Þjóðviljinn - 09.07.1978, Page 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. júll 1978
Maðurinn
og hafið 78
Margt á seyði
Dagskrá menningardaganna .
var mikil og fjölbreytt og máttu
menn hafa sig alla viö til aö fylgj-
ast meö öllu sem fram fór. Þaö
kenndi margra grasa i menning-
arakrinum og þúsund blóm fengu
að blómstra samkvæmt kenning-
um formanns kinverska. Og
maður getur vist alltaf á sig
blómum bætt.
Þarna var til dæmis dagskrá
fyrir starfsfólk á stærstu vinnu-
stöðunum, þar sem söngvarar
komu og fluttu lög sin og ljóö i
kaffitimanum. Þá var fariö i
heimsókn á vinnustaöi, Leik-
brúöuland sýndi fyrir krakkana,
Samkór Vestmannaeyja hélt tón-
leika og frumflutti tónverkiö
„Dufþekju” eftir Sigursvein D.
Sigurdis Arnarsdóttir (t.v.) hlaut fyrstu verölaun I teiknimyndasam-
keppni skólabarna, sem tiieinkuö var efninu „Maöurinn og hafiö,” og
Páll V. Kristjánsson hiaut 1. verölaun fyrir ritgerö sfna, „Samanburö-
ur á gamla og nýja timanum.” Sigurgeir Jónsson formaöur Æskulýös-
ráös Vestmannaeyja (t.h.) afhenti þeim verölaunin.
Að efla umræðu
Víöa er hrikalegt aö horfa niöur af Stórhöföa, en rollurnar tvær sem bitu
hvergi smeykar.
gras á bröttum fláka voru
Mennmgin blómstrar
í skjóli af nýju hrauni
Mikið var um að vera á menningardögum sjó-
manna og fískvinnslufólks, „Maðurinn og hafið
’78”, sem fram fóru i Vestmannaeyjum um siðustu
helgi. Þetta er í fyrsta sinn, sem norrænir menning-
ardagar verkafólks eru haldnir hér á landi, en slíkir
menningardagar hafa verið haldnir á öllum hinum
Norðurlöndunum á undanförnum árum.
Kristinsson viö ljóö Jóns Rafns-
sonar, en verkiö var samiö sér-
staklega i tilefni menningardag-
anna.
A laugardaginn var útidag-
skrá fyrir og eftir hádegi, þar
sem m.a. var sýnt sprang og
-bjargsig, siglt I Fjós og ekið á
Stórhöföa. Grima frá Færeyjum
sýndi „Kvæöiö um kópakonuna”
og flutt var blönduö dagskrá,
„Lög og ljóö”. A sunnudagsmorg-
un var siglt meö Herjólfi kringum
eyjarnar undir leiösögn Asa i Bæ
og Arna Johnsen, og siödegis var
flutt samfelld dagskrá um bar-
áttu verkakvenna á vegum
starfshóps úr Verkakvennafélag-
inu Snót. Aö sjálfsögöu var svo
dansað af miklu fjöri i tveimur
húsum fram á nætur.
Sýningar á
hverju strái
Margar sýningar voru opnar
þessa menningardaga. Kvik-
myndasýningar voru daglega.
Myndlistarsýning Vestmanna-
eyja var I Akoges-húsinu og voru
þar sýndar myndir eftir 19 Vest-
mannaeyinga. Þetta var afskap-
lega skemmtileg sýning meö
myndum eftir ólika listamenn,
eins og Oldu Björnsdóttur, Astþór
Jóhannsson, Guöna Hermansen,
og þann ágæta „naivista” Kristin
Astgeirsson. En maöur saknaöi
mynda eftir hina ágætu myndlist-
arkonu Jóhönnu Bogadóttur, sem
er borinn og barnfæddur Vest-
manneyingur. 1 Akoges-húsinu
var einnig ljósmyndasýning.
Listasafn alþýöu sýndi I matsöl-
um Isfélagsins og Vinnslustööv-
arinnar, sýingin „Verkmenntun”
var i verkmenntaskólunum
þremur og sýningar á myndum úr
verölaunakeppni skólabarna voru
á tveim stööum. Sýning á verka-
lýösbókmenntum var i Bókasafn-
inu og þar voru einnig til sýnis
póststimplar og frímerki. I
Byggöasafninu var sögusýning og
sýning á listaverkum i eigu bæjar-
ins og Náttúrugripa- og
fiskasafniö var opiö, vinsælt og
frábærlega vel rekið safn.
og skilning
Menningardagarnir i Eyjum
voru haldnir af Menningar- og
fræöslusambandi alþýöu i sam-
vinnu við bæjarstjórn Vest-
mannaeyja, sjómanna- og verka-
lýðsfélögin og fjölmarga aöra aö-
ila i Vestmannaeyjum. Mótiö var
liður i samvinnu fræöslusam-
banda verkalýöshreyfingarinnar
á Noröurlöndum og tilgangurinn
meö þvi er aö varpa ljósi á störf
og menningu þeirra sem vinna
viö sjávarútveginn, á sjó og landi,
efla umræöu og auka skilning
manna á milli.
I vandaöri dagskrá, sem gefin
var út vegna menningardaginna,
segir: „Vart er hægt aö hugsa sér
eðlilegra umhverfi fyrir slika há-
tið en Vestmannaeyjar, þar sem
öll afkoma fólks hefur frá ómuna-
tiö byggst á sjósókn og fisk-
vinnslu og flestir ibúanna vinna
störf sem tengd eru sjónum á einn
eöa annan hátt”.
Jafnréttískröfur i
menningarmálum
í dagskránni segir Snorri Jóns-
son varaforseti ASt, m.a.:
„Þegar nú, i fyrsta skipti, er
efnt til sérstakrar hátiðar og um-
Samkórinn frumflutti „Dufþekju” eftir Sigursvein D. Kristinsson viö Mikiö fjöimenni var viö setningarathöfnina.
ijóö Jóns Kafnssonar.