Þjóðviljinn - 31.08.1978, Side 12

Þjóðviljinn - 31.08.1978, Side 12
12 SÍÐA — ÞJóÐVILJINN’ Fimmtudagur 31. ágúst 1978 MINNING Anna Aradóttir t dag er til moldar borin Anna Aradóttir, Hamrahlið 9. Hún var Austfirðingur að ætt og uppruna: fædd á Stöðvarfirði 14. nóvember 1914 og ólst þar upp i föðurhúsum fram undir fermingaraldur. For- eldrar hennar voru Ari Stefáns- son trésmiður i Laufási og kona hans Marta Jónsdóttir. Ari var sonur Stefáns Höskuldssonar og Ragnheiðar Aradóttur, búandi hjóna að Þverhamri i Breiðdal, en Marta dóttir Jóns Sigurðsson- ar og Oddnýjar Marteinsdóttur sem bjuggu að Gestsstöðum i Fá- skrúðsfirði. Ari Stefánsson var rómaður hagleiksmaður og vann mest að smiðum, en hafði til búdrýginda nokkra gripi, stundaði einnig sjó og gerði út báta. En lif hans var aldrei eintómt hverdagsstrit. Hann átti sér áhugamál mörg, eignaðist meðal annars eitt stærsta steinasafn i einstaklings- eigu á íslandi og mikið skelja- safn, sem nú er i eigu Sambands islenskra barnakennara. Var þó ekki alltaf til setunnar boðið, þvi börn þeirra Mörtu urðu sjö að tölu. En hjónin voru tápmikil og sambúð þeirra svo ástúðleg, að á orði var haft, heimili þeirra ,,við- brugðið fyrir gestrisni og mynd- arskap, þar áttu allir hlýju að mæta og besta beina, enda var húsfreyjan ágæt kona, mikil hús- móðir, virt og vel metin”, segir gamall sveitungi þeirra. Anna átti því hamingjurík bernskuár við þennan svipfriða fjörð, þar sem flest var enn með grónum sveitabrag, en smáverslun og veiðistöð bentu til vaxandi þétt- býlis við sjávarsiðuna. Haustið 1928 fluttust þau Ari og Marta með fjölskyldu sina til Reykjavikur, og þar ól Anna ald- ur sinn upp frá þvi i hálfa öld. A fyrsta vori sinu i höfuðstaðnum fermdist hún i dómkirkjunni. Sið- ar á ævi var hún um fjölda ára tengd þessu aldna virðulega húsi sem söngvari i dómkirkjukórn- um, og þaðan er útför hennar gerð að eigin ósk. Anna átti heima i foreldrahús- úm, meðan hún var ung stúlka og ógift, en vann mörg ár á heimili föðurbróður sins Brynjólfs Stefánssonar sem um langa hrið rak þekkta skóverslun á horni Laugavegs og Klapparstigs. barf sist að efa, að fullur sómi hafi verið að verkunum hennar, þvi að hún var með fádæmum húsleg i sér, eins og það var kallað i minni sveit. Henni gat ekki liðið vel á heimili sinu, ef hi n vissi ein- hversstaðar af bletti eða ryk- korni. Ef til vill þótti sumum þetta ganga út i öfgar. En hún var nú einu sinni þannig gerð: ná- kvæmt snyrtimenni fram i fing- urgóma. Það lá raunar hverjum manni i augum uppi við fyrstu sýn: ég sá hana að minnsta kosti aldrei svo til fara, að hún hefði ekki fyrirvaralaust getað gengið inn i veislusal. Hinn 14. október 1939 giftist Anna Stefáni Jónssyni sem þá var ungur og ástsæll kennari við Austurbæjarskólann, en varð siö- ar kunnari sem einn mikilhæfasti og stórvirkasti rithöfundur þjóð- arinnar. Þótt Anna væri sjálfstæð kona og hefði staðið teinrétt á eigin fót- um, ef forlögin hefðu ætlað henni að giftast ekki, er hitt jafnvist að frá þessum degi var lif hennar öðru fremur helgað Stefáni, starf hennar óaðskiljanlegt ætlunar- verki hans sem kennara og skálds. Engum duldist að hún dáði hann um alla menn fram og taldi sig hafa orðið mikillar gæfu aðnjótandi að eignast slikan maka, eins og auðvitað rétt var. En ég tel gæfu hans hafa verið engu minni. Mörgum listamönn- um er svo djúprætt þörf á ástúð og aðdáun, að án þeirra fá þeir ekki notið hæfileika sinna. Auð- velt væri að sanna með tilvitnun- um i orð Stefáns sjálfs, aö hjá honum var þessi þörf sérstaklega sterk: hann varð dapur, allt að þvi örvilnaður, ef honum þóttu skáldverk sin vanmetin, en meö- lætið varð honum örvun til átaka. Auk þess vildi ég mega itreka hér fáein orð úr formála aö Vinum vorsins: Anna ,,lét sér afar annt um, að hann nyti sem flestra næðisstunda til ritstarfa. Þegar við dáumst að verkum eftirlætis- höfunda okkar, mættum við oftar en við gerum leiða hugann að þvi, hvort þau hefðu nokkurn tima orðið til, ef skáldið hefði ekki not- ið hinnar þöglu hjálpar lifsföru- nautar sins”. beim Stefáni og önnu varð ekki barna auðið. Það má nærri geta, hvort jafnbarnelskum hjónum hefur ekki fallið þetta þungt. En aldrei varð ég var við hjá önnu, að þessu mótlæti hefði „slegið inn:” valdið henni beiskju eða fá- læti um annarra manna börn. öðru nær. Framan af kynnum okkar furðaði ég mig oft á, hve hún kunni deili á feiknarlega mörgu ungu fólki hér i bænum, af ýmsum stéttum og stigum, og tal- aði um það eins og þessi ung- menni væru henni vandabundin. Venjulega kom ein og sama skýr- ing úr kafinu, þegar á samræð- urnar leið: þau höfðu verið ,,i bekknum hans Stefáns”. Þetta sýnir, að hún lét sig kennslustörf hans miklu varða ekki siöur en ritstörfin og leitaðist við að fylgj- ast með, hvernig þeim farnaðist sem Stefán hafði á sinum snærum einhvern hluta ævinnar. Nemend- ur hans voru með vissum hætti börnin þeirra beggja. Ég veit þess dæmi fleiri en eitt, að gamlir nemendur Stefáns sóttu þau hjón- in heim við áfangasigra á náms- 'brautinni, t.d. að loknu stúdents- prófi, til að veita þeim hlutdeild i gleði sinni. Slikar heimsóknir ylj- uðu ævilangt. Framan af hjúskaparárum sin- um voru þau Anna og Stefán leigjendur, bjuggu þá við Eiriks- götu og ef til vill viðar, mér er ókunnugt um það. En siðar byggðu þau allstóra ibúð að Hamrahlið 9 og bjuggu sér þar mjög vistlegt heimili. Ég var eng- inn heimagangur þar, meðan Stefán lifði, en við hjónin áttum með þeim eitt þeirra barna sem voru „i bekknum hans Stefáns”, og það leiddi til hlýrra tengsla. Stefán Jónsson var kvaddur af vettvangi án fyrirvara 12. mai 1966, liðlega sextugur. Það varð önnu að vonum þungt áfall. Hún sagði mér, að sér hefði lengi á eftir fundist sem hún ætlaði aldrei að komast yfir þann torfæra hjalla. En hún var af sterkum stofni og hélt þegar frá leið óbug- uð brautina fram. bá fór hún aö vinna hálfan daginn við sima- vörslu hjá læknum i Domus Medica. Þetta starf var henni mikils virði: það veitti henni færi á að koma daglega út á meðal fólks, dró úr einsemdinni og gaf lifi hennar nýtt inntak. Mér finnst þetta muni vera býsna vanda- samt verk. Fólk vitjar ekki læknis nema eitthvað sé að, og oft er það mjög illa á vegi statt. Þá er margt sem mæðir á þessum milliliðum læknis og sjúklinga: þeir þurfa mannþekkingar við og verða ýmist að beita lagni, mildi eða festu til að alit fari vel. Ég veit, að Anna gerði sér far um að skila þessu starfi sem öðrum eins vel og henni var auðið og lagði ekki árar i bat, fyrr en starfsþrek hennar var þrotið. 1 Domus Medica eignaðist hún góða máta meðal lækna og starfsfélaga, sem reyndust henni þá best þegar þörfin var mest. Auk simavörslunnar og heim- ilisstarfa hafði Anna eftir fráfall Stefáns ekki litlu embætti að gegna sem einkaeigandi höfund- arréttar að öllum ritverkum hans. 1 þvi fólst m.a. að semja um útgáfur utanlands og innan, flutn- ing á verkum i útvarp og sjón- varp, vaka yfir að höfundarrétt- urinn væri virtur i hvivetna og sóma höfundar hvergi misboðið. Þó að hún væri sliku vafstri óvön áður, vita þeir best sem gerst til þekkja, að hún stóð með mestu prýði i stöðu sinni og hafði það jafnan að leiðarljósi að standa dyggan vörð um höfundarheiður Stefáns. begar ég var beðinn að sja um heildarútgáfu á barnabókum Stefáns Jónssonar, var ég mjög hikandi i fyrstu. Þetta var ákaf- lega vandasamt verk: lýjandi ná- kvæmnisvinna sem ég hafði litla reynslu af. Tvennt var mér á hinn bóginnhvatning: iþessum bókum er flest sem góðar barnasögur má prýða, og þvi eiga þær jafnan að vera á boðstólum i góðri útgáfu — hitt var þakkarskuld min við Stefán sem ég vildi fúslega sýna lit á að gjalda að' nokkru. Eftir langa umhugsun svaraði ég for- laginu, að ég skyldi taka að mér þetta mikla verk með þeim skil- yrðum, að ég hefði óbundnar hendur um alla ytri gerð þess og ekkja Stefáns samþykkti, að ég sæi um útgáfuna. útgefandinn féllst á hið fyrra og sagði mér jafnframt, að til min hefði verið leitað að ósk önnu. Mér var ljóst, að svo miklum trúnaði mátti ég ekki bregðast. Siðan er liðið á sjö- unda ár, og allan þann tima höf- um við átt ákaflega náið samstarf að útgáfumálunum. Ég tók þá stefnu i upphafi að fá hana til að lesa eina próförk af öllum bókun- um i öryggisskyni, og vafaatriði stór og smá sem við höfum velt fyrir okkur i sameiningu gegnum árin skipta mörgum þúsundum. I þessu amstri öllu var einkum tvennt i fari hennar sem ég dáðist að: hve gjörhugul hún var og vönd að virðingu sinni. Það kom af sjálfu sér sem aukauppskera þessarar sam- vinnu, að Anna varð náinn heim- ilisvinur ojkkar, og þar var eng- inn flysjungsháttur á: hún var trölltryggur vinur vina sinna og þeirra vina og spurðist af áhuga fyrir um hagi þeirra jafnlengi og hún mátti mæla. Eins og að likum lætur hef ég verið tiður gestur á hinu fallega heimili þeirra Onnu og Stefáns þessi siðustu ár. bað er aðdáun- 1*1 Felagsmalastofnun Reykjavíkurborgar A 'V DAGVISTUN BARNA, FORNHAGA 8 SIMI 27277 Staða forstöðumanns við leikskólann Arnarborg er laus til umsóknar. Fóstru- menntun áskilin. Laun samkvæmt kjara- samningi borgarátarfsmanna. Umsóknar- frestur er til 10. september. Umsóknir skilist til skrifstofu Dag- vistunar Fornhaga 8 en þar eru veittar nánari upplýsingar. arvert og á vissan hátt átakanlegt að sjá, af hve fögrum söknuöi hún rækti minningu Stefáns i smáu og stóru. 1 skrifstofu hans var allt með sömu ummerkjum og þegar hann hvarf út úr henni siðast, nema á skrifborðinu stóð mynd af honum, og þar voru ávallt blóm i vasa. Við töluðum alltaf um hann eins og hann væri lifandi. Nokkur ár eru liðin siðan Anna kenndi þess sjúkdóms sem likam- ann bugaði að lokum. Margt i orð- um hennar og breytni finnst mér eftir á benda til, að hún hafi þá þegar haft sterkan grun, ef ekki vissu um, hvert stefndi. En hún bar veikindi sin af miklum hetju- skap, uns yfir iauk. Hún lést i Borgarspitalanum 24. ágúst. Ég sendi systrum hennar og öðr- um vandamönnum hugheilar samúðarkveðjur. Einar Bragi Þegar ég minnist önnu Ara- dóttur á kveðjustund, þá er mér rikt i hug, hve prúðu og hljóðlátu lifi hún lifði við hlið manns sins, Stefáns Jónssonar kennara og rit- höfundar. Ég kynntist þeim hjónum, þeg- ar ég réðist kennari að Austur- bæjarskólanum fyrir hartnær aldarfjórðungi. Þá var skólinn þrísetinn og enn starfandi fjöldi þeirramerku skólamanna og rit- höfunda, sem varpað hafa ljóma á þá stofnun, meðal þeirra Stefán Jónsson. Kennarafélagið starfaði mikið og oft voru kvöldvökur og dansleikir eða komið var saman til að spila. Æfinlega kom Anna með Stefáni á þessar kvöld- skemmtanir og þótti dauflegt, ef þau vantaði, þvi þau kunnu manna best að skemmta sér og öðrum. Lengi vel haföi ég ekki önnur kynni af önnu, en frá þess- um samkvæmum i skólanum. Hún var frið kona og hæversk, jafnan fallega klædd og yfir henni dömulegur þokki. Stefán var tiu. árum eldri og mótaðist samband þeirra af þvi, að hún var ung stúlka, þegar þau giftust, enhann þroskaður maður. Hún leit upp til hans og lét sér annt um að búa honum sem fallegast heimili, þar sem riktikyrrláturfriðurog hann átti víst næði til ritstarfa. Hún fór ekki að vinna úti, þó þau væru barnlaus. Þegar Anna var fimmtug, eða vorið 1966, veiktist Stefán snögg- lega og dó samdægurs. Hún bar sorg sfna með virðulegri reisn. Fljótlega fékk hún vinnu, sem simavörður i Domus medica. Henni likaði vinnan vel, og líf hennar féll I fastar skorður, slétt og fellt á yfirboröinu. Stefán var farinn, en verk hans voru eftir. Hún vakti yfir þvi með stakri kostgæfni að útgáfur.eða flutning- ur, á verkum hans væri sem best úr garði gerðar. A þessum árum kynnist ég henni á nýjan hátt, og mat hana stöðugt meira eftir þvi sem ég þekkti hana betur. Ég komst að þvi hve mikinn þdtt hún hafði tekið í störfum Stefáns. Hún hafði reiður á öllu. Hún vissi hvað hann lagði áherslu á I kennslunni og hvernig hann undirbjó sig, geröi áætlun á sumri og skipu- lagði mjög nákvæmlega hvaö hann ætlaði að fara i um veturinn. 011 þessi plögg geymdi hún i skrifstofu hans eins og hann gekk frá þeim. Hún þekkti nemendur hans og fylgdist með þeim, hvernig þeim vegnaði siðar. Ég kom nokkrum sinnum til hennarmeðan húnlá banaleguna á Borgarspftalanum. Hún hafði lengi vitað að hverju fór, en lét ekki á neinu bera. Talaði aldrei um liðan sína, en bar sjúkdóminn með hæglátu æðruleysi. Hún lá á einbýlisstofu og þegar ég kom til hennar þar, varð mér fyrst ljóst hve sterk persóna hún var. Ein- hvern veginn hafði henni tekist að setja mjög persónulegan svip á sjúkrastofuna, þó var þar ekki annað inni, en vant er að vera á slikum stað. Vinir hennar við Austurbæjar- skólann senda systrum hennar og öðrum ættingjum innilegar sam- úðarkveðjur. Vilborg Dagbjartsdóttir Anna Aradóttir er fallin frá. Nafn hennar mun ekki gleymast um langan aldur. Og hennar mun verða minnst i sambandi við brúðguma sinn, Stefán Jónsson, hið ljúfa skáld, sem lést fyrir rúmum tólf árum, i maimánuöi 1966. Anna Aradóttir varð aldrei ekkja hans. Hann var alltaf brúð- guminn hennar og hún var alltaf brúður hans. Þegar Stefán féll frá, mátti af ýmsu álykta að hann hefði brugðið sér frá um stundar- sakir, en að hans væri von inn úr dyrunum á hverri stundu með bros á vör. Að visu skyggði sá at- burður á sól vordagsins i tilveru hennar, en harmurinn eft- ir ástvininn var haffnn yfir grát og kveinstafi. Minning- in um hann skyldi lifa. Þess- vegna skyldi allt vera, eins og örlagadaginn þann, er hann kvaddi. Skrifborðið skyldi vera, eins og hann stóð upp frá þvi I hinsta sinn, munirnir á skrif- borðinu og handrit hans. Um- búnaður i herbergjum skyldi vera eins og þegar þau bjuggu þarna 1 saman kyrrlátu lifi og sameinuö. Hún varð þvi aldrei ekkja. öll hennar tilvera eftir þetta var lif i tveimurheimum. Hver dagur var minning um hann, jafnframt þvi aðhver dagur var bið eftir þvi að hitta brúðguma sinn. Það skiptir engu máli, hvort vonin i þessari bið var blekking eða ekki. Hún var fylling i lifsþrá, sem var henni sá styrkur, að ekkert gat verið fullkomnara og meira I lifi hennar árin tólf. Anna Aradóttir var austfirsk. Hún fæddist i Stöðvarfirði 14. nóvember 1914 og ólst þar upp h já foreldrum sinum, Ara trésmið Stefánssyni og konu hans, Mörtu Jónsdóttur. Með þeim fluttist hún svo til Reykjavikur og átti heima i foreldrahúsum, þar til hún gift- ist Stefáni Jónssyni 14. október 1939. Hún hafði stundað ýmis störf og i hvivetna getiö sér orð lipurðar, árvekni og trúmennsku. Hún var glaðleg I orði, en engin yfirborðsmanneskja. Hún var söngvin, æfði söng i mörg ár, til þess að syngja I kórum. Margir sáu einstaka fegurð i samlifi önnu og Stefáns i sam- bandi við söng og ritstörf. Þau leiddust á kóræfingu i Dómkirkj- unni. Hann fékk sér kannski kaffibolla á Skálanum I Austur- stræti með kunningja sinum, meðanhann beið, svo kom hann á réttri stundu að kirkjunni og þau leiddust heim. Þegar heim kom, gat hann sest að skrifborðinu og skrifað sögur, sem hann kallaði: Undir morgunsól. Anna Aradóttir var vaskleg og hispurslaus iframkomu. Hún var snyrtileg og hibýlaprúö, alit var hreint og fágað innan dyra hjá þeim Stefáni. Og hver hafði sér blett eða hrukku á fatnaði henn- ar? Var hún ekki alltaf að koma inn úr laufvindi, sem hafði strok- ið af henni hvert fis. Til voru þeir, sem undrast hafa yfir þvi, að Anna skyldi öll þessi ár vera ein I iveru þeirra Stefáns með öllum ummerkjum, eins og þegar Stefán fór. Ég veit ekki, hvaðkalla ber slikt lif. En ég segi ogskrifa: Þaðer hamingja hvers og eins að vera ekki steyptur i sama mót og nokkur annar,. Drottinn minn, ef svo væri, að nokkur væri steyptur gjörsam- lega I annars mót, hvað þyrftum við þá að vera að tjasla við sál. Og eftir allt eru það gleðitíð- indi, þegar brúðurin veröur lögö við hlið brúðgumans i Fossvogs- kirkjugarði, þar sem hann hvilir undir steininum tigulega, sem hún reisti honum. Gunnar M. Magnúss.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.