Þjóðviljinn - 29.11.1979, Side 7
Fimmtudagur 29. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
„ Undir
kalstjömu”
uppseld
Bókin Undir kalstjörnu eftir
Sigurö A. Magnússon er nú upp-
seld þó að ekki sé enn kominn
desember. Upplagið var 3000 ein-
tök en nú er verið að prenta önnur
3000 eintök. Þess skal getið að 1
fyrradag áritaði Sigurður A.
Magnússon bókina i bókabúð
Máls og menningar gegn frjálsu
framlagi i Málfrelsissjóð og árit-
aði hann á 3. hundrað eintök.
-GFr.
Stjörnu-
syrpa í
matvöru-
búðum
Steinar hf. hafa endurútgefið
sex piötur undir nafninu
„Stjörnusyrpa.” Þessar hljóm-
plötur eru: „Þegar mamma var
ung” með Diddú og Agii, „Látum
sem ekkert C” með Halla, Ladda
og Gisla Rúnari, „Sturla” Spii-
verks þjóðanna, „Fagra veröld”
með Sigfúsi Halldórssyni og
Guðmundi Guðjónssyni, „Ævin-
týri Emils I Kattholti” og „Jóla-
stjörnur.”
Verði þessara platna er mjög
stillt i hóf. Hvert eintak kostar
aðeins 4900 krónur, sem er hálf-
virði nýrra platna.
, ,St jörnuspy rpu”-plöturnar
veröa á boðstólum um land allt.
Þær verða ekki aðeins seldar i
hljómplötuverslunum, heldur
einnig i stórum matvöruversl-
unum.
—eös
i / uujuui nu& u
kapprœðufundi
Troðfullt hús var á kappræðu-
fundi Æskulýðsnefndar Alþýðu-
bandalagsins og Heimdallar I
Sigtúni I fyrrakvöld. Mikii stemn-
ing var i salnum og óspart
klappað, púað, gripið fram I og
hlegið. Var þvi fundurinn i góðum
og gömlum stil.
Kappræðumenn af hálfu ÆnAb
voru þau Svavar Gestsson, ólafur
Ragnar Grimsson, Guðrún
Agústsdóttir og Sigurður Tómas-
son en af hálfu Heimdallar lög-
fræðingarnir Haraldur Blöndal,
Davið Oddsson, Jón Magnússon
og Friðrik Zophusson.
Fulltrúar Alþýðubandalafesins
lögðu mest kapp á að sýna fram á
þær geigvænlegu afleiðingar sem
leiftursókn Sjálfstæðisflokksins
gegn lifskjörum hefði fyrir launa-
fólk og atvinnulif i landinu ef
hann yrði leiddur til valda I
kosningunum. Heimdellingar
lögðu hins vegar mesta áherslu á
aulafyndni og útúrsnúninga eins
og þeim er sérstaklega lagið.
Ekki mátti á milli sjá hvort
Heimdellingarnir eða stuðnings-
menn við málstað Alþýðu-
bandalgsins voru fleiri á
fundinum.
Kappræðumenn af hálfu ÆnAb voru Svavar Gestsson, Ólafur Ragnar
Grimsson, Sigurður Tómasson og Guðrún Agústsdóttir. Þau lögðu kapp
á að skýra þær geigvæniegu afleiðingar sem ieiftursókn Sjálfstæðis-
flokksins hefði fyrir launafólk og atvinnulif (Ljósm.: eik).
Frá Heimdalli mættu fjórir lögfræðingar eins og búast mátti við: Jón
Magnússon, Davið Oddsson, Haraldur Blöndal og Friðrik Sophusson.
(Ljósm.: eik)
Fyrsta plata Mezzoforte:
Fyrsta alíslenska
djassrokk-platan
Hljómsveitin Mezzoforte hefur
leikið inn á sina fyrstu hljóm-
plötu, sem Steinar hf. hafa gefið
út. Þetta er jafnframt fyrsta alis-
lenska djassrokkplatan sem út
kemur. Allt efni plötunnar er
frumsamið, sumt sérstaklega
fyrir þessa plötu.
Friðrik Karlsson og Eyþór
Gunnarsson sömdu megnið af
tónlistinni. Eitt lag er eftir Stefán
Stefánsson og annað eftir Gunnar
Þórðarson. Hljómsveitin bræddi
svo eitt lag á plötunni saman i
einskonar hópvinnu.
Félagarnir i Mezzoforte eru
Friðrik Karlsson gitarleikari,
Eyþór Gunnarsson hljómborðs-
leikari, Jóhann Ásmundsson
bassaleikari, Gunnlaugur Briem
trommuleikari og Stefán Stefáns-
son saxófónleikari. Stefán hefur
hinsvegar ekki leikið með hljóm-
sveitinni að undanförnu, en Björn
Thorarensen er nú fimmti með-
limur hljómsveitarinnar.
Hljóðritun plötunnar fór fram i
Hljóðrita i Hafnarfirði undir
stjórn Gunnars Þórðarsonar og
Mezzoforte. Upptökumaður var
Gunnar Smári Helgason. Aðstoð-
armenn voru Magnús Kjartans-
son, Andrés Helgason og Kristinn
Svavarsson. Pétur Halldórsson
hannaði plötuumslag og ljós-
myndir tóku Gunnar Hannesson
og Kristinn Ragnar Kristinsson.
-eös
Hótelstjórinn á Hótel Sögu:
Opnar einkapóst
til starfsfólksins
t mars s.I. voru settar húsregl-
ur fyrir starfsfólk á Hótel Sögu og
i 15. grein segir orðrétt: „Allur
póstur sem berst til hótelsins,
annar en tii gesta,er opnaður og
er þvi starfsfólki bent á að láta
ekki senda póst ef um einkamál
er að ræða”. Þjóðviljinn hafði
samband við tvo hæstaréttarlög-
menn i gær, og sögðu þeir báðir
að það væri afdráttarlaust óiög-
legt að opna bréf sem stiluð eru á
einkaaðila.
Konráð Guðmundsson hótel-
stjóri á Hótel Sögu sagði,að þetta
hefði verið sett inn i húsreglur
vegna þess að honum hefði borist
kvörtun i haust út af opnun bréfs
og væri þaö önnur kvörtunin sem
hann hefði fengið á 16 ára starfs-
ferli.
Astæðurnar fyrir þvi að
hann vildi opna þessi bréf væru
þær að þegar starfsfólk fer t.d. i
sumarfri kæmu oft bréf stiluð til
þess sem vöröuðu rekstur hótels-
ins og yrði hann þvi að opna slik
bréf.
Vildi hann með þessu
ákvæði beina þvi til fólks að
einkabréf væri ekki stiluð á hótel-
ið. Kvaðst hann ekki hafa hugleitt
lagalega hlið málsins.
Ekki mun ótitt að fólk fái bréf á
vinnustað þegar sendandi veit
ekki eða man ekki heimilisfang
og mun þetta ekki sist eiga við um Verður þvi þessi ráðstöfun að
starfsfólk hótela sem oft eignast teljast hæpin enda er hún ólögleg.
kunningja i hópi viðskiptavina. -GFr.
30 barnaleikrit i samkeppni Ríkisútvarpsins:
— ...................../... ........
Ekkert verdlaunahæft
Alls bárust 30 handrit I sam-
keppni Rikisútvarpsins um
barnaleikrit, 16 fyrir hljóðvarp og
14 fyrir sjónvarp. Dómnefndin
komst að þeirri einróma niður-
stöðu að ekkert leikritanna væri
verðlaunahæft.
Rikisútvarpið efndi til þessarar
samkeppni um barnaleikrit til
flutnings i hljóðvarpi og sjónvarpi
itilefniafári barnsins 1979. Skila-
frestur var til 1. ágúst sl. Þrenn
verðlaun voru i boði fyrir hljóð-
varpsleikrit og jafn mörg fyrir
sjónvarpsleikrit.
I fimm manna dómnefnd, sem
útvarpsráð skipaði, áttu sæti Elin
G. ólafsdóttir kennari, Gunnar
Stefánsson bókmenntaráðu-
nautur, Hallveig Thorlacius
skjalaþýðandi, Kristín Unn-
steinsdóttir bókavörður og Stein-
dór Hjörleifsson leikari. —eös
Kosningaútvarp á stuttbylgju
Fjarskiptastöðin í Gufunesi hefur nú valið fleiri bylgjulengdir fyrir
kosningaútvarp á stuttbylgju. Aður var búið að tilkynna að kosningaút-
varpiö yröi sent út á 12175 kHz (24.6 metrar). Auk þess verða eftir-
galdar bylgjulengdir notaðar:
7657 kHz (39.18 metrar)
9115 kHz (32.19 metrar)
13950 kHz (21.50 metrar) sérstaklega til U.S.A.)
Stuttbylgjuútvarpið hefst klukkan 19.00 gmt. mánudaginn 3. desem-
ber en kosningaútvarp hefst ekki fyrr en klukkan 23.00 um kvöldið og
verður haldið áfram um nóttina og fram á þriðjudag eftir þvi sem
ástæða þykir til.
Við alþingiskosningarnar 1978 heyrðist kosningaútvarpið viða um
Evrópu á stuttbylgju. Nauðsynlegt er að hafa góð tæki og loftnet til þess
að ná útsendingunni.