Þjóðviljinn - 25.01.1980, Page 8

Þjóðviljinn - 25.01.1980, Page 8
8 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 25. janúar 1980 „J árnblendifélagiö gerír þær mælingar sem það telur nauðsynlegar.. Það bar vel í veiði okkar Þjóðviljamanna er við stöldruðum við dagsstund í járnblendiverksmiðjunni að Grundartanga fyrir skömmu. Þann dag var nefnilega fundur í trúnað- armannaráði verksmiðj- unnar og við fengum að fylgjast með honum. Þetta er sjö manna ráð/ sem heldur fundi mánaðarlega að jafnaði. Fræðslu- og menningarsjóður Margt bar á góma á þessum fundi, sem Kjartan Gubmunds- son formaður ráðsins stjórnaði af röggsemi. Meðal annars kom fram, að hugmyndir um fræðslu- og menningarsjóð starfsmanna hafa verið lagðar fyrir Jón Sig- urðsson forstjóra. Við komumst að raun um það, að samkomulag um vaktafyrir- komulag hjá flutningadeild fyrir- tækisins hefur verið endurnýjað og að tekist hefur samkomulag viö dagmenn i ofndeild um nokk- urskonar vaktafyrirkomulag. Þeir vinna á laugardögum með vaktaálagi og eiga fri annan virkan dag i, staöinn. Formaður trúnaðarmanna- ráðsins minnti á að aðalkjara- samningur væriútrunninn 1. júni nk. og sagði að timabært væri aö menn færu aö fara yfir samning- ana og trúnaöarmenn að skrá hjá sér þær breytingar sem ósk- að væri eftir á samningunum. Þetta yrði aö gera timanlega hver komi með sinar hugmyndir og þær verði síðan ræddar sam- eiginlega. Jafnframt tók formaðurinn fram, aö ef einhver jar verulegar breytingar yröu á samningum á almennum markaöi, væru upp- sagnarákvæði i samningum starfsmanna verksmiðjunnar. Or vélsmiðju járnblendifélagsins Mengunarrannsóknir Hinn 12. nóvember i fyrra kom maður frá Elkem-Spiger- verket í Noregi til að annars ryk- og mengunarmælingar i verksmiöjunni. Hann dvaldist þar viö þessar athuganir I tvær vikur, en engin skýrsla hefur komið um niöurstöður þeirra enn. Þessi seinagangur var nokkuö gagnrýndur á fundinum. „Úrbætur dragast stundum lengur en þær þurfa aö gera og við getum sætt okkur við,” sagði Kjartan Guðmundsson þegar rætt var um þetta og ýmislegt annað, þar sem úrbóta er þörf. Baldur Magnússon trúnaöar- maður fyrir skrifstofu, lager og rannsóknastofu starfaði með norska mengunarrannsóknar- manninum og var hann spurður um niöurstöður þeirra athug- ana. Hann sagði að ekkert hefði komiö frá honum enn. Baldurtaldi framkvæmd mælinganna hafa veriö nokkuð óljósa. Ákveðinn fjöldi mælinga heföi verið gerður hjá hinum ýmsu starfshópum og virtust niðurstöðurnar fljótt á litið mjög margbreytilegar. „Okkar ábendingum ekki sinnt" Hljóðmælingar voru gerðar á stööum, sem voru fyrirfram á- kveðnar af fyrirtækinu sjálfu. „Okkar ábendingum var ekki sinnt og ekki mælt þar sem var einna brýnust þörf á mæling- um,” sagði Baldur. Hávaðamæl- ingarnar voru algerlega á veg- um fyrirtækisins sjálfs og kröfu Heilbrigðiseftirlitsins um að það gerðislikar mælingar var alger- lega visað á bug. „Viðmunum þrýsta á að þess- ar niðurstöður komi eins fljótt og mögulegt er,” sagði formaður- inn. Þær verða til afnota fyrir trúnaðarmenn og rætt var um á fundinum að þær yrðu etv. birtar i „Grundartangatiðindum,” blaði starfsmanna. Þess má geta i þessu sam- bandi, að Heilbrigðiseftirlitið sendi bréf til Járnblendifélags- ins þann 7. júni 1979, þar sem þess var krafist að komið yrði upp i verksmiðjunni nauðsynleg- um afsogsbúnaði auk annarra mengunarvarna. Þá skoruðu trúnaðarmenn og öryggistrún- aðarmenn i verksmiðjunni á for- stjóra fyrirtækisins 25. október sl. að gerðar yrðu ryk- og meng- unarmælingar innan verksmiðj- unnar. Valdsmannshroki 1 svarbréfi Jóns Sigurðssonar forstjóra kemur m.a. fram eftir- tektarverður hroki i garð Heil- brigðiseftirlitsins og dramb þess manns, sem finnst hann geta farið sinu fram og tuktað Is- lenskar eftirlitsstofnanir i krafti hins erlenda auðhrings, sem stendur að baki rekstri járn- blendiverksmiðjunnar. Þar seg- ir: „Af járnblendifélagsins hálfu hefur þess vegna verið undir- strikað, að það gerir þær mæl- ingar sem það telur nauösynleg- ar til þess að ganga úr skugga um að vinnuumhverfi' starfs- i manna sé heilnæmt, en ekki nein- ar mælingar samkv. fyrirmæl- um eða að tilhlutan Heilbrigðis- eftirlits rikisins, fyrr en Heil- brigðiseftirlitið hefur til þess einhverjar heimildir til að (svo! ) krefjast slfkra mæl- inga.” Þá vitum við það. Fyrirtækið gerir þær mælingar sem þaö tel- ur nauðsyniegar og ekkert múð- ur. Verkstjórar kynni sér samninga A fundi trúnaðarmannaráðs- ins var veriö að ræða um samn- inga og hve margir verkstjórar væru fákunnandi i þeim, skömmu áður en við neyddumst til að hverfa á brott. Menn voru sammála um að það væri mjög vanrækt, að verkstjórar kynntu sér samninga verkalýðsfélaga við járnblendifélagið, en alls munu aðildarfélög að þessum samningum vera 9 talsins. Til dæmis mun sérsamningurinn ekki vera kynntur á verkstjóra- námskeiðum. Kom fram sú hug- mynd, að trúnaðarmenn tækju verkstjóra hreinlega i skóla I samningunum og kenndu þeim fr æðin. — eös.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.