Þjóðviljinn - 09.07.1978, Side 9

Þjóðviljinn - 09.07.1978, Side 9
Sunnudagur 9. júli 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Þann 22. júni eru hundrað ár liðin frá fæð- ingu Janusz Korczaks, pólsks rithöfundar og uppeldisfrömuðar af gyðingaættum. Menn- ingarstofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur hvatt öll aðildar- riki sin til að minnast þessa göfuga manns, sem helgaði lif sitt og starf börnum, einkum munaðarleysingjum. Hann kaus að deyja með börnum þeim sem hon- um hafði verið trúað fyrir i útrýmingarbúð- um nasista i Treblinka 1942 heldur en að bjarga eigin lifi — en vinir hans höfðu boðist til að koma honum undan og fela hann. og nafnið eitt segir sína sögu um . hugmyndir hans — bókin heitir „Jak kochac dziecko” — Hvernig á að elska barn. A árunum milli striða skrifaöi hann af ágætu hug- arflugi og gamansemi bækur fyr- ir börn sem oft hafa komið dt i Pöllandi og viðar (Mattheus, Kóngurinn ungi, Kajtus galdra- maöur o.fl.) Hann skrifaði sér- staka þætti fyrir börn um heim hinna fullorönu, og hann varö upphafsmaður að sérstakri barnalesbók i blaðinu Nasz Przeglad sem var aö þvi leyti sér- stök, að börnin lögðu allt efniö til sjálf — en þau áttu i Janusz Korczak áhugasaman og velvilj- aðan aðstoðarmann og ritstjóra. Hann varð og gifurlega vinsæll Öld er liöin frá Janusz Kroczak var höfundar- nafn, sem Henryk Goldszmit tók sér eftir að hann hóf ritstörf. Hen- ryk var fæddur i efnaðri Gyðinga- fœöingu Vinir Korczaks buðust tíl að bjarga llfi hans, en hann kaus heldur að láta eitt yfir sig og börnin ganga. Janusz Korczaks fjölskyldu, en hann missti barn- ungur föður sinn, sem haföi orðið gjaldþrota og æskuár hans liðu i mikilli fátækt. Engu að siður tókst honum að brjótast til mennta af eigin rammleik og ljúka læknanámi. Hann hafði frá bernsku kynnst lífi og þjáningum ibúa fátækrahverfa Varsjár, og samúð hans með þeim var raun- sönn. Þegar hann var orðinn eft- irsóttur læknir notaði hann rif- lega úti látna þóknun efnaðra sjúklinga til að kaupa fyrir mat og iyf handa þeim sjúklingum sem ekkert gátu borgað. Ritstörf og hlutskipti Arið 1907 tók Henryk, sem far- inn var að skrifa ádeiluskáldsög- ur og gamansögur undir nafninu Janusz Korczak, að starfa fyrir samtök sem veittu aðstoð munað- arleysingjum i fátækrahverfum Gyðinga. Um þetta leyti gerði hann sér grein fyrir þvi að hann mundi aldrei eignast eigin fjöl- skyldu — um leiö tók hann þá á- kvörðun sem hann aldrei hvarf frá: að helga llf sitt uppeldi mun- aðarleysingja. Hann hætti fljót- lega að reka læknisstofu og flutti inn á munaðarleysingjahæli Gyð- inga á Krochmalnagötu i Varsjá. En hann hélt áfram ritstörfum. Hann skrifaöi skáldsögur um þau rangindi sem börn eru beitt. A ár- um heimsstyrjaldarinnar fyrri skrifaöi hann merkilegt verk i tveim bindum um barnauppeldi sem elskaöi börn meöal póskra barna fyrir út- varpsþætti —hann kom fram sem „Gamli læknirinn” með sögur og þætti þar sem hann reyndi að sameina gamanmál og uppeldis- sjónarmið. Ennfremur flutti hann fyrirlestra um uppeldismál fyrir verðandi kennara. Sjálfstjórn barna Janusz Korczak lifði meðal barnanna á munaöarleysingja- hælinu. Þau gátu á nótt sem degi gengið að visri góövild hans og umhyggju. Ein var sú hugmynd sem hann hafði mikið dálæti á, en aðrir álitu að vonum óraunhæfa, en hún var að stofna einskonar barnalýðveldi sem gæti orðið öll- um heimi siðferðileg fyrirmynd. Munaðarleysingjahælið fyrir Gyðingabörn i Varsjá varð reyndar að einskonar barnalýð- veldi. Hann lagöi áherslu á sjálf- stjórn barna — m.a. voru bæði hann og aðrir kennarar skyldir til að hlýða ákveðnum reglum sem giltu fyrir alla og börnin höfðu sett. Sérstakur „dómstóll” barna Tónlistarkennarar Kennara vantar að tónskóla Neskaupstað- ar, aðal-kennslugrein pianó. Umsóknar- frestur er til 25. júli. Upplýsingar gefur skólastjóri, simi 97-7540 Lefkfélag Akureyrar óskar aðráða leikhússtjóra og leikara n.k. starfsár. Umsóknir sendist félaginu i póst- hólf 522, Akureyri, fyrir 20. júli n.k. Leikfélag Akureyrar. Korczak meöbörnunum „sinum” á munaðarleysingjahælinu I Varsjá: ,,Sá sem segist vera aö fórna sér fyrir aðra, hann lýgur. Sumir hafa ánægju af að spila, aðrir eru hrifnir af konum, enn aörir láta veðhiaup ekki fram hjá sér fara. Að þvi er mig varðar, þá þykir mér vænt um börn. Það er engin fórn af minni hálfu.”... gagnrýndi kennara og lagði á þá refsingar ef svo bar undir. Hernámsárin Þegar þýskir herir hernámu Pólland hélt Korczak áfram að reka munaðarleysingjahæli sitt og lagöi sig allan fram um að forða skjólstæöingum sinum frá hungri og háska einslengi ogunnt var. Haustiö 1940 neyddu her- námsyfirvöldin hann til að flytja hælið inn fyrir veggi Gyðinga- hverfisins, ghetto. Korczak sat um tima i fangelsi fyrir að bera ekki Daviðsstjörnuna eins og nas- istar kröfðust, og þegar vinir hans fengu hann lausan gegn tryggingu, grátbáðu þeir hann um að fara i felur. En Korczak taldi það sjálfsagða skyldu sina að vera með börnunum, hvað sem i skærist. Hann hélt áfram að reka ekki eitt heldur tvö munað- arleysingjahæli innan veggja ghettós. I júli 1942 tóku Þjóðverj- ar að tæma Gyðingahverfið undir þvi yfirskini að verið væri að flytja fólkið til starfa á nýjum stað. Korczak gerði sér grein fyr- ir þvi, að ekkert beið fólksins nema dauðinn. En enn neitaði hann tilboðum vina sinna, sem sendu honum fölsk skilriki og sendimann sem átti að koma hon- um á brott frá hinu dæmda hverfi. Hann ákvað, að láta eitt yfir sig og þau ganga. I ágúst 1942 komu stormsveitarmenn aö ná i þau 200 börn sem boru á hæli Korcaks, hann gekk með þeim til lestarinn- ar sem ók til Treblinka. Hann brást ekki Um þetta segir dr. Jozef Bogusz i nýlegri grein: Honum tókst ekki að bjarga börnunum, en siðaboð- skapur þessarar ákvörðunar gamla læknisins, sem aldrei brást neinum og var trúr börnum sin- um og sjálfum sér fram allt til dauðans, hefur voldug uppeldisá- hrif. Dauðaganga Korczaks til Treblinka er tákn og imynd há- ieits siðaboðskapar. Helene Lecalot, i félaginu „Vin- ir Janusz Korczaks i Frakklandi” segir: Það þarf ekki viðkvæman mann til að verða djúpt snortinn af lifi hans og dauða. Hann fórn- aði öllu fyrir uppeldisstarf sitt, hann gaf fordæmi um nokkuö þaö sem i dag getur sýnst úrelt: Þaö að maður hafni öllu tilkalli til einkalifs til aö helga sig allan börnum... Af ásettu ráði kaus hann dauðann til að börnin hans þyrftu ekki aö mæta skelfingum og útrýmingu. Við vitum nú, að hann var ekki einn um aö breyta á þennan veg á þeim tima — og við spyrjum sjálf okkur: hefðum við gert sllkt hið sama? A þessu minningarári hefur minnisvarði um Janusz Korczak verið reistur i Treblinka, mörg verka hans hafa verið endurút- gefin og ráðstefna hefur veriö haldin um kenningar hans. For- sætisráðherra Póllands er fyrir nefnd þeirri sem skipuleggur starf þetta. Alþjóðleg nefnd hefur einnig veriðstofnuö til aö minnast Janusz Korczaks. (Byggt á Polska og P.A. Interpress). Sumarhátíð • Alþýðubandalagsins 1 Norður- landskjördæmi eystra # Á Laugum í Reykjadal 7.-9. júlí Sumarhátíð Alþýðu- bandalagsins í Norður- landsk jördæmi eystra verður haldin dagana 7.- 9. júlí á Laugum í Reykjadal. Komið verður saman á föstudagskvöld, búist fyrir og tjaldað. Laugardagur verður not- aður til að treysta vin- áttu- og flokksbönd og til að fara í skoðunarferðir eftir því sem hver hefur löngun til. A laugardagskvöld verður kvöldvaka með söng og hljóð- færaslætti. Menn eru beðnir að taka meö sér tjöld og annan viölegubúnað og ekki sakar að hafa meb sér gitara, blokkflautur og annað sem mætti hafa skemmtan af. Útigrill verður á tjaldstæöinu svo að ekki má gleyma aö hafa eitthvað með sér til að grilla. Rútuferð verður frá Akureyri um kvöldmatarleytið frá Eiðs- vallagötu 18. Upplýsing og skráning þátt- takenda er hjá eftirtöldum: ólafsfjörður: Agnar Viglunds- son s. 62297 Dalvik: Öttar Proppé s. 61384 Akureyri: Skrifstofa Alþýðu- bandalagsins við Eiðsvallagötu s. 21875 Húsavik: Kristján Pálsson s. 41139 S-Þing.: Stefania Þorgrímsdótt- ir Garði Mývatnssveit Raufarhöfn: Angantýr Einars- son eða Þorsteinn Hallsson. Allir félagar og stuðnings- menn eru hvattir til aö mæta.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.