Þjóðviljinn - 25.01.1980, Síða 6

Þjóðviljinn - 25.01.1980, Síða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. janúar 1980 Járniðnaðarmeiui Óskum eftir að ráða plötusmiði, rafsuðu- menn og menn vana járniðnaði. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Asparfelli 12 Óskað er eftir konu til að sjá um heimili fyrir ekkjumann, með 2 börn á skólaaldri. Aðhlynning barna mikilvægasti þáttur starfsins. Upplýsingar gefnar i sima 74544 fyrir hádegi. Blaðbera vantar VESTURBORG: Fálkagata — Lynghagi (strax!) Einarsnes — Skildinga nes (stra x!) Góð laun. Hafið samband við af- greiðsluna. DJOÐVIUINN Síðumúla 6/ simi 81333. Raudsokkahátídin Frá morgni til kvölds veröur laugardaginn 26.' Miöasala viö innganginn. janúar Verö kr. 1500 fyrir daginn, I Tónabæ kl. 10-18 kr. 2000 fyrir balliö i Fáksheimilinu kl. 21-03 Barnagæsla um daginn I V Tónabæ. A dagskrá veröur leikrit, upplestur, söngur, sprell. Rauðsokkahreyfingin MINNINGARORÐ: Vigfus Vigfósson F. 23.3. 1917 - D. 16.12. 1979 Föðurbróðir minn, Vigfús Vig- fússon, er fallinn i valinn langt fyrir aldur fram. Vigfús varð bráðkvaddur sunnudaginn 16. des. s.l. og fór útför hans fram 27. s.m. i kyrrþeyað viðstöddum nán- ustu ættingum, svo sem hann hafði sjálfur óskað. Vigfús var aðeins 62ja ára er hann lést. Hann hafði kennt vax- andi lasleika um nokkurra ára skeiðog fór heilsu hans hnignandi I seinni tið. I haust fékk hann úr- skurð læknis um að hann gengi með æðaþrengsli við hjarta og þyrfti þvi að gæta varúðar. Samt kom hið skyndilega fráfall hans mjög á óvart, þótt sjálfur muni hann hafa fundið að hverju fór. Mig langar til að minnast þessa frænda mins og gdða vinar með örfáum kveðjuorðum. Vigfúsvar fæddur að Hrisnesi á Barðaströnd 23. mars 1917. Var hann elstur tiu systkina, barna hjónanna Vigfúsar Vigfússonar bónda i Hrisnesi og Guðbjargar Guðmundsdtíttur. Vigfús eldri hóf búskap I Hrisnesi 1913 og bjó þar til dauðadags 1940, en Guðbjörg bjó þar nokkrum árum lengur með aðstoð barna sinna og þá ekki sist VigfUsar. Arið 1947 flutti Guðbjörg amma min svo til Reykjavikur og dvaldi þar eftir það i skjóli barna sinna; bjó hún lengst af með dóttur sinni Þuriði, gjaldkera Sparisjóðsins Pundið. Amma lést árið 1974 og var þá nær 82 ára að aldri. Vigfús átti sína barnæsku og æskuár i Hrisnesi i hópi foreldra og systkina. Hann vandist snemma allri algengri vinnu við bUskaparstörf og reyndist strax velvirkur og dugmikill. Hann stundaði einnig sjóinn þegar hann hafði aldur til og var þá m.a. á togurum frá Patreksfirði. Eftir að faðir hans lést 1940 varð hann aðal fyrirvinna búsins i Hrisnesi. Siðar lá leiðin til Reykjavlkur. Gerðist hann þá starfsmaður I Velsmiðjunni Hamri og siðar i Vélsmiðjunni Héðni. Fljótlega hóf hann nám i Iðnskólanum i vél- virkjun og lauk prófi i þeirri iðn- grein. Starfaði hann i Héðni að námi loknu i mörg ár en siðan um tima hjá Islenska álfélaginu og Landssmiðjunni. Þegar halla tók undan með heilsu gerðist VigfUs starfemaður sundlaugar Breiöa- gerðisskóla og vann þar til hinstu stundar. Kunni hann þvi starfi vel og gegndi þvi af stakri alúö og samviskusemi. Var hann þar sem annars staðar mjög vel látinn af sinu samstarfsfólki, enda prúður maður og sérstaklega þægilegur i viðkynningu og umgengni. Vigfús frændi minn var ham- ingjumaður i sinu einkallfi, Árið 1949 kvæntist hann Kristínu Sveinsdóttur, frá Torfalæk i Aust- ur-HUnavatnssýslu, greindri og ágætri konu sem nú harmar ó- timabært fráfallhans. Þau Vigfús og Kristin skópu fjölskyldu sinni snoturt og friðsælt heimili þar sem reglusemi og góður andi rikti i öndvegi. Hjónaband þeirra Vig- fúsar og Kristinar var farsælt og þau bjuggu við mikiö barnalán. Þau eignuðust þrjá syni sem allir eru nU uppkomnir og miklir efnis- menn. Þeir eru: Guðmundur, doktor i stæröfræði og háskóla- kennari i Miami í Flórída I Bandarikjunum, kvæntur banda- riskri konu, Robin Kluger; Frey- steinn, húsasmiður, kvæntur önnu Báru Pétursdóttur, fóstru, og Vigfús Óðinn, sem enn er i heimahúsum og stundar nám I Menntaskólanum i Reykjavik. Ekki var Vigfús frændi minn mikill umsvifamaöur i félagsleg- um efnum. Alla tið helgaði hann krafta sina nær óskipta heimiii og fjölskyldu. Hann haföi eigi að siö- ur sinar ákveðnu skoöanir á vandamálum samfélagsins og fór. aldrei dult með þær. Samúð hans var öll með þeim sem minna máttu sin og halloka fóru I li'fs- baráttunni. Hann var jafnan traustur stuðningsmaður sósial- iskra viðhorfa og fylgdi Sósial- istaflokknum og siðar Alþýöu- bandalaginu að málum. Vigfús las talsvert i fristundum sinum og aflaði sér þannig auk- innar viðsýni og þekkingar. Hann hafði ekki sist mikla ánægju af ljóðum og hélt einkum upp á Stephan G. og Einar Benedikts- son. Hann hafði lagt svo fyrir að ljóð eftir þá Stephan og Einar skyldu sungin við útför hans og fataðist ekki smekkvisi i þvi vali. Viðsýni og fegurð æskustöðv- anna við Breiðafjörð áttu alla tið ósvikin Itök i Vigfúsi. Enda er Barðaströndin falleg sveit og að- laðandi, ekki sist á björtum og fögrum sumardögum þegar Breiðafjörðurinn blasir við aug- um spegilsléttur með allan sinn eyjafjölda og Kirkjufellið og Snæ- fellsjökullinn i suðri. Frændi minn fór oft i sumarleyfum sinum i heimsókn til æskustöðvanna, fann að máli gamla vini og kunn- ingja, og voru þá rifjaðar upp gamlar minningar og liðin tið. Tók hann sér þá gjarna langar gönguferðir um þær slóðir sem honum voru nátengdastar og kærastar frá bernsku og æsku- dögum. Þannig hélt hann tengsl- unum órofnum við upphaf sitt og sleit aldrei þær rætur sem þar lágudjúpt i jarðvegi minninga og sögu. Þótt Vigfús væri að eðlisfari fremur hlédrægur gat hann jafn- an glaðst með glöðum og naut sin vel i hópi vina og ættingja. Hann bjó yfir græskulausri og léttri kimniengætti þessávallt að stilla ölllu sliku I hóf, minnugur þess „að aðgát skal höfð i nærveru sál- ar”. Hann var einlægur unnandi islenskrar náttúru og hafði mikið yndiaf aðbregða sér Ut fyrir þétt- býlið þangað sem frelsi viðátt- unnar naut sin. Hann hafði á- nægju af veiðiskap og brá sér flest eða öll sumur oftar en einu sinni að vatni eða á með silungs- stöng sina. Þá stundaði hann nokkuð rjúpnaveiðar hér i ná- grenni borgarinnar og var i' slik- um hugleiðingum þegar kallið mikla kom þann 16. des. sl. Enda þótt sárastur söknuður sé nú kveðinn að Kristinu og fjöl- skyldu hennar er fráfall VigfUsar einnig harmsefni öllum systkin- um hans og öðrum nánum ætt- ingjum. En huggun er að með honum er vænn og vammlaus drengur genginn, sem skilaði ævistarfi sinu með sóma. Ég og fjölskylda min vottum Kristinu, sonum hennar og tengdadætrum innilegustu samUð og biðjum þeim styrks og bless- unar. — Blessuð sé minning Vig- fúsar VigfUssonar. Hrafnhildur Guðmundsdóttir. II? SAMKEPPNI um húsagerðir á Eiðsgranda Reykjavikurborg efnir til samkeppni um ibúðarhúsagerðir á Eiðsgranda, skv. samkeppnisreglum Arkitektafélags íslands og útboðslýsingu Heimild til þátttöku hafa allir þeir, sem rétt hafa til að leggja uppdrætti af húsum fyrir Byggingarnefnd Reykjavikur, að undaskildum dómnefndarmönnum og þeim sem sitja sem aðalmenn i Skipulags- nefnd Reykjavikur. Keppnisgögn fást afhent gegn kr. 10.000.- gjaldi hjá trúnaðarmanni dómnefndar, Ölafi Jenssyni, framkvæmdastjóra, Byggingarþjónustunnar, Hallveigarstig 1, Reykjavik. Tillögum skal skila til trúnaðarmanns dómnefndar eigi siðar en 1. april n.k. kl. 18.00. Fh dómnefndar, ÞórðurÞ.Þorbjarnarson, formaður. íbúð óskast Litil ibúð óskast til leigu. Upplýsingar gefur auglýsingadeild Þjóðviljans, simi 81333.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.