Þjóðviljinn - 24.01.1980, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. janúar 1980
Eimskipafélagið:
Aukin svart-
olíunotkun
Þeim Einskipafélagsskipum
fer nú smátt og smátt fjölgandi,
sem brenna svartoliu. Fjögur
skip félagsins hafa raunar alltaf
brennt svartoliu þ.e. Goöafoss,
Dettifoss, Mánafoss og Bakka-
foss. En nú stendur til aö bæta
öörum fjórum viö i svartoliuflot-
ann, aö þvi er segir I fréttabréfi
Eimskipafélagsins. Veröur sú
breyting, sem gera þarf á
skipunum, framkvæmd af
Alpha-Diesel í Frederikshavn i
Danmörku.
Þessi fjögur skip eru: Laxfoss,
en byrjaö var aö breyta.honum 7.
þ.m., Háafossi verður breytt um
miðjan febrúar, Lagarfossi um
miöjan mars og Fjallfossi um
miðjan apríl. Þá er og verið að at-
huga möguleika á að breyta Ala-
fossi, Úðafossi, Grundarfossi,
Urriðafossi og Tungufossi en ekki
hefúr enn verið tekin fullnaðar-
ákvörðun um hvort horfiö verður
að breytingunni. Fimm skip
félagsins brenna Marinediesel-
oliu: Brúarfoss, Reykjafoss, Sel-
foss, Skógafoss og Stuðlafoss.
önnur skip félagsins braina gas-
oliu.
Reiknað er með þvi að heildar-
oliuneysla skipa Eimskipafélags-
ins áriö 1980 verðium 38.600 tonn.
Miðað við núgildandi verð og sigl-
inar skipanna er heildarverö
þeirrar oliu samtals 11,2 milj.
Bandarikjadala.
Talsverðu munar á oliuverði í
einstacum höfnum. Yfirleitt er
það lægst i Bandarikjunum, til-
tölulega lágt i Bretlandi og á
meginlandi Evrópu en hæst I
Danmörku.
Reikult verö á oliutegundum
veldur erfiðleikum á aö fullyröa
nákvæmlega um ávinning af
afráðnum og fyrirhuguðum
bfeytingum á skipunum. En
miðað við svart- og gasoliuverð
nú I októberlok og áætlaöan
kostnað vegna breytinga á skip-
unum þá má ætla að um eitt ár
taki að vinna upp kostnað við þær
breytingar, sem nú fara fram á
Laxfossi. —mhg
Skagfirðingar stofna
Iðnþróunarfélag
Stofnaö hefur veriö Iön-
þróunarfélag Skagafjaröar, sem
ersameignarfélagmeö heimili og
varnarþing á Sauöárkróki, en
starfssvæði þess er Skagafjaröar-
héraö.
Stofnfundur var 14. des. sl. og
stofnendur eru Skagafjarðar-
sýsla, Sauðárkrókskaupstaður,
Kaupfélag Skagfirðinga og
Búnaðarsamband Skagfirðinga.
Tilgangur Iðnþróunarfélagsins er
að efla iönaö á félagssvæöinu og
veita til þess stuðning einstak-
lingum og fyrirtækjum svo sem
kostur er. Eru miklar vonir
bundnar við væntanlega starf-
semi félagsins.
Stofnun Iönþróunarfélags
Skagfirðinga á sér nokkurn
aödraganda. Mun hugmyndinni
fyrsthafa verið hreyftá aöalfundi
Kaupfélag Skagfirðinga fyrir 1-2
árum. Gerð voru drög að sam-
þykktum fyrir félagiö sem siðan
voru send út i sveitarfélögin til
athugunar og umræöu þar. Kom
þá m.a. til álita hvort hrepps-
félögin ættu, hvert fyrir sig, aö
vera aðilar að félaginu ef af
stofnun þess yrði eða sýslan sem
heild og þá sem einskonar sam-
nefnari fyrir hreppana. Varð
siöarnefnda f yrirkomulagið
ofaná.
Stjórn Iönþróunarfélags Skaga-
fjaröar skipa: Jón Guðmundsson,
Oslandi, formaöur, Egill Bjarna-
son, Sauðárkróki, varaformaður,
Pálmi Jónsson, Sauðárkróki,
gjaldkeri, Guðrún L. Asgeirs-
dóttir, Mælifelli, ritari, Jóhann
Salberg Guðmundsson, sýslu-
maður Sauöárkróki, Hallgrimur
Ingólfsson, Sauöárkróki og
Konráð Gislason, Frostastöðum,
meðstjórnendur.
—mhg
„GJAFIR ERU
YÐUR GEFNAR”
Rlkisstjórnin okkar blessuð cr
heldur betur I þumlinum viö
bændastéttina, eins oghennar var
von og visa. Hún hefur nú sent
mjólkurframleiöendum reikning
upp á 865 milj. kr. og viröist
,,lengi mega bæta pinkli á gömlu
Skjónu”.
Þegar.verð breyttist siðast á
búvörum neitaði rikisstjórnin
mjólkursam lögunum um að
hækka söluverö mjólkurvara sem
nam auknum vinnslu- og dreif-
ingarkostnaði og hærra umbúða-
verði. Sé miöaö við heilt ár þá
nemur sá kostnaöur, sem
mjólkurframleiðendur verða aö
taka á sinar herðar vegna þess-
arar synjunar rikisstjórnarinnar
865 milj. kr.
„Gjafir eru yður gefnar...”
—mhg,
Póstkort og
málverk á
Sudurgötu 7
Helgi Þ. Friöjónsson opnar I
kvöld sýningu I Gelleríinu Suöur-
götu 7 og veröur hdn opin til 4.
febrúar. Helgi sýnir nd málverk
unnin uppúr skissubókum og
einnig 16 mynda póstkortaseriu,
sem gefin hefur veriö út I 200 ein-
tökum.
Helgi stundaöi nám i Mynd-
lista- og handiðaskólanum og
slöan i Frjálsu akademiunni i
Haag og Jan van Eyck akademi-
unni I Maastricht. Þetta er
fimmta einkasýning hans, en auk
þess hefur hann tekið þátt I fjölda
samsýninga bæöi hérlendis og
erlendis. Sýningin er opin kl. 6-10
helga daga og 2-10 virka daga.
Frá v.: Mark Reedman, Guöný Guömundsdóttir, Heiga Þórarinsdóttir, Carmel Russill. Mynd: -eik
Myrkir músíkdagar:
Óma áfram í þögninní
Fjóröu tónleikar Myrkra
músikdaga veröa á Kjarvalsstöö-
um annaö kvöld og hefjast kl.
20.30. Eru þeta kvartetttónleikar
en kvartettinn skipa fiðluleikar-
arnir Guöný Guömundsdóttir og
Mark Reedman, Helga Þórarins-
dóttir, lágfiöla og Carmel Russ
ill, celló. Kvártettinn flytur eftir-
talin verk: Hasselby-kvartett
eftir Þorkel Si gurbjörnsson,
Movement, eftir Hjálmar Ragn-
arsson, kvartett, eftir Snorra Sig-
fús Birgisson og Kvartett nr. 15,
op. 144, eftir Dimitri Sjosta-
kóvitsj.
Þorkell Sigurbjörnsson samdi
Hasselby-kvartettinn að beiöni
menningarmiðstöðvar norrænu
höfuöborganna i Hasselby 1968.
Mottó verksins eru tónarnir
h.a,e,es,b. Kvartett Þorkels er
eitt af öndvegisverkum islenskr-
ar kammertónlistar, hefur viöa
heyrst og er til á plötu en hefur
ekki verið flutt hér nýlega.
Hjálmar Helgi Ragnarsson
stundaði tónlistarnám við Tólist-
arskóla Isafjarðar og i Reykja-
vik, Institut voor Sonologia i
Utrecht og tók nýlega
„master’s” próf frá Cornell-ná
skóla i New York. Movement var
samið sumarið 1976 og frumflutt
á Tónlistardögum norræns
æskufólks i Reykjavik árið eftir
og á Norrænum músikdögum i
Stokkhólmi 1978. „Verkið ein-
kennist af tilraun til aö semja ein-
falda tónlist úr flóknu efni. Allt
verkið er i 5/4 takti og er reist á
tónarööun,; sem þó eru ekki
12-tóna raðir. Verkið er i boga-
formi, (A-B-A)”. Fjórir söngvar,
eftir Hjálmar við ljóð Stefáns
Harðar Grlmssonar veröa fluttir
á tónlistarhátið i Israel i sumar.
Snorri Sigfús Birgisson samdi
Strengjakvartettinn árið 1977 og
var hann frumfluttur i Amster-
dam árið eftir. Verkið er i einum
þætti, sem skiptist i andstæða,
(hæga og þunga, hraða og létta)
hluta. Akveöin hljóðfallsmynstur
deilast sifellt milli hljóðfæranna
yfir samstæðum hljómasam-
böndum. Þetta er frumflutningur
kvartettsins hér á landi.
Tónleikunum lýkurmeö einu af
seinustu verkum, — (trúlega hið
næst seinasta), —hins mikla rúss-
neska tónskálds, Dimitri Sjosta-
kóvi'ts, 15. kvartett hans, sem
hann samdi i des. 1974. Allir þeir,
sem til þekkja, eru á einu máli
um aö list Sjostakovits hafi risið
hæst I seinustu verkum hans.
Kvartettinn er nú fluttur i fyrsta
sinn á íslandiog er það mikill tón-
listarviðburöur. Allir þættirnir
sex bera hraöafyrirmælin
„Adagio” og einu verulegu hrööu
upphlaupin eru i lokaþættinum.
Þaö er illa gert aö tefja önnum
kafiöfólk. Og þógátum við Einar
ljósmyndari ekki stillt okkur um
það, að skjótast á æfingu hjá
kvartettinum hennar Guðnýjar á
Sjafnargötu 11. En við lofuðum
þvi að standa stutt við, enda
skílðist okkur að von væri á
frekari truflunum af
blaðamönnum, þvi „allar erum
vér syndugar, systur”, á viö um
þá stétt.
Guðný Guömundsdóttir sagði
okkur að hún hefði stundað nám i
fiöluleik við Tónlistarskólann i
Reykjavik en hvarf siðan til
framhaldsnáms erlendis i 7 ár, 6 i
Ameriku og 11 London. Auknáms
ífiðluleiklagði Guðný sig eftir al-
mennri músikmenntun og kom
heim með tvær háskólagráður i
pokahorninu. Siðan hefur hún
leikið með Sinfóniuhljómsveitinni
og er þar konsertmeistari. Hún
hefur og haldið sjálfstæða tón-
leika hér inúanlands og farið út i
tónleikaferðir nokkrum sinnum á
ári. Og nú erhún nýkomin úr einu
sliku ferðalagi frá Israel. Var sú
för farin fyrir tilstilli Ninu
Fleyer, en þær Guðný unnu sam
an úti i Ameriku. Nina kom svo
hingaö til lands aö áeggjan
Guðnýjar og launaði henni siðan
Sinfónian i kvöld:
Gert er ráö fyrir, aö enn fleiri
nemendur frá fleiri skólum en i
fyrra taki á þessu ári þátt i
keppninni „Skólaskák”, sem nú
er aö fara af stað öðru sinni. t
fyrra tóku þátt i skákinni 3770
nemendur frá 166 skólum og
haldin voru 293 mót áöur en úrslit
réöust á veglegu landsmóti að
Kirkjubæjarklaustri.
Skólaskákin felst i
samræmdum skákmótum i öllum
grunnskólum landsinsog er keppt
1 eldri og yngri flokki. Skóla-
mótunum á að vera lokið fýrir 1.
mars og keppa siðan sigur-
vegarar skólanna á sýslu- og
kaupstaðamótum i mars, en að
þeim loknum eigast sigurvegarar
„lambið gráa” með þvi að fá
hana til tsrael, þar sem þær stöll-
ur héldu sameiginlega tónleika i
Jerúsalem. „Okkur var ákaflega
vel tekiö. Mér var boðið að koma
aftur til Israel og ég hef fullan
hug á þvi”, sagði Guðný.
Helga Þórarinsdóttir nam lág-
fiöluleik við Tónlistarskólann i
Reykjavik en fór svo út til fram-
haldsnáms 1973, fyrst til Eng-
lands en siðan til Boston i Banda-
rikjunum, þar sem hún er nú við
nám. Hún hyggur innan skamms
til utanferðar á ný og sagðist
sjálfsagt heföi verið farin nú ef
þessir skemmtilegu Myrku
Framhald á bls. 13
sýslna og kaupstaða við á kjör-
dæmismótum. Siðasti hluti skóla-
skákarinnar, landsnrtiö, veröur
haldið i apri'l og þá keppa sigur-
vegararnir frá kjördæmis-
mótunum i báðum flokkum um
titilinn Skólaskákmeistari
Islands 1980.
Skólaskákmeistarar i f'—ra
urðu Jóhann Hjartarson i eldri
flokki og Halldór G. Einarsson frá
Bolungavik i yngri flokki.
Skólar munu njóta aðstoðar
fulltrúa Skáksambandsins og
aðildarfélaga þess i einstökum
sýslum og kaupstöðum og munu
þeir veita alla þá aðstoð sem
óskað kann að verða eftir.
-vh.
Mozart, Smetana
og Tsjaíkovský
Ursula Fassbind Ingólfsson
leikur pianókonsert Mozarts KV
537 á tónleikum Sinfóniuhljóm-
sveitarinnar f kvöld, en hún er nú
á förum til tónleikahalds i Þýska-
landi og Sviss.
Ursula er fædd i Sviss og
menntuð þar, i Austurriki og I
Bandarikjunum. Hún hefur oft
áður leikið meö hljómsveitinni og
s.l. 6 ár kennt pianóleik við Tón-
listarskólann i Reykjavik, auk
þess sem hún hefur samið erindi i
útvarpið um tónverk og oft leikið
bæði i svissneska útvarpið og það
islenska. Undanfarin ár hefur
Ursula leikið Goldberg tilbrigði
Bachs hér á landi, i Hollandi og i
Sviss.
önnur verk á efnisskrá Sin-
fóniusveitarinnar I kvöld eru
Moldá Smetanas og 6. sinfónia
Tsjaikovskýs. Hljómsveitarstjóri , —.. .......
er Urs Schneider frá Sviss, við- siöustu á fyrra misseri starfs-
kunnur stjórnandi, sem starfað ársins 1979-1980. ,vh.
Stærsta skákmót landsins?
Skólaskákin
fer af stað
Leikur pianókonsert Mozarts:
Ursula Fassbind Ingólfsson.
hefur viða um heim með virtustu
hljómsveitum, en þetta er i
fyrsta sinn sem hann stjórnar
hér.
TAMlnilz ornir í Izíí Klzl nm. Li ni r