Þjóðviljinn - 20.11.1979, Qupperneq 11
Þriðjudagur 20. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
íþróttir í/m íþróttirbM íþróttir
v J R Umsjón: Ingólfur Hannesson V J
Víkingarnir ósigrandi?
Víkingur sigraði Hauka örugglega i fyrsta „stórleik” vetrarins f
handboltanum, 25-17. Sigur Vikinganna var nokkuö öruggur allan tim-
ann og virðist nú vera að koma upp sú staða að Vikingur sé að ná upp
algjöru vfirburðaliði í islenskum handknattleik. Það kemur væntan-
lega i ljðs á næstu vikum.
Steinar skoraði fyrsta mark
þessa leiks fyrir Vikingana, 1-0 og
fljótlega fylgdu 2 önnur i kjölfar-
ið, 3-0. Vikingur hélt siðan foryst-
unni næstu minúturnar, 5-3, 7-5 og
um miðbik hálfleiksins hafði
Haukum tekist að jafna 7-7. Aftur
var jafnt skömmu seinna, 8-8, en
Vikingunum tókst að ná 2 marka
forskoti fyrir hálfleik, 11-9.
Arni og Steinar skoruðu siðan 2
fyrstu mörk seinni hálfleiks fyrir
Viking, 14-10. „Þá er þessi leikur
búinn,” skaut landsliðsþjálfarinn
Jóhann Ingi að undirrituðum.
Yfirburðir Vikinganna jukust
enn, 17-12, 21-14 og þegar upp var
staðið hafði Vikingur unnið stór-
sigur, 25-17.
Haukarnir reyndu nú leikkerfi i
þessum leik og tókst framkvæmd
þeirra bærilega framanaf. Siðan
fór að bera mjög á ýmsum mis-
fellum og^voru sumir leikmanna
með hugann svo rigbundinn við
„kerfiil”áð þeir gleymdu að gripa
boltann. Þá fannst mér það koma
mikiö niöur á leik þeirra að
Andrés Kristjánsson, sá harð-
skeytti linumaður, var látinn
leika fyrir utan.
Vikingarnir léku mjög vel að
þessu sinni, einkum var
skemmtilegt að sjá til þeirra i
seinni hálfleik þegar yfirburða-
stöðunni var náð. Kerfisbundinn
leikur þeirra býður oft upp á mun
fleiri möguleika en „kerfið” eitt
segir til um. Þegar lið er farið að
geta nýtt sér þá möguleika má
segja að það sé oröið illsigrandi,
einkum ef varnarleikurinn er i
góðu lagi, eins og hjá Vikingum. I
annars jöfnu liði Vikings bar mest
á Arna, Steinari og Þorbergi.
Mörk Vikinganna skoruðu:
Steinar 7, Arni 6/4, Þorbergur
4/1, Páll 3, Ólafur 2, Erlendur 1,
Sigurður 1 og Guðmundur 1.
Fyrir Hauka skoruðu: Hörður
6/4, Stefán 2, Sigurgeir 2, Andrés
2, Arni 3, Þorgeir 1 og Ingimar 1.
Sigurkarfan skoruð
á síðustu sekúndunni
Þegar UMFN sigraði Val 88:87 1 úrvalsdeildinni
Kristján Agústsson, Val.. var
hreint óstöðvandi i Njarðvik á
laugardaginn og skoraði 30 stig.
„Ég var i mjög góðu færi undir
körfunni þegar boltinn barst til
min og það var ekki miklum
vandkvæðum bundið að biaka
boltanum i körfuna. Um leið og
knötturinn hafnaði þar gall við
merki þess að leiknum væri
lokið,” sagði Gunnar Þorvarðar-
son Njarðvikingur eftir sigurleik
UMFN gegn Vai á iaugardaginn,
88-87. Mikil rekistefna varð siöan
út af þvi hvort karfan sem
Gunnar skoraði i lokin væri gild
eöa ekki. Það tók dómarana,
Sigurð Val og Þráin, rúmar 15
min, að kveða upp úrskurð sinn.
Þegar hann loksins kom var hann
á þá lund að karfan skyldi gilda
og þar með sigur UMFN.
Leikur liðanna var nokkuð
sveiflukenndur i fyrri hálf-
leiknum. UMFN tók forystuna 16-
10, en Valur var ekki lengi að
jafna og komast yfir 22-16.
Njarðvikingar náðu
undirtökunum enn, 33-32 og 37-36,
en Valur hafði yfir i hálfleik 46-41.
Yfirburðir Valsmenna héldu
áfram að aukast i seinni
hálfleiknum og munurinn varð
mestur 13 stig 60-47. Þá byrjuðu
Njarðvikingarnir að saxa smátt
og smátt á forskotið, 70-67 og á 18.
min höfðu þeir jafnað, 78-78.
Valur náði forystunni aftur, 84-78
og 87-82. Þá voru 48 sek til
leiksloka. Jónas og Guðsteinn
skoruðu siðan fyrir UMFN, 87-86.
Valsmenn misstu boltann vegna
stifrar pressu UMFN og á siðustu
sekúndunni tókst Njarö-
vikingunum aö tryggja sér
sigurinn 88-87.
Kristján og Torfi voru yfir-
burðamenn i liöi Vals, en þeir eins
og aðrir leikmenn liðsins léku vel
á köflum, en gerðu sig seka um
ljótar villur þess á milli.
Arni Indriðason átti góðan leik
gegn Haukum og skoraði 6 falleg
mörk.
Gunnar, Guðsteinn og 'l’ed voru
atkvæðamestir i liöi UMFN.
Stigahæstir Valsmanna voru
Kristján 30, Torfi 21 og Dwyer 12.
Fyrir UMFN skoruðu mest Ted
33, Gunnar 22 og Guðsteinn 18.
Úr einu í annað
Öruggur sigur FH
FH sigraði HK i hörkuleik i
■ 1. deild handboltans i Hafnar-
Ifirði á laugardaginn. Þetta
var hörkuleikur i orðsins
fyllstu merkingu þvi sumir
• leikmanna, áhorfenda og for-
Iráðamanna félaganna áttu
erfitt með að hemja sig.
FH-ingarnir sigruðu 23-17
■ eftir að staðan hafði verið 11-9
Iþeim i vil i hálfleik. Pétur
Ingólfs og Kristján skoruðu 5
mörk hvor fyrir FH, en Ragn-
■ ar 8/6 var markahæstur HK-
manna.
Valur og Fram
sigruðu
Tveir leikir voru i 1. deild
kvenna um helgina. Valur
sigraði FH örugglega 21-17.
Valur va’r.yfir i hálfleik 11-9. I
hinum leiknum sigraði Fram
Viking 18-11, einnig öruggur
sigur.
Laugdælir á toppnum
Laugdælir halda sæti sinu á
toppi 1. deildar blakmanna, en
um helgina sigruðu þeir Stú-
denta 3-1 (14:3, 15:9, 9:15 og
15:9). Stúdentarnir voru aftur
á ferðinni kvöldið eftir og töp-
uðu þá fyrir Vikingum nokkuð
óvænt 2-3 (15:12, 15:10, 11:15,
8:15 og 16:14). Vikingur sigr-
aði einnig I kvennaflokki i leik
þessara liða 3-2.
Liverpool að ná
yfirburðastöðu
Englandsmeistarar Liver-
pool skutust upp á topp ensku
l.deildarinnar um helgina eft-
ir góðan sigur gegn Totten-
ham, 2-1. Terry McDermott
_ skoraði bæði mörk Liverpool.
^ A sama tima gerðu Man. Utd.
og Crystal Palace jafntefli 1-1
(Swindlehurst-Jordan) og
Nott. Forest tókst að tapa á
heimavelli gegn hinu slaka liði
Bristol 0-1.
Úrslit leikja 1. deildar urðu
þessi:
Arsenal-Everton 2-0
Aston Villa-Stoke 2-1
Bolton-Manchester C 0-1
Derby-Ipswich 0-1
Leeds-WBA 1-0
Liverpool-Tottenham 2-1
Manchester U-Crystal P 1-1
Middlesb-Bristol C 1-0
Norwich-Southampton 2-1
Nott. For.-Brighton 0-1
Wolves-Coventry 0-3
Staða efstu liða 1. deildar er
nú þannig:
Liverpool 15 8 5 2 32-12 21
ManchUtd 16 8 5 3 20-11 21
Crystal P 16 6 8 2 23-15 20
Nott For 16 8 3 5 26-18 19
KR-UMFN i kvöld
Stórleikur verður i úrvals-
deildinni i körfuknattleik i
kvöld þegar KR og UMFN eig-
ast við i Laugardalshöllinni.
Leikurinn hefst kl. 20.
KR-ingarnir eru með ýmis-
legt til skemmtunar auk
leiksins t.d. mun Hljómplötu-
útgáfan kynna nýjustu is-
lensku plötur sinar, 3 fram-
boðsgarpar úr hverjum flokki
verði heiðursgestir og reyna
e.t.v. með sér i vitakeppni.
Semsagt, fjör i Höllinni i
kvöld.
Jóhannes skoraði
Jóhannes Eövaldsson skor-
aði mark i leik sinum meö Cel-
tic um helgina, en þá sigruðu
þeir Hibs, 3-0. Arnór og félag-
ar hjá Lokeren sigruðu 10-1 i
sinum leik um helgina, en
Standard gerði jafntefli á úti-
velli 1-1.
Stórkostlegur lelkur KR
færði þeim stórsigur gegn IR
„Þegar að lið vinnur eins
stóran sigur og við gegn tR-ing-
unum er ljóst að góð þjálfun er
undirstaðan. Þá er mórailinn hjá
okkur frábær, við vinnum saman
eins og ein iiðsheild og allir eru
virkir,” sagði KR-ingurinn ungi
Agúst Llndal sem átti sannkallað-
an stórleik þegar KR sigraði ÍR i
úrvarsdeildinni I körfuknattleik á
sunnudaginn 102-69. Þetta er
mesti munur á þessum tveimur
stórveldum i leik sem undir-
ritaður man eftir.
Aðeins var jafnræði með liðun-
um rétt i upphafi leiksins, 4-4, en
siðan tóku Vesturbæingarnir
völdin i sinar hendur smátt og
smátt, 10-4, 16-8, 22-14, og 28-22.
Þegar hér var komið sögu náðu
KR-ingarnir stórglæsilegum leik-
kafla, skoruðu hverja körfuna á
fætur annarri án svars frá IR og
munurinn jókst jafnog þétt, 41-24,
24.1 hálfleik var staðan 49-30 fyrir
KR.
I seinni hálfleiknum héldu KR-
ingarnir yfirburðum sinum án
mikillar fyrirhafnar, 55-34, 63-40
ogum miðbik hálfleiksins var allt
byrjunarlið þeirra komið útaf,
einnig Jón og Jackson. Vara-
mennirnir héldu siðan áfram þar
sem frá var horfið, 69-48, 78,-54 og
91-68. Undir lokin hljóp mikið
kapp i Vesturbæingana, þeir
ætluðu sér að ná 100 stigum og
það tókst með glæsilegum enda-
spretti, 102-69.
IR-ingarnir hafa vart i annan
tima leikiö verren ijjessum leik.
Það var sama hvað þeir reyndu
fæst af þvi tókst. Ekki er vafi á
þvi að stóran þátt i lélegum leik
þeirra áttu vægast sagt furðuleg-
ar innáskiptingar, sem virtust
fremur miða við aö sem flestir
spiluöu heldur en að sterkasta lið-
iðléki hverju sinni. Hvað um það,
nú er ekkert annað að gera fyrir
IR-inga en að setjast niður, ræða
málin og sniða siðan agnúana af.
Frábær svæðisvörn KR-ing-
anna var undirstaða stórsigurs
þeirra að þessu sinni. Þar voru
allir mjög virkir og menn fljótir
að „falla inni” eins og það heitir á
fagmálinu. 1 sókninni gekk þeim
flest i haginn og var skotanýting-
in með eindæmum góð og var
nánast sama hver i hlut átti. Jón
var samkvæmt venju yfirburða-
maður á vellinum, hann hefur
sennilega aldrei verið betri. Þá
kom mjög á óvart geysigóður
leikur Agústar Lindal, hans lang-
besti með KR. Allir 10 leikmenn
KR skoruðu i leiknum og segir
það meira en mörg orð um
breiddina i liðinu.
Stig IR-inga skoruðu: Jón Jör
18, Mark 17, Kristinn 14, Kolbeinn
8, Guðmundur 6, Erlendur 4 og
Stefán 2.
Fyrir KR skoruðu: Jón 23,
Agúst 19, Geir 12, Garðar 10,
Jackson 10, Birgir 8, Arni 8,
Gunnar 8, Þröstur 2 og Eirikur 2.
P
Valsarar sterkari í lokin
HeljarmikiII og góður enda-
sprettur hjá Valsmönnum færði
þeim sigur gegn Frain i 1. deild
handboltans um helgina.
Framararnir höfðu undirtökin
lengst af en misstu af lestinni i
iokin og máttu sætta sig við 3
marka tap 16-19.
Fram tók forystuna þegar i
upphafi leiksins, 4-2 og héldu
henni til loka fyrri hálfleiks, 8-4
og 10-7. I seinni hálfleiknum virt-
ist allt stefna i sigur Framar-
anna, 13-10, en Valsmenn sigu á
undir lokin, ásamt þvi að leikur
Fram varð fálmkenndari með
hverri minútunni sem leið. Þegar
upp var staðið að leikslokum
höfðu Islandsmeistarar Vals sigr-
að með 19 mörkum gegn 16.
Markahæstir Valsmanna voru
Jón 6, Þorbjörn G. 5/3 og Brynjar
4/1. Andrðs skoraði langflest
mörk Framara eöa 7 talsins.
Johnson skoraði 71 sdg gegn ÍS
Bandariski þjálfarinn
Framara í körfuboltanum gerði
sér lítið fyrir á laugardaginn og
skoraði 71 stig i leik gegn
Stúdentum og er það að sjálf-
sögðu nýtt stigamet. Fram
sigraði i ieiknum 104-92.
Framararnir höfðu undirtök-
in allan leikinn, 13-2, 54-46 i hálf-
leik, 78-67, 90-75 og loks 104-92.
Eins og nærri má geta var
Johnson yfirburðamaður á vell-
inum i þessum leik, en auk hans
áttu Simon og Björn M. góðar
rispur. I liði IS skaraði enginn
verulega framúr.
Johnson skoraði 71 stig fyrir
Fram og næstur honum kom
Simon með 15 stig. Smock var
stigahæstur Stúdentanna með 44
stig, Jón skoraði 15 og GIsli 14.