Þjóðviljinn - 20.11.1979, Qupperneq 5
ÞriOjudagur 20. nóvember 1979 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 5
(aupmannahöfn:
Borgar-
yfirvöld
hætta við
notkun
epoxy
Kaupmannahöfn
(Information)
Borgaryfirvöld i Kaup-
mannahöfn hafa ákveöiO aö
hætta viö notkun epoxy-
efnisins til að húöa ker i nýju
hreinsunarstöðinni Lynett-
en. Jafnframt hefur Sam-
band danskra bygg-
ingarmanna aflýst verkfalli i
hreinsunarstöðinni.
Verkfall byggingarmanna
hefur staðið i tvo mánuði og
var krafan sú, að hætt væri
við notkun epoxy. Danski
Félagsdómurinn hafði úr-
skurðað verkfallið ólöglegt
og dæmt verkalýðssamtökin
i sektir. Þau héldu verkfall-
inu samt sem áður áfram, og
var vinna ekki enn hafin
fyrir helgina. Borgaryfirvöld
stóðu þvi frammi fyrir þeim
valkosti, að láta lögreglu
rjúfa verkfallið, eða að hætta
við áform um að nota epoxy-
efnið.
Talið er að borgaryfirvöld
hafi verið trauð til að sæta
þeim ákúrum að hafa neytt
verkamenn i lögreglufylgd
til að vinna með krabba-
meinsvaldandi efni.
Opinberlega skýringin á
eftirgjöf borgaryfirvalda er
að athuganir hafi leitt i ljós,
að hægt sé að nota önnur efni
en epoxy, til að loka yfirborði
keranna i hreinsunarstöð-
inni.
Samningaviðræðum Sam-
bands byggingarmanna og
borgaryfirvalda um lausn á
Lynetten-deilunni, er ekki að
fullu lokið, en verkfallinu var
aflýst þegar borgaryfirvöld
féllust á að hverfa frá notkun
epoxy.
Gífurlegar
oliubirgðir í
jörðu i Sovét
Malmö, Sviþjóð (Reuter)
Olíuauðlindir Sovétríkj-
anna eru tvöfalt meiri en
talið hefur verið á Vestur-
löndum/ og nær því jafn-
miklar og olíuforði Saudi-
Arabiu/ segir í rannsókn-
arniðurstöðum sænskra
sérfræðinga sem birtar'
voru í gær.
Sænsku sérfræðingarnir sögðu
að fundnar hráoliubirgðir i jörðu i
Sovétrikjunum hafi árið 1978 ver-
iö 150 miljarðar tunnumála, eða
fjórfalt meiri en oliubirgðir i
Bandarikjunum og aðeins minni
en birgðir Saudi-Arabiú, sem
taldar eru 160 miljarðar tunnu-
mála.
Sænska ráðgjafarfyrirtækið
Petrostudies, sem hefur sérhæft
sig á sviði sovésks oliu- og gas-
iðnaðar, segir að þessar niöur-
stöður gjörbreyti myndinni af
oliubirgðum heimsins. Segir
fyrirtækiö að rannsakaðar hafi
verið allar opinberar sovéskar
skýrslur varðandi oliumál sem
komið hafa út undanfarin 20 ár.
„Sovétrikin hafa visvitandi gefið
til kynna mikið minni oliubirgðir i
jörðu, en raun er á. Það er þvi
mjög óliklegt að Sovétrikin muni
þurfa á oliuinnflutningi að halda á
næstu 10 árum. Þvert á móti vilja
sovésk yfirvöld auka útflutning —
einkum unninna oliuafurða — til
Vesturlanda, til að eignast er-
lendan gjaldeyri til kaupa á
iðnaðarvörum, tækni og land-
búnaðarafuröum”.
Sovétrikin eru mesti oliufram-
leiöandi heimsins, og hafa verið
frá árinu 1974. Þau framleiða nú
11,9 miljón tunnumál á dag og
flytja út þriðjung framleiðslunn-
ar, segir i sænsku skýrslunni.
DANSKUR ÞINGMAÐUR:
Yill láta banna epoxy
89 efni i dönskum efnaiönaði talin valda krabbameini
Borgarvfirvöld Kaupmannahafnar beygðu sig fvrir Sambandi danskra
byggingarmanna og hverfa frá notkun hins hættulega epoxy-efnis.
Epoxy er eitt af hættu-
legustu efnunurri/ og þaö
ætti aö banna notkun þess
algjörlega, sagði danski
þingmaðurinn og vinnu-
verndarsérfræöingurinn
Magnus Demsitz í viðtali
viö danska dagblaðið
Information s.l. föstudag.
Magnus Demsitz er einn af
fulltrúum danska Alþýðusam-
bandsins i danska Vinnuverndar-
ráðinu. Kveðst hann munu tjá
þessa afstöðu sina til notkunar
epoxyá fundi Vinnuverndarráðs-
ins i þessum mánuði. 1 viðtalinu
segir Magnus að rannsóknir hafi
þegar sannað eða leitt sterkar lik-
ur að þvi að 89 efni sem notuð eru
i efnaiðnaði, valdi krabbameini.
Þeirra á meðal er epoxy.
Danski þingmaðurinn segir að
sumir muni svara að það sé hægt
að nota varúðarráðstafanir til að
hlifa starfsmönnum við áhrifum
þessara efna. En hann svarar þvi
til að það sé ekki hægt að ætlast til
að menn vinni i 8 klukkustundir á
dag klæddir eins og geimfarar.
Hann vill láta útiloka algjörlega
sum efni, en setja mjög strangar
öryggisreglur um önnur, t.d. að
menn vinni i hæsta lagi eina til
tvær klukkustundir með efni, sem
vitað er að séu hættuleg. Jafn-
framt séu framleiðendur hvattir
til að leita að hættuminni efnum
til notkunar i efnaiðnaðinum.
Magnus Demisitz segist ekki
efast um, að aukning krabba-
meinsdauðsfalla i iðnrikjunum,
sé nátengd stóraukinni notkun
krabbameinsvaldandi iönaöar-
efna. Hann segir að það sé aug-
ljóslega þjóðfélaginu til hagsbóta
að stórauka vinnuvernd, m.a.
með þvi að taka fyrir notkun
slikra efna.
Samband danskra byggingar-
manna mun á næstunni gangast
fyrir rækilegri kynningu á niður-
stöðum bandarisku rannsóknar-
innar á krabbameinsáhrifum
epoxy, en þær birtust i banda-
riska timaritinu Canccr Research
i mai 1979. Einnig segir Samband
byggingarmanna, að i ljós hafi
komið að öryggisreglur um notk-
un epoxy séu alls ófullnægjandi.
Hópur visindamanna við Kaup-
mannahafnarháskóla hafi með
tilraunum nýlega sannaö að
epoxyæfnið fari i gegnum þá
hanska sem danskir verkamenn
hafa notað á einni til þrjátiu
minútum.
FRAMBOÐSLISTAR
í Reykjaneskjördæmi til alþingiskosninga í des. 1979
A-listi Alþýðuflokksins
1. Kjartan Jóhannsson, ráðherra, Jófríðarstaðarvegi 11, Hafn-
arf irði.
2. Karl Steinar Guðnason, fyrrv. alþ. maður. Heiöarbrún 8,
Kef lavík.
3. Olafur Björnsson, útgerðarmaður, Drangavöllum 4, Kefla-
vik.
4. Guðrún H. Jónsdóttir, bankamaður, Digranesvegi 40, Kópa-
vogi.
5. Ásthildur Ölafsdóttir, skólaritari, Tjarnarbraut 13, Hafnar-
f irði.
6. örn Eiðsson, fulltrúi, Hörgslundi 8. Garðabæ.
7. Ragnheiður Rikharðsdóttir, húsmóðir, Byggðaholti 49, Mos-
fellssveit.
8. Jórunn Guðmundsdóttir, húsmóðir, Hliðargötu 31, Sand-
gerði.
9. Gunnlaugur Stefánsson, fyrrv. alþ. maður, Austurgötu 29,
Haf narf irði.
10. Emil Jónsson, fyrrv. ráðherra, Hrafnistu v/Skjólvang,
Haf narf irði.
B-listi Framsóknarflokksins
1. Jóhann Einvarðsson, bæjarstjóri, Norðurtúni 4, Keflavik.
2. MarkúsA. Einarsson, veðurf ræðingur, Þrúðvangi 9, Hafnar-
f irði.
3. Helgi H. Jónsson, fréttamaður, Engihjalla 9, Kópavogi.
4. Þrúður Helgadóttir, verkstjóri, Alafossvegi 20 a, Mosfells-
sveit.
5. Öiaf ur Vilhjálmsson, leigubif reiðarstjóri, Bólstað, Garðabæ.
6. Bragi Arnason, prófessor, Auðbrekku 1, Kópavogi.
7. Sigurður Jónsson, bif reiðarstjóri, Melabraut 57, Seltjarnar-
nesi.
8. Unnur Stefánsdóttir, fóstra, Kársnesbraut 99, Kópavogi.
9. Kristin Björnsdóttir, húsfreyja, Selsvöllum 22, Grindavik.
10. Margeir Jónsson, útgerðarmaður, Háaleiti 19, Keflavik.
D-listi Sjálfstœðisflokksins
1. Matthias A. Mathiesen, fyrrv. alþm., Hringbraut 59, Hafnar-
f irði.
2. Olaf ur G. Einarsson, f yrrv. alþm., Stekkjarf löt 14, Garðabæ.
3. Salóme Þorkelsdóttir, gjaldkeri, Reykjahlið, Mosfellssveit.
4. Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri, Miðbraut 29, Seltjarnar-
nesi.
5. ArndisBjörnsdóttir, kennari, Sunnuflöt 14, Garðabæ.
6. Ellert Eiríksson, verkstjóri, Langholti 5, Keflavík.
7. Helgi Hallvarðsson, skipherra, Lyngheiði 16, 'ilópavogi.
8. Bjarni S. Jakobsson, form. Iðju fél. verksmiðjufólks, Asbúð
13, Garðabæ.
9. Eirikur Alexandersson, bæjarstjóri, Heiðarhvammi 12,
Grindavik.
10. Oddur ölafsson, læknir, fyrrv. alþm., Hamraborg, Mosfells-
sveit.
G-listi Alþýðubandalagsins
1. Geir Gunnarsson, fyrrv. alþingismaður, Þúfubarði 2.
Haf narf irði.
2. Benedikt Davíðsson, trésmiður, Vighólastlg 5, Kópavogi.
3. Védís Elsa Kristjánsdóttir, oddviti, Holtsgata 4, Sandgerði.
4. Albína Thordarson, arkitekt, Reynilundur 17, Garðabæ.
5. Jóhann Geirdal Gíslason, kennari, Faxabraut 34 c, Kef lavik.
6. Bergþóra Einarsdóttir, oddviti, Melagerði Kjalarnesi.
7. Helga Enoksdóttir, verkamaður Heiðarhraun 20, Grindavik.
8. Þorbjörg Samúelsdóttir, verkamaður, Skúlaskeiði 26.
Haf narf irði.
9. Auður Sigurðardóttir, verslunarmaður, Bergi Seltjarnarnesi.
10. Gils Guðmundsson fyrrv. alþingismaður, Laufásvegi 64,
Reykjavik.
Q-listi Sólskinsflokksins
1. Stefán Karl Guðjónsson (8342-9534), f. 19-02-1959, nemi,
Vallartröð 2, Kópavogi.
2. Valgarður Þórir Guðjónsson (9088-3992), f. 08-02-1959, nemi,
Viðihvammi 27, Kópavogi.
3. Tómas Þór Tómasson (8904-8990), f. 16-08-1959, blaðamaður,
Hraunbraut 20, Kópavogi.
4. Jón Orri Guðmundsson (5135-7892), f. 23-01-1959, nemi, Víði-
hvammi 19, Kópavogi.
5. Barði Valdimarsson (0972-7493), f. 02-04-1959, nemi, Sel-
brekku 1, Kópavogi.
6. Bjarni Sigurðsson (1231-2059), f. 04-09-1958, nemi, Fögru-
brekku 41, Kópavogi.
7. Björn Ragnar Marteinsson (1345-2431), f. 20-03-1957, nemi,
Ægisstíg 5, Sauðárkróki.
8. Einar Guðbjörn Guðlaugsson (1805-7131), f. 21-05-1959, nemi,
Vallartröð 8, Kópavogi.
9. Gunnar Valgeir Valgeirsson (3395-1434), f. 06-09-1957, nemi,
Hátúni 5, Keflavik.
10. Daniel Helgason (1566-6714), f. 24-04-1959, nemi, Esjubraut
26, Akranesi.
HAFNARFIRÐI 8. NÓV. 1979
Yfirkjörstjórn Reykjaneskjördœmis
Guðjón Steingrimsson Vilhjálmur Þórhallsson páll ólafsson
Þormóður Pálsson Björn Ingvarsson