Þjóðviljinn - 26.01.1979, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 26. janúar 1979,
Starfsmenn Fjárlaga- og hagsýslttstofnunar: Ingibjörg Björnsdóttir, Brynjólfur Sigurðsson, hagsýsiu-
stjóri, Héðinn Eyjóifsson, Magnús Ólafsson, Jón Böövarsson, skrifstofustjóri og Linda Einarsdóttir. Á
mvndina vantar Magnús Pétursson.
Ljósm. —eik.
Fjárlaga- og hagsýslustofnunin kynnt:
Fjárlagasimðin tekur
bróðurpartinn úr árinu
A tvinnurekendur
Spá 40%
hækkun
framfærslu
vísitölu
Samkvæmt spá sem
Vinnuveitendasamband
tsiands hefur iátið gera um
þróun framfærsluvisitöl-
unnar, launa og dollara-
gengis fram tii ársbyrjunar
1980. mun hækkun fram-
færsluvisitölunnar frá 1.
nóvember 1978 til 1. nóvem-
ber 1979 verða 40%, en
hækkun launa frá og með 1.
desember s .1. tU ársloka 1979
um 45%.
Jafnframt er gert ráð
fyrir, að verö dollarans
hækki um 42% frá þvi sem
það var 9. janúar s.l. fram til
áramóta.
Þær forsendur sem gengið
er útfrá viö gerð spárinnar
eru m.a. þær, að launahækk-
anir 1. mars n.k. verði 5% og
verðbætur á laun 1. júni 1.
september og 1. desember
verði greiddar samkvæmt
veröbótavísitölu á hverjum
tima en ekki komi til neinna
grunnkaupshækkana á
árinu. Jafnframt er gert ráð
fyrir þvi, að niöurgreiðslur
haldist óbreyttar og
viðskiptakjör verði lakari en
á árinu 1978 vegnahækkunar
áoh'uveröi. Aö lokum er rétt
að geta þess aö atvinnurek-
endur reikna með þvi að
iaunahækkunum og auknum
útgjöldum fyrirtækja verði
velt út í verðlagiö. Sést þetta
á þvi, að ein forsendan sem
þeir gefa sér i spánni er, að
beinn kostnaðarauki fyrir-
tækja vegna nýrra álaga
komi fram i verði á vöru og
þjónustu á árinu.
Þær ályktanir sem at-
vinnurekendur draga af
niöurstöðum spárinnar eru
m.a., a6 siöustu aðgerðir
rikisstjórnarinnar dragi litil-
lega úr hraða verðbólgunnar
miðað viö fyrri spá VSl, en
hins vegar telja þeir ekkert
benda til þess, að þær breyti
nokkru um hraða verðbólg-
unnar þegar til lengdar
lætur.
isg
Blaðamönnum var kynnt
starfsemi Fjárlaga- og
hagsýslustofnunarinnar s.
I. þriðjudag. Frá því s.l.
haust hefur Brynjólfur
Sigurðsson gegnt störfum
hagsýslustóra, en Gísli
Blöndal hefur fengið leyfi
frá störfum í hálft þriðja
ár.
A Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnuninni vinna 9 manns, og þar
fer fram öll undirbúningsvinna
f járlaganna, og er það meginstarf
stofnunarinnar frá þvi i byrjun
júni hvert ár fram til áramóta,
þegar fjárlög eru afgreidd frá Al-
þingi.
Fjárlaga- og hagsýslustofnunm
heyrir beint undir fjármálaráö-
herra og starfar hún I nánum
tengslum við fjárveitinganefnd
alþingis, einkum meöan fjárlögin
eru til umfjöllunar i þinginu.
1 rauninni hefst vinna við f jár-
lagafrumvarpið I marsmánuði,
þegar eyöublöö fyrir fjárbeiðnir
eru sendar til ráðuneytanna.
Beiðnirnar eiga að hafa borist
stofnuninni fyrir 1. júni.en þá eru
þær yfirfarnar og sniönar til eftir
þeim ramma sem tekjuáætlun
rikisstjórnar setur, svo og þeirri
efnahagsstefnu sem stjórnvöld
hyggjast fylgja. Fjármálaráð-
herra og rikisstjórn fjalla siðan
um þessi drög og þegar naðst hef-
ur samkomulag um efni frum-
varpsins er þaö sett i prentun og
liggur venjulega á borðum al-
þingismanna snemma á haustin.
Eitthvaö fór nú þetta vinnuplan
úr skoröum á nýliðnu ári, þvi
fjárlög voru ekki lögð fram fyrr
en f desembermánuði og lánsfjár-
áætlun rikissjóðs hefur enn ekki
veriö lögö fram, enda þurfti nýr
fjármálaráðherra og ný rikis-
stjórn nokkurn tima til að setja
sitt mark á f járlagadrög fyrrver-
andi fjármálaráöherra.
Drög stofnunarinnar að láns-
fjáráætlun liggja nú fyrir og þá
geta starfsmenn einhent sér I
önnur verkefni þar til ný fjár-
lagasmiö krefst allra krafta
þeirra. Meðal verkefna
stofnunarinnar þessa dagana er
samning áætlunar um nýtingu 12
miljóna króna, sem veittar eru á
fjárlögum til þess að kaupa
utanaökomandi rekstrartækni-
þjónustu, og er ætlað til almennra
umbóta I rikissrekstinum.
Stofnunin sjálf sinnir einnig hag-
rasðingarverkefnum, en i raun er
þó ekki nema einn starfsmaður,
Jón Böövarsson, skrifstofustjóri
sem aö þvi vinnur. Meðal þeirra
verkefna sem stofnunin hefur
unnið að á þessu sviöi er endur-
skipulagning umdæmaskiptingar
Pósts og sima, bygging varnar-
garðsins við Kisilverksmiðjuna,
hagræöing á rekstri Frihafnar-
innar, upptaka tölvubókhalds hjá
Flugmálastjórn, o.fl.
Nú er unniö aö undirbúningi
flugstöðvarbyggingar i Reykja-
vik I samráði viö samgönguráðu-
neytiö, og innan tiðar verður farið
að vinna að ýmsum verkefnum
fyrir dómsmálaráðuneytið og
heilbrigðismálaráöuneytiö.
Þó eru verkefni Fjárlaga- og
hagsýslustofnunar ekki öll talin
enn, þvi i verkahring hennar er
einnig könnun leiguhúsnæðis og
leiguskilmála sem Ráðningar-
nefnd rikisins fjallar um fyrir
stofnanir rfkisins.
Þá hefur stofnunin yfirumsjón
með allri bifreiöaeign rikisins og
bifreiðanotkun á þess vegum, svo
sem hvaða tegund bifreiðar er
keypt og samningsgerð um notk-
un eigin bila starfsmanna. A veg-
um stofnunarinnar starfar einnig
samstarfsnefnd um opinberar
framkvæmdir, og eru þar geröir
verksamningar og framkvæmda-
áætlanir fyrir sameiginlegar
framkvæmdir rikis og sveitar-
félaga.
Þurfum ekki
að auglýsa
lausar stöður
sögðu yfirmenn utanríkisráðuneytisins
Utanrikisráöuneytið er eina
opinbera stofnunin sem ekki þarf
að auglýsa stöður, en þar starfa
nú 32 manns og hjá utanrikisþjón-
ustunni erlendis 56 manns hjá 12
sendiráðum og fastanefndum.
Hefur enda oft þótt órka tv.imælis
um stöðuráðningar á vegum
ráðuneytisins og ekki iaust við að
þar hafi veriö vænlegra aö vera i
réttum flokki hvert sinn en hafa
einhverja sérstaka menntun eða
reynslu.
í gær fóru blaðamenn I enn eina
ráðuneytisheimsóknina, en til
þeirra er boöið I tilefni af 75 ára
afmæli Stjórnarráðs Islands. Að
þessu sinni var utanrikisráðu-
neytiðsótt heim en það er til húsa
I íögreglustööinni við Hverfis-
götu. Var blaöamönnum boðið til
sætis I fundarherbergi varnar-
máladeildar þar sem þeim var
veitt llmonaði meöan Hendrik Sv.
Björnsson kynnti starfsemi ráöu-
neytisins.
Utanrikisráðuneytið tók til
starfa á árinu 1940 þegar tengslin
milli Islands og Danmerkur rofn-
uöu vegna hernáms þjóðverja.
Ráðuneytið hefur með höndum
yfirstjórn utanrikisþjónustunnar
og sér um svo til öll samskipti is-
lenska rikisins við erlend riki.
Meðal þeirra mála sem ráðuneyt-
ið hefur umsjón yfir eru ýmiss
konar samningar við önnur riki,
aö gæta réttinda islendinga og Is-
lenskra hagsmuna erlendis, og
siöast en ekki sist sér ráðuneytið
um framkvæmd varnarsamnings
islands og Bandarlkjanna.
Frskveiðilögsaga og varn-
armál.
Ráöuneytinu er skipt i 4 deildir
sem eru allar undir stjórn ráðu-
neytisstjóra. Hins s.k. almenna
deild fjallar um öll fjármál,
kjaramál og húsnæöismál utan-
rikisþjónustunnar. Upplýsinga-
og menningarmáladeildin sér um
1
Hendrik Sv. Björnsson, ráöuneytisstjóri, Magnús Torfi Ólafsson,
blaðafulltrúi rikisstjórnarinnar og tveir deildarstjórar í utanrikisráöu-
neytinu upplýsa blaðamenn um starfsemi ráðuneytisins.
tengslin við innlenda og erlenda
fjölmiöla eins og nafniö gefur tii
kynna. Þær deiidir sem mest
mæöir á eru vafalaust alþjóða-
deildin og varnarmáladeild utan-
rikisráðuneytisins. Sú fyrrnefnda
sér um pólitisk málefni rikisins út
á viö bæöi gagnvart einstökum
rikjum og alþjóðastofnunum.
Hafa samskipti við erlend riki
vegna fiskveiöilögsögu íslands
verið snar þáttur i starfsemi
þessarar deildar. Varnarmála-
deildin hefur þá sérstööu aö hún
starfar að mestu beint undir
utanrikisráðherra, en hlutverk
hennar er aö fjalla um öll málefni
sem varða herstööina á Keflavik-
urflugvelli og herstöövarsamn-
inginn.
Töluverð hreyfing á
starfsmönnum
1 ráöuneytinu starfa alls 32
manns en i utanrikisþjónustunni
erlendis starfa 56 manns hjá 12
sendiráöum og fastanefndum.
Olikt þvi sem gerist i öörum ráöu-
neytum er töluverö hreyfing á
starfsmönnum utanrikisráðu-
neytisins, þvi þeir eru ýmist viö
störf hér heima eða erlendis.
Framhald á 14. siöu
Rútubíla-
stríö á
Laugar-
vatni
I allan vetur hefur verið háð
strið á Laugarvatni um akstur til
og frá Laugarvatni milli Sérleyf-
isferðar Seifoss og óiafs Ketils-
sonar.
Þannig er nú málum háttað að
Ólafur missti sérleyfið á siöasta
ári og Sérleyfisferð Selfoss fékk
sérleyfið. Var mikið deilt um þá
ráðstöfun, þar sem Ólafur hafði
haft sérleyfið I mörg herrans ár.
En Ólafur var ekki af baki dott-
inn, hann er búinn að láta rútubil-
stjórana sina keyra I allan vetur
milli Reykjavikur og Laugar-
vatns eins og ekkert hafi I skorist.
Eftir þvi sem blaðið kemst næst
styðja flestir ef ekki allir á
Laugarvatni Ólaf I þessari
baráttu, og þar af leiðandi hefur
Selfossbillinn komiö að tómum
kofa. Eftir áreiöanlegum heim-
ildum hefur ólafur ætið fengiö
hópferðarleyfi þangaö til eftir jól,
að honum var synjað um það af
umferöarmáladeild á þeim for-
sendum aö hér væri um hreina
sérleyfisferð að ræöa þar sem
nemendum sé smalaö I rúturnar.
í þvi sambandi haföi blaðiö sam-
band viö einn nemanda á Laugar-
vatni. Hann sagði:
Það er algjör samstaða um að
styðja Ólaf i þessu. Þaö sést best
á þvi, að yfirleitt kemur sérleyfis-
ferð Selfoss hingað tóm og fer
tóm.
Bilstjórar Ólafs keyra þannig
enn og ekki er séð fyrir endann á
þessu striöi milli rútueigenda.
- GG
Smátölvu-
sýning
í dag föstudag kl. 13.15 veröur
opnuð i húsi Raunvísinda- og
ver kfræöideildar Háskóia
islands sýning á smátölvum
sem skýrslutæknifélag íslands
gengst fyrir I samvinnu viö
Reiknistofnun Háskóians og
Verkfræðiskor.
Þarna eru sýnd um 20 kerfi
frá ýmsum umboðsmönnum.
Sýnd eru smátölvukerfi, boðr-
tölvur, tölvur til heimilisnota og
örtölvur með fjölbreyttum
tengiútbúnaöi óg hugbúnaði.
Sýningin er opin til 7 í dag og
13-19 bæði laugardag og sunnu-
dag. Hún er til húsa á jarðhæð i
byggingu 2.
Námsmanna-
handbókin
Ut er komin á vegum Mennta-
málanefndar Stúdentaráös
Háskóians Námsmannahand-
bókin 1979. Fjögur ár eru nú
iiöin siöan bók þessi kom siðast
út, og hefur hún þvi aö geyma
fjölda nýrra upplýsinga um
framhaldsnám bæöi hérlendis
og erlendis. Bókinni er ætlaö aö
gefa nokkra mynd af náms-
möguleikum þeim sem til boöa
standa i dag.
Fjallað er um nám i ein-
stökum námsgreinum innan
Háskólans og einnig nám við
aðra innlenda skóla, t.d.
Kennaraháskólann, Leiklistar-
skólann, Tækniskólann og Fisk-
vinnsluskólann. 1 henni er
fjallað um nám erlendis, bæði
einstök lönd og einstakar náms-
greinar sem eingöngu er hægt
að stunda nám I erlendis. Bókin
fæst f Bóksölu stúdenta, nokkr-
um bókaverslunum og sumum
framhaldsskólum.