Þjóðviljinn - 21.02.1979, Síða 11
Miðvikudagur 21. febrúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
MINNING:
Sveinn Benediktsson,
fr amkvæmdarst j óri
Fæddur 12. maí 1905 -
Dáinn 12. febrúar 1979
Hinn 12. febnlar s.l. lést i
Landakotsspitala Sveinn Bene-
diktsson framkvæmdastjóri, á 74.
aldursári.
Sveinn hafði á siðari árum btiiö
viðskerta heilsuogvar mjög hætt
kominn fyrir allmörgum árum.
Honum tókstþóað sigrast á sjúk-
dómi sinum að mestu, enda
kjarkurinn og viljafestan með
eindæmum. SjúkrahUsvist hans
að þessu sinni var ekki löng og
var banamein hans hjartabilun.
Sveinn Benediktsson var fædd-
ur i Reykjavik 12. mai 1905 og
voru foreldrar hans Benedikt
Sveinsson, ritstjóri Ingólfs og sið-
ar alþingismaður og kona hans
Guðrún Pétursdóttir, bæði þjóð-
kunn að skörungsskap og fyrir af-
skipti sin af félagsmálum og
stjórnmálum.
Benedikt Sveinsson var i
fremstu röð þeirra Islendinga er
iengst og djarfast sóttu fram i
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
Stefna hans var skýr og ótviræð:
,,aö Island sé fyrir Islendinga og
hér búi frjálsir menn í frjálsu
landi”, eins og hann komst sjálfur
að orði, er hann tók viö ritstjórn
Ingólfs, 8. janúar 1905, nokkrum
mánuðum áöur en Sveinn fæddist.
Frá þessu markmiöi hvikaöi
Benedikt Sveinsson aldrei á löng-
um stjórnmálaferli og i andrúms-
lofti þessarar baráttu hlaut
Sveinn mótun sina og uppeldi.
Með Sveini Benediktssyni er
fallinn frá ein svipmesti atorku-
maður okkar samtlðar. Það sóp-
aði að honum hvar sem hann fór
og I tvennskonar skilningi. Hann
var harðsækinn ogumsvifasamur
I atvinnurekstri sinum og allri
þeirri margvislegu umsýslu er
hann hafði með höndum um dag-
ana. Það var sjaldan logn I kring
um hann. Hann var einnig höföi
hærri en allur fjöldinn og sam-
svaraði sér vel og fas hans allt
bar vott um sterkan hug og mikla
viljafestu. Sveinn hlaut þvi hvar-
vetnaaðvekja athygli og eftirtekt
samferöamanna, enda var hann
ótrúlega viða kvaddur til trúnaö-
ar- og forystustarfa.
Starfsvettvangur Sveins Bene-
diktssonar var fyrst og fremst á
sviði atvinnulifsins ogþá sérstak-
lega Isjávarútvegiogfiskvinnslu.
Hann rak lengi eigin fyrirtæki i
útgerðog sildarvinnslu og gegndi
um langt skeið mikilvægum for-
ystustörfum i samtökum útvegs-
manna og fiskframleiöenda. En
honum voru einnig falin um-
fangsmikil og vandasöm opinber
trúnaðarstörf, svo sem stjórnar-
forysta I Sildarverksmiöjum rik-
isins, en I stjórn þeirra sat hann
nær hálfa öld, og formennska i
Útgeröarráöi Bæjarútgeröar
Reykjavikur um langa hrið. Þá
átti hann lengi sæti i SQdarút-
vegsnefnd og fulltrúi á Fiskiþingi
var hann áratugum saman. Hann
var oft kjörinn til samningsgeröa
erlendis um sölu á fiskafurðum
okkar. ötal fleiri trúnaöarstörf-
um gegndi Sveinn, einkum á sviöi
atvinnumála og viðskipta, þótt
þau verði ekki tilgreind hér.
Kynni okkar Sveins Benedikts-
sonar hófust fyrst að marki I út-
gerðarráði Bæjarútgerðar
Reykjavikur, en þar áttum við
samstarf um aldarfjórðungs
skeið. Við vorum þar fulltrúar
andstæðra flokka og að ýmsu
ólikra sjðnarmiða. Ekki varð þvi
alltaf komist hjá ágreiningi og
fyrir kom aö það urðu verulegir
árekstrar. En ekkert slikt var erft
er til lengdar lét, og ég held mér
sé óhætt aö segja að brátt hafi
tekistmeö okkur góður kunnings-
skapur er treystist við nánari
kynni og varð að vináttu.
Sveinn var mikill skapmaður
og ráðrikur nokkuð og hélt jafnan
fast á sinum málstað. Hann var
ekki að eðli eða upplagi afsláttar-
gjarn málamiðlunarmaður þótt
góð greind og löng lifsreynsla
kenndi honum nauösyn sátta og
samkomulags i samstarfi manna.
Hann var mjög hreinn og beinn I
attri afstöðu sinni til manna og
málefna og þáö var fjarri honum
að láta menn gjalda málefnalegs
ágreinings.
1 samstarfinu i Bæjarútgerö
Reykjavikur tel ég mig hafa lært
að meta Svein Benediktsson,
hyggindi hans, stjórnsemi og
drengskap. Hann var sem kunn-
' ugt er mjög eindreginn Sjálfstæð-
isflokksmaður og ákaflega sann-
færður um yfirburöi einkarekst-
urs. Ekki galt þó Bæjarútgerð
Reykjavikur þessa sjónarmiös
formannsins, þótt rekstrarformið
væriannaö en honum var mest að
skapi. Sveinn gegndi formennsk-
unni i útgerðarráði af dugnaöi og
skörungsskap og reyndi að þoka
hagsmunamálum Bæjarútgerð-
arinnar áfram eins og kostur var
og ekki alltaf við hagstæðar að-
stæður.
Eins og kunnugt er var Sveinn
alla ævi mjög virkur þátttakandi I
stjórnmálum. Hann tók óskorað-
an og fullan þátt i mörgum póli-
tiskum orustum uni sina daga og
reyndist áreiðanlega flokki sinum
og hugðarefnum átakamikill og
skapheitur baráttumaður. Ég
man hann þó aldrei einbeittari og
ákafari i sókninni en f lýðveldis-
kosningunum 1944, erveriðvar að
slita siðustu stjórnarfarslegu
tengslin viö Danmörku. Mátti þá
glöggt greina hvar rætur hans
lágu.
Sveinn var ágætlega að sér i
sögu þjóðarinnar og bókmenntum
og átti gott safn vandaðra bóka.
Hann haf öi einkum mikinn áhuga
á fornbókmenntum okkar og öllu
er snerti mannfræðiog ættvisindi.
Hann var hafsjór af fróðleik á
sviöi ættfræðinnar eins og sjá
mátti er hann reit afmælis- eöa
minningargreinar. Af ljóðskáld-
um hygg ég hann hafi metið Ein-
ar Benediktsson mest. Áhugi
hans á sögu var ekki bundinn viö
tsland eitt, hann las einnig mörg
söguleg rit um erlend stjórnmál
og stjórnmálamenn og haföi
mikla ánægju af. Hann skrifaöi
fjölda greina i blöð og timarit,
einkum um atvinnumál og fjár-
mál. Hann var ákaflega kröfu-
harður við sjálfan sig og vandaði
attt er hann lét frá sér fara.
Svo sem nærri má geta um jafii
stórbrotinn mann var Sveinn
höfðingi I lund og greiðasamur.
Var enginn einn og yfirgefinn er
naut stuönings hans og velvilja.
Hann var mjög tryggur vinur sin-
um og umhyggjusamur um hag
þeirra.
Sveinn Benediktsson var ham-
ingjumaöur i sinu einkalifi enda
hefði hann ekki komiö jafn miklu I
verk að öðrum kosti. Hann eign-
aðist mikilhæfa mannkosta-
konu. Helgu Ingimundardóttur,
frá Kaldárholti i Holtum, sem
lifsförunaut, og átti með henni
fjögur mannvænleg börn sem öll
eru uppkomin og hafa stofnað
eigin heimili hér 1 Reykjavik og
Garöabæ. Börnin eru þessi:
Benedikt hæstaréttarlögmaöur,
kvæntur Guðriði Jónsdóttur; Ingi-
mundur arkitekt, kvæntur Sigriöi
Arnbjarnardóttur: Guðrún nús-
freyja, gift Jóni B. Stefánssyni,
verkfræðingi, og Einar. starfs-
maður hjá Sjóvátryggingafélagi
Islands, kvæntur Birnu Hrólfs-
dóttur.
Heimilið sem Helga bjó Sveini
af myndarskap og smekkvisi var
honum ómetanlegur griðastaður
er tóm og hvild gafst frá marg-
þættum skyldustörfum og storm-
viðrum athafnalifs og fram-
kvæmda.
Það er mikill sjónarsviptir að
Sveini Benediktssyni og viða er
nú autt sæti við fráfatt hans. I
fjölskyldu hans er nú mikið skarð
fyrir skildi. Reykjavik er fátæk-
ari og svipminni eftir aö hann er
allur. Svo sterkan svip setti hann
á fæðingarborg sina á atorku-
samri starfsævi.
Nú þegar leiðir skilja vil ég
þakka Sveini Benediktssyni sam-
vinnu og vináttu sem ég á kærar
minningar um. Við hjónin send-
um Helgu, börnum hennar og
fjölskyldunni allri hugheilar sam-
úðarkveðjur. Megi minningin um
mikilhæfan eiginmann og föður
veröa þeim öllum harmabót og
hugarléttir I þeim stóra missi er
þeim hefur að höndum borið.
Guðmundur Vigfússon.
Hörður Sigurgestsson
formaður Stjómunarfélagsins
Aðalfundur Stjórn-
unarfélags fslands var
haldinn að Hótel Sögu
fimmtudaginn 8.
febrúar s.l.. í skýrslu
stjórnar kom fram að
starfsemi félagsins
efldist mikið á liðnu ári
og fjárhagsleg afkoma
þess varð mjög góð.
Hörður S ig u r g e s t s so n
framkvstj fjármálasviös Flug-
leiða var kosinn formaður félags-
iis, en aðrir i stjórneru: Sigurður
R. Helgason framkvæmdastjóri
— varaformaöur, Björn Friö-
finnsson fjármálastjóri — ritari,
Ragnar Kjartansson fram-
kvæmdastjóri — gjaldkeri.
Meöstjórnendur eru: Asmundur
Stefánssonlektor, JakobGislason
fv. orkumálastjóri, ólafur B.
ólafsson forstjóri, Óskar H.
Gunnarsson framkvæmdastjóri
og Steinar Berg Björnsson fram-
kv æmdast jóri.
A aöalfundinum voru kjörnir i
framkvæmdaráð félagsins:
Erlendur Einarsson forstjóri,
Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson for-
stjóri, Guðmundur Einarsson
framkvstj., Haraldur Stein-
þórsson framkvæ mdast j.,
Haukur Björnsson framkvstj.,
Jón Sigurðsson forstjóri, Jón H.
Bergs forstjóri, Kristján Sigur-
geirsson forstjóri, Otto A. Michel-
sen forstjóri, Ragnar S. Halldórs-
son forstjóri, Snorri Jónsson
framkvæmdastj. og Sveinn
Björnsson forstjóri.
Fyrirlestiir í kvöld kl. 20:30
Prófessor
MATTI KLINGE^
frá Helsinki-háskóla: „Om centrum och
periferi i Finlands och Sveriges historia”.
Verið velkomin NORRÆNA HÚSIO
Sjúkrahús
Neskaupstað
Tilboð óskast i að fullgera sjúkrahúss-
bygginguna i Neskaupstað.
Nú þegar er lokið múrhúðun, hitalögn
tengd, vatns- og skolplagnir frágengnar
að tækjum og loftræsistokkar uppsettir að
mestu.
Verkinu skal skila i þrem áföngum. Verk-
lok eru áætluð 15. nóv. 1981.
Útboðsgögn verða afhent gegn 25.000.- kr.
skilatryggingu á skrifstofu vorri, Borgar-
túni 7, Rvk. og ennfremur hjá sjúkrahúss-
ráðsmanni, Neskaupstað.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri
þriðjudaginn 3. april 1979, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Kvenfélag sósíalista
Fundur
fimmtudaginn 22. febrúar 1979 kl. 20,30 i
MlR-salnum Laugavegi 178.
Fundarefni:
1. Félagsmál
2. Sagt frá fræðslustarfi verkalýðshreyf-
ingarinnar.
Stefán ögmundsson formaður MFA.
3. önnur mál.
Stjórnin
1 x 2 — 1 x 2
26. leikvika — leikir 17. febrúar 1979
Vinningsröð: XXX — XII—2XX —222
1. vinningur: lOréttir —kr. 208.000.-
510+ 32746 33030+ 36992 +
2.vinningur: 9réttir — kr. 17.800.-
2288 5569+ 31418 32960+ 33679 36572 55134
3549 6581(2/9) 32046 32968+ 35699 36598
5089 7648 32415 33174 36106 42411
Kærufrestur er til 12. mars kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum
og á aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef
kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafniausra seöla ( + ) verða aö framvisa
stofni eða senda- stofninn og fullar upplýsingar um nafn
og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin
_ REYKJAVÍK