Þjóðviljinn - 14.11.1978, Síða 5

Þjóðviljinn - 14.11.1978, Síða 5
Þri&judagur 14. nóvember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Höfuðstö&var EBE I Brussel: viljið þér verða Efnahagsbandalagsskáld? Fréttir úr Danaveldi Danskir lærlingar; ver&ur vinnuvikan stytt f 35 stundir? Samræmt göngulag evrópskt? Arósum 4/11 Hér á Jótlandi austan- verðu og raunar um alla Danmörku hefur ríkt hið Ijúfasta haustveður að undanförnu — jafnvel svo að menn tala um „Indian Summer", sem þýðir nokkurn veginn tímavillt sumar. Nú á samkvæmt venju að véra farið að f rysta,en þess í stað er hit- inn upp á 10 — 15 gráður dag hvern og virðist ekkert lát á. Það er eitthvað ann- að en norður á Akureyri þar sem trén voru orðin svo til nakin í byrjun októ- ber. Hér skarta þau enn fegurstu haustlitum. Hjónabandserjur Pólitikin viröist lika vera I löngu sumarfrii, þeas. „Den Store Politik” — þessi hversdagslega tekur sér aldrei fri. Sósialdemó- kratar hafa þa& huggulegt I stjórnarsamvinnu við borgara- flokkinn Venstre. Hins vegar gæti þa& gerst að tök krata á verka- lýöshreyfingunni — sem eru svo til alger — færu aö linast. Forysta LO — en svo heitir hi& danska ASÍ — er ekki ýkja hrifin af þvi að fá Henning Christophersen formann Venstre upp i hjónasængina til sin og Ankers. Hefur jafnvel veriö ýj- aö aö þvi i blöðum aö nýr „LO- flokkur” sé i uppsiglingu. En ekki meira um þaö aö sinni. Þann 1. mars á næsta ári renna almennir kjarasamningar út. Hér viröist ekki rikja hinn islenski siöur aö „a&ilar vinnumarkaö- arins” talist ekki viö fyrr en samningar eru útrunnir og allt er komiö i eindaga. Vi&ræöur eru þegar hafnar og blikum farið aö bregöa á loft. Eins og viöar eru hér á lofti kröfur um atvinnulýð- ræ&i og aukin völd verkalýðs yfir sinu daglega umhverfi á vinnu- staönum. Trúir sinni stéttasam- vinnu hafa kratar soöiö saman einhvern bræ&ing sem þeir nefna „ökonomisk Demokrati” en þaö útleggst á islensku „efnahagslegt lýöræði”. Ekki get ég skýrt þetta fyrirbæri I smáatriöum en höfuö- atriöi þess mun vera hlutafjár- eign verkalýösfélaga i atvinnu- tækjunum. Nú hyggst LO setja þetta á oddinn I kjarasamningun- um, en atvinnurekendur hafa þverneitaö aö taka þaö til um- ræðu hvaö þá meira. Sömu sögu er aö segja um kröfu verkalýös- hreyfingarinnar um styttingu vinnuvikunnar úr 40 timum i 35. Ef LO stendur fast á þessum kröf- um gæti svo fariö aö stéttabarátt- an yröi spennandi hér I vetur. Asmundur Björn Magnús Vísitala og kjaramál Verslunarmannafélag Reykjavikur held- ur félagsfund að Hótel Loftleiðum, Kristalsal, miðvikudaginn 15. nóv. kl. 20.30. Fundarefni: Visitala og kjaramál Frummælendur: Ásmundur Stefánsson hagfræðingur Björn Björnsson viðskiptafræðingur Magnús L. Sveinsson formaður samninganefndar VR . Félagsfólk er hvatt til að fjölmenna. Verslunarmannafélag Reykjavikur Sameinaöir stöndum vér — eða hvað? Nú eru liöin rúm sex ár siöan danir samþykktu i þjóöarat- kvæöagreiöslu aö gerast aöilar aö Efnahagsbandalagi Evrópu. A- hrif þeirrar ákvörðunar hafa orö- iö æ greinilegri eftir þvi sem lengra liöur og nú er svo komiö aö Mogens Glistrup segir i blaöaviö- tali aö „hvort sem okkur likar þaö betur eöa verr þá er Dan- mörk komin I þá aöstööu aö vera efnahagslegur útkjálki Vestur- Þýskalands.” verölagsmálum osfrv. Slik sam- ræming hlyti fyrst og fremst a& miöast viö hagsmuni stórveld- anna innan EBE — smdrikin veröa aö dansa eftir þeirra pipu hvort sem þeim er þaö ljúft eða leitt. Þaö er I þessu samhengi sem Glistrup lætur ofangreind orö falla. En efnahagslegri samræmingu veröur aö fylgja pólitisk sam- ræming ef eitthvert vit á aö vera i hlutunum. Slik samræming er lika i gangi. Næsta vor ganga kjósendur allraEBE-rlkjanna niu aö kjörboröinu og kjósa fulltrúa sina á „Evrópu-þingiö”, þe. sam- eiginlega löggjafarsamkundu EBE. Ef tir mikiö japl og jaml og fu&ur tókst rikjunum aö komast aö samkomulagi um skipulag og starfcsviö þessara yfirþjóölegu stofnunar sem margir óttast aö eigi eftir aö sölsa undir sig þau völd sem hin þjóölegu löggjafar- þing hafa nú. Vinstrimenn i EBE-löndunum eru margklofnir I afstööu sinni til Evrópuþingsins. Sumir vilja beinllnis efla EBE sem mest (td. Italskir kommúnistar) á meöan aörir hyggjast hundsa kosn- ingarnar. Hér I Danmörku hafa kommúnistar og SF ákveðiö aö taka þátt I framboði Folkebevæg- elsen mod EF (Alþýöuhreyfingin gegn EBE) sem hefur veriö starfandi af mismiklum krafti si&an baráttan um aöild dana hófst. Vinstrisósialistar sitja ein- mitt i dag á rökstólum um hvort þeir eigi aö bjóöa fram einir eöa hundsa kosningarnar. Þaö þarf ekki aö fara I grafgöt- ur meö drauma þeirra sem vilja hag EBE sem mestan. Þeir lita björtum augum fram til þess tima er öll þjóöleg landamæri heyra sögunni til en Vestur- Evrópa er ein heild meö einn gjaldmi&il, eina yfirstjórn og eina pólitik. En hvaö meö menning- una? Er hægt aö samræma hana? Veröur kannski búiö til sameigin- legt EBE-tungumál? Þessi mál veröa til umræ&u á fundi sem auglýstur er I Information I dag undir fyrirsögninni: „Dreymir þig um aö veröa ljóðskáld IEBE i framtiöinni?” Látum þetta nægja um danska pólitik aö sinni. , Lagið var eftir afa hennar t lokin fylgir hér stutt smásaga úr hversdagslifinu. Einn morgun- inn núna I vikunni kveikti ég á danska útvarpinu eins og endra- nær. Hellist þá ekki yfir mig Islenski þjóösöngurinn leikinn af Sinfóniunni'.— Hvaö er nú a& ger- ast, hugsaöi ég upphátt, er forset- inn dauöur eöa gamla skeriö loksins klofnaö i tvennt og sokk- iö? Þegar lagiö var á enda kom þulurinn og afkynnti lagið sem haföi veriö leikiö aö beiöni ein- hverrar konu sem hann var i simasambandi viö. Þulurinn spuröi konuna — greinilega van- trúaöur — hvort hún héldi upp á þetta lag og hvort henni lika&i tempóið I þvi. Konan hélt nú þaö og kvaö ástæöuna vera þá aö lag- iö væri eftir afa sinn, Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Slöan hélt hún stutt erindi um téðan Svæn- björnsson en akureyrskir hlust- endur hafa árei&anlega oröiö fyrir vonbrigöum þvi hún minnt- ist ekki á Matthias. A& erindinu loknu var þjó&söngurinn aftur settur á fóninn, aö þessu sinni sunginn — jafnvel enn hægar en Sinfónian spila&i. — Svona getur nú islensk menn- ing risiö hátt I útlöndum, hugsa&i ég. Þröstur Haraldsson Glistrup: Danmörk er orftin vestur-þýskur útkjálki Nú stefna EBE-rikin aö þvi aö mynda meö sér sameiginlegan gjaldeyrissjóö um næstu áramót. Hvort sem af þvi veröur þá eöa seinna eru menn sammála um a& sameiginlegur EBE-gjaldmiöill sé ekki langt undan. Og þaö felur meira I sér en virst gæti viö fyrstu sýn. Ef takast á aö tryggja slikum gjaldmiöli einhvern stööugleika þarf aö koma til stór- aukin samræming á öllum sviö- um efnahagsmála, I kjaramálum, SINFONIUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS i Háskólabiói fimmtudaginn 16. nóvember 1978 kl. 20.30. Verkefni: Vivaldi — Concerto Crosso Honegger — Concertino Jón Nordal — Pianó konsert Sibelius — Sinfónia nr. 1 Stjórnandi: Karsten Andersen Einleikari: Gisli Magnússon Aðgöngumiðar i bókaverslunum Sigfúsar Eymundssonar og Lárusar Blöndal og við innganginn. Sinfóniuhljómsveit tslands Auglýsið í Þjóðviljanum

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.