Þjóðviljinn - 16.01.1980, Page 1

Þjóðviljinn - 16.01.1980, Page 1
MOÐVIUINN Miðvikudagur 16. janúar 1980 —12. tbl. 45. árg. Nýju framtals- eyðublöðln Sjá 7. síðu VINSTRI VIÐ R F.Ð l! R •Fyrri hluti tillagna Alþýðubandalagsins lagðar fram á morgun Svavar Gestsson ræðir við dr. Kristján Gidjárn forseta tslands f Stjórnarráðshúsinu í gær. gel). (Ljósm. 55 55 Geng rösklega til verks r sagöi Svavar Gestsson eftir aö forseti Islands haföi faliö honum stjórnarmyndun í gœr Forseti islands fól I gær Svav- ari Gestssyni alþingismanni um- boð til myndunar meirihluta- stjórnar, en í gærmorgun hafði Lúðvik Jósepsson formaður Al- þýðubandalagsins tekið við um- boðinu fyrir hönd flokksins. „Við ræddum almennt um stöð- una i stjórnarmyndunarmálunum ogþá möguleika sem uppi væru,” sagði Svavar er hann kom af fundi forseta tslands kl. 16 i gær. „Ég lagði á það áherslu að við hefðum allvel unnar tillögur til að ræða og kynna flokkunum á næstu dögum. Ég mun reyna að ganga rösklega til verks.” Svavar sagði að Alþýðubanda- lagsmenn legðu megináherslu á að hinir flokkarnir tækju afstöðu til efnahagstillagna flokksins, sem byggjast á þvi að ná verð- bólgunni niður án þess að til kjaraskerðingar komi. Umrœöuefnin skýr „Ég geri ráð fyrir að hinir flokkarriir þurfi ekki mjög langan tima til. að átta sig á efnahagstil- lögum okkar,” sagði Svavar. „Ég mun ekki framlengja þessa stjórnarkreppu með þvi að draga þetta á langinn. Ég tel að um- ræðuefnin séu skýr, þannig að menn geti verið fljótir að átta sig á þeim .” Um möguleika á myndun vinstri stjórnarsagðihann, að sér væri skylt að kanna hvort eitt- hvað hafi breyst síðan Steingrim- ur Hermannsson gafst upp á slikri stjórnarmyndun. Svavar sagðist myndi leggja á það áherslu að ná málefnalegri sam- stöðu um ákveðin grundvallarat- riði. Sævar baö vitni um aö breyta framburði „Það hefur orðið að ráði að ég óski eftir fundi með þeim Bene- dikt Gröndal formanni Alþýðu- flokksins og Steingrimi Her- mannssyni formanni Framsókn- arflokksins til þess að fjalla um vinstri stjórnar viðræður og til- högun þeirra sfðdegis á morgun”, sagði Svavar Gcstsson alþingis- maður að loknum siðari þing- flokksfundi Alþýðubandalagsins I gær. „Á fimmtudag (á morgun) á ég svo von á þvi að viðræðu- nefndir flokkanna þriggja hittist og á þeim fundi munum við Al- þýðubandalagsmenn Icggja fram fyrri hluta tillögugerðar okkar sem fjallar um fyrstu aðgerðir til þess að draga úr verðbólgu og þriggja ára áætlun um efnahags- stjórn I landinu.” Kallað eftir mati Svavar Gestsson sagði aö það væri ætlun Alþýðubandalagsins að kalla fyrst eftir mati Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks á þessum hluta tillagnanna, enda væru möguleikar á samkomulagi á þessu sviði forsenda þess að hægt væri að hefja viðræður um aðra málaflokka. Á siðara stigi myndi Alþýðubandalagið leggja fram seinni hluta tillögugerðar- innar, þar sem fjallað væri um ýmsa aðra málaflokka. Kynntar Sjálfstæðisf lokki Aðspurður sagði Svavar að það væru ætlun sin að senda Sjálf- stæðisflokknum einnig tillögur Alþýðubandalagsins tilkynningar en á þessu stigi væri ekkert á- kveðið annað en viðræður um vinstri stjórn. Það væri svo á- kvörðun þingflokksins hvernig við yrði brugðist ef upp úr þeim slitnaði, en Alþýðubandalagið hygðist hraða þvi eftir föngum að fá niðurstöðu i stjórnarmyndun- artilraun sina. Niðurfærsla Svavar sagði að lokum að meg- inhugmyndin i tillögum Alþýðu- bandalagsins væri niðurfærsla verðlags og kostnaðar i atvinnu- starfsemi og i þeirri baráttu sem nauðsynleg væri til þess að lækka verðbólgustigið verulega á árinu þyrftu allir að leggja nokkuö af mörkum, hið opinbera, atvinnu- fyrirtækin og best setta launa- Framhald á bls. 13 Þórður Björnsson, rfkissak- sóknari,hélt I gær áfram sóknar- ræðu sinni i Guðmundarmálinu, en i dag mun hann hefja sóknar- ræðu sina i Geirfinnsmálinu. Undir lok ræðu rfkissaksóknara i Guðmundarmálinu f gær, má segja að hann hafi varpað fram sprengju i málinu. Hann skýrði þá frá þvi, að Helga Gisladóttir sem var vitni i Guömundarmálinu á sinum tima hafi sl. föstudag komið fyrir dóm i Sakadómi Reykjavikur og skýrt svo frá að hún hafi fengið skilaboð ■ frá Sævari Ciecielski með Andreu Þórðardóttur um að Helga skrifaði sér bréf og segði það að hann hefði dvalið hjá henni alla nóttina, þegar Guðmundi Einars- syni var ráðinn bani. Og eins að hún breytti fyrri framburði sinum fyrir dómi og héldi þá þessu fram. Andrea Þórðardóttir hefur viður- kennt að hafa flutt Helgu þessi boð. AðurhafiSævarskrifað Helgu bréf og beðið hana að koma I heimsókn til sin i fangelsið, en hún rifið bréfið og ekki viljað hitta hann. En svo, eins og áður segir, hafi Andrea Þórðardóttir komið með þessi skilaboð til hennar frá Sævari. Helga neitar að breyta fyrri framburði sinum. Helga Gisladóttir er mikilsvert vitni i Guðmundarmálinu. Hún var starfsmaður á Kópavogshæl- inu i ársbyrjun 1974. Og hjá henni svaf Sævar nokkrar nætur. Og nóttina sem Guðmundi var ráðinn bani var Sævar hjá henni fram til kl. 2.00 um nóttina, að hann tók leigubil suður i Hafnarfjörð, eftir að Kristján Viðar og fleiri höfðu komið til hans fyrr um kvöldið. Helga bar vitni, að Sævar hefði verið hjá sér fram til kl. 2.00. Sævar bar það einnig fyrst i stað, en siðan hefur hann neitað allri þátttöku i Guðmundarmálinu, dregið framburð sinn til baka og vantar nú fjarvistarsönnun. Þess vegna er hann nú að biðja Helgu um að breyta fyrri framburði. Þá skýrði Helga frá þvl fyrir dómi sl. föstudag að hún hafi eftir að hún fékk skilaboðin frá Sævari farið I veitingahúsið Klúbbinn og þegar hún kom þangað hafi veist að henni alls- konar fólk, sem hún ekki þekkti og hafi það haft i hótunum við hana ef hún ekki breytti fram- burði sinum. Var henni hótað að • Andrea Þórdardöttir bar þessi skilaboð á milli • Fólk í Klúbbnum hafði í hótunum viö vitnid barn hennar yrði fyrir meiðslum og eins var hún spurð að þvi hvort hún byggi ekki i timburhúsi og er þar greinilega um Ikveikjuhótun að ræða. Við þessar nýju upplýsingar sem rikissaksóknari skýröi frá i gær vakna spurningar: Eru ákærðir i Guðmundar og Geir- Framhald á bls. 13 ■Ekkert 1 gerst í málinu ennþá? 1 nóvember sl. greindi Þjóðviljinn frá aukinni ryk- mengun i Sementsverk- smiöjunni á Akranesi og birgðastöðinni viö Sæviðar- sund af völdum kisilryks frá Grundartanga, sem blandað er I sementið. Höfðu starfs- menn m.a. kvartað um út- brot, kláða og ertingu frá öndunarvegum. Hrafn Friðriksson for- stöðumaður Heilbrigðiseftir- lits rikisins skrifaði heil- brigðisráðherra bréf 16. nóvember 1979 og skýrði honum frá þeim aðgerðum sem nauðsynlegar væru vegna hinnar auknu ryk- mengunar. 1 bréfinu hvatti hann einnig til þess að komið yrði upp rannsóknastofu á Akranesi hið bráðasta vegna nauðsynlegrar heilbr'igðis- þjónustu og skoðunar ýmissa starfshópa I héraðinu. 1 héraðinu er stóriðja, sementsverksmiðja og málmblendiverksmiðja, og einnig talsverður málmiðn- aður auk allra bændanna i sveitum Borgarfjaröar, sem þurfa reglubundna læknis- koðun vegna heymæði og skyldra sjúkdóma. „Það er mikill áhugi á þvi að komið verði upp sameig- inlegri rannsóknaraöstöðu, sem yrði staðsett á sjúkra- húsinu á Akranesi,” sagði Hrafn Friðriksson er Þjóð- viljinn spurði hann i gær hvort eitthvað hefði þokast i þessum málum. „Guðmund- ur Árnason yfirlæknir hefur beitt sér fyrir þvi og ég held að sjúkrahússstjórnin sé þvi liká hlynnt.” Hrafn sagðist einnig vita til þess, að forráðamenn Sementsverksmiðjunnar væru þessu hlynntir, en sagðist ekki vita um afstöðu forsvarsmanna Járnblendi- verksmiðjunnar. „í þessu héraði er tölu- verður stóriðnaður, sem krefst þess að viðhafðar séu sértakar og fullnægjandi eftirlitsrannsóknir á starfs- fólkinu,” sagði Hrafn. Hann sagðist hafa visað kvörtunum starfsmanna i birgðastöðinni við Sæviöar- sund til Heilbrigðisnefndar Reykjavikur til frekari ákvörðunar og sagði að sér væri ekki kunnugt um hvað borgarlæknisembættiö heföi gert i þvi máli. „Ég hef ekki fengiö nein svör við þvi erindi,” sagði Hrafn Frið- riksson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.