Þjóðviljinn - 03.12.1978, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 3. desembcr 1978
af ertendum veitvangi
Frontveriauf am 12 August 1985
von den Truppen des Warsciiauer
^Í Pakts besetztes Gebiet
3 Einsatz von US Luftlandetruppen
/HauptstoBrichtungen der Nato-6egen
angriffe seit dem 15. August 1985
SCHWEDEN
sointsm
'V.'V'^jp
Pacferborn
■\ Kommsmio
Eoropa-MíttB
Bnisse! Brunssunjj
• Maastrichf ar
SÁCQÍRt T*
' jTTéefcsgruppe Nortf
♦Rheíndahien
'Aadren %
l Bonn*\
• Casteaú
BELGIEN
Frankfurt
'ÍAíii1’
•luíemburg iCENTAG 1
W Heeresðruppé Mittel
\ Manrif
Wurrborg 1
irn-Seckcnheim
■'•Kiirisiuhe
FRANKREICH
T •Síuttgart
BUNDESREPUBUK
Strafiburgetí
souÍhágI
Hecresgruppe Sud
SCHWEI2
Þaö eru Eússar sem látnir eru byrja. Skástrikaöa svæöiö sýnir hvar Rússar komast iengst i
striösleiknum, en þá á aö hefjast gagnsókn Nató, sem
endurheimtir hertekin svæöi á skammri stundu og sækir
inn I Tékkóslóvakiu.
STRIÐSLEIKUR I DER SPIEGEL
Natovinnur þrið ju
heimsstyr j öldina!
Þriðja heimsstyrjöldin
er á dagskrá hjá einhverju
áhrifamesta tímariti Vest-
ur-Þýskalands, vikuritinu
Der Spiegel. (löngum bálki
í þrem hlutum er lýst styrj-
öld í Evrópu árið 1985 — en
um leið er í reynd sífellt
litið til baka, til hugsunar-
háttar kalda stríðsins.
Dagens Nyheter orðar þetta á
þann hátt, að 30 ára gamlar hugs-
anir og andstæöingar séu notaöir
til að lýsa styrjöld f náinni fram-
tiö.
Snýr vörn í
sókn
Þetta strlö er takmarkaö viö
Evrópu. Rússar eru aö sjálfsögöu
látnir vera árásaraöilinn og Nató
er varnaraöili og áður en lýkur
sigurvegari i hildarleiknum.
Rússar vaöa fyrst yfir Dan-
mörku, Noröur-Þýskaland og
Holland, en eftir um þaö bil
tveggja vikna styrjöld hefur Nato
snúiö undanhaldi i sókn, náö aftur
hernumdu svæðunum og sótt
fram inn i Tékkóslóvakiu.
í vangaveltum þessum er svo
gert ráö fyrir þvi, að þegar Nato-
herirnir eru farnir að sækja fram
komi til uppreisna i Austur-Ev-
rópu. Tékkar neita aö berjast
gegn hinum vestrænu herjum.
Pólverjar fara sinar eigin leiðir.
Einnig er gert ráð fyrir þvi, að
stór sambandsriki Sovétrikjanna
eins og úkraina og Kazakstan
segi stjórninni i Moskvu upp trú
og hollustu. Að lokum er stjórn-
inni i Moskvu steypt með valda-
ráni.
Það er hægt að
vinna stríð
Þessi langi greinaflokkur um
heimsstyrjöldina þriöju er merki-
án þess
að kjarna
vopnum
sé beitt
að ráði
legur I fleirien einu tilliti. Eitt er,
að timarit sem hefur heldur
frjálslynt orð á sér eins og Spiegel
er meö birtingu þessa efnis að
ýta undir kaldastriöshugsunar-
hátt án þess að nein gagnrýni eða
athugasemdir komi fram af
blaðsins hendi.
Greinabálkurinn er byggöur á
bók eftir breskan hershöfðingja á
eftirlaunum, Hackettaö nafni. En
haft er eftir áreiðanlegum heim-
ildum að bók hans endurspegli
reyndar furðu nákvæmlega þann
hugsunarhátt sem enn i dag er
útbreiddur innan Nato. Hackett
hefur nefnilega átt náið samstarf
viö herforingja sem enn eru við
störf hjá Nato við undirbúning
bókar sinnar og látið þá leiðrétta
tæKnilegar og herfræðilegar
vangaveltur eftir þvi sem þeim
þurfa þykir.
Kjarni málsins i greinum þess-
um er sá, að Nato gerir ráö fyrir
þvi að geta sigraö I heimsstyrj-
öidinni þriöju og það án þess að
gripiö verði til kjarnavopna. Og
með þvl að höfundurinn er sjálfur
hermaður, þá leggur hann fremur
litla áherslu á að lýsa eyðilegg-
ingu stríðsins og þeim stórhörm-
ungum sem ganga yfir lands-
menn.Það er ýtt undir það að
menn dragi þá ályktun af greina-
flokkinum að Nato geti unniö
hefðbundna styrjöld gegn rikjum
Varsjárbandalagsins i Evrópu.
Eykur á
stríðshættu
Sú ályktun er að sönnu ekki
hofl: komist menn á þessa skoöun
styrjöldinni eins og hún er borin
fram i Spiegel getur vanið menn
af því að hugsa um styrjöld eins
og eitthvað það sem er gjörsam-
lega óhugsandi, um það helvlti
hafa þeir um leið eins og lækkað
þær hindranir sem risið geta á
vegum strfösins. t stuttu máli
sagt: lýsingin á þriðju heims-
sem aðeins óður maður gæti
sleppt lausu. Það er dregið úr ótta
við strið. Menn verða ekki eins
hræddír og áður við tilraunir til
að breyta því jafnvægi óttans sem
til skamms tima hefur ráðiö
mestu um hugsunarhátt manna.
Tvær vetnis-
sprengjur
I striösleik þeim sem Hackett
lýsir er kastað tveim vetnis-
sprengjum. Rússar eyðileggja
Birmingham og Nato svarar með
þvi aö senda sprengju á Minsk,
höfuðborg Hvita-Rússlands.
En samkvæmt lýsingunni ger-
ist þetta ekki fyrr en á sextánda
degi styrjaldar sem er háð með
venjulegum vopnum og eftir að
Nato hefur unniö aftur þau svæöi
sem töpuðust i Norður-Evrópu
fyrstu daga striðsíns.
Þessar vetnissprengjur tvær
eru sprengdar til að sýna and-
stæöingnum I tvo heimana. Sam-
kvæmt striðsleik Hacketts bitur
sú ógnun sem eyðilegging Birm-
ingham er ekki á Nato. En and-
svarið — eyðilegging Minsk, flýt-
ir aftur á móti mjög fyrir þvi að
Varsjárbandalagið sundrist og
uppreisn hefjist i Evrópu austan-
veröri.
Hjólum í þá!
Varsjárbandalaginu er lýst
sem árásaraðila, sem hefur yfir-
burði i liösafla, en Nato er aftur á
móti látið hafa yfirburði i tækni.
Það er fyrst og fremst vegna yfir-
burða f rafeindahernaði sem
Nato er látið sigra Varsjárbanda-
lagið.
Það liggur beint við að draga þá
ályktun af öllu saman, að Nato
eigi að hraða vfgbúnaöi slnum
enn meir en orðið er. Ef að Nato-
rlkin fást til að leggja peninga i
fleiri vopn og nýtlskulegri ættu
þau að geta verið enn fljótari en
Hackett lýsir að þvi aö sigra Var-
sjárbandalagið. Greinaflokkur-
inn er dulbúinn söluáróður fyrir
hergagnaiðnaðinn.
Annað veigamikið atriði í þess-
um striðsleik er það, að Banda-
rikjamenn eru látnir vera færir
um að bjarga Evrópu I þriðja
skiptið á öldinni vegna þess, að
þeir hafa, þegar hér er komið
sögu, tekið upp herskyldu á nýjan
leik. Með öðrum orðum: áróðri
verks Hacketts er einnig beint að
þessu markmiði.
En fyrst og fremst er þessi
strlðsleikur bresks hershöfö-
ingja, sem Spiegel hefur tekið að
sér að auglýsa, andóf gegn allri
viðleitni til að semja um afvopn-
un, hann er áróöur gegn öllum
þeim sem ljá máls á þvi að draga
úr vigbúnaði og spennu.
(Byggt á DN
Natósveitir leggja fiotbrú; þær eru Iátnar vinna með betri tækni og vegna uppreisna i Austur-Evrópu.