi Samvinnutrygginga aft fram- rúftutryggingar bila eru enn sem fyrr erfift tryggingargrein hjá félaginu. Stöftugur halli er á þessum tryggingum og varft liann 20,2 milj.kr. á siftasta ári. Tjónum fjölgaöi mikiö á árinu og uröu þau samtals 2.600. Er þess getið til, aö ástæöan fyrir þeirri fjölgun sé þaö, hve snjó- létt var framan af árinu 1977. (Heim.: Sambandsfréttir).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.