Þjóðviljinn - 19.01.1979, Page 2
2S1ÐA — ÞJÓÐVILJINN— Föstudagur 19. janúar 1979
Fundur í Siglufirði
Ragnar Arnalds mætir á almennan stjórnmálaf und í
Sigluf irði n.k. laugardag 20. janúar. Fundurinn verður
í Alþýðuhúsinu og hefst kl. 16.
Frjálsar umræður.
Fundurinn er öllum opinn.
Alþýðubandalagið
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i gröft og sprengingar fyrir
stækkun blikksmiðjunnar Vogs M. Auð-
brekku65 Kópavogi. Útboðsgögn verða af-
hent á Almennu verkfræðistofunni hf.
Fellsmúla 26 Kópavogi, gegn 25.000.- kr.
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 30. jan. kl. 14.
Almenna verkfræðistofan hf.
Lausar stöður
Tvær stöður fulltrúa við embætti rikis-
skattstjóra, rannsóknardeild, eru hér með
auglýstar lausar til umsóknar frá 1. mars
n.k.
Endurskoðunarmenntun, viðskipta-
fræðimenntun eða staðgóð þekking og
reynsla i bókhaldi, reikningsskilum og
skattamálum nauðsynleg. Möguleiki á
starfsþjálfun fyrir endurskoðunarnema.
Ennfremur er laus til umsóknar staða
ritara við sama embætti frá sama tima.
Góð vélritunarkunnátta og reynsla i
skjalavörslu nauðsynleg.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist rannsókn-
ardeild rikisskattstjóra, Skúlagötu 57,
Reykjavik, fyrir 15. febrúar n.k.
Reykjavik 18. janúar 1979
Skattrannsóknarstjóri.
Gíróseðlar
Þeir sem hafa fengið senda giróseðla, eru
vinsamlega beðnir að gera skil sem fyrst.
E
JúDV/um
Síðumúla 6, simi 81333
Blikkiðjan
Ásgarðí 7, Garðabæ
Onnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
Auglýsirtcf
Grœnland:
70% vildu heimastjóm
A miövikudag greiddu Græn-
lendingar atkvæði um hvort þeir
vildu heimastjórn 1 llkingu viö þá
sem er i Færeyjum. Sjötiu af
hundraöi þeirra sem kusu vildu
heimastjórn en 26% voru á móti.
Þrir af hundraði skiluöu auöu.
Þingkosningar veröa þvi á
Grænlandi 4. april og veröur þá
kosiö á 21 manns þing og i 4
manna heimastjórn. Heima-
stjórnin gengur i gildi 1. mai og
mun Grænlendsráöuneytið i
Kaupmannahöfn þá leggjast niö-
ur aö mestu.
A Grænlandi búa 50.000 manns
þar af 10.000 Danir. A kjörskrá
voru 30.000 manns þar af 6.000
Danir. Kjörsókn þótti nokkuð góö
eöa 63%.
Ýmsir voru á móti heimastjórn,
þar sem þeim þótti hún ekki tíma-
bær. Aörir voru á móti henni
þar eö Grænlendingar öölast ekki
tilkall til náttúruauölinda sinna,
og þykir þeim þvi heimastjórn á
núverandi grundvelli vera hjóm
eitt. Hún mun þó allavega hafa i
för meö sér að grænlenska veröur
viöurkennd san tungumál Græn-
lendinga i staö dönskunnar.
1 útvarpinu var á þaö minnst aö
Danir myndu samt sem áöur
halda áfram „fjárhagsaðstoö” til
Grænlendinga sem næmi 640
miljónum danskra króna, en sú
aðstoð er nú nokkuö hæpin, þegar
Danir njóta gróöans af náttúru-
auölindum Grænlendingá. S'vo
ekki sé minnst á aö grænlenskir
verkamenn fá lægra kaup en
danskir á Grænlandi. (Reuter).
Khomeiny neitar að
gefa ríkisstjórninni
frið
Mun ríkisráðs-
maður slást
í lið hans?
TEHERAN, 18/1 (Reuter) —
Bandariskir hernaöarráögjafar i
flugher lrans voru fluttir brott i
dag, þegar mótmælendur reyndu
aö ráöast inn I bækistöðvar fiug-
hersins i Dezful i Suöur-lran.
Skriödrekar hröktu fólkið burt.
Sagt var að þeir heföu ekiö yfir
nokkrar bifreiöir, en ekki vitaö
um hvort einhver hafi veriö i
þeim.
Carter Bandarikjaforseti hvatti
Khomeiny trúarleiötoga til aö
gefa hinni nýju rikisstjórn Bakht-
iars tækifæri til aö bjarga ástand-
inu i landinu en Khomeiny synjaöi
þeirri bón. Nú er hann búinn aö
stofna tvær nefndir til aö undir-
búa múhameðstrúarrlki i land-
inu. önnur þeirra á aö hafa um-
sjón meö oliuiönaöinum og er for-
maöur hennar Yadolah Sahabi
fyrrverandi prófessor viö háskól-
ann i Teheran.
manninn en aöstoöarmaöur hans
sagöi aö svo yröi samt ef Therani
segöi af sér.
Hussein Marokkókóngur hefur
boðið keisarahjónunum i heim-
sókn áður en þau fara til Banda-
rikjanna, en ekki er enn vitaö
hvort þau þiggja boðiö.
Börn keisarahjónanna, þrir
hundar og mæöur eru nú þegar
komin til Bandarikjanna.
Hermaður kyssir fót keisarans
viö brottför hjónanna. Farah
horfir brosandi á.
1 dag fréttist aö Syed Jalal -
Eddin Tehrani, sem á sæti i rikis-
ráöinu i fjarveru keisarans, heföi
ákveöiö aösegja af sér og faratil
Khomeinys i Paris. Khomeiny
sagöist ekki ætla aö tala viö
Bardagar í
Kampútseu
BANGKOK, 18/1 (Reuter) — Bar-
dagar voru háöir viöa i Kampút-
seu i dag á milli fyrrverandi og
núverandi stjórnarhermanna.
Aöallega munuþeir vera á suö-
vesturströnd landsins.
Talsmenn tælenska hersins
sögðu i dag aö Einingarfylkingin
heföi eyjuna Koh Kong á valdi
sinu, en hún liggur suðvestur af
Kampútseu.
Héldu þeir að herdeildir Ein-
ingarfylkingarinnar ættu viö
birgöaskort aö striöa. Hermenn
Pol Pots munu nú færast nær
Cardamom og Fílafjöllum. övist
er hver hafi einu hafnarborg
landsins Kompong Som á valdi
sinu.
Svavar Gestsson til
Portúgals á morgun
til að semja
um olíukaup
Á morgur/ fer Svavar
Gestsson viðskiptaráð-
herra ásamt Þórhalli Ás-
geirssyni ráðuneytisstjóra
til Portúgals til að undir-
búa viðskiptasamninga.
Stendur m.a. til að semja
um kaup á 20 tonnum af
bensíni og 50 þús. tonnum
af gasoliu til að liðka fyrir
samningum um sölu á salt-
fiski síðar á þessu ári til
Portúgals.
Eins og kunnugt er hefur Portú-
gal veriö eitt besta viöskiptaland
okkar undanfarin ár og allt aö
10% af ársútflutningi okkar fariö
þangaö. A slöasta árí fórú þang-
aö 4% af útflutningnum.
Sá hængur er á aö viö höfum'
keypt miklu minna af Portúgöl-
um i staöinn. A siöasta ári var i
fyrsta sinn samiö um oliukaup af
þeim og þá keypt 7000 tonn af
bensini og 35 þús. tonn af gasoliu.
Kom sá farmur i nóvember aö
undanteknum 25 þús. tonnum af
gasoliu sem kemur nú I febrúar.
A þessu ári er áætlað aö viö
Svavar Gestsson: Fer m.a. til aö
semja um kaup á oliu.
kaupum 90 þús. tonn af bensini af
Rússum ásamt 200 þús. tonnum af
gasoliu og nemur þvi innflutning-
urinn af þessum vörutegundum
frá Portúgal 18 — 25% af heildar-
innflutningi.
Svavar Gestsson mun eiga við-
ræöur viö viöskiptaráöherra
Portúgala og er hann væntanleg-
ur aftur til landsins á þriöjudag
en ráöuneytisstjórinn mun veröa
eitthvaö lengur þar ytra.
—GFr
Nýtt
sænskt
eldsneyti
Starfsmenn tilraunastofnunar i
Helsingborg, Sviþjóð.hafa fundiö
upp eldsneyti sem veldur svo til
engri mengun. Efnið er hlaup-
kennt og kállaö Carbogel.
Kol eru mulin 1 litlar agnir og
blandaö viö vatn og lifræn efna-
sambönd. Carbogel kvað vera
laust viö ýmis konar málma,
ösku og eitraöan brennistein sem
kol skilja yfirleitt eftir sig við
brennslu. Hiö nýja eldsneyti kost-
ar ekki meira en olia og verður
hægt aö flytja þaö rétt eins og
annaö eldsneyti hingaö til.
Aöeins þarf aö breyta oliuofn-
um örlitiö áöur en hægt verður aö
brenna Carbogel I þeim.
Leitín hefur
ekki borið
árangur
Leitin aö mönnunum fjórum af
rækjubátunum sem fórust frá
Húsavik hefur ekki enn borið á-
rangur. 1 gær leituðu um 200
manns á landi en 15 bátar á sjó.
M.a. var kafaö i grennd viö höfn-
ina i Húsavfk.