Þjóðviljinn - 09.07.1978, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. júll 1978
SVAVAR GESTSSON: Hugleiðing um húsnæðismál
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
undanfarin fjögur ár fariö meö
yfirstjórn félagsmálaráöuneytis-
ins og þar meö húsnæöismálanna
hér á landi. Þann tima hefur bók-
staflega ekkert veriö gert til þess
að breyta stefnunni i húsnæöis-
málum þannig aöauöveldara yrði
fyrir fólk aö eignast ibúöarhús-
næöi né heldur aö draga úr þeim
áhrifum sem stefnan i húsnæöis-
málum hefur haft i þá átt aö
magna veröbólguna. Þvert á
móti. Enda er þaö i bestu sam-
ræmi við stefnu Sjálfstæöis-
flokksins aö auka gróða braskar-
anna sem hafa blómstrað á
valdatima núverandi, en vonandi
fráfarandi rikistjórnar á öllum
sviöum. Húsnæöisbraskiö hefur á
undanförnum fjórum árum haft i
för með sér hækkandi Ibúöaverö
' i *• ’•
MANNRETTINDI
EKKI MUNAÐUR
og aldrei hefur fasteignasölum
fjölgaö eins geysilega og á undan-
förnum árum. En þaö er annars
dæmigert fyrir ómerkilegan mál-
flutning Sjálfstæöisflokksins nú
eftir kosningar aö Morgunblaöið
birtir forystugrein um húsnæöis-
mál og lofar gulli og grænum
skógum. Og hver er svo reynslan
af loforöum Sjálfstæöisflokksins i
þessum mikilvæga málaflokki á
undanförnum árum?
Þrísvikinn samningur
1 febrúar 1974 var geröur
samningur milli verkalýös-
hreyfingarinnar og þáverandi
rikisstjórnar, vinstristjórnarinn-
ar, um húsnæöismál. Þar var gert
ráö fyrir þvi aö um þaö bil
þriöjungur af áætlaöri ibúöaþörf
landsmanna á árunum 1976-1980
yrði leystur meö verkamannabú-
stööum, söluibúðum eins og þeim
sem Framkvæmdanefnd
byggingaráætlunar hefur reist og
með leiguibúðum á vegum
sveitarfélaga eöa sérstakra sam-
taka sem mynduö yrðu. í sam-
komulaginu var gert ráö fyrir þvi
aö hækka launaskatt i 2%, en
hækkunin rynni til Bygginga-
sjóös rikisins. Jafnframt var
þessi yfirlýsing 1974 samþykkt I
trausti þess að þátttaka lifeyris-
sjóöa stéttarfélaga i þessu nýja
átaki i húsnæöismálum samsvar-
aöi 20% af árlegu ráöstöfunarfé
þeirra.
Voriö 1974 fór. vinstrstjórnin frá
þannig aö henni gafst ekki timi til
þess aö hefjast handa samkvæmt
yfirlýsingunni. Ný rikisstjórn tók
viö, rikisstjórn Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæöisflokksins.
Hún aöhaföist ekkert i málunum.
Samt haföi verkalýöshreyfingin
þá þegar lagt fram sinn hluta
samkomulagsins, 20% af ráö-
stöfunarfé lifeyrissjóöanna og 2%
launaskattinn I byggingarsjóö.
Verkalýöshreyfingin stóð viö sinn
hlut, rikisstjórnin sveik samning-
inn.
Margoft var leitaö eftir þvi aö
staöið yröi viö gefin loforö, en
ekkert gekk. I kjarasamningun-
um i febrúar 1976 tók verkalýös-
hreyfingin máliö þvi upp á nýjan
leik og auövitaö var Gunnar
Thoroddsen félagsmálaráöherra
fús til þess að skrifa undir nýjan
pappir. Þar segir meöal annars
orörétt: „Þaö veröur aö sjálf-
sögöu staðið við yfirlýsingu fyrr-
verandi rfkisstjórnar um hús-
næðismál frá 26. febrúar 1974. ”
En ekkert gerðist. ,,AÖ sjálf-
sögðu” var loforðið svikið. Þess
vegna tók verkalýöshreyfingin
málið upp i þriðja sinn i kjara-
samningunum 1977. Þá ákvaö rik-
isstjórnin að skipa sex manna
nefnd til þess aö undirbúa fram-
kvæmd á samningunum frá 1974
og 1976. Nefndin átti að skila áliti
fyrir siöustu áramót i formi
frumvarps til breytinga á gild-
andi lögum um húsnæðismál.
Undir þetta fyrirheit ritaði Geir
Hallgrimsson. Nefndin var aö
visu skipuð og hún hefur starfaö
dálitiö á sl. vetri, en ekki sá rikis-
stjórnin ástæöu til þess aö tryggja
framgang málsins á siðasta
þingi. Þannig sveik rlkisstjórn
Sjálfstæðisflokksins samning sinn
viö verkalýöshreyfinguna i tvi-
gang.enda þótt hreyfingin stæöi
við sinn hluta samningsins varð-
andi útvegun fjármagns. Þessi
framkoma er dæmigerð fyrir af-
stööu þessarar rikisstjórnar I
garö verkalýössamtakanna.
2/3 fjármagnsins frá
verkalýðs-
hreyfingunni
I nýlegri ibúöaspá Fram-
kvæmdastofnunar rikisins er gert
ráð fyrir þvi að árleg Ibúöaþörf
landsmanna fram til 1980 sé 2300
til 2850 ibúðir. Sem fyrr segir er
gert ráö fyrir þvi i áðurgreindum
samningum aö þriöjungur ibúö-
anna sé reistur á félagslegum
grundvelli. Það þýöir 770 til 930
Ibúðir á ári. Það er þvi ljóst að
hér er i rauninni um að ræöa
algera lágmarkskröfu af hálfú
verkalýössamtakanna. Þaö verö-
ur nefnilega einnig aö hafa i huga
aö verkalýðshreyfingin leggur
til 2/3 hluta þess fjármagns sem
notað er á vegum Byggingasjóös
rikisins. Gert er ráö fyrir þvi aö
sjóöurinn hafi til ráðstöfunar á
þessu ári um 8 miljaröa króna. A
siðasta ári lánaöi sjóöurinn 6,1
miljarð króna til nýbygginga eöa
kaupa á eldra húsnæöi. Þar af
fóru um 720 miljónir til sveitarfé-
laga til aö byggja leigu- og sölu-
ibúðir og um 390 miljónir til sveit-
arfélaga til aö byggja leigu- og
söluibúöir og um 390 miljónir til
Verkamannabústaöa. Það er þvi
ljóst aö aöeins litill hluti heildar-
fjármagns Byggingasjóðsins fer
til félagslegra framkvæmda.
Fjármagn By ggingas jóös
rikisins kemur sem fyrr segir að
tveimur þriðju hlutum frá verka-
lýöshreyfingunni. Þaö gerist
þannig:
1) Atvinnuleysistryggingasjóð-
ur hefur lagt fram verulega fjár-
muni I formi lána til langs tima.
2) Launaskattur var tvöfaldaður
1974 og rennur sú hækkun til
sjóðsins.
3) Lifeyrissjóöir verkalýösfélag-
anna hafa keypt skuldabréf
Byggingarsjóös i mjög rikum
mæli.
Það er þvi eölilegt og rökrétt aö
krefjast þess aö verkalýöshreyf-
ingin hafi alla forystu i húsnæöis-
málum hér á landi. Þaö er ljóst aö
einkaframtakinu er ekki að
treysta á þvi sviði fremur en öðr-
um.
Alþýöubandalagiö hefur flutt
tillögur um úrbætur i húsnæöis-
málum þar sem tekiö er tillit til
þess að þaö eru einfaldlega
mannréttindi en enginn munaöur
aö eiga eða leigja hæfilegt hús-
næöi. Þessar tillögur hefur flokk-
urinn oft flutt á undanförnum ár-
um en hefur litinn hljómgrunn
fengiö nema innan verkalýös-
hreyfingarinnar. Stefna Alþýöu-
bandalagsins og verkalýöshreyf-
ingarinnar i húsnæðismálum
falla saman i öllum megin-
atriðum.
Stefnumiðin hljóta aö vera
þessi:
©
Gera þarf heildaráætlun fyrir
allt landið um nýbyggingu og
nýtingu ibúöarhúsnæöis. Aætl-
unin nái til 10 ára og byggist á
itarlegri könnun á þörfinni.
Markmið áætlunarinnar veröi i
fyrsta lagi aö tryggja öllum
húsnæði á skaplegum kjörum
og i öðru lagi að draga úr þeim
háskalegu áhrifum sem hús-
næðisbraskið hefur á efnahags-
lif þjóðarinnar.
©
Þeir sem ekki eiga ibúðir eigi
kost á stofnlánum til ibúða-
kaupa eöa byggingar sem nemi
yfirgnæfandi meirihluta eðli-
legs byggingarkostnaðar.
Alþýðubandalagið hefur lagt til
að 60% af kostnaði við bygginu
ibúöar i fjölbýlishúsi komi frá
Byggingarsjóði rikisins og
nemi afborganir, vextir og visi-
tölutrygging aldrei meiru en
20% af launum Dagsbrúnar
verkamanns. Auk þess gætu
komið lán úr öðrum sjóöum.
Auka þarf fjárveitingar til
sveitarfélaga eöa félagasam-
taka sem reisa leiguhúsnæði
þannig aö ehginn verði neyddur
til þess eins og nú er aö ráðast i
að koma sér upp eigin húsnæði.
Húsaleiga veröi frádráttarbær
til skatts.
©
Lán til ibúðabygginga úr opin-
berum sjóðum verði til mjög
langs tima.
®
Fólk njóti sambærilegra kjara
við kaup á eldra húsnæði og við
nýbyggingar Ibúðarhúsnæöis.
©
Setja ber á fót félagslegar
stofnanir sem annist kaup og
sölu ibúðarhúsnæðis og þannig
unnið gegn áhrifum fasteigna-
braskaranna.
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra 29.-30. júlí
Hveravellir
Þjófadalir
Keriingarfjöll
Að þessu sinni liggur leiöin
aö Hveravölium, I Þjófadali
og Kerlingarfjölí.
Fariö veröur kl. 10 á
laugardagsmorgni frá
Svartárbrú i Langadal og inn
á Auðkúluheiði hjá Frið-
mundarvötnum og suöur á
Hveravelli. A leiöinni veröur
sérstaklega skoöað svæði
það á Auðkúluheiði, sem til-
lögur hafa veriö uppi um að
leggja undir umdeilt uppi-
stöðulón Blönduvirkjunar.
Um kvöldið verður ekið i
Þjófadali og tjaldað. Verður
þar eldur kveiktur og dag-
skrá flutt meö söng og dansi.
A sunnudagsmorgni getá
menn fariö i skoöunarferðir i
ýmsar áttir, meðal annars
gengiö aö Fögruhlið við ræt-
ur Langjökuls. Siðan verður
ekið i Kerlingarfjöll og þaö-
Leirhverasvæöi i Kerlingarfjölium.
an noröur Kjalveg aftur i
Langadal og komiö aö Svart-
árbrú um kl. 9 á sunnudags-
kvöld.
Verö: 6.000,- kr. og hálft
gjald fyrir börn yngri en 14
ára.
Væntanlegir þátttakendur
láti skrá sig og fái nánari
upplýsingar hjá eftirtöldum:
llvammstangi: Þóröur
Skúlason, Hvammstanga-
braut 19, simi 1382.
Blönduós: Guðmundur
Theódórsson, Húnabraut 9,
simi 4196.
Skagaströnd: Sævar Bjarna-
son, Bogabraut 11. Simi:'
4626.
Varmahiiö: Hailveig Thorla-
cius, Mánaþúfu, simi 6128.
Sauöárkrókur: Rúnar Bach-
mann, heimasimi 5684, simi
á verkstæði 5519.
Hofsós: Gisli Kristjánsson,
Kárastig 16, simi 6341.
Siglufjöröur: Július Július-
son, Túngötu 43, simi 71429.
KIÖRDÆMISRÁÐ Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra