Þjóðviljinn - 29.12.1978, Side 7

Þjóðviljinn - 29.12.1978, Side 7
Föstudagur 29. desember 1978. WÓÐVILJINN — SIÐA 7 JÞrátt fyrir umgengni vid Gud okkar, peningana, hafði þessi glæsilega leikkona ekki misst það verðmætaskyn sem haldið hefur mannkyninu á floti i aldanna rás Hrafn Sæmundsson prentari: LYÐRÆÐIÐ Hvaö eruB þiB að tala um lýö- ræði? Það vorum við sem fund- um upp lýðræðið! Þessiorð hrópaði gríska leik- konan Melina Mercuri, þegar bandarlskir sjónvarpsmenn þjörmuöu að henni i mótmæla- aðgerðum gegn stjórn herfor- ingjanna sem hrifsað höfðu völdin I heimalandi hennar. Þessi orð voru sögð af mikilli reisn og heitu hjarta. Þrátt fyrir umgengni við Guö okkar, pen- ingana, hafði þessi glæsilega leikkona ekki misst það verð- mætaskyn sem haldið hefur mannkyninu á floti i aldanna rás. Og þegar hdn stóð frammi fyrir hroka þeirrar þjóöar sem gleymthefur sögu sinni og sjálf- stæöisbaráttú, þá voru þessi orð sönn. Eftir að hafa flett upp gamalli lesningu með frásögnum af þeirri vöggu lýðræöis sem leik- konan skirskotaði til, kom I ljós að margt hefur þrátt fýrir allt breyst og ekki sist merking orða. 1 þessari vöggu reyndust vera ýmsir aðskotahlutir sem fáir vildu nú láta börn sin hvila með. Engu að siður er þaösann- leikur að þarna fór fram mark- tæk tilraun manna til að koma skipulagi á sambýlishætti og stjórnun þjóðfélags. Þessi til- raun hefur haldiö áfram allar götur siðan og enn er lýðræöið á dagskrá. Það værifreistandi að staldra við nokkra áningarstaði á þess- ari löngu leið. Þar hafa skipst á skin og skúrír. A seinni öldum mætti nefna frönsku byltinguna og nasism- ann sem dæmi um andstæöur. Einnig má minna á byltingar og styrjaldir tuttugustu aldar sem breytt hafa heiminum. 1 öllum þessum þáttaskilum hef- ur lýðræðið, í þeirri jákvæðu merkingu sem við leggjum I orðiö, ýmist hlotið að hopa eða stefnt fram á veginn. Liklega er það runniö upp fyrir flestum sem reyna aö hugsa, að fullkomið lýðræði verður aldrei tU. Möguleikar mannsins i' sambýli og stjórnun takmarkast af honum sjálfum og þeim eiginleikum hans sem lýsa sér i eigingirni og þvi tak- markalausa sjálfi sem viröist vera liffræðilegur fylginautur þessarar tegundar. Engu að siður mun maðurinn og verður að halda áfram baráttu sinni fyrir þvi að finna þjóðfélagsform sem dugar hon- um til að komast af á hverjum tima. Það rennur vonandi upp fyrir manninum, áður en það er um seinan, að mannkynið er að eignastsameiginlegan óvin sem ekki spyr um þjóðir eða landa- mæri en er stefnt gegn öllum ibúum jarðar. Þessióvinur er vald mannsins yfir nær ótakmarkaðri tækni, sem nú er stefnt gegn öllu lifi. Margir halda að þessi hætta sé fyrst og fremst fólgin I sprengjunni og vígbúnaðar- kapphlaupinu. Þessi skoðun verður þess valdandi að það gleymist stundum að maðurinn er á óvitrænan hátt að gera jörðina óbyggilega vegna rán- yrkju og skynlausrar sóknar eftir ytri verðmætum. Ef jörðin veröur ekki lengur ibúðarhæf, gagnar litið sú sjálfselska og drottnunarhroki einstaklinganna sem nú ræður feröinni. ^ Þarna kemur lýðræðið aftur við sögu. Innan ramma þess er verið að gera jöröina óbyggi- lega. Þaö vill svo til að Islendingar eru þónokkuð gottdæmi um það hvernig fullkomið lýðræði getur snúist I andstæðu sina. Siðustu áratugir eru kennslubók i þvi hvernig þjóð án sprengju og hernaðar getur misnotað auðæfi lands og hvernig rányrkjan beinist ekki aðeins að náttúru- auðlindum heldur einnig og ekki siður að manneskjunni sjálfri. Liklega stafar þetta ekki sist af þvi að islendingar blanda saman hugtökunum frelsi ein- staklinga og lýðræði. Ótak- markaö frelsi er höfuðóvinur lýöræðis. Þetta sannast einkar vel á islendingum. Til þess að skýra þetta nánar veröur að reyna að skilgreina nokkuð þann þátt lýðræðis sem nefndur er pólitik I daglegu tali. Þá stjórnunarstarfsemi sem rekur hina efnahagslegu hliö þjóðfélagsins. Engum fullvita manni hefur dottiö i hug á siðustu timum að nokkur breytingyrði á stjórnar- fari á íslandi I grundvallar- atriðum. Það er kosið með vissu millibili og ef einhver fer i vont skapi þeim samsteypustjórnum sem eru raunar, við núverandi flokkaskipan, einu stjórnunar- möguleikarnir, þá eru bara aukakosningar. Engum dettur i hug að meirihlutinn fái ekki að athafna sig eftir kosningar. Þarna koma m.a. gallar lýð- ræðisins I ljós. Meirihlutinn fær að athafna sig í friði. Þaö er enginn öryggisventill i stjórn- kerfinu. Þetta er höfuögalli lýð- ræðisins og þessi veila dregur oft á eftir sér óhugnanlegan slóða sem getur jafnvel stefnt raunverulegu frelsi þjóðarinnar i hættu. m Kóróna lýöræðisins ætti auð- vitaöaðveraalþingi Islendinga. Enginn valdastofnun er þessari samkundu æöri og þrátt fyrir allt hljóta meginþræðir allra grundvallarmála aö liggja um þessa stofnun. Starfssvið þeirra sem kjörnir eru til setu á alþingi er varöað i stjórnarskránni. Samkvæmt henni eru alþingismenn og megaekki vera neinuháðir öðru en samvisku sinni. Þrátt fyrir kjördæmafyrirkomulag eiga al- þingismenn að vera fulltrúar þjóðarinnar allrar en ekki ein- stakra landshluta. Þeir eiga að vinna að skynsamlegum rekstri þeirrár stofnunar sem heitir þjóðfélag og lita á þessa stofnun sem eina heild. Þarna kemur lýðræðið enn við sögu. Til þess að ná þvi marki að hljóta setu á alþingi verður lýðurinn aö kjósa þingmennina I frjálsum kosningum. I stuttu máli er þessi þáttur lýðræöisins orðinn þaö mein- gallaöur að afleiöingarnar eru orðnar óhugnanlegt stjórnleysii þjóðfélaginu. Kosning alþingismanns fer ekki lengur eftir þvi hvaö hann hefur fram að færa um skyn- samleganrekstur þjóðfélagsins. Alþingismaður er nú eingöngu dæmdur eftir þvi hve miklum fjármunum hann getur náö fyrir kjördæmi sitt. A siöustu árum hefur þetta sjónarmið orðið allsráöandi vegna þess neysluæðis sem gengið hefur hömlulaust og kallar stöðugt á meiri fjármuni, ekki aöeins til uppbyggingar eölilegs atvinnulifs og þjónustu, heldur einnig og ekki siður til fullnægingar nýrra og nýrra gerviþarfa sem stöðugt kalla á meiri fjármuni. Til þess aö halda þessu gang- andi notar hinn almenni kjós- andi neitunarvald sitti kjörklef- anum. Þetta vita alþingismenn og kandidatar og þeir hanga nú i þráðum eins og leikbrúður I af- skræmdu brúðuleikhúsi lýöræð- isins. ^ Til þess að rökstyðja þessar miklu fuliyröingar veröur aö fara lauslega yfir þróun efna- hagsmála undanfarna 1-2 ára- tugi. A þessu timabili hefur stjórn efnahagsmála verið þannig að eytt hefur veriö meira en aflað hefúr veriö. Um þessa stefnu virðast flestir hafa verið sam- mála. Bæöi almenningur og lög- gjafarsamkundan hafa stöðugt gengiö lengra hvað þetta varð- ar. A þessu timabili öllu hefur rikt sérstakt góðæri i iandinu. Fyrir utan oliukreppuna hafa viðskipti islendinga við útlönd veriö meira og minna hagstæð. Olíukreppanerraunar merki- legur áfangi á þessu tlmabili. Þetta var timabundið ástand sem allar þjóðir snerust gegn og sigruðust á meira og minna nema islendingar. Siðan hefur óðaverðbólga geisaö linnulaust i landinu og aldrei verið gerð nein alvörutilraun til að slá á hana. Ef til vill hafa einhverjir stjórnmálamenn haft hug á þvi að ganga i gllmuna við þennan eyðandi meinvætt. En óttinn við lýöræðið I kjörklefanum hefur þá borið almenna skynsemi ofúrliði. Eftir þetta stjórnlausa tima- bil standa máhn þannig i gróf- um dráttum: Allt efnahagslif islendinga Uggur nú flakandi i sárum. 200 milljarða. erlend lán haía verið tekin. Risastórir gúmi- tékkar eru gefnir út i formi ríkisskuldabréfa. 25 milljarða af verðlausum peningaseðlum hefur rikið látið prenta I prent- verki Seölabankans. Sparnaöur i bönkum hefur að stórum hluta verið togaður úr þeim vegna negatífra vaxta. Hver einasti sjóður i sjóðakerfi landsins er nánast tómur. Þar á meðal veröjöfnunarsjóöur sem er þó ein af fáu vitrænu tilraunum til jafnvægis efnahagslifs. Meira að segja sá sjóður sem verka- lýðurinn á og hefur það hiutve rk að vernda launafólk gegn at- vinnuleysi hefur verið þurraus- inn. Alit peningakerfi landsins er blóðmjólkað. Og stór hluti pen- inganna hefur fariö i sukk og óráðsíu. Aðeins hluti allrar lán- töku og verðlausra peninga- seöla hefur verið lagður I arð- bæra fjárfestingu. Nú standa þrir aðalatvinnu- vegir landsmanna þannig að vigi að það er talið afrek að velta þeim áfram um timabil sem talin eru i mánuðum. Offramleiðsla landbúnaðar- vara er orðin að meiriháttar vandamálum efnahagslifsins. Rányrkja sjávarins heldur áfram og færri og færri þorskar ná kynþroskaaldri. IBnaöurinn liggur varnarlitill og afvelta i erlendri samkeppni. Um orku- málin verður ekki fjallað. Allar þessar staðreyndir eru fyrir hendi og öll þessi upptaln- ing hefur farið i gegnum æðstu valdastofnanir lýðræðisins og eru bannaðar þar. • Sú hugsun hlýtur að hvarfla að þegar litið er yfir valinn, aö kóróna lýðræðisins, alþingi ís- lendinga, hafi ekki af einhverj- um orsökum möguleika á að halda hinum raunverulegu stjórnartaumum i höndum sér. Eins og áður er að vikið er ekki ástæða til þess aö ætla al- þingismönnum þaö ábyrgðar- leysi að skilja þannig við hlutina af frjálsum vilja. Þaö hlýtur að vera komin brotalöm I það lýð- ræðisfyrirkomulag sem við bú- um við. Lýðræði sem hefur enga öryggisventla og leyfir innan ramma sins ótakmarkað frelsi, er raunverulega úr sér gengið og spillt. Þaö er þó mikil blekking að laga megi þessaágalla með ein- hverju þvaðri um róttækar grundvallarbreytingar hér og nú. Byltinginer ekki á dagskrá. Það veröur hinsvegar að leysa fulltrúa löggjafarsam- kundunnar undan þeirri pressu sem lýðræðið leggur nú á þá. Þaö verður til að mynda, svo dæmi séu tekin, aö leysa sjávarútvegsráðherra á hverj- um tima undan þeirri persónu- legu og flokkslegu freistingu að skipta á seiðadrápi nytjafiska og atkvæðum I kjördæmi sinu. Það verður að leysa alþingis- menn undan þeirri martröö að vera eingöngu dæmdir eftir þvi hvað þeir ná miklum fjármun- um úr rikiskassanum fyrir sitt fólk. Það er grátbroslegt að sjá fuiloröna menn nota ræðustól alþingis til endalausra og oft skynlausra yfirboða. ' • Dagskrárgreinar ættu að vera vettvangur skoðanaskipta en ekki patentlausna i þjóðmálum. Þessvegna veröur nú látiB staö- ar numið. Þaöer raunar ótrúlegt að þau málefni sem hér hafa verið reif- uð hafi ekki komiö upp i huga manna. Ef allir þegnar hinnar „gáfuðu” þjóðar eru komnir i dansinn kringum guUkálfinn og hafa ekkert til málanna að leggja, þá eru þjóðmálin komin á alvarlegra stig en þorandi er að trúa. Hvað kostar áfengis- neysla Islendinga Dæmiö er óreiknað Landssambandið gegn áfengis- bölinu hélt þrettánda þing sitt i nóvemberlok s.I. Þingið sátu 46 fulltrúar, en aðildarfélög sam- bandsins eru 30 talsins. A þinginu voru samþykktar nokkrar ályktanir, sem allar fjalla um hinar ýmsu hliöar áfengisbölsins og baráttuna gegn þvi. t almennri ályktun þingsins er vakin sérstök athygli á niöur- stöðum þeirra rannsókna sem geröar hafa verið hin siðari ár hér á landi á notkun áfengis og af- leiðingum hennar. Minnt er á, aö alþjóðlegt barnaár stendur nú fyrir dyrum og fólk hvatt til að ihuga áfengismálin gaumgæfi- lega af þvi tilefni, enda verði börn drykkjumanna öðrum fremur olnbogabörn þjóðfélagsins. Þingið skoraði á stjórnvöld aö stöðva sölu bruggefna og tilheyr- andi tækja og afnema friðindi ferðamanna I sambandi viö toll- frjálst áfengi, og einnig að hætta áfengisveitingum I veislum sin- um. Þá benti þingið á þá staðreynd, að ekkert liggur fyrir um það, hvað áfengisneysla tslendinga kostar. „Vitað er — segir I ályktuninni — að félagsvisinda- deild H1 hefur talið þetta verkefni stærra en svo aö fjárhagur henn- ar leyfi að það sé leyst. Auðvitað éru sumar afleiðingar áfengis- neyslu þannig að þær verða aldrei metnar til f jár, en mörgum þeirrá fylgir beinn fjárhagslegur kostnaður og aðrar eru einkum fjárhagslegar. Þingið beinir þvi til Hagstofu tslands, Þjóöhags- stofnunar, Háskóla og Jjármála- ráðuneytisins, að mikiö skorti á hagfræðilega þekkingu um þjóðarbúskapinn meðan þetta dæmi er óreiknað”. A þinginu var kosin ný stjórn fyrir sambandið til næstu tveggja ára, og er formaöur þess Páll V. Danielsson. ih leigumÍíiUm Okeypis ráðgjöf fyrir alla leigjendur. Meðlimir fá fyrirgreiðslu leigumiðlunar Leigjendasamtakanna, sem opin er alla virka daga kl. 1—5 e.h. Árgjald kr. 5000.- Leigjendasam tökin Bókhlöðustíg 7, Rvk sími 27609 ráögjöf

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.